Morgunblaðið - 14.05.1991, Page 47
ieei lAM .H aUí)AQUU3lH<J QIQAJaVlUDHOM
MORGUNBLÁÐIÐ' IHUDJtlDAGlTR" 1~4. MAI 1931 '
47
Björn Jóhann Sig-
urðsson - Minning
Björn Jóhann Sigurðsson múrari
fæddist í Reykjavík 30. apríl 1923,
og lést 6. maí síðastliðinn. Sonur
hjónanna Sigurðar Bjargmundsson-
ar trésmiðs og Valgerðar Guð-
mundsdóttur húsmóður.
Hann Bjössi frændi er dáinn.
Fyrir einu ári verktist hann og háði
erfiða baráttu en varð að lokum að
gefast upp fyrir æðri máttarvöld-
um. Hann var ekki tilbúinn til að
fara, hann var 67 ára gamall, ný-
kominn á eftirlaun og ætlaði að
fara að hafa það huggulegt, dunda
sér meira í sumarbústaðnum sem
hann átti í Öndverðarnesi, en það
verður að hlýða kallinu þegar það
kemur.
Það er svo skrýtið að þó svo
aðdragandinn hafi verið langur er
það samt svo sárt og tómlegt að
hafa engan Bjössa heima á Bú-
staðavegi. Við höfum þekkt hann
Bjössa jafn lengi og pabba og
mömmu enda bjuggum við í sama
húsi hvor fjölskylda á sinni hæð.
Það er svo margt sem kemur upp
í huga manns, þegar litið er til
baka. Eins og þegar Bjössi var með
spilakvöld þá vorum við krakkarnir
látnir bera fram kaffi og meðlæti
á slaginu tíu og biðum við spennt
á klukkunni því þegar spilafélag-
arnir voru búnir að drekka þá feng-
um við að horfa á í smá tíma, sem
okkur fannst mikil upplifun, hlusta
á þá reka upp hlátrasköll og ræða
um heimsins vandamál.
Það eru svo margar góðar minn-
ingar um hann Bjössa að maður
veit ekki hvar á að byrja og hvar
að enda. Hann var mikið ljúf-
menni, vildi öllum vel og mátti ekk-
ert aumt sjá. Með þessum fátæk-
legu orðum kveðjum við hann
Bjössa frænda okkar.
Okkur systkinin langar til að
þakka starfsfólki lungnadeildar
Vífilsstaðaspítala fyrir frábæra
umönnun í veikindum hans.
Siggi, Viðar, Auður og
Bryndís.
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími689070.
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um hefgar.
irvið öll tilefni.
Þann 6. maí sl. lést í Vífilsstaða-
spítala Björn Sigurðsson múrari.
Hann var fæddur 30. apríl 1923,
sonur hjónanna Valgerðar Guð-
mundsdóttur og Sigurðar Bjarg-
mundssonar trésmiðs. Arið 1945
hóf Björn nám í múraraiðn hjá Gísla
Þorleifssyni múrarameistara, þar
vorum við fyrir við nám tveir nem-
ar. Björn féll fljótt vel inn í okkar
hóp og hefur í þau 46 ár sem síðan
eru liðin haldist vinátta og sam-
vinna okkar allra, bæði í starfi og
frístundum og er margra góðra
stunda að minnast úr skíðaferðum,
við spilaborðið og í Öndverðarnesi,
landi múrara, þar sem við byggðum
okkur allir sumarhús. Undir Björn
sér þar vel með golffélögum, var í
stjórn golfklúbbs múrara um skeið
og sá um skálann í nokkur sumur.
Múrari var Björn góður, vann
hann lengst af við flísalagnir og
steinlögn, og má víða sjá handbragð
hans þegar gengið er um Reykjavík.
Því þar hefur hann unnið við nær
allar byggingar sem klæddar eru
með steini að utan. Má þar t.d.
nefma Símstöðina við Austurvöll,
Landsbankahúsið við Pósthús-
stræti, Samvinnubanka og Seðla-
bankann og var síðasta verk hans
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns,
ADOLFSTHEÓDÓRSSONAR
málara,
Vitastíg 18.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðný Elínborg Guðjónsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐBJARGAR FANNEYJAR SIGURJÓNSDÓTTUR.
við Þjóðarbókhlöðuna, þar sem
hann lagði stein á anddyri hússins
og má þar sjá gott dæmi um hand-
lagni hans og vandaða vinnu.
Þegar fyrirtækið S. Helgason hf.
steinsmiðja var stofnað árið 1953
var Björn einn af stofnendum, og
þótt hann starfaði ekki að staðaldri
við fyrirtækið var hann alltaf í sam-
starfi við það og lengi í stjórn þess. 1
Þegar ég nú að lokum fylgi hon-
um síðasta spölinn, eru mér efst í
huga þakkir fyrir vináttu hans og
góða samvinnu. Megi honum vel
vegna á ferð sinni til hins ókunna.
Systrum hans og öðru vandafólki
sendi ég samúðarkveðjur.
Sigurður J. Helgason
Helgi Steinar Karlsson,
Jóna Sigurbjörg Karlsdóttir,
Sigrún Karlsdóttir,
Karl Jóhannes Karlsson,
Sigurjón Már Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bára Lárusdóttir,
Jón Bóasson,
Kristín Þórisdóttir,
Sigríður Marit Guðnadóttir,
t
Alúðarþakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar eiginmanns míns,
JÓHANNS M. KJARTANSSONAR,
Hólmgarði 15.
Soffía Bjarnadóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og systur.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BJARNÍNA GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Baldursgötu 34,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 15. maí
kl. 15.00.
Svava Árnason, Elías Árnason,
Garðar Guðmundsson, Ásdís Guðbjartsdóttir,
Baldvin Helgason, Sigríður Dagsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa
SIGURÐAR HJ. SIGURÐSSONAR,
_ ísafirði.
Þorvaldina Jónasdóttir,
Sigurður G. Sigurðsson, Helga Ketilsdóttir,
Brynjólfur I. Sigurðsson, Ingibjörg Lára Hestnes,
Elín S. Sigurðardóttir, Jóhannes Torfason,
Þórarinn J. Sigurðsson, Hildur Káradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar,
SIGURÐUR E. MARKÚSSON
frá Svartagili,
sem andaðist 9. maí, verður jarðsunginn fimmtudaginn 16. maí
kl. 13.30 frá Fossvogskapellu.
Börnin.
t
Elskuleg móðir okkar,
ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
andaðist aðfaranótt 13. maí á Landakotsspítala. Jarðarförin aug-
lýst síðar.
Hrafnhildur Ólafsdóttir,
Sigrún Ólafsdóttir,
Eggert Ólafsson,
Örn Ólafsson,
Sigurður Ólafsson.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð við andlát
og útför
SIGURÐAR JÓNSSONAR
bónda,
Felli, Strandasýslu,
og heiðruðu minningu hans.
Jóna Þórðardóttir,
Heiðdís Sigurðardóttir,
Magnús Sigurðsson,
Jón Bragi Sigurðsson,
Þórður Franklín Sigurðsson,
Guðný Rún Sigurðardóttir,
Ingibjörg Birna Sigurðardóttir,
Hafdís Gunnarsdóttir,
og barnabörn.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Finnbogi Rafn Guðmundsson,
Þórólfur Guðjónsson
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir,
MARÍA GUÐVARÐARDÓTTIR,
Álftamýri 50,
sem lést í Borgarspítalanum laugardaginn 11. maí, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16. maí kl. 13.30.
Guðbjartur H. Ólafsson,
Sigmundur Guðbjartsson,
Guðrún I. Bjarnadóttir,
Helga Bjarnadóttir, Tómas Tómasson.
t
Hjartans þakkir til ykkar, sem sýnduð okkur vináttu, samúð og
vottuðu virðingu, við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
ÁRNA GUÐMUNDSSONAR
frá Teigi.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarfólks og starfsfólks á Hrafn-
istu í Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun og hlýju honum sýnda.
Dagmar Árnadóttir,
Guðmundur Árnason, Auður Thoroddsen,
Laufey Árnadóttir, Magnús Snæbjörnsson,
Þorkell Árnason, Kristín Hjaltadóttir,
Unnur Árnadóttir, Óskar Böðvarsson,
Jóna Gunnarsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför,
ÓLAFS SIGFÚSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 14G á Landspítalanum.
Guð blessi ykkur.
Guðrún Olga Stefánsdóttir,
Guðni Þþr Ólafsson, Herbjört Pétursdóttir,
Stefán Ólafsson, Ólafía Þ. Gunnarsdóttir,
Sigurður Rúnar Ólafsson, Mjöll Gunnarsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
SIGURRÓSAR TORFADÓTTUR,
Hrafnistu, Reykjavik,
áðurtil heimilis í Meðalholti 10.
Björn Þorsteinsson,
Torfi Þorsteinsson,
Páli Þorsteinsson,
Þorsteinn Þorsteinsson,
Ingigerður Þorsteinsdóttir,
Gunnlaugur Þorsteinsson,
Þorgeir Þorsteinsson,
Guðmundur Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Edda Svavarsdóttir,
Sigríður Kristinsdóttir,
Guðrún K. Þórsdóttir,
Hildigunnur Þórsdóttir,
Hilmar F. Thorarensen,
Ingibjörg Ó. Hafberg,
Bergþóra Skarphéðinsdóttir,