Morgunblaðið - 16.06.1991, Page 14
eftir Guðm. Halldórsson
BORÍS JELTSÍN, sigurvegarinn
í rússnesku forsetakosningunum,
er fyrsti þjóðkjörni forsetinn í
sögu Rússlands. Sigur hans er
mikið áfall fyrir kommúnista-
flokkinn, sem reyndi að gera
hann áhrifalausan fyrir nokkrum
árum og rak hann úr stjórnmála-
ráðinu.
yrir ári sagði Jeltsín sig
úr flokknum og að fram-
boði hans stóðu ýmsir
stjórnmálaflokkar, sem
eru andsnúnir kommún-
istum — þar á meðal sósíaldemó-
kratar, Lýðræðisflokkurinn og sam-
tökin Lýðræðislegt Rússland, sem
nokkrir flokkar og bandalög mynd-
uðu með sér. Kosningaúslitin sýna
víðtækan stuðning við baráttu Jelts-
íns fyrir róttækum umbótum og
ýmsir spá því að hann muni koma
af stað „nýrri rússneskri byltingu."
Jeltsín tryggði sér stuðning rúm-
lega helmings kjósenda og því þarf
ekki að kjósa aftur um tvo efstu
frambjóðendurna í annarri umferð
eins og ýmsir spáðu fyrir kosning-
arnar.
Völd þau sem Jeltsín hefur tiyggt
sér í kosningunum vill hann nota
til þess að hrinda í framkvæmd
mörgum róttækum baráttumálum,
sem hann hefur beitt sér fyrir síðan
hann var kjörinn forseti rússneska
þingsins í fyrrasumar þrátt fyrir
harða andstöðu kommúnista. Um
leið vill hann beita völdum sínum
til þess að hnekkja ofurvaldi stjóm-
arinnar í Kreml og kommúnista-
flokksins á mörgum sviðum.
Síðan Jeltsín varð þingforseti í
Rússlandi hefur hann reynt að
draga tii sín sem mest af völdum
frá stjórnarherrunum í Kreml.
Hann hefur barizt fyrir því að fá
yfirráð yfír skattheimtunni, starf-
semi leynilögreglunnar KGB og
kolanámum í rússneska lýðveldinu.
Jafnframt hefur hann heitið lýð-
ræði, markaðshagkerfi, róttækri
einkavæðingu og rússnesku full-
veldi — það er umráðum yfir nátt-
úruauðlindum og auknu sjálfstæði.
í Rússlandi er meiri olía og gull
en í nokkru öðru iandi í heiminum.
Um 75% af olíu, gasi, kolum og
guili Sovétríkjanna eru í rússneska
lýðveldinu, en úrelt tækni stendur
því fyrir þrifum, samgöngur eru í
iamasessi og efnahagsmálin í kalda-
koli. Rússland nær frá Eystrasalti
til Kyrrahafs og er langstærsta
sovétlýðveldið. Engin þjóð býr í eins
víðáttumiklu land og Rússar, sem
eru 147 milljónir, og aðeins Kína,
Indland og Bandaríkin eru byggð
fleira fólki.
Gegn hálfkáki
Jeltsín viil að öll ríkisfyrirtæki á
rússneskri grund heyri undir rúss-
nesk yfirráð, þar á meðal hergagna-
iðnaðurinn. Hann hefur heitið því
að efna til fyrstu, beinu bæjar- og
sveitarstjórnakosninganna í Rúss-
landi til þess að losa landið við
íhaldssama kommúnista.
F
Hann vill einnig hætta kjarn-
orkutilraunum og aðstoð við erlend
ríki, skila kirkjum og stytta vinnu-
vikuna um eina klukkustund. Auk
þess hét hann því í kosningabarátt-
unni að treysta hag hinna lægst
launuðu, hækka eftirlaun og náms-
styrki, bæta skilyrði í hérnum, flytja
inn matvæli og veija auknu fé til
menntamála. Erfitt getur reynzt að
standa við öll loforðin og tryggja
markaðsumbætur um leið.
Þar til fyrir tveimur árum reyndi
Míkhaíl Gorbatsjov forseti að sigr-
ast á mótstöðu Jeltsíns, sem verka-
menn hafa dáð fyrir að beijast gegn
forréttindum, perestrojku og öðru
„hálfkáki," sem þeir hafa séð sér
lítinn hag í.
Tilraun kommúnistaflokksins til
þess að víkja Jeltsín úr stöðu þing-
forseta í rússneska lýðveldinu fór
algerlega út um þúfur. Honum tókst
þvert á móti að treysta sig í sessi
og auka völd sín. Verkfall náma-
manna sýndi hve mjög staða Jelts-
íns hafði eflzt og Gorbatsjov ákvað
að gera nýja tilraun til þess að frið-
mælast við fyrrverandi óvin sinn.
Arangurinn varð óvænt samkom-
ulag, sem Górbatsjov, Jeltsín og
leiðtogar átta annarra lýðvelda
gerðu með sér 23. apríl. Samkvæmt
því á að móta áætlun um hvernig
vinna skuli bug á því kreppu-
ástandi, sem ríkir í Sovétríkjunum,
og gera sáttmála um nýtt sam-
bandsríki, þar sem valdinu verði
skipt milli stjórnarinnar í Kreml og
lýðveldanna.
Samkomulagið batt enda á lam-
andi valdabaráttu, sem gat reynzt
bæði Gorbatsjov og Jeltsín dýr-
keypt. Það þótti einnig sýna að
Auknar vonir
um breyting-
ar eftir sigur
Jeltsíns
Jeltsín hefði lært list stjórnvizku
og málamiðlunar eftir nær ijögurra
ára þrotlausar deilur við Gorbatsjov
um hraða umbótanna.
Enn er óvíst hvort tilraunirnar
til þess að fá Gorbatsjov og Jeltsín
til að sættast beri árangur. Gorb-
atsjov ver völd forseta Sovétríkj-
anna af alefli og Jeltsin getur verið
óútreiknanlegur. Kosningaúrslitin
treysta stöðu Jeltsíns í vaidabarátt-
unni og áhrif hans í viðræðum við
Gorbatsjov um framtíð Sovétríkj-
anna munu aukast. Nýjar deilur
geta blossað upp.
Aðalkeppinautur Jeltsíns í kosn-
ingunum var Níkolaj Ryzhkov, sem
var forsætisráðherra Gorbatsjovs
þar til hann sagði af sér vegna
hjartaáfalls í desember. Hann sak-
aði bæði Jeltsín og Gorbatsjov um
að sýna ábyrgðarleysi með því að
styðjá fijálst markaðshagkerfi.
Sjálfur kvaðst hann fylgjandi hægf-
ara aðlögun að slíku kerfi og undir
eftirliti. Raunar er hann því mótfali-
inn og hann vill einnig verðlagseft-
irlit og er andvígur erlendri aðstoð
og fjárfestingu.
Gagnrýni
Harðlínumenn studdu Ryzhkov í
kosningunum. í fyrstu virtist hann
nær eingöngu njóta stuðnings
íhaldssamra kommúnista, her-
gagnaiðnaðarins og forstjóra ríkis-
og samyrkjubúa, en fylgi hans virt-
ist aukast þegar á leið kosningabar-
áttuna. Ryzhkov virtist hagnast á
því að margir óttast að róttækar
umbætur muni hafa atvinnuleysi í
för og hafði í sinni þjónustu reynda
starfsmenn, sem juku fylgi hans til
sveita, sumir segja með mútum.
Annar helzti keppinautur Jeltsíns
var Vadím Bakatín, sem var vikið
úr stöðu innanríkisráðherra Sov-
étríkjanna í árslok 1990 vegna
stuðnings við hugmyndir um að
lýðveldin komi sér upp takmörkuð-
um herafla. Hann boðaði svipaða
miðjustefnu og Gorbatsjov og vildi
skjótari aðlögun að markaðskerfí
en Ryzhkov, en undir strangara
eftirliti en Jeitsín
Varaforseti Jeitsíns verður Alex-
ander Rutskoj ofursti, leiðtogi nýs
hóps, sem kallar sig „Kommúnista
sem styðja lýðræði". Annar liðsfor-
ingi, sem hafði barizt í Afghanistan
eins og Rutskoj, var varaforsetaefni
Ryzhkovs.
Val varaforsetaefnanna þótti
sýna að bæði Ryzhkov og Jeltsín
hafi viljað tryggja sér stuðning
„þjóðhollra" kjósenda. Áhrif hersins
sáust einnig á því að eitt forsetaefn-
anna var Albert Makasjev hershöfð-
ingi,' yfírmaður Volgu-Úral-her-
stjórnarumdæmisins, sem fékk lítið
fyigi-
Jeltsín forðaðist gífuryrði i kosn-
ingabaráttunni, en hefur verið
Sigurvegar-
inn: Jeltsín á
kjörstað.
gagnrýndur fyrir lýðskrum. í því
sambandi bendir brezka blaðið Fin-
ancial Times á að þeir sem hafi
gagnrýnt Jeltsín hafi þagað þunnu
hljóði þegar Gorbatsjov hugði á
kúgunaráðstafanir til þess að ráð-
ast gegn efnahagslegu og pólitísku
öngþveiti Sovétríkjanna í vetur.
Brátt varð Jeltsín tákn mátt-
lítillar, kúgaðrar og „lýðræðislegi’-
ar“ stjórnarandstöðu Sovétríkj-
anna. Hann flýtti sér að fordæma
yfirganginn í Eystrasaltslöndunum
í janúar og skrapp til Eistlands til
þess að sýna samstöðu með aðskiln-
aðarsinnum. Hann hvatti jafnvel
hermenn til að óhlýðnast skipunum
um að skjóta á borgara.
Samstarf
Brezka blaðið segir að áhrif Jelts-
íns í landsmálum hafi verið meiri
en ætla mætti sé hliðsjón höfð af
því að hann hafi ekki komið til leið-
ar mörgum raunverulegum breyt-
ingum sem forseti rússneska þings-
ins. Nokkuð sé hæft í því að skort-
ur á ótvíræðu samkomulagi um
skiptingu valdsins hafi verið honum
fótakefli. Reynsluleysi rússneskra
yfirvalda og ótti við að taka óvin-
sæiar ákvarðanir hafa ekki bætt
úr skák.
Engu að síður hefur Jeltsín feng-
ið rússneska þingið til þess að sam-
þykkja ráðstafanir til að koma á
jarðaskiptingu. Þar með hefur verið
stigið fyrsta skrefið til að leyfa
nýrri stétt sjálfseignarbænda að
dafna.
Þótt Jeltsín hafi reynt að auka
völd sín hefur hann tekið upp sam-
starf við Gorbatsjov og leiðtoga
annarra sovétlýðvelda í landsmálum