Morgunblaðið - 16.06.1991, Side 15

Morgunblaðið - 16.06.1991, Side 15
MORGUNBlfADIÐ. .SUNNLiDAGUJi 16. JÚNI .1991 H5 til þess að tryggja að nýr sáttmáli um ríkjasambandið verði fullgerður. Jeltsín segir að sambandsstjómin muni sem fyrr fara með varnar- mál, orkumál og samgöngumál. Vafi leikur þó á því hvernig stjórn- in í Kreml og lýðveldin munu skipta með sér verkum í utanríkismálum, hvernig skattlagning verður í fram- kvæmd og hvernig mikilvægum ol- íulindum verður skipt. Togstreitu rússnesku stjórnarinnar og sam- bandsgtjórnarinnar er ekki lokið og óvíst er hver völd stjórnarinnar í Kreml muni verða. Vikublaðið The Economist bendir á að þar sem forsetakosningar hafi ekki áður farið fram í Rússlandi sé nokkrum vafa undirorpið hvort þeir sem ekki kusu Jeltsín muni sætta sig við úrslitin og líta á hann sem lögmætan leiðtoga. Umboð hans frá kjósendum kunni því að reynast takmarkað. Ovíst er hvernig íhaldsöfl í kommúnistaflokknum, hernum og KGB munu bregðast við takmörk- unum á völdum þeirra. Fulltrúar á sovézka þinginu hafa óttazt að lög- gjafarvald þeirra verði stórlega skert. Þeir óttast einnig að þeir kunni að missa þingsæti sín, ef efnt verði til sovézkra þingkosninga eins og heitið er í samkomulagi því sem náðist í apríl. Financial Times segir að á það muni reyna nú eftir kosningarnar hvort Jeltsín geti og vilji nota óum- deilanleg völd sín til þess tryggja stuðning við raunverulegar mark- aðsumbætur, sem muni óhjákvæmi- lega hafa þrengingar í för með sér þrátt fyrir kosningaloforð hans. Mæna í vestur Fyrrverandi aðstoðarforsætis- ráðherra Jeltsíns, Grígoríj Javl- inskíj, hefur dvalizt í Bandaríkjun- um og unnið að gerð áætlunar um efnahagsumbætur með vestrænni aðstoð. Hann hefur enn trú á Jelts- ín og telur hann „fulltrúa þróunar í átt til breytinga". Jeltsín er á för um til Washington í boði leiðtoga öldungadeildarinnar og hittir Bush forseta, aðra embættismenn, þing- leiðtoga og fulltrúa verkalýðshreyf- ingarinnar AFL-CIO að máli. Jeltsín hefur áhuga á samstarfi við Vesturlönd. Hann hefur lagt æ meira kapp á að tryggja aukin efna- hagstengsl við vestræn ríki, vill bæta aðstöðu vestrænna fyrirtækja og segir að rússneskri einangrun frá „hinum siðmenntaða heimi“ verði að ljúka. Financial Times segir að meira mark verði tekið á Jeltsín á Vestur- löndum eftir kosningarnar en hing- að til og að honum verði meiri sómi sýndur. Harðsnúinn og umdeildur verkamannssonur frá Sverdlovsk austan Úralijalla í Síberíu muni lík- lega hafa forgöngu um að Rússland beini sjónum sínum að Evrópu og að áhrifum rússneska mennta- mannsins Leníns verði umbylt. The Economist leggur áherzlu á mikilvægi þess að þau völd sem forseti Rússlands geri kröfu til séu meiri en þau völd sem Jeltsín hafi haft sem forseti rússneska þings- ins. Hann muni til dæmis fá völd til að stjórna með tilskipunum líkt og Gorbatsjov. Mörg baráttumál hans muni krefjast aukinnar bar- áttu við stjórnarherrana í Kreml. Ekki sé síður mikilvægt að nú verði það skrifstofukerfið en ekki Gorbatsjov, sem muni aðallega standa í vegi fyrir því að Jeltsín geti beitt völdum sínum. Til dæmis kunni verksmiðjustjórar að streitast gegn hugmyndum um einkavæð- ingu, en verkamenn geti notað kosningaúrslitin til þess að sigrast á mótþróa forstjóranna. Eftir rússnesku kosningarnar mun athyglin beinast meir að því en áður að það var sovézka þingið en ekki sovézka þjóðin sem kaus Gorbatsjov forseta. Ekki er víst að beinar forsetakosningar fari fram í Sovétríkjunum fyrr en eftir að formlegri endurskipulagningu þeirra lýkur og sú þróun mun taka að minnsta kosti tvö ár. Ef af þeim verður kunna þær að verða enn mikilvægari en rússnesku kosning- arnar. I á tónleikum 17. júní á veitingahúsinu „Tveirvinirog annar í fríi“ frá kl. 22-01. Á undan ARTCH leikur ný íslensk þungarokkssveit „BLEEDING VOLCANO11. Ath. að þetta eru einu aukatónleikar ARTCH. Nefndin. FJÖLSKYtDUR Hvernig væri ... . . . að prófa eitthvað nýtt? . . . að eignast nána vini í fjar- lægum löndum? . . . að kynnast eigin þjóð frá nýrri hlið? Allt þetta getur gerst heima hjá þér ef þú opnar heimili þitt fyrir skiptinema á veg- um AFS, sem eru elstu og reyndustu sam- tökin á sínu sviði sem starfa hér á landi. m 24. júní koma ungmenni til sex vikna dvalar hérlendis og 20. ágúst koma ung- menni til ársdvalar. m Allar nánari upplýsingar um skiptinem- ana fá væntanlegar fósturfjölskyldur hjá: Helgar- tilboð Rjómalöguð húsbóndasúpa Lambafillet m/rauðvínssósu Heimalagaðuris m/konfektsósufró kl. 11.30-15.00, \Kr. 1.390,i Hring* loftið Hverasteik 15 tegundir af meðlæti á hlaðborði ásamt eftirrétti frá kl. 19.00 r. 2.500, Barnaborgari m/frönskum kr. 300, Hring- loftið Kaffihlaðborð frá kl. 15.00-18.00 Kr. 750#-> Pizza og pönnuréttir allan daginn. Sími 98-34789. Beltagröfur - hjólagröfur GÓÐ KAUP Við höfum nú til sölu nokkrar gröfur í toppstandi, yfirfarnar af verkstæðismönnum okkar og nýskoðaðar af Vinnueftirliti ríkisins. Beltagröfur Atlas 1902 DHD 1981 Atlas 1902 DHD 1982 Komatsu PC200-3 1987 Hjólagröfur Komatsu PWI50 1985 Liebherr 922 1984 Upplýsingar í síma (91) 44144 komaOu AFS Á ÍSL4NDI Alþjóðleg fræðsla og samskipti LAUGAVEGUR 59. P.O. BOX 753 IS-121 REYKJAVlK. ICELAND Verslunin BYGGIR HF. auglýsir: Erum fluttir að Bíldshöfða 16, nýtt símanúmer er: 91-677190 HARÐVIflUR Fullþurkaðar ýmsar tegundir t.d. Brazilian Mahogany, Utile Mahogany, Bubinga Mahogany, eik, askur o.fl. FLA6GSTANGIR Gerðar úr fiber með festing- um, stærðir frá 6-12 metr- um. AUSTURLENSK TEPPI Handofin gólfteppi í hæsta gæðaflokki, og eru ávallt fyrirliggj. ýmsar stærðir og gerðir. ARINOFNAR m/grilli Tilvaldir í sumarbústaðinn eða íbúðina. Einnig hlifðar- grindur, koparílót o.fl. PARKET DG BÓN Sænska parketið frá Tarket 14 m/m merbau, eik, ask- ur, beiki og fl. teg. Einnig úrvals Wood Preen porket- bánið og á innréttingar. V efnaðarvöruverslunin Frístund Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, Hættir! Hörku útsala Allt á að seljast Þ.á.m. apaskinn, fóðruð gallaefni, barnaefni, dragtarefni, ullarefni, o.m.fl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.