Morgunblaðið - 16.06.1991, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNI 1991
r
Mér þykir vænt
eftir Friðrik Indriðoson/mynd Kristjón Arngrímsson
í LITLU risherbergi á Sundlaugavegi 26 árið
1951 eru samankomnir nokkrir drengir á ferm-
ingaraldri. Þeir eru meðlimir málfundafélagsins
Sókratesar og liggur flestum mikið á hjarta. Svo
mikið að ákveðið er að takmarka ræðutíma hvers
og eins. Þarna eru fluttar ræður um allt milli
himins og jarðar og sýnist sitt hverjum en síðar
á lífsleiðinni gefst þessum drengjum oft tæki-
færi til að rökræða ýmis mál og þó einkum póli-
tík. Meðal viðstaddra má nefna húsráðandann
Ragnar Arnalds, Jón Baldvin Hannibalsson,
Magnús Jónsson, Styrmi Gunnarsson og Halldór
Blöndal, allt þekktir menn í þjóðmálaumræðunni
fyrr og nú. Sá síðastnefndi er nýorðinn landbún-
aðar- og samgönguráðherra og hefur komið víða
við á lífsleiðinni þau 53 ár sem Iiðin eru frá því
hann fæddist. Halldór hefur starfað sem blaða-
maður og kennari auk þess að vinna sem hval-
skurðarmaður i Hvalfirði á einum fimmtán ver-
tíðum. Þekktastur er Haildór samt sem þingmað-
ur Norðurlandskjördæmis eystra frá því hann
var fyrst kjörinn á þing fyrir kjördæmið 1979.
Það var 2. desember það ár en sá dagur er afmæl-
isdagur afa hans, Benedikts Sveinssonar, sem
var þingmaður Þingeyinga í ein 23 ár. Hann er
einnig þekktur fyrir að geta barið saman stökur
og mun einlægur aðdáandi Islendingasagna sem
hann les reglulega. Af þeim segir hann að sér
þyki vænst um Egilssögu.
Við vorum allir mjög pólitískir strax á
þessum árum og lá mikið á hjarta,“
segir Halldór Blöndal er hann rifjar
upp málfundafélagið í samtali við
Morgunblaðið. „í öðrum bekk stofnuð-
um við málfundafélag í Laugarnesskólanum og þessi
pólitíska umræða hélt áfram í gegnum menntaskóla
og upp í háskóla.“
Halldór Blöndal er fæddur og uppalinn á Lauga-
vegi 66, sonur hjónanna Lárusar H. Blöndals síðast
bókavarðar Alþingis og konu hans, Kristjönu Bene-
diktsdóttur. Það er stutt að rekja áhuga hans á þjóð-
málum. Faðir hans lét póiitík mjög til sín taka á
unga aldri, var einn af hvatamönnum og stofnendum
Heimdallar og síðar Kommúnistaflokks íslands. í
móðurætt er hann af Engeyjarættinni sem svo mjög
hefur sett svip sinn á stjórnmál þessarar aldar á
Islandi. Móðir hans, Kristjana, var systir Bjarna
Benediktssonar, eins af eftirminnilegustu leiðtogum
Sjálfstæðisflokksins. Afi hans, Benedikt, var sem
fyrr segir þingmaður Þingeyinga í næstum aldar-
fjórðung, þekktastur fyrir einarða afstöðu sína í sjálf-
stæðisbaráttunni.
Að loknu landsprófí innritaðist Halldór í Mennta-
skólann í Reykjavík en náði ekki prófum um vorið.
Hann missti móður sína á þessum tíma.
Vísnaleikur í MA
„Fjölskylda mín taldi að hægt væri að koma mér
til nokkurs þroska ef Þórarinn Bjömsson, þá skóla-
meistari á Akureyri, tæki mig að sér og það varð
úr að ég var sendur norður,“ segir Halldór sem
minnist Þórarins með miklum hlýhug. „Hann var
gull af manni og næmur fyrir öllu fallegu í lífinu,
mér ógleymanlegur."
í MA kynntist Halldór fyrri konu sinni, Renötu
Kristjánsdóttur, en þau urðu samstúdentar frá skól-
anum. Þau giftu sig 1960 og eignuðust tvær dæt-
ur, Ragnhildi og Kristjönu. í MA fór Halldór að slípa
vísnagerð sína og ferskeytlufimi en hann varð síðar
þekktur fyrir að geta kastað fram stökum og hefur
raunar farið með bundið mál úr ræðustól á Alþingi
sem og í þingveislum.
„I menntaskólanum voru margir félagar mínir
ágæt skáld eins og séra Heimir Steinsson og Ari
heitinn Jósefsson," segir Halldór. „Við Ari höfðum
það að leik að yrkja viðstöðulaust og lögðum kannski
Rætt vié Halldór Blöndal landbúnaiar- og samgönguráðherra
um pólitík, kveöskap, íslendingasögur og ný verkef ni