Morgunblaðið - 14.05.1991, Side 45
45
Sverrir Erlendsson var fæddur í
Reykjavík hinn 19. júní árið 1925.
Foreldrar hans voru hjónijn Anna
Ofeigsdóttir og Erlendur Árnason.
Það voru sterkir stofnar sem stóðu
að Sverri í báðar ættir, bændur og
sjósóknarar. Moðurbræður hans
voru m.a. annálaðir skipstjórnar-
menn á togurum og stórútgerðar-
menn, sem mörkuðu veruleg spor í
sögu togaraútgerðar og fiskverkun-
ar hér á landi. En undir verndar-
væng móðurfólks síns í Reykjavík
ólst Sverrir upp, því hann missti
báða foreldra sína með stuttu milli-
bili, þegar hann var aðeins 6 ára
gamall. Það var því ekki að ófyrir-
synju, að hugur hans beindist á ung-
um aldri að sjómennsku á togaraflot-
anum. Hann var aðeins 15 ára gam-
all, er hann fór fyrst til sjós með
móðurbróður sínum á b.v. Hafsteini.
Sverrir var góðum gáfum gædd-
ur, og hefðu menntadyr staðið hon-
um opnar. En hann kaus líf sjó-
mannsins, og aldrei heyrði ég það á
honum, að hann hefði séð eftir þeirri
ákvörðun. Hann lauk þó gagnfræða-
prófi, en síðar settist hann í Sjó-
mannaskólann og lauk þaðan fiski-
mannaprófi vorið 1952. Að loknu
því námi gerðist Sverrir síðan stýri-
maður og loks skipstjóri á ýmsum
togurum um rúmlega 3ja áratuga
skeið. Lengst var hann á togurum
á vegum útgerðar móðurbræðra
sinna, Tryggva Ófeigssonar og
þeirra bræðra, og hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur. En eftir að hann hætti
sjómennsku starfaði hann hjá Skipa-
deild SÍS, og þar var hann við störf,
er kallið kom.
Sverrir var einkar farsæll í störf-
um sínum á sjónum. Þar naut sín
áreiðanlega vel einstök verklagni
hans. Hann kaus frekar að ganga
að verki með lagni og aðgæslu, held-
ur en með offorsi. Hann var einstak-
lega laginn og fór vel að öllu því sem
hann fékkst við. Þegar hann var upp
á sitt besta var varla nokkuð, sem
úrskeiðis fór, að hann gæti ekki
komið því í lag. Hann hefði getað
lagt gjörfa hönd á hvaðeina sem
hann hefði lagt stund á.
Ég hygg að það sé ekki of sagt,
að þá hafi gæfan barið að dyrum
hjá Sverri, er hann kynntist og
kvæntist nú eftirlifandi eiginkonu
sinni, Dóru Bergþórsdóttur, hinn 16.
apríl 1956. Það hlýtur að vera viss-
um erfiðleikum háð að tengja tog-
arasjómennsku og heimilislíf saman,
þannig að ætíð sé áfallalaust. Þetta
tókst þeim hjónum samt einstaklega
vel. Sverrir hugsaði sérstaklega vel
um heimili sitt og var heimakær,
þegar annir sjómennskunnar leyfðu.
Hann kunni vel að meta myndarskap
konu sinnar, og hlýlegt og einkar
smekklegt heimili, er hún skóp hon-
um. Samhent voru þau um gest-
risni, en þar naut sín ekki hvað síst
myndarskapur eiginkonunnar.
Heimili þeirra stóð ávallt opið ætt-
ingjum og tengdafólki og þar var
fjölda ánægjustunda notið um langt
árabil, þar sem ætíð var veitt af
rausn og af listilegu handbragði.
Þeim hjónum hlotnaðist sú gæfa, að
eignast tvær myndarlegar og elsku-
legar dætur, sem báðar hafa lokið
læknisnámi frá Háskóla íslands, en
eru nú við framhaldsnám erlendis.
En litla dóttursonarins og nafna
naut Sverrrir því miður alltof stutt.
Hins vegar naut hann i ríkum mæli
afabarnanna tvegga, barna Dóru frá
fyrra hjónabandi hennar. En þau
börn hennar, makar og barnabörn,
reyndust Sverri ekki síður, en þó þau
væru hans eigin börn, enda reyndist
hann þeim frá fyrstu tíð eins og
besti faðir og afi.
Þau eiga vissulega vel við hér,
orðin sem skáldið sagði, að „skjótt
hefur sól brugðið sumri", sumri með
veiðiskap, sem Sverrir hlakkaði svo
sannarlega til. Með vorkomunni
snerist hugur hans um veiðiskap
sumarsins, en þó veiðiferðum hafí
fækkað allra síðustu árin, voru þær
ekki síður tilhlökkunarefni en áður.
Ekki voru þær heldur síður skemmti-
Iegar en fyrr, þar sem útivistar og
veiðiskapar var notið af einlægni.
Um langt árabil hefur það verið
vani sameiginlegrar ættar okkar
Sverris, að njóta veiðidaga í Borgar-
firði. í Straumnum, þar sem Norð-
urá, fegurst áa, fellur í Hvítá, þar
var margra ánægju- og eftirminni-
legra stunda notið í hinum fagra
fjallasai Borgarfjarðar, þar sem ná-
lægðin og hin fjarlæga fjallasýn öttu
MoáótÍNBLÁÐlÐ ÞÍtlbjUDÁ'éúÍÍ 'IÁÍmÁÍ S^SLL
Ný og stærri verslun Freemans
Starfsmenn Freemans-verslunarfyrirtækisins.
kappi um athyglina og glöptu oftar
en ekki fyrir veiðiáhuganum. Þar
voru sannarlega ættarhátíðir. Það
var ekki að furða, að Sverrir hlakk-
aði til slíkra unaðsdaga. Hann var
ekki einn urn það. Auðvitað vat' sjálf
veiðin þung á metunum, en hún
sagði aldeilis ekki alla söguna.
Nú þegar leiðir skiljast um sinn,
kveð ég og fjölskylda mín, góðan
vin með söknuði, en í þeirri traustu
von, að við eigum eftir að standa
saman við gjöfula veiðiá í fögru
umhverfi á landi morgunroðans.
Við ættarfólkið í Keflavík, vottum
systrum og frændsystkinum og öllu
venslafólki innilegustu samúð á
stund sorgar og söknuðar, og biðjum
Guð allshetjar að veita þeim styrk,
en Sverri óskum við góðrar heim-
komu á landi lifenda.
T.T.
PÖNTUNAR- og verslunarfyrir-
tækið Freemans opnaði laugar-
daginn 20. april nýja og stærri
verslun á 300 fermetrum í hús-
næði sínu á Bæjarhrauni í Hafnar-
firði.
Verslunin hefur á boðstólum mikið
úrval af fatnaði á alla ijölskylduna.
Með stækkun húsnæðisins hefur
vöruúrval verið aukið rnikið og nýjar
vörur eru teknar upp vikulega. Kont-
ið hefur verið fyrir góðri aðstöðu
fyrir þá viðskiptavini sem vilja setj-
ast niður og skoða úrvalið og panta
úr þeim vörulistum sem fyrirtækið
gefur út, en þeir innihalda geysilegt
úrval af fatnði eða.um 6.000 mis-
munandi tegundir.
Afgreiðslutími pantana er mjög
stuttur og fá viðskiptavinir vörur,
sem pantaðar eru, að jafnaði á um
14 dögum. Verslunin er opin virka
daga frá kl. 9-18 og á laugardögum
frá kl. 10-14.
(Fréttatilkynning)
AUGLYS ANDI
FIMMTÁN fjölmennustu áhorfendahópar
sjónvarps eru allir á okkar hendi.
Áttu erindi við þá?
MESTA ÁHORF
meðaltal
NO: ÞÁTTUR: STÖÐ: ÁHORF:
1 SPAUGSTOFAN 0 Sjónvarpið 52%
2 LOTTÓ 0 Sjónvarpið 48,5%
3-4 FYRIRM YNDARFAÐIR 0 Sjónvarpið 43%
3-4 Á TALI HJÁ HEMMA GUNN 0 Sjónvarpið 43%
5 FRÉTTIR RÚV 0 Sjónvarpið 42,5%
6 GETTU BETUR 0 Sjónvarpið 37%
7-9 KASTLJÓS 0 Sjónvarpið 35%
7-9 SIMPSON FJÖLSKYLDAN 0 Sjónvarpið 35%
7-9 Á DAGSKRÁ 0 Sjónvarpið 35%
10-11 EF DAGUR RÍS 0 Sjónvarpið 34%
10-11 ÚR IiANDRAÐANUM 0 Sjónvarpið 34%
12-13 ÓLAFURJÓHANN 0 Sjónvarpið 33%
12-13 LANDSLEIKUR ÍSL./LITH. 0 Sjónvarpið 33%
14-15 FÓLKIÐ í LANDINU 0 Sjónvarpið 32%
14-15 SSL 25 0 Sjónvarpið 32%
16-17 í ÞRÓTTASYRPA oöSjónvarpið 30%
16-17 19:19 ysráfft 30%
18 ALLT FRAM STREYMIR 0 Sjónvarpið 28%
19-21 NEYTANDINN 0 Sjónvarpið 27%
19-21 GREAT SMOKEY ROADBLOCK ío)Sjónvarpið 27%
19-21 HUNTER {'7sm-2 27%
Tilgreint er hæsta mælda áhorf hvers þáttar og meðaltal
þeirra mælinga, hafi þáttur verið oftar en einu sinni á dagskrá
þær tvær vikur sem mælingar stóðu.
Þetta er niðurstaða í nýgerðri fjölmiðlakönnun Gallups,
fullkomnustu könnun á notkun ljósvakamiðla
sem fram hefur farið á íslandi.
jO.
SJÓNVARPIÐ
í 15 efstu sætunum