Morgunblaðið - 16.06.1991, Blaðsíða 2
J
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JUNI 1991
EFNI
Félagsmálaráðherra:
Karlar verði líka til-
nefndir í Jafnréttísráð
JÓHANNA Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sendi í gær tilmæli
til þeirra samtaka, sem tilnefna
fulltrúa í Jafnréttisráð, um að þau
endurskoði tilnefningar sínar í
ráðið en ráðherra undirbýr nú
Flugleiðir:
Ferðir hafn-
ar til Ztirich
FLUGLEIÐIR byijuðu í gær,
laugardag, að fljúga til nýs
áfangastaðar, Ziirich í Sviss.
Flogið verður til Zúrich tvisvar í
viku í sumar, á laugardögum og
mánudögum, fram til 9. september
í haust til Kloten-flugvallar. Þaðan
eru samgöngur góðar bæði til ann-
arra landa og annarra borga í Sviss,
að því er fram kemur í frétt frá
Flugleiðum. Járnbrautarstöð er í
kjallara flugstöðvarinnar og tekur
lestarferð inn í hjarta Zúrich-borgar
10 mínútur. Vel er bókað í flugið
til Zúrich í sumar. Er þar einkum
um að ræða Svisslendinga sem
hyggjast koma til íslands.
skipun í nýtt Jafnréttisráð. Að
sögn Jóhönnu er ástæða bréfsins
sú að í ljós kom að samtökin hafa
eingöngu tilnefnt konur sem aðal-
menn og varamenn í Jafnréttis-
ráð. Samkvæmt lögum væri hins
vegar gert ráð fyrir sem jafnastri
skiptingu á milli kynjanna og það
væri einnig markmið fram-
kvæmdaáætlunar ríkissljórnar-
innar.
„Þarna er verið að gera tilraun
til að koma körlum inn í Jafnréttis-
ráð og er þessum tilnefningaraðilum
gefinn kostur á að endurskoða til-
nefningar sínar. Er þeim gefinn
frestur til 24. júní,“ segir Jóhanna
í samtali við Morgunblaðið.
Þeir aðilar sem tilnefna fulltrúa í
Jafnréttisráð eru VSÍ, ASÍ,BSRB
Kvenréttindafélagið og Kvenfélaga-
sambandið.
„Ráðuneytið mun fylgja þeirri
reglu í framtíðinni, þegar það ieitar
tilnefninga, að komi í Ijós að einung-
is berist tilnefningar um annað kyn-
ið munum við gefa tilnefningaraðil-
um kost á að breyta tilnefningum
sínum. Ég hef einnig skrifað öllum
ráðherrum rikisstjórnarinnar og
hvatt þá til að taka upp þessa
stefnu," sagði Jóhanna.
Seðlabankinn:
Tilbúin tillaga um
sláttu á 100 kr. mynt
SEÐLABANKINN hefur nú til-
búna tillögu til viðskiptaráð-
herra um að slegin verði 100
krónu mynt og segir Stefán
Þórarinsson, forstöðumaður
rekstrardeildar bankans, að út-
lit myntarinnar liggi einnig fyr-
ir en engin ákvörðun hafi þo
verið tekin um hvort rétt sé að
ráðast í útgáfu á 100 kr. mynt
en það verði rætt innan bankans
á næstu vikum.
„Það eru skiptar skoðanir um
hvort það sé tímabært að gefa út
100 krónu mynt enda fylgir því
talsverður kostnaður," segir hann.
Verslunarráð íslands hefur ítrekað
þá skoðun sína við Seðlabankann
að slegin verði 100 kr. mynt og
að hugað verði að sláttu 200 kr.
myntar. „Það er auðvitað keppi-
kefli bankans að fullnægja eðlileg-
um kröfum viðskiptalífsins að
þessu leyti. Ef niðurstaðan verður
séu að eðlilegt sé að gefa út 100
krónu mynt verður gerð tillaga
um það til viðskiptaráðherra og
þá má búast við að útgáfa á 10.000
króna seðlum fylgi fljótlega í kjöl-
farið, “ segir Stefán.
Morgunblaðið/Sverrir
Milljónatjón varð hjá Strætisvögnum Reykjavíkur á föstudags-
kvöíd þegar vagn, sem skilinn hafði verið eftir í gangi, rann á
tvo aðra. Hér skoðar Hannes H. Garðarsson, umsjónarmaður
þvottastöðvar SVR, skemmdirnar á einum vagninum.
Milljónatjón hjá SVR:
Mannlaus strætis-
vagn ók á tvo aðra
MANNLAUS strætisvagn rann af stað við þvottastöð SVR við
Kirkjusand á föstudagskvöld og stórskemmdi tvo aðra. Starfsmað-
ur hafði yfirgefið bílinn og skilið hann eftir í gangi og í gír, en
hafði hins vegar ekki sett hann í handbremsu.
Hannes H. Garðarsson, um- verið orðinn nægilegur hafi vagn-
sjónarmaður þvottastöðvarinnar,
segir að starfsmaðurinn, sem er
afleysingamaður, hafi sett stræt-
isvagninn í gang og verið að bíða
eftir því að þrýstingur næðist upp
í loftkerfi hans. Hann hafi yfirgef-
ið vagninn og skilið hann eftir í
gír, en ekki í handbremsu. Þegar
þrýstingurinn í loftkerfinu hafí
inn svo runnið af stað. Hann hafi
náð talsverðum hraða og skollið
af miklu afli á öðrum vagni, sem
varð á leið hans og sá hafi kast-
ast á þann þriðja.
Hannes segir að skemmdirnar
á vögnunum séu afar miklar og
Ijóst sé að þarna sé um miUjóna-
tjón að ræða.
Mikil hækkun SPA-far-
gjalda til Suður-Evrópu
Leitum leiðréttingar á þessu, segir blaðafulltrúi Flugleiða
FLUG til ákvörðunarstaða í
Suður-Evrópu um Amsterdam
með Flugleiðum og hollenska
flugfélaginu KLM hækkuðu um
tugi prósenta í lok síðustu viku.
Um er að ræða svokölluð SPA-
fargjöld, en það eru sérstök af-
sláttarfargjöld sem flugfélög
semja um sín á milli þegar flogið
er með báðum félögunum til
áfangastaða um allan heim. Far-
gjöld með Flugleiðum og SAS
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Hundrað hátalarar í Kaplakrika
Nú er talið að frá 8.000 til 10.000 manns komi á tónleikana ísinn
brotinn í Kaplakrika í dag. Hljóðkerfið byggist á 100 hátölurum, sem
skila um 70.000 w hljóðstyrk, en í ljósabúnaði eru um 500 stök ljós.
Talsmenn Rokks hf., sem skipuleggur tónleikana, sögðu enga leið að
áætla hve marga miða væri búið að selja. Að sögn Alans Balls hjá
Rokki hf. tók salan mikinn kipp á fimmtudag og enn á föstudag og
því erfitt að áætla söluna, en líklega hefðu selst vel á áttunda þúsund
miðar. Alan sagði að hin aukna miðasala hefði orðið til þess að ákveð-
ið var að auka öryggisgæslu og hefðu 50 manns verið ráðnir til viðbót-
ar. Það verða 250 manns við öryggisgæslu og jafnvel fleiri ef miða-
sala gefur tilefni til. Fyrstu hljómsveitirnar komu til landsins í gær-
kvöldi, en hinar á níunda tímanum í dag.
um Kaupmannahöfn hækkuðu
með fáeinum undantekningum
um 5-6% en þau voru hærri fyrir
og eru fargjöldin nokkuð sain-
bærileg nú hvort sem flogið er
um Kaupmannahöfn eða Amster-
dam.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, segir að sérstök kynning-
arfargjöld hafi gilt í vetur til um
100 áfangastaða um allan heim
þegar flogið var um Amsterdam.
Þessi fargjöld hafi verið ákveðin í
vetur til að kynna Schiphol sem
tengiflugvöll. Það sé meginskýring-
in á fargjaldabreytingunni, en auk
þess hafi eitthvað farið úrskeiðis
varðandi hækkun þessara fargjalda
til átta áfangastaða í Suður-Evrópu
og félagið muni leita leiðréttingar
varðandi það í samvinnu við KLM
og SAS. Nú sé það þannig í sumum
tilfellum að ódýrara sé að kaupa
farmiða til Amsterdam og áfram
til Suður-Evrópu í tvennu lagi, heid-
ur en að kaupa SPA-fargjald.
Sem dæmi má nefna að flug til
Istanbul um Amsterdam hækkar
mest úr 40.950 krónur í 70.300 eða
um 71%. Fargjöld til Spánar hækka
á bilinu 42-52%, voru flest 46.200
krónur og urðu 70.300 krónur.
Þarna er um að ræða áfangastaði
eins og Alicante, Malaga, Palma,
Valencia og Barcelona. Sama giidir
um flugfargjöld til Portúgals. Far-
gjaldið til Rómar hækkar um 51%
úr 44.660 í 67.700 kr. og til Mílanó
úr 44.660 í 63.120 krónur. Far-
gjaldið til Aþenu hækkar um 57%
úr 44.630 í 70.300 og til Nice í
Frakklandi um 44.100 í 63.120.
SAS var einnig með sérstök
SPA-fargjöId í gildi í vetur, þegar
flogið var með SAS til Kaupmanna-
hafnar og áfram til annars áfanga-
staðar. Um svipað verð var að ræða
og ef flogið var með Flugleiðum
og KLM. Fargjöldin giltu fyrst til
31. mars en gildistíminn var fram-
lengdur til 31. maí og féllu þau þá
úr gildi. Samningur Flugleiða og
SAS um Spa-fargjöld er áfram í
gildi.
Húsavík:
Höfði hf.
rekinn með
hagnaði
Húsavík.
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Höfði hf.
á Húsavík, sem gerir út togarann
Júlíus Havsteen, var rekið með
19 milljóna króna hagnaði á
síðastliðnu ári.
Þetta kom fram á aðalfundi fé-
lagsins sem nýlega var haldinn.
Hluthafar félagsins eru 84 en mest-
ur hluti er í eigu Fiskiðjusamlags
Húsavíkur 62% og Húsavíkurbæjar
34%.
Hjá félaginu störfuðu 30 manns
og voru launagreiðslur alls 65 milij.
kr. Togarinn stundaði eingöngu
rækjuveiðar og aflaði sér veiðiheim-
ilda fyrir 767 tonnum, með kvóta-
skiptum á botnfiski við aðrar útgerð-
ir, ásamt því að kaupa rækjukvóta.
Meiri hluti rækjunnar var unninn
um borð í skipinu.
Einnig rekur félagið umfangs-
mikla netagerð og voru tekjur henn-
ar 45,5 milljónir og fara þær vax-
andi ár frá ári, því framleiðsla þeirra
á rækjutrollum, er orðin landsfræg.
- Fréttaritari
►i-56 jfterfpmblabt&i
Bruðl eða bnrn nauð-
syn?
►Lánasjóður íslenskra náms-
manna hefur verið í brennidepli
að undanförnu vegna breyttra út-
hlutunarreglna. Birgir Armanns-
son blaðamaður fjallar hér um fjár-
hagsstöðu sjóðsins og hinar
breyttu reglur. /10
Ný bylting í Rúss-
landi?
►Auknar líkur á breytingum í
Sovétríkjunum í kjölfar sigurs
Jeltsíns/14
Þjóðarskömm ef mið-
bærinn drabbast niður
►Rætt við Pétur Sveinbjarnarson,
framkvæmdastjóra nýstofnaðs
Þróunarfélags Reykjavíkur /18
Stefnan í fullu gildi
►Verslunin Ellingsen 75 ára /20
Mér þykir vænt um
Egilssögu
►Rætt við Halldór Blöndal land-
búnaðar- og samgönguráðherra
/22
B
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► 1-28
Mosahlíð í Hafnarfirði
►
Viðtal við Jóhannes Kjarval, skipu-
lagsstjóra um nýja 1000
manna byggð í Hafnarfirði. /14
C
t
Hún vitjaði hans í
draumi
►Listaverk eru ær og kýr Guð-
mundar Axelssonar í Klausturhól-
um. Fyrir tveimur árum vitjaði
listagyðjan hans í draumi og í
framhaldi af því hélt hann til Pól-
lands ásamt Jörgen Holm, for-
stjóra í Kaupmannahöfn, en saman
fundu þeir styttu Einars Jónsson-
ar, sem listamaðurinn gerði á gröf
Eisert fjölskydlunnar í Lodz árið
1935. Eftir talsvert umstangtókst
þeim að smygla styttunni úr landi
og nú er hún komin heim til Is-
lands. /1
Stolt siglir fleyið mítt
►Endurminningar bráða-
birgðavíkings. Valgeir Guðjónsson
lýsirsiglingu með víkingaskipi frá
Noregsströndum til Orkneyja./4
Heilsuhælið og hug-
sjónin
► Stefna Heilsuhælisins í Hvera-
gerði er orðin viðurkenndur lífsstíll
manna, en undanfarið hefur nætt
um hælið og reynt er að fínna
grundvöll fyrir starfsemi þess í
framtíðinni. /10
Söngvari Saxafónsins
►Vernharður Linnet minnist
bandaríska tenórsaxafónleikarans
Stan Getz, sem m.a. heimsótti ís-
land á Listahátíð fyrir nokkrum
árum. /15
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Karlar 48
Dagbók 8 Útvarp/sjónvarp 57
Hugvekja 9 Gárur 55
Leiðari 28 Mannlífsstr. 8c
Helgispjall 28 Fjölmiðlar 18c
Reykjavikurbréf 28 Dægurtónlist 20c
Myndasögur 34 Kvikmyndir 21c
Brids 34 Bíó/dans 24c
Stjörnuspá 34 A Fómum vegi 28c
Skák 34 Velvakandi 28c
Minningar 32 Samsafnið 30c
Fólk í fréttum 48
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4