Morgunblaðið - 14.05.1991, Síða 55

Morgunblaðið - 14.05.1991, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI 1991 55 Lýsuhólsskóli í Staðarsveit: N emendafer ða- la,g til Flateyjar Hlíðarholti, Staðarsveit. NEMENDUR Lýsuhólsskóla á Snæfellsnesi fóru nýlega í skola- ferðalag til Flateyjar á Breiða- firði. Auk nemenda og kennara voru einnig í förinni nokkrir aðstandendur barnanna svo og yngri börn. Þarna var því öðrum þræði um að ræða fjölskylduferð. Samtals voru í ferð- inni 50 manns. Lagt var af stað um áttaleytið að morgni og ekið til Stykkishólms. Þangað var komið kl. 9.30 og farið beint um borð í Breiðafjarðarferjuna sem lagði frá bryggju kl. 10. Veður var mjög stillt og sléttur sjór en þoka lág fyrir og spillti það nokkuð fyrir ferðinni. Komið var til Flateyjar nokkuð fyrir kl. 12 og þá steig hópur- inn á land en feijan hélt áfram til Bijánslækjar. Dauft var yfír mannlífi í Fiatey á þessum tíma árs og munu aðeins þijár eða fjórar manneskjur hafa verið þar um þetta leyti. Var ferða- hópnum leyfður aðgangur að veit- ingahúsi sem starfrækt er yfir sum- artímann. Þar snæddu ferðafélag- arnir nesti sitt. Að því loknu var lit- ast um á eynni undir leiðsögn Jó- hannesar Gíslasonar bónda í Skáleyj- um. Fræddi hann viðstadda um ýmis- legt er varðaði sögu Flateyjar og gömul hús og önnur mannvirki er þar eru til staðar. Ekki gafst færi á að skoða kirkjuna en hún er lokuð vegna viðgerða. Að lokinni þessari vettvangskönn- un var hópurinn aftur kallaður sam- an á veitingastofuna og þar afhenti skólastjóri, Guðmundur Sigurmons- son, og kennararnir Kristín Thorlaei- us og Svanfríður Guðmundsdóttir nemendum Lýsuskóla prófskírteini og aðrar viðurkenningar að loknu skólastarfi og var skólanum þar með slitið að þessu sinni. Var nú farið að líða að áætluðum brottfarartíma og hélt hópurinn niður að höfninni og beið þar eftir feijunni en henni seinkaði nokkuð vegna þok- unnar. Komið var til Stykkishólms nokkuð fyrir kl. 6 og þar var stigið í bílana og hver hélt heim til sín. Ferð þessi var í alla staði hin ánægjulegasta bæði fyrir yngri sem eldri þátttakendur. í skólanum á Lýsuhóli eru börn úr Staðarsveit og Breiðuvík og er daglegur skólaakstur. Almenn ánægja er með það fyrirkomulag en segja má að mikil þörf sé að að bæta vegasambandið út Breiðuvíkur til þess að auka öryggi á þessari leið. Skólahaldið fer fram í félagsheim- ilinu og hefur svo verið frá árinu 1968. A síðasta ári var hafist handa um viðbyggingu við félagsheimilið. Er þar um að ræða þijár kennslustof- ur auk annarrar aðstöðu til skóla- haldsins sem skort hefur. Lokið var við grunn þeirrar byggingar á sl. hausti en nú er vinna að hefjast að nýju og er fyrirhugað að koma bygg- ingunni undir þak á þessu ári. - Þ.B. Hvanneyri: Norrænt nám- skeið í kyn- fræði loðdýra Hvanneyri. FYRIR nokkru var haldið á Bænd- askólanum á Hvanneyri norrænt námskeið fyrir nemendur sem vinna að doktorsnámi í kynstarf- semi loðdýra og skyldum greinum. Hugmynd að námskeiðinu hér á landi er komin frá búfjárræktar- skor NJF, norrænna samtaka búfj- árræktarmanna. Námskeiðið er á ábyrgð loðdýra- ræktardeildar NJF. Stjómendur voru dósent Anne-Helene Tauson frá danska dýralækna- og landbúnaðar- háskólanum í Kaupmannahöfn og prófessor Haija Valtonen frá rann- sóknastöðinni fyrir dýralyf við há- skólann í Koopio í Finnlandi. Nám- skeiðið er kostað af norrænu ráherra- nefndinni sem hluti af þróunar- og fræðslustarfi á hennar vegum. Þátttakendur voru tuttugu og einn nemandi og tíu leiðbeinendur og kennarar úr hópi kunnustu vísinda- manna á því sviði á Norðurlöndunum. Frá íslandi voru hvorki nemendur Frá árlegum samráðsfundum Norrænu æskulýðsnefndarinnar og fulltrúa norrænna ráðuneyta, sem fara með æskulýðsmál og æskulýðsráð landanna, sem haldnir voru í Reykjavík 24.-28. apríl s.I. Fundað um norræn æskulýðsmál Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson Liisa Jalkanen, Finnlandi, spyr nemendur: Hvort er vinstri eða hægri eggjastokkurinn? Spurt er á móti: Skiptir það máli? Hún ítrekar mikilvægi þess, þegar á að kryfja eggjastokkana nánar. né fyrirlesarar. Bændaskólinn tók að sér að hýsa námskeiðið og veitti því alla þá þjónustu fyrir bóklega og verklega kenslu sem það þurfti með. Starfsmenn skólans tóku þátt í að veita aðstoð eftir því sem með þurfti. Gestimir lýstu ánægju sinni með dvölina og alla fyrirgreiðslu heima- manna meðan á námskeiðinu stóð. - D.J. NORRÆNA æskulýðsnefndin og fulltrúar norrænna ráðu- neyta, sem fara með æskulýðs- mál og æskulýðsráð landanna, héldu árlega samráðsfundi sína í Reykjavík fyrir skömmu. A fundunum voru meðal annars ræddar æskulýðsrannsóknir, afsláttarkort fyrir ungt fólk og evrópskt æskulýðssamstarf. Sérstök umræða fór fram um þátttöku ungs fólks í ísiensku atvinnulífi, en þar kom meðal annars fram að um helmingur framhaldsskólanema vinnur með skólanum, og að samkvæmt nýlegri könnun hefðu 98% þeirra haft vinnu síðastliðið sumar. I Norrænu æskulýðsnefndinni sitja 13 fulltrúar, tveir frá hveiju Norðurlandanna og einn frá sjálf- stjórnarsvæðunum, Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Nefndin kemur saman að vori og hausti ár hvert. Á fundi nefndar- innar nú var rætt um æskulýðs- rannsóknir, upplýsingamiðlun til ungs fólks og Norðurlandaþing æskunnar, sem haldið var í febrú- ar síðastliðnum. Eitt af verkefnum nefndarinnar er að veita styrki til æskulýðsverk- efna, og hefur nefndin um 4 milljónir danskra króna til úthlut- unar á þessu ári, en á fundinum nú veitti nefndin styrki til verk- efna, sem unnið verður að frá miðjum júní til áramóta. Fyrir fundinum lágu 80 umsóknir til norrænna samstarfsverkefna að upphæð 4,7 milljónir danskra króna og 56 umsóknir til svæðis- bundinna verkefna að upphæð 2,4 milljónir danskra króna, og úthlut- aði nefndin samtals 1.393 þúsund dönskum krónum til 62 verkefna.' Morgunblaðið/Silli Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, flutti hátíðarræðuna. Flosi Ólafsson flutti ábyrga bar- átturæðu. Húsavík: Afmælishátíð 1. maí INNLENT Húsavík. VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur minntist 80 ára starfssögu fé- lagsins í hófi í Félagsheimili Húsavíkur 1. maí sl. og sátu það um 500 manns. Hátíðin hófst með ávarpi for- manns félgsins, Helga Bjarnasonar, en síðan tók veislustjórinn, Sigurður Hallmarsson, við stjórn. Hátíðarræðuna flutti Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, og í ræðu hans kom fram að í næstu kjara- samningum yrði eitt af baráttumál- um trygging kaupmáttar launa og réttlæti í skattamálum. Þættir úr sögu verkalýðshreyfingarinnar á „Villti fjárstofnimi“ í Tálknanum Patreksfirði. SAUÐBURÐUR hafinn — sauðburði lokið. Þessi orð eiga reyndar aðeins við um „villta vestfirska fjárstofninn", sem hefst við í Tálkn- anum, fjallinu sem skilur milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar. Nýlega lagði fréttaritari leið sína út með Vatneyrarhlíðum í þeim tilgangi að líta til fjárhóps sem hefur helgað sér land í hlíðum fjallsins. Hlíðarnar eru mikið grónar og svo skjólgóðar að þar má fínna skjól í öllum veðrum. Þó er áreið- anlega svo harðbýlt að náttúran hlýtur að velja úr sterkustu ein- staklingana enda er þetta einstak- lega frísklegt fé og minnir helst á fjallageitur, svo létt fer það um kletta og klungur. Hér hafa engin fjallskil verið í mörg ár og þegar smalað var í Tálknanum er eins víst að oftast hafí orðið eftir eitt- hvað af fé, sem þetta er komið af. Sömuleiðis má ætla að náttúr- an hafi séð um allar sauðfjárveiki- varnir því að líklegast er að að- eins þeir harðgerðustu lifi af vest- firska veturinn. Ef til vill er þarna fundinn stofn sem nota mætti til að kynbæta „flatlendisrollurnar", því að þarna er vöðvabygging sjá- anlega í lagi og ekki neinir fitu- hlunkar, sem hverfa við steikingu. Óhætt er að fullyrða að þarna er á ferð hin íslenska villibráð sem er jafnvel óþarfi að krydda. Já, það er ekki ofsögum sagt af því sem Vestfirðirnir eru fyrir land og þjóð. Undirritaður taldi fimmtán ær, allar með lömbum utan ein sem gæti verið gemling- ur. Sumar voru tvflembdar en erf- itt reyndist að sjá nákvæmlega hve margar, því ærnar eru stygg- ar og hrukku undan svo að aldrei var hægt að komast nær þeim en 150 til 200 metra. Lömbin virtust frá nýbornum upp í tveggja vikna. „Karlaklúbburinn" þeirra hélt sig alveg sér, eins og vera ber. Þeir voru fimm saman hrútarnir og einn þeirra sýnu elstur. Kannski var þetta þeirra J.C. og sá gamli forsetinn. Fréttaritari komst aldrei í færi til að taka ljósmynd enda útbún- aðurinn ekki af fullkomnustu gerð, en góðum myndum náði hann á myndband. Og nú er spurningin: Hvað á að gera? Fréttaritari leggur til að Tálkninn verði friðlýstur og þætti vænt um ef nýi landbúnaðarráðherrann okkar fæli honum að fylgjast með og athuga þróun þessarar ný- fundnu (eða nýuppgötvuðu) auð- lindar. Það þarf að vernda þennan stofn þar til hann er nógu stór til að nýta hann án þess að ganga á hann sbr. hvalina. - Hilmar Húsavík teknir saman af Þorkeli Björnssyni voru fluttir af leikurum úr Leikfélagi Húsavíkur og kom þar fram við hvað verkamenn áttu að búa á hinum fyrstu tugum þeirra ára sem félagið hefur nú starfað og hvað margt hefur breyst til bóta með ötulu starfi. Sigrún Hjálmtýsdóttir óperu- söngkona með aðstoð Önnu Guðnýj- ar Guðmundsdóttur píanóleikari skemmti með söng og Léttsveit Húsavíkur skemmti með hljóðfæra- leik sínum undir stjórn Normanns Dennis. Ávörp og kveðjur fluttu Snær Karlsson frá Verkamannasambandi íslands, Þorgerður Þórðardóttir, síðasti formaður Verkakvennafé- lagsins Vonar áður en það samein- aðist Verkalýðsfélaginu, og að lok- um fiutti Flosi Olafsson leikari ábyrga barátturæðu sem var vel fagnað sem og öðrum þáttum þessa veglega afmælishófs. Helgi Bjarnason tilkynnti að í tilefni afmælisins vildi félagið færa ÍF Völsungi kr. 150 þúsund til styrktar starfsemi yngstu deildar félagsins. Safnahúsinu á Húsavík sem nú stendur í byggingu sjóminj- asafnsins færði félagið kr. 500 þús- und til minningar um látna verka- menn sem stundað hefðu sjó um áraraðir. Þakkaði forstjóri safnsins, Finnur Kristjánsson, þá höfðing- legu gjöf. Veitingar voru fram bornar og stór og veglega skreytt terta sem 500 manns af sneiddu og luku þó ekki. - Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.