Morgunblaðið - 16.06.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNI 1991
25
Messa í Garðskirkju
Hraunbrún, Kelduhverfi.
MESSAÐ var í Garðskirkju í Kelduhverfi sunnudaginn 9. júní.
Þar voru samankomin átta af þeim tíu sem fermdust í kirkj-
unni 8. júni 1941.
Þennan dag voru því liðin 50
ár og einn dagur síðan þau voru
fermd. Þarna voru mætt þau
Jóhanna Ólafsdóttir, Þórhildur
Björg Kristjánsdóttir, Þorfinnur
Jónsson, Bjarni Gunnarsson,
Stefán Bogason, Áslaug Axels-
dóttir, Áslaug Jónsdóttir og Guð-
rún Stefánsdóttir. Ein þeirra,
Hólmfríður Jónsdóttir er búsett
á Djúpavogi og gat ekki verið
með og önnur, Jónína Gunnars-
dóttir, er látin.
Í messunni 1941 voru skírð
sjö börn. Eitt þeirra, Sigurbjörg
Gunnarsdóttir, hélt nú á dóttur-
syni sínum undir skírn. Ferming-
arbörnin eru hin hressustu að
sjá, en það má þó geta þess að
mæður tveggja þeirra voru við-
staddar athöfnina þar voru þær
Friðný Siguijónsdóttir, 92 ára,
en hún er móðir Jóhönnu og
Kristín _ Sigvaldadóttir, 84 ára,
móðir Áslaugar Jónsdóttur, þær
eru báðar mjög vel ernar.
Það var sóknarpresturinn, séra
Eiríkur Jóhannsson á Skinna-
stað, sem messaði.
- Inga.
Skólamálaráð:
Nýtt námsefni í
samskiptum og
sj álfsstyrkingu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka upp nýjan námsþátt í grunnskól-
um Reykjavíkur næsta vetur. Hefur námþátturinn hlotið nafnið
„Tilveran“ en hann er einnig þekktur undir heitinu „Lions-
Quest“. Markmiðin með náminu er annars vegar að hjálpa ungu
fólki til þess að þroska með sér félagslega eiginleika eins og
sjálfsaga, ábyrgðartilfinningu, dómgreind og hæfni til sam-
skipta og hins vegar að hjálpa því til að efla tengsl við fjöl-
skyldu, skóla, jafnaldra og samfélagið auk þess að tileinka sér
heilbrigðan og vímuefnalausan lífsmáta. Námsefnið verður kennt
í 7. bekk grunnskóla þar sem 12 börn leggja stund á nám. For-
eldrum barna á þessum aldri hefur verið sent kynningarbréf
um námsefnið. I því er meðal annars óskað eftir þátttöku for-
eldra í tengslum við vinnu nemanda almennt, við lestur foreldra-
bókarinnar „Árin koma á óvart“ og með þátttöku í sérstökum
foreldrafundum þar sem fjallað er um þroska unglinga, sam-
skipti innan fjölskyldunnar, aga, vímuefnaneyslu og fleira.
Ámi Sigfússon, borgarfulltrúi,
sem situr í Skólamálaráði sagði á
kynningarfundi um námsefnið að
ákvörðun um að stefna að því að
námsefnið yrði kennt næsta vetur
hefði verið tekin í Skólamálaráði í
lok janúarmánuðar á þessu ári.
Haft hefði verið samband við
Vímulausa æsku, Lions-hreyfing-
una og Menntamálaráðuneytið sem
hver um sig hefði skipað fulltrúa
í undirbúningsnefnd fyrir kennslu
námsefnisins. Fyrir hönd Skóla-
málaráðs sat Árni í nefndinni.
Nefndin vann að framkvæmda- og
kennsluáætlun sem lögð var fyrir
Skólamálaráð og samþykkt 27.
maí í vor.
í áætluninni segir að stefnt skuli
að því að kenná efnið í öllum deild-
um 7. bekkjar (12 ára börn) næsta
skólaár og framvegis. Kennslan
nemi 2 vikustundum í hverri bekkj-
ardeild allan veturinn og sjái
Skólamálaráð um greiðslu annarr-
ar stundarinnar og ennfremur
greiðslur til kennara fyrir sérstaka
fundi með foreldrum. Þá segir að
skólaárið 1992 til 1993 fari þessi
kennsla fram í öllum deildum 7.
og 8. bekkjar og verði það framtíð-
artilhögun. Gert er ráð fyrir að
umsjónarkennarár sjái um kennsl-
una en haldin verði tvö þriggja
daga námskeið fyrir þá kennara
er umsjón munu hafa í 12 ára
bekkjum næsta vetur og hafi ekki
sótt námskeið af þessu tagi áður.
Slík námskeið standa nú yfír í
Álftamýraskóla.
Erla Kristjánsdóttir, lektor við
KHÍ, sagði að á kennaranámskeið-
inum fengju kennararnir góða inn-
sýn í námskeiðið og þjálfun í
kennslu þess. Hún sagði að tekið
væri á ákveðnum þáttum sem
tengdust unglingsárunum í náms-
efninu og mætti þar nefna vímu-
efni. Fyrst og fremst væri þó fjall-
að um góð samskipti en fólk væri
sífellt meðvitaðra um mikilvægi
þeirra. Fanný Gunnarsdóttir,
kennarij sem kennt hefur námsefn-
ið í Álftamýraskóla sagði að
reynslan af námsefninu væri góð.
Hún sagði að nemendur, sem lærðu
námsefnið, segðu að þeir litu ungl-
ingsárin öðrum augum en áður en
sjálf sagðist hún hafa haft reynslu
af því að samskipti í bekknum
bötnuðu og klíkumyndun minnk-
aði.
Námsefninu tilheyra kennara-
leiðbeiningar, foreldrabók og verk-
efnabók fyrir nemendur. Það hefur
verið notað í kennslu víða um heim.
Af löndum má nefna Bandaríkin,
Nýja Sjáland, Danmörku, Svíss,
Holland og Indland.
Tilbod óskast
í Jeep Cherokee Laredo 4x4 6 cyl., (svartur),
sjálfskiptur m/rafmagni, árgerð '90 (ekinn 3
þús. mílur), Toyota 4-Runner, árgerð '85 og
aðrar bifreiðar er verða sýndar á Grensásvegi
9, þriðjudaginn 18. júní kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00.
Sala varnarliðseigna.
Morgunblaðið/Ingveldur Árnadóttir
Fermingabörnin er fermdust 8. júní 1944 ásamt þeim Friðnýju
Sigurjónsdóttur og Kristínu Sigvaldadóttur.
Brautskráðir nemendur úr Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1991. Aftari röð frá vinstri: Stefán E.
Petersen, Stefán Orn Arnarson, Siguijón Halldórsson og Arinbjörn Árnason. Miðröð frá vinstri: Guð-
björg Ragnarsdóttir, Svanhvít Friðriksdóttir, Margrét Óðinsdóttir, Ásrún Inga Kondrup, Bryndís Braga-
dóttir, Guðrún Margrét Baldursdóttir, Aðalheiður Eggertsdóttir, Sigurbjörn Bernharðsson, Jón Ragnar
Ornólfsson og Guðlaugur Viktorsson. Fremsta röð frá vinstri: Helga A. Jónsdóttir, Unnur Vilhelmsdótt-
ir, Anna Sigurbjörnsdóttir, Magnea Guðlaug Ólafsdóttir, Sif Tuliníus og Gyða Stephensen. Á myndina
vantar Elínu Onnu Isaksdóttir.
Tónlistarskólinn í Reykjavík:
Tíu luku einleikaraprófi
Tónlistarskólanum í Reykjavík
var slitið í sextugasta og fyrsta
sinn fimtudaginn 30. maí sl. At-
höfnin fór fram í Háteigskirkju
að viðstöddum kennurum, nem-
endum og öðrum góðum gestum.
Við athöfnina lék Gunnar Kvar-
an, sellóleikari, kafla úr svítu eftir
J.S. Bach. Skólastjóri, Jón Nordal,
flutti ræðu og afhenti burtfarar-
prófsnemendum skírteini sín. Að
þessu sinni var 21 nemandi braut-
skráður, þar af luku 10 einleikara-
prófi, 2 píanókennaraprófi, 1 lauk
fiðlukennaraprófí, 1 blokkflautu-
kennara,prófí, 1 blásarakennara-
prófí, 1 söngkennaraprófí og 5 tón-
menntaprófi.
Skólastjóri minntist í ræðu sinni
60 ára afmælis skólans sem var 5.
okt. sl. og þeirra tónleika sem fyrr-
um nemendur og kennarar skólans
héldu skólanum til heiðurs af því
tilefni og sagði frá því að væntan-
legt væri rit um 60 ára starfsemi
skólans.
Skólastarf var mjög blómlegt í
vetur. Um 50 tónleikar voru haldn-
ir innan skólans og utan og margir
erlendir og innlendir gestir heim-
sóttu skólann og héldu tónleika og
námskeið nemendum og kennurum
til gagns og ánægju.
(Fréttatilkynning)
N O V E L Lx/
TÆKNIVAL
SKEIFUNNI 17 • 108 R. • S 681665