Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐÁGIÍR MAÍ 1991
fclk í
fréttum
TISKA
Einhver mest sótta
tískusýning Parísar
Svipmyndir frá sýningunni.
Stúlkumar í Parísarnæturklúbb-
num Crazy Horse Saloon eru
líklega heimsfrægar að endemum
fyrir kroppasýningar sínar á þess-
um fræga skemmtistað. Mikil og
löng hefð er nú á bak við kabarett-
inn svo við jaðrar að kalla megi
erótíkina á sviðinu virðulega. Eig-
,-andi Villihestsins fékk á dögunum
hugmynd sem kalla má dágóða
ef mið er tekið af útkomunni.
Hann fékk vel þekktan tísku-
hönnuð til að hanna baðfatatísku
sem kennd væri við Crazy Horse
og síðan var haldin sýning á her-
legheitunum þar sem að stúlkurn-
ar komu fram vægast sagt fá-
klæddar, en þó mun meira klædd-
ar heldur en þær hafa vanist til
þessa. Sýningin var einhver mest
sótta tískusýning sem haldin hefur
verið í hátískumiðstöðinni París.
Eigandinn, Aiain Bernadin,
fékk hönnuðinn Nicole Oliver til
að sjá um dæmið. Nicole þessi
hefur til þessa hannað baðföt Stef-
aníu Mónakóprinsessu og hefur
hún hlotið mikla kynningu fyrir
vikið.
Hvað svo sem frægð og öðru
Iíður þá segir Bernadin að tiltækið
hafi tekist vonum framar.
SoNVARPSEFNI
Kolkrabbinn lagður
til hliðar í bili
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Man ekki einhver eftir ítölsku
sjónvárpsþáttunum um Kol-
krabbann, mafíuþáttunum vin-
sælu? Þeir hafa verið framleiddir
af ítalska ríkissjónvarpinu og þótt
afburða spennandi og trúverðugir,
Íví þar hefur greinilega verið sýnt,
ve víða glæpasamtökin eiga
hauka í homi, bæði meðal hátt-
settra stjómmála- og embættis-
manna. AIls hafa verið gerðar
fímm þáttaraðir.
Alla tíð meðan þættirnir hafa
verið í framleiðsiu, hefur það orð
leikið á að ýmsir aðilar hafí séð
sig knúna til að hafa samband við
framleiðenduma, til að benda þeim
á að betra væri að láta þættina
eiga sig. Sem stendur er verið að
vinna að sjöttu röðinni, en nú hef-
ur verið ákveðið að gera hlé á um
óákveðinn tíma. Hvort þetta er
vegna þess að einhveijir valdam-
iklir menn hafa talið sig bera tjón
af, eða af öðrum ástæðum, er
óljóst, því ákvörðunin hefur ekki
verið skýrð nánar. Hitt er víst að
þættimir þóttu bera af öðru efni
um mafíuna, einmitt vegna þess
að þar var enginn glans á. Þó Ital-
ir þui-fí ekki að kvarta undan að
heyra lítið af samtökunum, þá
voru þættirnir áhrifamikil lýsing á
þeim, eins og haldið er að þau
starfi og hvernig þau hafa lætt
örmum sínum inn á öll svið þjóðfé-
lagsins. Nafn. þáttanna eitt segir
mikið um fyrirbærið.
Baðfötin væra til sölu í helstu
tískubúðum Parísar og þótt þau
væru rándýr, væru þau rifin út
og framleiðandinn annaði varla
eftirspurn.
Bernadin sagði jafn framt að
það væri ákveðinn rauður þráður
í allri sölunni, vel megandi eigin-
menn og unnustar kæmu einir síns
liðs í búðirnar og veldu þau baðföt-
in sem þeir álitu að stúlkur þeirra
og konur tækju sig best út í, „sem
er reyndar forvitnilegt, því topp-
lausa bikinitískan er enn í fullu
gildi við strendurnar og á sund-
laugarbökkunum,“ sagði Bernad-
in.
Nokkrar stúlknanna í
baðfötum Crazy Horse.