Morgunblaðið - 16.06.1991, Side 30

Morgunblaðið - 16.06.1991, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 16. JÚNI 1991 t Stjúpfaðir minn, GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON skipstjóri, Reynimel 45, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. júní kl. 15.00. Fyrir hönd ættingja, ívar Andersen. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Gerðum í Garði, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 19. júníkl. 15. Guðmundur Ingimundarson, Rósa Einarsdóttir, Einar Þór Guðmundsson, Ingimundur Kristinn Guðmundsson, Kristín Guðmundsdóttir. t Ástkær dóttir okkar og systir, DÓRATHORBERG ÞORSTEINSDÓTTIR, Álakvisl 102, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 18. júní kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hennar láti Barnaspítala Hrings- ins njóta þess. Fyrir hönd allra ástvina, Þorsteinn Þorsteinsson, Edith Thorberg Traustadóttir, Sigurður Brynjólfsson, Sesselja Sigurðardóttir, Alica Dawn C. Þorsteinsdóttir, Trausti Ómar Sigurðsson, Þór Adam Þorsteinsson. + Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir, JÓN GUÐBJÖRNSSON bifreiðasmiður, Hátúni 6, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. júní kl. 13.30. Eriing Smári Jónsson, Sólveig Úlfarsdóttir, Hafþór Úlfar Erlingsson, Lilja V. Guðbjörnsdóttir, Hreggviður Guðbjörnsson, Hermann Guðbjörnsson, Óskar R. Guðbjörnsson. + Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR G. H. JÓHANNSSON vélstjóri, Rituhólum 11, Rvík, verður jarðsetturfrá Bústaðakirkju þriðjudaginn 18. júníkl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag islands. Sigrún Jóhannsdóttir, Sigríður Guðjónsdóttir, Þorbjörg Edda Guðmundsdóttir^igurður Berndsen, Anna Kristín Guðmundsdóttir, Kári Hólm Guðmundsson, Sigríður Ásd. Guðmundsdóttir, Hjörleifur Stefánsson, Jóhanna Guðmundsdóttir, Jón Gerald Sullenberger, Hildur Sigrún Guðmundsdóttir, Jón Örn Stefánsson, Inga Rakel Guðmundsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir færi ég öllum þeim er sýndu mér samúð og vinar- hug og heiðruðu minningu ástkærs.sonar míns JÓNS STEINARS GUÐBJÖRNSSONAR, Borg í Garði. Sérstakar þakkir eru færðar læknum og hjúkrunarfólki deildar 11-E Landspítalanum. Anna Margrét Sumarliðadóttir. + Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall okkar kæru ástvina. GUÐRÚNAR SCHIÖTH LÁRUSDÓTTUR og ELFARS SCHIÖTH HARALDSSONAR Eygló Ingvadóttir, Haraldur Sch. Haraldsson, Kristín Sch. Elfarsdóttir, Erna Ludvigsdóttir, Elfa Sch. Elfarsdóttir, Elsa Sch. Haraldsdóttir Haraldur Sch. Elfarsson, Gústav Óskarsson, Bergþóra Grétarsdóttir, Gunnar Þór Sch. Elfarsson, og barnabörn. Guðmundur Jóhanns- son — Minning Fæddur 7. júlí 1934 Dáinn 9. júní 1991 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveða vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Þriðjudaginn 18. júní verður til moldar borinn frændi minn Guð- mundur. Ég fylltist sorg og söknuði er ég frétti andlát hans. Hann barð- ist hetjulegri baráttu fram á síðustu stund við erfiðan og skæðan sjúk- dóm. Hann veiktist fyrir um ári síðan og var fyrst haldið að um malaríu væri að ræða, þar sem hann dvaldi erlendis, en annað kom í ljós. Hann gekkst undir uppskurð fyrir sex mánuðum og allt lofaði góðu og var hann farinn að undirbúa ferð sína aftur út, er hann veiktist hastarlega fyrir mánuði. Við fæddumst og ólumst upp á ísafirði í nálægð hvors annars, og á ég þaðan margar ljúfar minning- ar. Foreldrar hans eru Sigríður Guð- jónsdóttir og Jóhann Sigurðsson er lést fyrir fjórum árum. Hann var elstur fimm barna þeirra. Ungur fór hann að heiman að stunda sjóinn og vann hann hjá Sambandinu um tíma, en fór síðan í nám hjá Vél- smiðjunni Héðni hf., og síðar í Vél- stjóraskóla íslands. Guðmundur giftist árið 1958 Sigrúnu Jóhannsdóttur og eignuð- ust þau fimm dætur. Þær eru Anna Kristín, gift Kára Guðmundssyni og eiga þau þrjú börn; Sigríður Ásdís, gift Hjörleifi Stefánssyni og eiga þau þrjú böm; Jóhanna, í sam- búð með Jóni Gerald og eiga þau tvö börn; Hildur, í sambúð með Jóni Erni Stefánssyni og eiga þau eitt barn, og Inga Rakel sem er í heimahúsum. Fyrir átti Guðmundur Þorbjörgu Eddu og er hún gift Sig- urði Bemdsen og eiga þau þijú börn. Eftir nám var hann verksmið- justjóri um skeið hjá Hafsíld á Seyð- isfirði, en hóf síðan störf sem vél- stjóri hjá Eimskipafélagi íslands og starfaði þar að mestu þar til fyrir ellefu árum er hann hóf störf hjá FAO, stofnun Sameinuðu þjóðanna. Vann hann í ýmsum þróunarlönd- um, meðal. annars í Bangladesh, Singapore, íran og nú síðast í Afríku við kennslu á meðferð og viðhaldi véla fyrir fiskibáta. Var hann búinn að afla sér mikillar reynslu og þekkingar á högum fólks í þessum löndum og hafði frá mörgu að segja. Mummi frændi, eins og við köll- uðum hann, var mjög dagfarsprúð- ur og góður drengur. Var það hans hugsjón alla tíð að sjá vel fyrir sinni stóru fjölskyldu og vann hann m.a. fram á síðustu stundu við að lag- færa og betrumbæta sitt stóra og fallega hús. Það er erfitt að þurfa að kveðja fólk í blóma lífsins, en vegir Guðs eru órannsakanlegir. Ég og ljölskylda mín vottum aldraðri móður, systkinum og þér, Sigrún mín, og bömunum okkar innilegustu samúð á erfíðri stundu. Far þú í friði, friður Guðs þig bjessi, hafðu þökk fyrir allt og ailt. (V. Briem.) Ingveldur Þ. Viggósdóttir Hann afí í Rituhólum er dáinn. Þetta voru skrítin orð, orð sem erf- itt er að skilja og ennþá erfiðara að sætta sig við. Margar spurning- ar vakna sem við fáum ekki svör við, en við vitum að nú er afi hjá Guði og hjá honum er gott að vera og þar líður afa vel. Áfí bar hag okkar bamabarn- anna fyrir bijósti og hafði óþijót- andi þolinmæði við að leiðbeina okkur í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Alltaf var hann fús til að leyfa okkur að aðstoða sig við það sem hann var sýsla hveiju sinni og fylgdist hann með þar til okkur fórst verkið vel úr hendi. Við vorum líka svo heppin því þó afi ynni meiri part ársins í út- löndum þá var hann heima í fríum og þá vomm við alltaf velkomin til hans, afi vildi alltaf hafa okkur hjá sér. Við eigum eftir að sakna glettn- innar og stríðninnar sem svo grunnt var á hjá honum, en mest gaman fannst okkur þó þegar hann gat strítt ömmu pínulítið. Afí vaidi ekki alltaf auðveldustu leiðina, hann hafði gaman af að glíma við hlutina og sigra en í þetta sinn var hann sigraður eftir erfiða baráttu. Við vitum að Guð hefur þurft á duglegum og góðum manni að halda sér til aðstoðar og hann valdi því rétta manninn. Nú þegar við kveðjum afa lofum við eldri barnabörnin hans að miðla öllu því góða sem afi kenndi okkur til þeirra sem yngri eru og ekki fengu að njóta afa síns. Fari elsku afi okkar í friði. Barnabörn Mig langar til að minnast Guð- mundar bróður míns með nokkrum fátæklegum orðum. Guðmundur var fæddur á ísafírði 7. júlí 1934, sonur hjónanna Sigríðar Guðjóns- dóttur og Jóhanns Sigurðssonar (d. 22. október 1986). Hugur reikar yfír farinn veg þeg- ar kær bróðir kveður þetta jarðn- eska líf langt um aldur fram og við stöndum eftir og spyijum, af hveiju hann? Á uppvaxtarárum sínum vestur á ísafírði réðst hann ungur til sjós á millilandaskip. Sextán ára leitaði hann á vit ævintýra í fjarlægum + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför, RAGNHILDAR ÓSKARSDÓTTUR, Skagfirðingabraut 33, Sauðárkróki. Sveinn Guðmundsson, Guðmundur Sveinsson, Auður Steingrímsdóttir, Óskar Páll Sveinsson, Þorbjörg Bjarnadóttir og barnabörn. + Við þökkum ykkur, kæru vinir og vandamenn, fyrir ómetanlegan styrk, vinarhug og samúð sem þið veittuð við andlát eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður, ÁSTU EINARSDÓTTUR, og þá virðingu sem þið sýnduð minningu hennar. Esra S. Pétursson, Pétur Kjartan og Ásthildur, Einar Haraldur og Kristín, Sigurður Ragnar og Cheryl, Karl Torfi og Helga, Jón Tómas og Grace, Finnbogi Þór og Hulda, Esra Jóhannes og Lilja öll barnabörnin. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður og afa, ÁRNA ÞORGRÍMS KRISTJÁNSSONAR fyrrverandi forstjóra, Bjarmalandi 1. Sigríður Sveinbjarnardóttir, Árnbjörg Árnadóttir, Sigrún E. Árnadóttir, Eggert Atlason, Kristján Árnason, Sigríður Þórhallsdóttir, barnabörn og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.