Morgunblaðið - 16.06.1991, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMGAR SUNNUDAGUR 16. JÚNI 1991
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGJALDUR ÍSAKSSON,
frá Fífuhvammi,
andaðist að morgni 14. júní sl. Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey.
Henrietta T. ísaksson og börn.
t
STEINUNN HANNESDÓTTIR
Hofsvaliagötu 16,
Reykjavík,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, föstudaginn 14. júní.
Jarðarförin verður auglýst siðar..
Vandamenn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BJÖRG RAGNHILDUR EINARSDÓTTIR,
Víðivangi 5,
Hafnarfirði,
lést í Landspítalanum þann 1 2. júní sl.
Jarðarförin fer fram þriðjudaginn 18. júní kl. 15.00 frá Víðistaða-
kirkju.
Einar H. Óskarsson, Leslie Óskarsson,
Kristín S. Óskarsdóttir, Helgi Aðalsteinsson,
Björgvin Þ. Óskarsson
og barnabörn.
t
Útför
FINNBOGA Þ. ÞORBERGSSONAR
frá Efri-Miðvík,
Hátúni 10,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. júní kl. 13.30.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Oddný Finnbogadóttir, Björn Fr. Björnsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
SIGTRYGGUR STEFÁNSSON
byggingafulltrúi,
Norðurbyggð 20,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 19. júní kl.
13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Maj-Britt Stefánsson, Arnar Stefánsson,
Percy B. Stefánsson, Alex Stefánsson,
Stefán B. Sigtryggsson, óskírður Stefánsson.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIGERÐUR EGGERTSDÓTTIR,
Egilsgötu 16,
Reykjavík,
sem lést 8. júní sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, þriðju-
daginn 18. júní kl. 16.30.
Einar Guðjónsson,
Guðborg Einarsdóttir, Jónas Þórðarson,
Þuríður Einarsdóttir, Ólafur Vignir Albertsson,
Sigurberg Einarsson, Steinunn Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
ERLA UNNUR ÓLAFSDÓTTIR
frá Strönd í Vestmannaeyjum,
Álftamýri 20, Reykjavík,
verður jarðsett þriðjudaginn 18. júní kl.
10.30 frá Fossvogskirkju. Þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Krabba-
meinsfélag íslands.
Sigurður Elli Guðnason, Guðmunda Kristinsdóttir,
Arndís Guðnadóttir, Sigurður G. Sigurðsson,
Ólafur Guðnason, Guðmunda Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabarn og aðrir vandamenn.
Erla U. Olafsdóttir,
Vestmannaeyjum
Fædd 22. nóvember 1922
Dáin 9. júní 1991
Nu er dagur að kveldi kominn
hjá henni ömmu minni, sem dó 9.
júní, á einum fallegasta degi þessa
sumars.
Hver hefði getað ímyndað sér að
nokkur manneskja hefði getað sýnt
svo mikinn styrk og kærleika eins
og hún gerði í veikindum sínum.
Nu veit ég að hún er í góðum
höndum og líður vel.
Amma vár einn af mínum bestu
vinum og áttum við fjölmargar ynd-
isfagrar samverustundir. Allt vildi
hún fyrir mig gera og aldrei var
hún ráðalaus, þegar ég spurði hana
ráða.
Hver hefði getað óskað sér betri
ömmu og vinar. Það er sárt til þess
að vita að nú er hún amma farin.
Eg veit að allir í fjölskyldunni munu
sakna hennar jafn sárt og ég.
Ég ætla að gera hennar orð að
mínum orðum „Guð geymi“ elsku
ömmu mína og þakka ég henni af
alhug allar góðu stundirnar okkar
saman.
Far vel heim
heim í drottins dýrðargeim!
Náð og miskunn muntu finna.
meðal dýpstu vina þinna.
Friðarkveðju færðu þeim.
Far vel heim.
(M. Jochumsson)
Guðni Hjörtur Sigurðsson.
Árla morguns, á fögrum sumar-
degi, hinn 9. júní sl. andaðist Erla
frænka mín á Vífilsstaðaspítala eft-
ir löng og erfið veikindi. Með nokkr-
um orðum langar mig að minnast
hennar.
Erla Unnur fæddist 22. nóvem-
ber 1922 á Strönd í Vestmannaeyj-
um. Hún var dóttir hjónanna Guð-
rúnar Bjarnadóttir og Ólafs D. Sig-
urðssonar. Var hún yngst 10 systk-
ina, en nú eru aðeins 2 systur eftir-
lifandi, þær Guðrún og Lilja, sem
t
Systir okkar,
KRISTÍN GUÐBRANDSDÓTTIR,
áður til heimilis á Hverfisgötu 84,
sem andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands 12'. júní sl., verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. júni kl. 13.30.
Systkini og frændfólk.
t
Bróðir okkar, PÉTUR SIGURÐSSON
frá Görðum,
verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 19. þessa mánað-
ar kl. 13.30. Systkini.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsljórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning-
LE( M Hamars íSTEIN AR F. 181960
OSAIK H.l höfða 4 — sfmi €
[ Legsteinar I Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. 1 Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf 1 um gerð og val legsteina. |
1 K S.HELGASON HF 1 | STEINSMIÐJA | ■■ SKEMMUVEGI 48-SlMI 76677 1
nú sakna systur sinnar. Erla giftist
24. desember 1942 Guðna H. Arna-
syni frá Vestmannaeyjum, en hann
andaðist fyrir aldur fram í október
1965. Erla og Guðni eignuðust 3
börn: Sigurð Ella, Arndísi og Ólaf.
Erla sýndi mér ætíð mikla hlýju
og ástúð, enda þótti mér afar vænt
um hana. Það var alltaf ánægjulegt
að spjalla við hana. Hún hafði þann
eiginleika að geta hiustað. Eins vár
mjög gott að leita ráða hjá henni,
þegar ég þurfti á að halda, ekki síst
í sambandi við matargerð, því hún
kunni svo sannarlega að elda góðan
mat. Erla vissi ávallt hvaða krydd
skyldi nota, til að ná fram rétta
bragðinu hveiju sinni. Hún var
einnig mikil hannyrðakona og með
afbrigðum vandvirk.
Erla frænka var smekkleg í
klæðaburði og hafði gaman af því
að punta sig. Þegar hún hafði klætt
sig uppá sást best hversu glæsileg
kona hún var.
Hún þjáðist mikið í veikindum
sínum, en kvartaði ekki. Örlögunum
mætti hún af æðruleysi. Trúin var
henni styrkur. Nú fær hún að hitta
Guðna sinn og verða áreiðanlega
fagnaðarfundir með þeim hjónum.
Elsku Addý, Siggi, Óli og fjöl-
skyldur. Ég og Ragnar sendum
ykkur hugheilar samúðarkveðjur.
Með söknuði og jafnframt þakklæti
kveð ég Erlu frænku mína.
_ Lóa
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
fíiðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
%