Morgunblaðið - 16.06.1991, Blaðsíða 36
AM3\QAflVAVU/UVTA
lIGAjaWUÐHOM
3»o Yttnttfrbtfr *í>
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATlflMMl I
JHk ■ ■ PI PIIP.
Veitingahús
Óskum eftir að ráða framreiðslunema (þjóna-
nema) og lærðan framreiðslumann (þjón)
sem fyrst.
Upplýsingar á staðnum þriðjudaginn 18. júní
kl. 17-19.
TRYGGVAGATA 4-6 101 REYKJAVÍK
„Porter11
Stórt þekkt hótel í borginni, óskar að ráða
„porter" til starfa, sem fyrst. Framtíðarstarf.
Starfið felst í aðstoð við gesti hótelsins
Leitað er að ungum, reglusömum og þjón-
ustuliprum einstaklingi, sem hefur eigin bif-
reið til afnota. Vaktavinna. Unnið frá kl: 8
til kl: 20, í 2 daga frí í 2 daga. Góð tungu-
málakunnátta nauðsynleg. Passamynd þarf
að fylgja umsókn.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar, til 21. júní nk.
Guðnt íónsson
RÁÐCJÓF & RAÐNINCARhJÓNLISTA
TIARNARGÖTU 14, I0l REYKJAVÍK. SÍMI62 13 22
íslenska jámblendiVélagið hf.
Efnafræðingur/
ef na ver kf ræðing u r
íslenska járnblendifélagið hf. óskar eftir að
ráða efnafræðing/efnaverkfræðing til starfa.
Honum er ætlað að vinna að rannsóknum á
hráefnum til járnblendiframleiðslu, sérstak-
lega kolum og koksi. Verkefnið er til þriggja
ára og unnið undir stjórn starfsmanna járn-
blendifélagsins en er fjármagnað af erlend-
um samstarfaðilum félagsins. Rannsóknirnar
verða gerðar í samvinnu við erlendar rann-
sóknastofnanir og verður því hluti vinnunnar
erlendis, einkum vestanhafs.
Umsækjendur verða að hafa lokið framhalds-
námi í efnafræði og hafa reynslu af rann-
sóknastörfum. Gott vald til vinnu á ensku og
kunnátta í norðurlandamáli er nauðsynlegt.
Frekari upplýsingar veita dr. Þorsteinn Hann-
esson eða dr. Jón Hálfdanarson, íslenska
járnblendifélaginu, síma 93-20200.
Umsóknir berist íslenska járnblendifélaginu
hf., 301 Akranesi, fyrir 15. júlí 1991.
Sölumenn
Gullið tækifæri
Vegna væntanlegs söluátaks með íslands-
handbókina getum við bætt við okkur nokkr-
um sölumönnum í Reykjavík og úti á landi.
Um er að ræða mjög seljanlega vöru, háa
söluprósentu og því mikla tekjumöguleika.
Ef þú vilt þéna vel, ert kappsöm/samur og
ábyggileg/ur, hafðu þá samband við sölu-
stjóra okkar næstu daga.
ÖRN OG
ÖRLYGUR
Síðumúla 11, sími 684866.
tœknisköll fslands
Hofðabakka 9, R. simi 84933.
Höfðabakka 9,
112 Reykjavík, sími: 91-814933.
Tækniskóli Islands auglýsir hér með
eftir umsóknum um eftirtaldar stöður:
1. Frumgreinadeild. Staða kennara í stærð-
fræði.
2. Heilbrigðisdeild, námsbraut í meina-
tækni.
Hlutastaða lektors, kennslugrein: lífefna-
fræði.
Hlutastöður kennslumeinatækna.
Gert er ráð fyrir tímabundinni ráðningu.
3. Heilbrigðisdeild, námsbraut í röntgen-
tækni.
Hlutastaða lektors (60%), aðalkennslu-
grein: innstillingartækni.
4. Staða lektors í tölvufræði.
5. Tímabundin staða í tölvunotkun við reikni-
stofu.
6. Staða lektors í þolfræði og hönnun, tíma-
bundin ráðning.
7. Rekstrardeild. Staða lektors í hagfræði
og viðskiptagreinum.
8. Rekstrardeild. Staða lektors í markaðs-
fræðum, tímabundin ráðning.
Upphaf ráðningar miðast við 1. ágúst eða
fer eftir samkomulagi.
Umsóknir um ofangreindar stöður berist
skrifstofu skólans í seinasta lagi þriðjudaginn
25. júní nk. Hæfniskröfur eru eins og til-
greint er í lögum og reglugerð um Tækni-
skóla íslands.
Umsóknum þarf að fylgja rækileg greinagerð
um náms- og starfsferil. Við mat umsækj-
enda er tekið tillit til starfsreynslu og sér-
hæfni í kennslugreinum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags
Tækniskólakennara við Fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar veita deildarstjórar við-
komandi deilda.
Reykjavík 27. maí 1991,
Rektor Tækniskóla ís-
lands.
Upplýsingafulltrúi
Eitt stærsta fyrirtæki landsins óskar að ráða
upplýsingafulltrúa til starfa. Starfið er laust
samkvæmt nánara samkomulagi.
Starfssvið: Öll almenn samskipti við fjöl-
miðla, greinaskrif og útgáfumál, samskipti
við innlenda og erlenda aðila, ásamt skyldum
verkefnum er heyra undir starfssvið upplýs-
ingafulltrúa.
Starfsreynsla og þekking í fjölmiðlaheiminum
er æskileg svo og menntun á því sviði. Al-
menn þekking á þjóðmálum er nauðsynleg.
Gott vald á íslensku máli svo og einu Norður-
landamálanna og ensku, ásamt reynslu í að
tjá sig í ræðu sem riti er skilyrði.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir sem algjört trúnaðarmál.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
fyrri störfum sendist skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 20. júní nk.
Guðjvt Tónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
Aðstoðarlæknir
Staða reynds aðstoðaríæknis á deild 12-A
handlækningadeild er laus frá 1. ágúst 1991.
Umsóknir berist Páli Gíslasyni, yfirlækni, fyr-
ir 1. júlí á eyðublöðum lækna. Staðan veitist
til eins árs með möguleika á framlengingu.
Upplýsingar gefur Páll Gíslason, yfirlæknir,
í síma 601336.
Aðstoðarlæknar
Staða reynds aðstoðarlæknis við krabba-
meinslækningadeild Landspítala er laus til
umsóknar frá 1. júlí 1991 til eins árs.
Stöðunni fylgir þátttaka í rannsóknarverkefn-
um á vegum deildarinnar.
Jafnframt eru lausar til umsóknar aðstoðar-
læknisstöður frá 1. ágúst og 1. september
nk. Starfið er fólgið í sjálfstæðri vinnu á
meðferðareiningum deildarinnar undir um-
sjón sérfræðinga, 3-4 skiptar gæsluvaktir
vegna sjúklingalegudeildar eru áætlaðar.
Skipulögð verður kennsla í meðferð og
umönnun krabbameinssjúkra.
Til greina kemur ráðning fyrr, ef um semst,
ráðningartími skv. samkomulagi.
Frekari upplýsingar veitir Þórarinn Sveins-
son, forst.læknir krabbameinslækningadeild-
ar Landspítalans, sími 601460.
Reykjavík, 13/6’91.