Morgunblaðið - 16.06.1991, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C
134. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 16. JÚNI 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nærföt í mimi-
ingu Mozarts
Japanskt fyrirtæki í Tókýó hefur hafið
framleiðslu á kvennærfatasetti,
brjóstahaldara og nærbuxum, í tilefni
200. ártíðar tónskáldsins W.A. Mozarts.
Brjóstahaldarinn er þeirri náttúru
gæddur að þegar honum er krækt þá
leikur hann tilbrigði við lagstúf eftir
Mozart í heila mínútu. Nærbuxurnar
eru í stíl við brjóstahaldarann og eru
báðar flíkur skreyttar örsmáum ljósa-
perum sem blikka meðan tónlistin er
leikin.
Vanntæpar 80
milljónir króna
Harolyn Couch frá Springfield í
Massachusetts í Bandarikjunum hafði
aldeilis heppnina með sér á föstudaginn
þegar hún freistaði gæfunnar í fyrsta
skipti í spilavítaborginni frægu, Las
Vegas í Nevada. Hún var búin að eyða
þremur dölum í spilakassa þegar hún
fékk stóra vinninginn — nærri 1,3 rnilij-
ónir dala eða tæpar 80 milljónir ÍSK.
Að sögn talsmanna fyrirtækisins, sem
rekur keðju slíkra spilakassa, er þetta
stærsti vinningur sem fengist hefur í
25 centa-vél.
Gjafmild börn
í Norður-Kóreu
í tilefni af því að 45 eru liðin frá stofn-
un Bandalags kóreskra barna tóku
norður-kóresk skólabörn sig saman og
keyptu rausnarlega gjöf handa her
lands síns. — Þau færðu honum 45
skriðdreka.
Tengdamæðg-
ur ná sáttum
Kínverjar hafa fundið upp aðferð til
að koma á sáttum milli tengdamæðra
og tengdadætra, að sögn breska dag-
blaðsins Independent. 250.000 áhorf-
endur mættu til að horfa á íþrótta-
keppni í Shandong-héraði fyrir
skömmu þar sem tengdamæður kepptu
við eiginkonur sona sinna í ýmsum
keppnisgreinum, s.s. kapphlaupi á
svínsbaki og öðru þar sem tengda-
mæðgurnar hlupu bundnar saman bak
I bak. Einar tengdamæðgurnar, sem
ekki höfðu talast við árum saman, eru
nú bestu vinkonur þrátt fyrir að
tengdamóðirin hafi eitrað fyrir hænsni
tengdadótturinnar.
Norman Schwarzkopf hershöfðingi:
Upplýsingar CIA voru næst-
ÍSKRÚÐGÖNGU
Morgunblaðið/Þorkell
um gagnslausar í stríðinu
Washington. The Daily Telegraph.
NORMAN Schwarzkopf hershöfðingi, yfirmaður herafla bandamanna í stríðinu fyrir
botni Persaflóa, hefur gagnrýnt Ieyniþjónustu Bandaríkjanna fyrir upplýsingarnar sem
hún veitti í stríðinu og sagt að þær hafi verið svo óáreiðanlegar að legið hafi við að
þær hafi ekki komið að neinu gagni.
Hershöfðinginn sagði á fundi með banda-
rískri þingnefnd að leyniþjónustan hefði dreg-
ið svo úr gildi eigin upplýsinga með allskonar
fyrirvörum að við hefði legið að glundroði
hefði skapast í höfuðstöðvum hans. Mat leyni-
þjónustunnar á tjóni íraka vegna loftárása
fjölþjóðahersins hefði verið alltof varfærnis-
legt. „Ef við hefðum reitt okkur á mat þeirra
til að ákveða hvenær heíja ætti landhernað
væri biðinni í eyðimörkinni ekki enn lokið,“
sagði hann.
Yfirstjóm fjölþjóðahersins fékk upplýs-
ingar frá CIA og leyniþjónustu bandaríska
hersins, sem byggðar voru á gervihnatta-
myndum. Mat þeirra á ástandinu í írak var
yfirleitt mun varfærnislegra en ástæða var
til samkvæmt upplýsingum, sem bárust frá
njósnaflugvélum og myndavélum í árásarþot-
um.
Schwarzkopf kvartaði ennfremur yfir því
að hafa aldrei fengið myndir af vígvellinum
fyrr en sólarhringi eftir að þær voru teknar.
Hann sagði þetta hafa verið afar bagalegt
því vígvallarstaðan hefði oft breyst mjög
skjótt.
Upplýsingar leyniþjónustunnar höfðu sætt
nokkurri gagnrýni áður en Schwarzkopf tjáði
sig um þær og þegar hafa verið gerðar ráð-
stafanir til að bæta njósnastarfsemi hennar.
Embættismenn í Hvíta húsinu hafa þó neitað
að þéssi gagnrýni hafi átt átt þátt í því að
George Bush Bandaríkjaforseti féllst nýlega
á afsagnarbeiðni yfirmanns CIA, Williams
Websters.
Sérfræðingar kanna hugsan-
lega kjarnavopnasmíði Iraka
New York. Reuter.
SÉRFRÆÐINGAR á vegum öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna munu á næstunni
kanna staði í írak þar sem hugsanlegt
er að fari fram kjarnorkusprengjusmíði.
Kemur þetta fram í frétt í bandaríska
dagblaðinu New York Times á laugar-
dag.
Var tekin ákvörðun um að skoða þessa
staði eftir að Bandaríkjamenn létu Samein-
uðu þjóðunum í té nýjar upplýsingar sem
fengist höfðu frá íröskum kjarneðlisfræðingi
sem flúði til Vesturlanda í síðustu viku.
New York Times hefur eftir bandarískum
embættismönnum að sérfræðingur þessi
hafi upplýst að írakar stundi aðallega kjarn-
orkurannsóknir á átta stöðum. Þrír þessara
staða urðu fyrir miklum loftárásum í Persa-
flóastríðinu. Sögðu embættismennirnir að
enn ætti eftir að sannreyna flestar upplýs-
ingar sem frá íraska kjarneðlisfræðingnum
væru komnar.
10
BRIIDL
eöa brýn
NAUÐSYN
NY BYLTING
Í RÚSSLANDI
Mér þykir vænt
um
u
’blað
m vimi
HÁNS
r
1
DRAUMI