Morgunblaðið - 14.05.1991, Síða 52

Morgunblaðið - 14.05.1991, Síða 52
52 MQRGUNBLAÐIÍ) ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991 . 7 Ast er.. . J .. . að muna ætíð eftir afmælisdegi hennar. TM Reg. U.S. Pat Off. —afl rights reserved ® 1991 Los Angeles Times Syndicate Með morgimkaffinu Hvar er pabbi? Ég rotaði inn- brotsþjóf. HÖGNI HREKKVÍSI Þessir hringdu .. Ósmekklegar myndir Sigurður Demetz hringdi: „Morgunblaðið í Borgarfirði birti mynd af manni sem var að hella niður mjólk. Á sama tíma fáum við fréttir af börnum sem eru að deyja úr næringarskorti í Afríku og víðar. Það verður kannski að hella þessari mjólk niður en það á ekki að birta ljós- myndir af þessu. Þegar ég sá myndina fór ég að hugsa til allra þeirra sem eru að deyja úr hungri og leið ekki vel.“ Gleraugu Gullspangar karlmanngleraugu fundust skammt frá bílastæði Kringlunnar á Uppstigningardag. Upplýsingar í síma 33031. Hvers vegna er ekki gufubað? Auður hringdi: „Hvers vegna hefur ekki verið komið upp gufubaði í Sundlaug- unum í Laugadal? Það væri tilva- lið að geta brugðið sér í gufubað þar eftir að hafa farið í sundlaug- ina. Ég vil að borgaryfirvöld taki þetta til athugunar.“ Taska íþróttataska fannst við Hæðar- byggð. Upplýsingar í síma 656939. Týnd læða Grábröndótt læða er í óskilum í Laugarási, et; gæf og falleg. Upplýsingar í síma 31089. Hjól Grátt kvenmannsreiðhjól af eldri gerðinni, með gulum barna- stól aftaná, var tekið við Ingólf- stræti 7 um páskana. Vinsamleg- ast hringið í síma 16802 ef það hefur fundist. Gullhringur Nettur gullhringur með hvítum steini tapaðist laugardaginn 4. apríl á Glaumbar. Hringurinn hef- ur mikið persónlegt gildi fyrir eig- andann og er hringsins sárt sakn- að. Finnandi er vinsamlegast beð- inn að hringja í síma 26814. Okum ekki á miðjum vegi Valgerður hringdi: „Núna þegar fer að vora og Vegageðin fer að hefla malarvegi vil ég beina því til ökhmanna að þeir aki þannig eftir vegunum að það myndist ekki mikil malarröst í miðjunni. Þetta gerist ekki ef ökumenn taka sig saman um að aka þannig að það myndist tvær akreinar en ekki ein. Sérstaklega vil ég beina þessu til vöruflutn- ingabílstjóra. Með þessu móti fengjum við betri vegi.“ Kettlingar Tveir kettlingar, annar svartur en hinn svartur og hvítur, fást gefins. Upplýsingar í síma 73336. á kvöldin. Þakkir Kona hringdi: „Ég vil þakka físksalanum í fiskbúðinni Vör í Vesturbænum fyrir góða og lipra þjónustu." Gleraugu Gleraugu í svörtu hulstri týnd- ust 6. þ.m. Finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hringja í síma 11155. Lyklakippa Svört lyklakippa úr leðri tapað- ist 12. apríl. Á kippunni eru 10 lyklar, húslyklar og lyklar að hólf- um. Finnandi er vinsamlegast beðinn að skiia henni til lögregl- unnar. Hjól Rivel fjallahjól var tekið við Ölduselssundlaug fyrir skömmu. Það var keypt erlendis og eru varla mörg önnu hjól af þessari tegund hér á landi. Það er 15 gíra, himinblátt með hvíturm skellum, svörtum brettum og böglabera, og með lugt. Vinsam- legast hringið í síma 72212 ef það hefur fundist. Myndavél Á sunnudagskvöld fannst vön- duð myndavél við Eiríksgötu. Upplýsingar í síma 19425. Hvítur hjólkoppur Mánudaginn 6. maí kl. 7.30 ók lítill hvítur'bíll (Fiat Uno eða álíka stór) upp Eiríksgötu frá Snorra- braut. Á móts við Fæðingarheim- ili Reykjavíkur skoppaði hvítur hjólkoppur af bílnum. Eigandi getur haft samband við Margréti í síma 28321. Jakki Brúnn rúskinnmittisjakki tap- aðist í grennd við veitingastaðinn Ömmu Lú á laugardagsnótt, 4. maí. I honum voru lyklar og visa- kort. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 653326 í hádeginu eða á kvöldin. Góðir þættir Mig langar til þess að vekja at- hygli á þáttum á Aðalstöðinni sem fluttir eru á fimmtudagskvöldum um nokkurt skeið. Sú sem sér um þessa þætti er Jóna Rúna Kvaran. Ilún hefur kallað þessa þætti „Á nótum vináttunnar". Jóna Rúna hefur flutt inngang og hugleiðingu um margvísleg efni sem snerta til- finningar fólks og lífsreynslu og leiðbeint þeim á svo sérstakan hátt að ieitun er á. Hún hefur til að bera sérstakt innsæi, léttleika og greind til þess að vinna úr þessu viðkvæma efni á þann hátt að ég tel að fáir leiki það eftir. Einnig hefur Jóna Rúna fengið til viðtals fjölmarga einstaklinga þekkta og óþekkta sem búa yfir fjölbreyttri og merkri lífsreynslu sem við höfum öll gott af að hlusta á. Jóna Rúna hefur gott lag á við- mælendum sínum og nær þar sér- stökum árangri svo unun er á að ’ hlýða. Sá fjölmiðill sem hefur slíkan starfskraft hjá sér á skilið miklar þakkir og ég óska Aðalstöðinni til hamingju með þessa frábæru þætti Jónu Rúnu. Dóra Ingvarsdóttir Jóna Rúna Kvaran Víkveiji skrifar Fyrir nokkrum dögum sat Víkveiji við sjónvarpstækið og horfði á fréttir Stöðvar 2. Þegar lestri frétta var lokið kynnti þulur annað efni, sem væri á næsta leiti en sagði eitthvað á þá leið, að fyrst væru „skilaboð". Það, sem um var að ræða voru auglýsingar. Hvers vegna í ósköpunum tekur frétta- stofa Stöðvar 2 upp á þeim ósið að kalla auglýsingar ^skilaboð". Telur fréttastofan, að Islendingar skilji ekki lengur orðið auglýsingar? Er fréttastofan þeirrar skoðunar, að það sé fínna að nota orðið skilaboð, sem hefur allt aðra merkingu í íslenzku máli? Telur fréttastofan nauðsynlegt að nota orðið skilaboð yfir auglýsingar vegna þess, að það er gert í bandarískum sjónvarps- stöðvum? Dálkur Víkveija er opinn fyrir forráðamenn fréttastofu Stöðvar 2 til þess að útskýra hvað fyrir þeim vakir með þessari orða- notkun, hafi þeir áhuga á að koma slíkum útskýringum á framfæri. Vel má vera, að Víkveiji hafi ekki komið auga á einhveija skynsam- lega skýringu á þessu uppátæki og þá væri gott, að hún kæmi fram. xxx Annars er farið að nota þetta orð, skilaboð, í tíma og ótíma. Fréttamenn ljósvakamiðlanna tala aftur og aftur um það í viðtölum við stjórnmálamenn, hvort þetta eða hitt feli í sér skilaboð til einhverra aðila, hvort sem það eru kjósendur eða stjórnmálamennirnir sjálfír. Stjórnmálamennirnii' eru líka byij- aðir að nota þetta orð að óþörfu. Allt er þetta til marks um hin miklu áhrif ensku og amerísku á daglegt mál okkar. Víkveiji vill hér með reyna að koma þeim „skilaboðum" til fréttamanna og stjórnmála- manna að þeir hætti að nota þetta orð með þeim hætti, sem nú er gert. Þetta er að verða leiðinleg tugga, sem hver étur upp eftir öðr- um. xxx að birtast alltaf við og við aug- lýsingar, m.a. hér í Morgun- blaðinu, þar sem sagt er frá því, að erlendir menn flytji erindi um ákveðin efni á fundi hjá félagasam- tökum og þá er heiti þeirra erinda gjarnan gefið upp á ensku en ekki íslenzku í auglýsingum. Nú eiga að vísu að gilda þær reglur á Morgun- blaðinu, að slíkur texti birtist líka á íslenzku í auglýsingum, en mis- brestur hefur orðið á því og ekki við aðra að sakast í þeim efnum en blaðið sjálft. En hvað veldur því, að auglýsendur birta þennan texta á ensku. Telja þeir, að upplýs- ingar um efni slíkra erinda komist betur til skila til íslenzkra lesenda auglýsinganna með þessum hætti? Eru þeir þeirrar skoðunar, að ís- lendingar séu orðnir þjóð tveggja tungumála?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.