Morgunblaðið - 16.05.1991, Blaðsíða 29
Aukakosningar
í Bretlandi:
Frambjóð-
anda Verka-
mannaflokks
spáð sigri
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frí-
mannssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins.
Aukakosningar verða
haldnar í dag, fimmtudag,
í kjördæminu Monmouth í
Bretlandi. Búist er við tví-
sýnum kosningum og jafn-
framt að verði úrslitin
óhagstæð íhaldsflokknum
muni John Major forsætis-
ráðherra vart boða til
nýrra kosninga á þessu ári.
Sir John Stradling Thomas,
fyrrum þingmaður íhalds-
flokksins í Monmouth, lést
skyndilega fyrr á árinu, en
hann hafði ákveðið að bjóða
sig ekki fram við næstu þing-
kosningar. Þegar þingmaður
fellur frá í einmenningskjör-
dæmi verður að halda auka-
kosningar.
í kosningunum 1987 fékk
íhaldsflokkurinn 47,5% at-
kvæða í kjördæminu, Verka-
mannaflokkurinn 27,7% og
fijálslyndir 24%. Kosningabar-
áttan að þessu sinni hefur
mótast af því, að almennar
þingkosningar nálgast hröðum
skrefum. Allir flokkar hafa
sent forystumenn sína í kosn-
ingabaráttuna. Niðurstöður
skoðanakönnunar, sem birtust
á þriðjudag, benda til sigurs
Verkamannaflokksins. Sam-
kvæmt þeim niðurstöðum
hafði flokkurinn 8% forskot á
íhaldsflokkinn en fæstir eiga
hins vegar von á afdráttar-
lausum sigri Verkamanna-
flokksins, telja að þær verði
tvísýnar.
Sigri Verkamannaflokkur-
inn í þessum aukakosningum,
útilokar það vafalaust þing-
kosningar í júní en John Major
forsætisráðherra hefur neitað
að vísa þeim möguleika á bug
fram að þessu.
skuli aðgang að fiskimiðum aðgangi
að mörkuðum sé ónýt. Hún sé þraut-
reynd og hafi aldrei virkað, samning
sem hafi verið gerður við Kanada á
þessum nótum hafi Kanadamenn ein-
hliða numið úr gildi 1987. í Brussel
er bent á að á þessari reglu sé önnur
hlið. Það sé rétt að reglan hafi fælt
ríki frá samningum um greiðari að-
gang að mörkuðum EB en það sð
álitamál hvort bandalagið hafí ein-'
hveiju tapað á því. Sem stendur er
eftirspurn eftir sjávarafurðum mun
meiri en framboðið, hvort heldur er
til vinnslu eða neytenda. Vinnslunni
innan EB er að hluta til tryggt inn-
flutt hráefni með takmörkuðum
tollaívilnunum á nauðsynlegu hráefni
og jafnvel með sérstakri bókun, s.s.
við Islendinga. Neytendur innan EB
hafi undanfarið greitt tolla af sjávar-
afurðum möglunarlaust og töluvert
muni um tollatekjurnar sem renna í
sjóði EB. Benda megi á að tolla-
greiðslur íslendinga vegna innfluttra
sjávarafurða til EB á yfirstandandi
ári koma til með að nema sem svar-
ar nýlegri úthlutun EB til endurnýj-
unar á flota bandalagsins og fram-
kvæmda í fiskeldi.
Það er grátt gaman fyrir íslend-
inga að innflutningur þeirra á sjávar-
afurðum til EB stendur að hluta til
undir styrkjakerfinu sem þeim er
hvað mestur þyrnir í augum. Vegna
samninganna við EFTA er bent á
að verði gerð undanþága vegna ís-
lendinga frá samningsreglunni muni
aðrir fylgja í kjölfarið og kreijast
hins sama. Framkvæmdastjórn EB
hafi ekki áhuga á að standa í stappi
við t.d. Bandaríkjamenn vegna frí-
verslunarkjara á sjávarafurðum.
jeei íam ai fflJOAgUTMlÖ? ŒOAJaMuaflöM
•MORGUNBLAÐIÐ FJMMTUDAGUR 16. MAI-1991- -
Nýkomnir
BIRKENSTOCK
sandalar í úrvali
Laugavegi 41, s. 13570.
Skóverslun Þórðar,
Kirkjustræti 8, sími 14181.
Reuter
Jiang Zemin og Míkhaíl S. Gorbatsjov ræðast við í Kreml í gær.
Leiðtogi kínverskra kommúnista í Moskvu:
Stefnt að bættri
sambúð ríkjanna
Moskvu. Reuter.
JIANG Zemin, leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins, kom í gær
í opinbera heimsókn til Moskvu og er markmiðið að bæta sambúð
ríkjanna en leiðtoga þeirra greinir meðal annars á um hugmynda-
fræði marxismans. Jiang er hæstsetti ráðamaður alþýðulýðveldisins
sem sótt hefur Kremlverja heim frá því Mao Zedong var einvaldur
í Kína.
Heimsókn Jiangs stendur í fimm
daga og formlega er um að ræða
samskipti kommúnistaflokka land-
anna. Sovéski flokkurinn hefur að
nafninu/til afsalað sér lögbundnu
forystuhlutverki í landinu en kín-
verskir kommúnistar halda fast í
einræði flokksins. Samt sem áður
tók varaforseti Sovétríkjanna,
Gennadíj Janajev, á móti Jiang á
flugvellinum en Míkhaíl S. Gor-
batsjov Sovétforseti er einnig leið-
togi sovéska kommúnistaflokksins.
Hann fór í heimsókn til Kína árið
1989 er mikil stjórnmálaólga var
þar í landi og umbótasinnar hróp-
uðu nafn Sovétleiðtogans til árétt-
ingar kröfum sínum. Fáeinum dög-
um eftir heimsóknina myrtu kínver-
skir hermenn þúsundir vopnlausra
borgara á Torgi hins himnneska
friðar í Peking er mótmæli lýðræð-
issinna voru brotin á bak aftur.
Sovéskir embættismenn sögðust
búast við að Jiang og Gorbatsjov
myndu ræða öryggis- og vamarmál
við norðvesturhluta Kyrrahafs og
reyna að flýta áætlunum um gagn-
kvæma fækkun í heijum á landa-
mærum ríkjanna auk þess sem fjall-
að yrði um fleiri svið traustvekjandi
aðgerða.
Edith Cresson, forsætisráðherra Frakklands:
KRAFTVERKFÆRI^ -ÞESSISTERKU
RAFMAGN^HANDVERKFÆRI "
FYRIR ÞA KRÖFUHÖRÐU
HJOLSOG
STINGSOG
nK, 4495H
- 450 vatta
- 60 mm sögunardýpt
. - snúningsblað
PH865U
-1200 vatta
m-Karbitblað
- öryggisrofi
SLÍPIPÚÐI
BELTASLIPIVEL
7576U
-180 vatta
26000 sn/mtn
-1,4 kg
1205H
- 600 vatta
130-200 m/mín
- 2,8 kg
SLIPIROKKUR
9420H
-710vatta
-10000 sn/mín
- 2,0 kg
^■Pgihl. taska,
borar, SDS patróna
HEFILL
FRÆSARI
92H
- 705 vatta
15000 sn/mín
1835U
í - 800 vatta
25000 sn/mín
- 3,2 kg
SKIL - KRAFTVERKFÆRI HENTA ÞEIM KROFUHORÐUSTU
Eigum ávallt fjölbreytt úrval SKIL rafmagnshandverkfæra og fylgihluta
jafnt til iðnaðar- sem heimilisnota.
SÖLUAÐILAR VÍÐA UM LAND.
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FA L K 1 N N r
SL0URLANDSBRALTT 8 SÍMI84670 J
Harðsnúin baráttu-
kona sem aldrei vill
viðurkenna ósigur
París. Reuter.
EDITH Cresson sem varð forsætisráðherra Frakklands í gær er
þekkt fyrir að vera harðsnúinn stjórnmálamaður sem ávailt neitar
að viðurkenna ósigur. Ekki eru nema átta mánuðir síðan Cresson
lét af störfum sem Evrópumálaráðherra vegna ágreinings um efna-
hagsmál við Michel Rocard sem hún leysir nú af hólmi.
Edith Cresson fæddist 27. janúar
1934 í Boulogne-sur-Seine og gift-
ist Jacques Cresson árið 1959. Þau
eiga tvær dætur. Leið Cresson á
tindinn hefur verið löng og ströng
en hún er mikil baráttukona og
sneri ósigrum ætíð á endanum upp
í sigur. Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti gerði hana að landbún-
aðarráðherra í fyrstu ríkisstjóm
sinni 1981. „Franskir bændur voru
svo íhaldssamir og miklir kvenhat-
arar að kvenkyns ráðherra, sósía-
listi að auki, jafngilti næstum ögr-
un,“ sagði hún síðar. Menn gagn-
rýndu hana fyrir að hafa ekkert vit
á landbúnaði og eitt sinn þurfti lög-
regla að forða henni í þyrlu undan
froðufellandi bændum. En árið
1982 átti hún þátt í því að tekjur
franskra bænda jukust um 10%.
Hún var gerð að utanríkisvið-
skiptaráðherra og í því embætti
barðist hún gegn innflutningi frá
Japan. Til þess að leggja áherslu á
þá baráttu ferðaðist hún um París
á frönsku hlaupahjóli og sagði það
jafngott japönsku mótorhjólunum.
Þegar Mitterrand var endurkjör-
inn forseti 1988 valdi hann Cresson
til að gegna embætti Evrópumála-
ráðherra. Hún ávann sér enn frek-
ara traust Mitterrands á síðasta ári
er hún neitaði að íeggjast á sveif
með einhverjum þeim sósíalistaleið-
togum sem börðust um að vera eft-
irmenn Mitterrands. Þess í stað
skoraði hún á flokksmenn að slíðra
sverðin.