Morgunblaðið - 16.06.1991, Blaðsíða 17
MQRGUNBLÁfllÐ SUNNUDAGUR 1G.
uaau...
— 17
HATIÐARHOLD 17. JUNI
Hafnfirðingar
fagna á Thorsplani
HÁTÍÐARHÖLDIN í Hafnarfirði munu að mestu fara fram á Thors-
plani. Þar verða tónleikar, söngur og dans. Dagskráin í Hafnarfirði
hefst í morgunsárið og stendur fram yfir miðnætti.
Dagskráin hefst með hátíðarmóti
íþrótta- og leikjanámskeiðanna í
frjálsum íþróttum á Kaplakrikavelli
kí. 10. Yngri flokkar Hauka og FH
munu keppa í knattspyrnu á Víði-
staðatúni.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur
og Karlakórinn Þrestir syngur í
Hellisgerði kl. 13.30. Síðan verður
helgistund sem séra Einar Eyjólfs-
Hátíðardag-
skrá á Sel- #
tjarnarnesi
Á SELTJARNARNESI verður
haldið upp á þjóðhátíðardaginn,
17. júní, með hátíðardagskrá á
Eiðistorgi sem hefst kl. 13.30.
Dagskráin hefst með skrúðgöngu
með fánaborg og lúðrablæstri.
Gengið verður frá dælustöðinni við
Lindarbraut upp Hofgarða eftir
göngustígum Strandahverfís og
niður Nesveg að Eiðistorgi þar sem
hátíðin fer fram.
Að loknu setningarávarpi Guð-
rúnar Brynju Vilhjálmsdóttur vara-
formanns Tómstundaráðs Seltjarn-
arness Ieikur Skólahljómsveit Sel-
tjarnarness undir stjórn Kára Ein-
arssonar. Þá ávarpar fjallkonan við-
stadda, Skólahljómsveitin leikur og
Ásgerður Halldórsdóttir formaður
Gróttu flytur hátíðarræðu. Því næst
skemmta jass-bandið Blái fiðringur-
inn og Linda Gísladóttir og stúlkur
úr fimleikadeild Gróttu sýna listir
sínar. Að lokum eru leikþáttur und-
ir stjórn Ásu Ragnarsdóttur og
danssýning á vegum dansskóla
Hermanns Ragnars Stefánssonar.
Vestmannaeyjar:
Hátíðarræða
og barnaball
LEIKFÉLAG Vestmannaeyja
stendur fyrir hátíðahöldunum
þar í bæ 17. júní. Þau fara eink-
um fram á Stakkagerðistúni.
Skrúðganga frá Iþróttamiðstöð-
inni að Stakkagerðistúni hefst kl.
13.30. Þegar þangað er komið mun
Lúðrasveit Vestmannaeyja leika
nokkur lög, Bragi I. Ólafsson flytur
hátíðarræðu dagsins, kirkjukórinn
syngur og fjallkonan flytur ávarp.
Auk þess verða á staðnum Leikfé-
lag Vestmannaeyja og hljómsveitin
Papar. Enn fremur verður haldið
barnaball á Stakkagerðistúni og
verðlaun verða afhent fyrir Há-
steinshlaup sem fer fram fyrr um
daginn (hefst kl. 11). Runólfur
Gíslason er kynnir dagsins.
Um kvöldið er dansleikur í bíósal
Samkomuhússins og hefst hann kl.
22. Þar mun hljómsveitin Papar
leika fyrir dansi.
Ef veður hamlar. munu hátíðar-
höldin flytjast inn í íþróttamiðstöð
að venju.
son sér um. Gengið verður í Skrúð-
göngu frá Hellisgötu á Thorsplan
þar sem Árni Guðmundsson æsku-
lýðsfulltrúi setur hátíðina kl. 15.
Síðan ávarpar Jóna Ósk Guðjóns-
dóttir forseti bæjarstjórnar sam-
komuna og fjallkonan flytur ávarp.
Þá hefst vegleg skemmtidagskrá.
Leikskólaböm syngja, Fimleikafé-
lagið Björk sýnir dans, Tóti trúður
og Bjartmar Guðlaugsson
skemmta, Haukar verða með kar-
atesýningu og Flensborgarskóli
verður með rokkóperu. Við Strand-
götu verða skátar með tívolí og
minigolf. Þá verður hestaleiga við
Hafnarborg og bátaleiga við Hval-
eyrarvatn.
Unglingahljómsveitir halda tón-
leika á Thorsplani kl. 17 og á sama
tíma fer 17. júnímótið í handknatt-
leik fram í íþróttahúsinu við Strand-
götu.
Kvöldskemmtun hefst á Thors-
plani kl. 20.30. Meðal þeirra sem
koma fram eru Lúðrasveit Hafna-
fjarðar, íslandsmeistarar í sam-
kvæmisdönsum, hljómsveitin Is-
landica, söngkonan Margrét Eir,
Spaugstofan og Stjórnin leikur fyr-
ir dansi. Einnig mun nýstúdent
flytja ávarp. Gömlu brýnin leika
gömlu og nýju dansana í félagsmið-
stöðinni Vitanum frá kl. 21 en há-
tíðahöldin standa til kl. 1.
Strætisvagn-
arakaeftir
helgidaga-
áætlun 17. júní
STRÆTISVAGNAR Reykja-
víkur aka eftir tímaáætlun
helgidaga 17. júní, en auka-
vögnum verður bætt á einstak-
ar leiðir eftir þörfuin. Nokkr-
ar breytingar verða frá klukk-
an 13 á leiðum þeirra vagna,
sem venjulega aka um Lækjar-
götu, vegna hátíðarhaldanna,
sem þar verða.
í fréttatilkynningu frá Stræt-
isvögnum Reykjavíkur kemur
fram, að frá því hátíðarhöldin
hefjast í Lækjargötu muni vagn-
ar á leiðum 2, 3, 4 og 5 á vestur-
leið aka Sæbraut og Tryggva-
götu og hafa viðkomu í Tryggva-
götu, við brúna upp á Tollstöð.
Á austurleið munu þessir vagnar
hafa viðkomu í Hafnarstræti.
Vagnar á leiðum 6, 7, 13 og 14
á austurleið, sem venjulega hafa
endastöð við Lækjartorg, munu
frá klukkan 13 hafa viðkomu við
Tollstöðina. Vagnarnir muni aka
þar til dagskrá hátíðarhaldanna
lýkur og síðustu ferðir úr mið-
bænum verða um klukkan 1 eft-
ir miðnætti.
Fjölbreytt dagskrá
í miðbæ Reykjavíkur
FJÖLBREYTT dagskrá verður í miðborg Reykjavíkur í tilefni af þjóð-
hátíðardegi íslendinga, 17. júní. Þá verður hátíðardagskrá í Árbæjar-
safni, skemmtun eldri borgara á Ilótel íslandi og tekið verður á móti
víkingaskipi í Reykjavíkurhöfn.
Kópavogur:
Þjóðhátíð á Rútstúni
HATÍÐARHOLDIN í Kópavogi
munu að mestu fara fram á
Rútstúni. Þar verður fallhlífar-
stökk, Spaugstofan, Jóhannes
Krisljánsson eftirherma, atriði
úr barnasýningu Leikfélags
Kópavogs og unglingahljóm-
sveitin Timburmenn spilar.
Dagskráin hefst með því að
Skólahljómsveit Kópavogs leikur
við Kópavogshæli kl. 10. Keppt
verður í víðavangshlaupi á Kópa-
vogsvelli kl. 11 í flokkum stúlkna
og drengja upp að 16 ára aldri.
Skrúðganga frá Kópavogsskóla
hefst kl. 13.30. Hornaflokkur Kópa-
vogs leiðir gönguna að Rútstúni þar
sem Þorgerður Aðalsteinsdóttir for-
maður handknattleiksdeildar
Breiðablikur setur hátíðina. Síðan
verður fallhlífarstökk og Sigurður
Geirdal bæjarstjóri tekur við kefiinu
í Landshlaupi FRÍ. Fjallkonan flytur
ávarp og samkór Kópavogs syngur
undir stjóm Stefáns Guðmundsson-
ar.
Kristján Guðmundsson flytur
hátíðarræðu kl. 15 og því næst mun
Leikfélag Kópavogs flytja atriði úr
barnaleikritinu í Súrmjólkurþorpi.
Margrét Gylfadóttir nýstúdent mun
flytja ávarp og Leikfélag Kópavogs
mun flytja dagskrá með söngvum
úr ýmsum verkum sem leikfélagið
hefur flutt síðastliðin 30 ár. Jóhann-
es Kristjánsson eftirherma og
Spaugstofan skemmta og sigurveg-
urum úr Víðavangshlaupi Kópavogs
verða afhent verðlaun.
Að lokum mun unglingahljóm-
sveit úr Kópavogi, Timburmenn,
leika á Rútstúni. Kynnir á hátíðinni
verður Sigurður Grétar Guðmunds-
Dagskráin verður með hefðbundn-
um hætti fram að hádegi. Forseti
borgarstjórnar leggur blómsveig á
leiði Jóns Sigurðssonar í Kirkjugarð-
inum við Suðurgötu kl. 10. Þá hefst
hátíðardagskrá við Austurvöll kl.
10.40. Eftir setningarávarp Júlíusar
Hafstein borgarfulltrúa leggur
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, blómsveig frá íslensku þjóðinni
að minnisvarða Jóns Sigurðssonar
og Davíð Oddsson forsætisráðherra
ávarpar viðstadda. Þá verður ávarp
fjallkonunnar. Karlakór Reykjavíkur
syngur og Lúðrasveit V erkalýðsins
leikur. Guðsþjónusta í Dómkirkjunni
hefst kl. 11,15. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson predikar og Dómkórinn
syngur undir stjórn Marteins H. Frið-
rikssonar. Einsöngvari er Signý Sæ-
mundsdóttir.
Skrúðganga leggur af stað frá
Hlemmi kl. 13.40 og önnur frá Haga-
torgi fimm mínútum síðar. Skátar,
Egilsstaðir:
Hátíðarkaffi
og Karíus og
Baktus
HÁTÍÐARDAGSKRÁ á þjóðhátíð-
ardaginn, 17. júní, hefst með guðs-
þjónustu í Egilsstaðakirkju kl.
13.30.
Að henni lokinni hefst skrúðganga
þar sem lúðrasveit er í fararbroddi
að hátíðarsvæði við sundlaugina. Þar
mun fjallkonan flytja ávarp og margt
verður til skemmtunar s.s. lúðra-
sveit, gervihljómsveitarkeppni, Kar-
íus og Baktus, minigolf, hestar,
þrautaleikir og trúðar. Hátíðarkaffí
Bláklukkunnarer í Hótel Valaskjálf.
Kvölddagskrá við Grunnskóla Eg-
ilsstaða hefst kl. 20. Þar verða kynnt
úrslit í gervihljómsveitarkeppni og
síðan teþur við dansleikur. Hljóm-
sveitin Ýmsir flytjendur mun leika
fyrir dansi til miðnættis.
Mosfellsbær:
Sundmót og dansleikir
I MOSFELLSBÆ verður mikið
um að vera á þjóðhátíðardaginn,
17. júní. Þar má nefna sundmót,
víðavangshlaup, leikþátt og
dansleiki.
Dagskráin hefst með sundmóti í
Varmárlaug kl. 9.30. Árlegt Víða-
vangshlaup UMFA hefst kl. 11 á
Varmárvelli.
Skrúðganga hefst kl. 13.30 og
verður gengið frá versluninni Nóa-
túni að íþróttahúsinu. Skólahljóm-
sveit Mosfellsbæjar undir stjóm
Birgis D. Sveinssonar leiðir
gönguna ásamt hestamönnum og
ungu íþróttafólki. Kl. 14 hefst svo
fjölskylduskemmtun í íþróttahúsinu
m.a. með ávarpi fjallkonu. Eftir
dagskrána í íþróttahúsinu er boðið
upp á kaffi og kökur í Hlégarði.
Kvöldskemmtun í íþróttahúsinu
hefst kl. 20.30 en auk þess verður
boðið upp á diskótek fyrir börn í
ísafjörður:
Hátíðadagskrá á sjúkrahústúni
Á ÍSAFIRÐI hefjast hátíðarhöld á sjúkrahústúni kl. 13.45. Auk þess
er unglingadansleikur í Sjallanum uin kvöldið og fjölskyldudansleik-
ur í Neðstakaupstað.
Hátíðin hefst með leik Lúðra-
sveitar Isafjarðar. Síðan er setning-
arávarp formanhs bæjarráðs, Hans
Georgs Bæringssonar og einnig
ávarpa samkomuna fulltrúar vina-
bæja ísafjarðar á Norðui(löndum,
fjallkonan og Bera Einarsdóttir flyt-
ur hátíðarræðu. Sunnukórinn syng-
ur og Ágústa Ágústsdóttir syngur
einsöng. Kvenfélagið Hlíf sýnir og
Litli leikklúbburinn flytur jþátt úr
Kardimommubænum. Því næst
sýna unglingar úr félagsmiðstöð
dans. Auk þess verða á svæðinu
sölutjöld, skátar með þrautir og
leiki, golfklúbbur með minigolf,
hestamenn og kl. 16.30 hefst kassa-
bílarall 9-12 ára barna.
Kl. 21 hefst unglingadansleikur
í Sjallanum. Hljómsveitin Galileo
leikur fyrir dansi. Klukkusturídu
síðar hefst fjölskyldudansleikur í
Neðstakaupstað. Þar sér Harmon-
ikkufélag Vestfjarða um fjörið.
Hlégarði og unglingadansleikur
hefst þar kl. 22.
Að lokum er vert að geta þess
að Flugklúbbur Mosfellsbæjar býð-
ur upp á útsýnisflug frá flugvellin-
um á Tungubökkum að lokinni fjöl-
skylduskemmtun í íþróttahúsinu ef
veður ieyfir.
Lúðrasveit Reykjavíkur og Lúðra-
sveitin Svanur verða í fararbroddi.
Skemmtidagskrá hefst á fjórum leik-
sviðum í Miðbænum kl. 14 á Lækjar-
torgi, í Lækjargötu, í Hallargarðinum
og í Hljómskálagarðinum. Meðal
þeirra sem þar koma fram eru Bubbi
Morthens, Spaugstofan og fleirri Á
Tjörninni verða röðrabátar og sýning
módelbáta. Friðarhlaupinu frá Þing-
völlum lýkur í Hljómskálagarðinum
kl. 13.50 og fímm mínútum síðar
hefst Landshlaup FRÍ frá sama stað.
Félagsstarf aldraða gengst fyrir
skemmtun fyrir ellilífeyrisþega á
Hótel íslandi milli kl. 14 og 18. í
Árbæjarsafni verða kynnt vinnu-
brögð fyrri tíma í sérstakri hátíðar-
dagskrá frá kl. 10 til 18. Fombíla-
klúbburinn mun sýna gamla bíla á
Laugavegi og á Bakkastæði sem
hefst kl. 13.20. Landsfrægir
skemmtikraftar munu heimsækja
barnadeildir Landsspítalans og
Landakotsspítala.
Við Grófarbryggju í Reykjavíkur-
höfn verður tekið á móti víkingaskipi
og forseti Islands mun gefa skipinu
nafn. Norskir og íslenskir skemmti-
kraftar koma fram.
Um kvöldið leika Sálin hans Jóns
míns, Síðan skein sól, Fjallkonurnar
og GCD á tónleikum í Miðbænum. Á
Þórshamarsplani verða gömlu dans-
arnir við harmonikkuspil.
Keflavík:
Messa, töfra-
brögð og harm-
onikkuleikur
Þjóðhátíðardagskráin 17. júní
fer einkum fram í skrúðgarði
bæjarins, á Tjarnargötunni og í
K-17.
Dagskráin hefst kl. 13 með þjóð-
hátíðarmessu í Keflavíkurkirkju.
Skrúðganga leggur af stað frá kirkj-
unni að hátíðarsvæðinu kl. 13,50.
Þar fer fram fánahylling, Karla- og
kvennakór Keflavíkur syngur þjóð-
sönginn og forseti bæjarstjómar,
setur hátíðina. Síðan flytja fjallkonan
og nýstúdent ávörp og boðið verður
uppá fjölbreitta skemmtidagskrá.
Kvölddagskrá í K-17 hefst kl.
20.30. Þar skemmta m. a. íslands-
meistarar í samkvæmisdansi, auk'
fjökla annarra.
Á Tjarnargötu verður líka kvöld-
dagskrá og hefst kl. 19.30. Pandóra
og Glerbrot munu leika fyrir dansi
en auk þess koma fram Bubbi Morth-
ens, Rúnar Júlíusson og hljómsveitin
GCD.
Garðabær:
Víðavangshlaup,
listflug og siglingar
I Garðabæ verður haldið upp á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, með
umfangsmikilli dagskrá sem hefst kl. 9.30.
Krakkar á aldrinum 6-13 ára
munu keppa í víðavangshlaupi við
íþróttamiðstöðina Ásgarð er hefst
kl. 10. Þá fer einnig fram knatt-
spyrnukeppni milli bæjarhluta, í
flokki karla 30 ára og eldri...Sigl-
ingakeppni hefst á Arnarnesvogi
kl. 9.30 og Björn Thoroddsen mun
sýna listflug á tvíþekju við Ránar-
grund kl. 11.
Við Hofsstaðaskóla hefst dag-
skráin kl. 14 með hátíðarstund í
umsjón séra Braga Friðrikssonar.
Síðan skemmtir götuleikhópurinn
Auðhumla í upphafí skrúðgöngu
sem leggur af stað frá Ilofstaða-
skóla kl. 14.25. Förinni er heitið á
hátíðarsvæði við Flataskóla en þar
mun Erling Ásgeirsson setja hátíð-
ina. Lúðrasveit mun leika og fjall-
konan ávarpa samkomuna. Síðan
mun fjöllistarmaðurinn Gareth Will-
iams sýna listir sínar og hljómsveit-
in Stjórnin skemmta. Hestamanna-
félagið Andvari gengst fyrir reið-
sýningu á hátíðarsvæðinu og kl. 16
hefst kaffisala Kvenfélags Garða-
bæjar í Garðalundi.
Spaugstofan mun skemmta í
Ásgarði og hefst sú skemmtun kl.
17. Þar verða einnig íslandsmeist-
arar í Suður-Amerískum dönsum
og félagar úr skólakór Garðabæjar.
Auk þess má nefna fimleikasýn-
ingu, boltafjör, ruðningssýningu,
trúða og hljómsveitin 1. apríl
skemmtir milli atriða.
Um kvöldið mun svo diskótekið
Dísa skemmta bæjarbúum í Garða-
lundi og reka smiðshöggið á þjóð-
hátíðina í Garðabæ.