Morgunblaðið - 16.06.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNI 1991
Eigum á lager mjög góöa og ódýra
íþróttaskó á börn og fullorðna
EUingsen flutti í húsnæðið í Hafnarstræti árið 1917. Þar er nú til húsa veitingastaðurinn Hornið.
Morgunblaðið/Kristján
Sigtryggur Jónsson skrifstofustjóri i versluninni á Grandagarði.
Innanbúðar í versluninni í Hafnarstræti.
auglýsingum sem nú birtast því for-
ráðamenn fyrirtækisins leggja enn
mikla áherslu á það sem frumkvöð-
ullinn lagði grunninn að í upphafi.
Einnig auglýsti Eilingsen: „Þar
sem jeg tiefi 20 ára reynslu (þar af
14 ár á íslandi) í skipagerð og fisk-
veiðiútgerð, hafið þjer, með því að
versla við mig, mestar líkur til að
fá það, sem yður er hentugast."
Ahrif Dana í verslun hér á landi
voru mikil á þessum árum og var
viðskiptalífið að mestu tengt Dan-
mörku. Ellingsen leitaði á önnur mið
og keypti mikið af varningi frá Nor-
egi og Englandi. Einnig beindi hann
viðskiptum sínum til Ameríku og var
einn sá fyrsti sem keypti þaðan bens-
ín-bátavélar sem var þá alger nýjung
hér og markaði mikil tímamót í út-
gerð.
Ellingsen lést árið 1936 og var
þá fyrirtækinu breytt í hlutafélag
sem sonur stofnandans og alnafni
Othar Ellingsen hefur veitt forstöðu
síðan.
Þegar viðskiptin fóru að aukast
og verslunin í Hafnarstrætinu var
orðin helst til lítil var byggt nýtt
húsnæði á horni Pósthússtrætis og
Tryggvagötu þar sem nú er veitinga-
staðurinn Svarta
Pannan. Lokið
var við bygging-
una árið 1956 og
var þá veiðar-
færa- og vinnu-
fatadeild flutt
þangað. Með ár-
unum jukust enn
viðskiptin og
vöruúrval og
varð til þess að
árið 1974 var
verslunin flutt í
nýtt húsnæði að
Ánanaustum við
Grandagarð, þar
sem Ellingsen er
nú til húsa. Enn
er verslunin í ná-
lægð við athafna-
svæði útgerðar-
manna og í
grennd við mið-
borgina, líkt og
þegar hún var í
Hafnarstrætinu.
Nú eru í for-
svari fyrir versl-
unina sonur og
tveir sonarsynir stofnandans. Það eru
Othar Ellingsen forstjóri sem tók við
árið 1936 og bræðumir Óttar B. og
Arið 1989 keypti Ellingsen víra-
verkstæðið Ingvar og Ari hf. sem
hefur þjónað útgerð og iðnaði frá
árinu 1967. „Með kaupunum gátum
við aukið þjónustuna við sjávarútveg-
inn og aðrar atvinnugreinar,"
segja þeir.
Óttar og Sigtryggur segja að stöð-
ugleikinn í efnahagslífínu undanfarið
geri gæfumuninn um afkomu fyr-
irtækisins. Það hafí verið stöðug
aukning í veltu, sérstaklega núna á
síðustu 2-3 árum. „Ellingsen hefur
upplifað margar kollsteypur með
sjávarútveginum í gegnum árin, í
gengismálum og þeirri aðstöðu sem
sjávarútveginum er búin hveiju sinni.
Við vonumst til að stöðugleikinn
haldist, það er öllum til hagsbóta."
í versluninni eru nú þijár kynslóð-
ir sem starfa saman því börn bræðr-
anna Óttars og Steingríms eru þar
við störf. „Húsnæðið sem við erum
nú í er orðið heldur þröngt en engar
ákvarðanir hafa verið teknar í því
sambandi. Hvað sem verður þá verð-
ur áfram byggt á þeim grunni sem
afí lagði í upphafí rekstrarins,“ sagði
Óttar að lokum.
Stofnandinn Othar Ellingsen og kona hans Marie
sem komu frá Noregi árið 1903.
Steingrímur Ellingsen framkvæmda-
stjórar. Skrifstofustjóri er Sigtrygg-
ur Jónsson.
í samtali við þá Óttar B. og Sig-
trygg kemur fram að þeir telja
ástæðuna fyrir því að verslunin hefur
náð svo háum aldri fyrst og fremst
þá hversu gott starfsfólk þeir hafa
verið með í gegnum árin. Einnig
hafí verið lögð áhersla á breitt vöru-
úrval og til marks um það eru núna
um 10.000 vörutegundir á skrá.
Helstu vöruflokkar eru útgerðarvör-
ur, veiðarfæri, skoðunarvörur, verk-
færi og málningarvörur. Hægt er að
fá allt frá minnstu skrúfu upp í akk-
eri fyrir stórskip. Að auki er seidur
fatnaður. Á fyrstu árum verslunar-
innar var seldur sjófatnaður, síðan
var hægt að fá vinnufatnað og nú
er seldur kuldafatnaður, regnfatnað-
ur og hvers konar hlífðarfatnaður.
Um 25 manns starfa hjá Elling-
sen, þar af eru 10 sem hafa verið
lengur en 20 ár hjá fyrirtækinu.
„Fyrir vikið höfum við starfsfólk með
mikla reynslu og þekkingu," segja
þeir.
„Við reynum að fylgjast með þeim
breytingum sem verða á vörunum
og þjóna hveijum tíma sem best,“
segja þeir minnugir þess sem stofn-
andinn kappkostaði, að hafa vörur
sem tryggja öryggi sjómanna. Þó
má finna vörur í versluninni sem
ekkert hafa breyst í áranna rás. Tjar-
an sem nú er seld er eins og sú sem
var í hillum verslunarinnar á fyrstu
árunum. Verslunin getur einnig stát-
að af mörgum gömlum og grónum
viðskiptasamböndum sem haldist
hafa í fjölda ára.
Stefnan sem mörkuð var fyrir 75
árum er enn í fullu gildi. „Stefnan
er fyrst og fremst að þjóna atvinnu-
vegunum og einstaklingum, sér í lagi
sjávarútvegi, eftir bestu getu og
fylgjast með nýjungum í þeim vörum
sem þessir atvinnuvegir þurfa á að
halda. Við leggjum mikla áherslu á
að eiga vöruna til og koma henni til
viðskiptavinanna á sem skemmstum
tíma,“ segja þeir Óttar og Sigtrygg-
ur.
Ellingsen er bæði heildsala og
smásala og er um helmingur veltunn-
ar vegna heildsölunnar. Heildsalan
seiur m.a. til kaupfélaganna allt í
kringum landið og netagerða. Helstu
viðskiptavinir í smásölunni eru út-
gerðarfyrirtæki, fiskvinnsla, verk-
takar og opinber fýrirtæki. Að
ógleymdum sjómönnunum á minni
bátunum sem koma gjarnan við í
Ellingsen áður en haldið er á haf út.
Verslunin er nú auglýst sem versl-
un athafnamannsins og segja þeir
Óttar og Sigtryggur að það sé mik-
ill vöxtur í sölu til einstaklinga.
„Breyting hefur orðið þar á frá því
verslunin var stofnuð því nú erum
við líka með vörur fyrir sumarbú-
staðaeigendur, ferðalanga og húseig-
endur.“
IÞiNKA UPA S TJÓRAR 1
Þægindi - ðryggi - arðsemi
Teg: 1009 Sv.
Teg: 1009 Gr.
Stærðir: 24-31
Teg: 920
Stærðir: 24-35
Teg: 976-H
Stærðir: 36-45
Teg: LT-7769
Stærðir: 37-46
Mest seldu iarðýturnar á íslandi í dag.
ÍSLENZKA VERZLUNARFÉLAGIÐ HF
V
= ^ SKÚTUVOGI 12C.SÍMI 687550
Skemmuvegi 34, Kópavogi,
sími 76633.