Morgunblaðið - 16.06.1991, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNh/RAÐ/SMál&mMGUK i?éf#uWrM99i
40
JRL wiurB m^m m m a / V'C/N //^ A O
Gjaldkeri
Óskum að ráða traustan starfskraft til gjald-
kera- og bókhaldsstarfa við fyrirtæki okkar.
Vinnutími er hálfan daginn eftir samkomulagi
ca 50%-60% starf. Viðkomandi þarf að vera
traustur og nákvæmur. Æskilegur aldur frá
35 ára.
Skriflegar upplýsingar er greini frá menntun,
aldri og fyrri störfum sendist auglýsingadeild
Mbl. merktar: „Trúnaður - 7885“ fyrir 21.
júní.
Fiskvinnsla
- stjórnun
Óskum að ráða röskan mann eða konu, með
matsréttindi og reynslu af frystingu, til að
annast daglegan rekstur lítillar fiskverkunar
á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Viðkomandi þarf að sjá um dagleg innkaup
hráefnis á mörkuðurn og annast frágang
sendinga unninna afurða og ferskra á er-
lenda markaði.
Umsóknir merktar: „Fiskvinnsla H - 101“
skal skilað til auglýsingadeildar Mbl fyrir 21.
júní nk.
12.30-17.00
Við óskum að ráða nú þegar starfskraft á
besta aldri til símavörslu og móttöku við-
skiptavina.
Þú yrðir „andlit okkar" og því þarft þú að
vera snyrtileg og bjóða af þér góðan þokka.
Við bjóðum þér ágæta vinnuaðstöðu og laun
í stóru og öflugu fyrirtæki.
Vinsamlegast sendið okkur umsókn þína á
skrifstofu okkar, helst fyrir 20. júní nk.
Jddi
Prentsmiðjan Oddi hf.,
Höfðabakka 3-7 - 121 Reykjavík.
Markaðsstjóri
Hefur þú náð árangri í starfi? Viltu kynna
þér nýtt starf? Ef þú telur að eftirfarandi ’
lýsing eigi við þig, þá er hér áhugavert starf
í boði.
Óskum að ráða markaðsstjóra til starfa hjá
traustu fyrirtæki sem byggir afkomu sína á
eigin framleiðslu. Varan er löngu þekkt og á
traustan sess á neytendamarkaðinum. Sam-
keppnin er hörð.
Við leitum að markaðsstjóra til að hafa yfir-
umsjón með markaðsmálum fyrirtækisins.
Samningagerð, auglýsingamál, gerð mark-
aðskannana o.fl. Hann þarf að hafa frum-
kvæði, vera drífandi og hugmyndaríkur. Lögð
er áhersla á lipurð og sveigjanleika í sam-
skiptum. Háskólamenntun æskileg. Aldur
30-40 ár.
I boði er áhugavert og krefjandi framtíðar-
starf. Starfsaðstaða til fyrirmyndar. Góð laun
í boði fyrir hæfan mann. Byrjunartími verður
samkomulag.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verður farið
með sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar „236“.
Kennarar - kennarar
Kennara vantar í Húsabakkaskóla í Svarfað-
ardal, sem er heimavistarskóli með u.þ.b.
45 nemendur í 1.-9. bekk. Góðir tekjumögu-
leikar. Ódýrt húsnæði.
Upplýsingar veita formaður skólanefndar,
Svana Halldórsdóttir, í síma 96-61524 og
skólastóri, Helga Hauksdóttir, í síma
96-61552.
Skólanefnd Húsabakkaskóla.
Húsahönnuðir
- tölvuvæðing
Samstarfshópur um tölvuvædda hönnun
(Macintosh) getur bætt við sig einum aðila.
Um er að ræða sjálfstæða einingu í hús-
næði við Grensásveg í Reykjavík ásamt sam-
eiginlegu rými, símaþjónustu og hluttekt í
jaðartækjum (plotter o.fl.). Æskilegt er að
viðkomandi sé arkitekt, raflagnahönnuður
eða landlagsarkitekt.
Lysthafendur sendi upplýsingar á auglýs-
ingadeild Mbl. merktar: „Tölvuvæðing -
7262“ fyrir 24. júní.
Innflutningsritari
óskast til starfa hjá þjónustufyrirtæki í
Reykjavík.
Ritarinn sér um erlendar pantanir, uppgjör
við birgja verðútreikninga og tollavinnu.
Ritarinn þarf að hafa góða reynslu af hlið-
stæðum skrifstofustörfum og getu til að
starfa sjálfstætt. Gott vald á ensku og þjón-
ustulipurð skilyrði.
Um er að ræða sjálfstætt og krefjandi starf.
Laust strax eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar eru eingöngu veittar á
skrifstofu FRUM hf. Vinsamlegast hafið
samband við HolgerTorp þriðjudag-fimmtu-
dag kl. 13.30-16.00. Skriflegum umsóknum
skal skilað fyrir 21. júní.
Starfsmannastjórnun
Rá&ningaþjónusta I 1
Sundaborg 1 - 104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
(L
ST. JÓSEFSSPlTALI
LANDAKOTI
Hjúkrunarfræðingar
- hjúkrunarfræðingar
Augndeild Landakotsspítala óskar eftir hjúk-
runarfræðingi á næturvaktir.
Deildin er lítil og þægileg.
Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir,
deildarstjóri, í síma 604380.
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing á vöknun
(post op.). Deildin er einungis opin á virkum
dögum frá kl. 08.00-16.00. Fullt starf, en hluta-
starf kemur einnig til greina.
Nánari upplýsingar gefur Edda Hjaltested, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 604300.
Sólgarðsskóli,
Eyjafjarðarsveit
Kennara vantar fyrir yngri nemendur næsta
skólaár. Samkennsla. Skólinn er u.þ.b. 30
km frá Akureyri. Húsnæði til staðar.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
96-31262 og formaður skólanefndar í síma
96-31205 (Kristján).
Smáspenna -
tæknimaður
Traust fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar
eftir að ráða rafvirkja eða mann með undir-
stöðugóða tæknimenntun eða reynslu í vinnu
við smáspennu. Starfið felst í uppsethingu
á tækjum, viðgerðum á verkstæði fyrirtækis-
ins o.fl.
Leitað er eftir áhuga-, rögg- og reglusömum
starfsmanni sem kann að meta mikla vinnu
og góðan starfsanda.
Áhugasamir leggi inn eiginhandar umsóknir
á auglýsingadeild Mbl. fyrir 21. júní merkt:
„Smáspenna - 6598“.
Frá Grunnskóla
Fáskrúðsfjarðar
Nokkrar kennarastöður eru lausar.
Kennslugreinar m.a. raungreinar, danska og
samfélagsfræði, auk bekkjarkennslu. Að-
staða í skólanum er góð, bæði húsnæði og
kennsiutæki.
Útvegum ódýrt leiguhúsnæði og leikskólapláss
ertil staðar. Flutningsstyrkurverðurgreiddur.
Upplýsingar gefa skólastjóri í vs. 97-51224
eða hs. 97-51159, og formaður skólanefndar
ívs. 97-51240 eða hs. 97-51248.
Skólanefnd.
Fulltrúi
dreifingarstjóra
Stórt fjölmiðlafyrirtæki í borginni óskar að
ráða aðstoðarmann dreifingarstjóra. Starfið
er laust í byrjun júlí. Leitað er að drífandi
og kröftugum einstaklingi sem er vanur tölv-
um og góður í íslensku, lipur í umgengni og
vinnur skipulega.
Aldur 20 til 40 ára. Fjölbreytt og krefjandi
starf.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 22. júní nk.
Gijðnt Tónsson
RÁÐC J ÖF & RÁÐN l N CARLjÓN U STA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar
Fóstrur
Okkur vantar fóstru á leikskólann Norðurberg
frá 15. ágúst eða eftir nánara samkomulagi.
Á leikskólanum eru tvær aldursblandaðar
deildir með börn á aldrinum 3ja til 6 ára.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma
53484.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.