Morgunblaðið - 09.07.1991, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1991
Sala fullvirðisréttar á ríkisjörðum:
Reglumar vom bændum kunnar
og engin athugasemd hefur borist
segir Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra
HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra segir að starfsreglur um
sölu fullvirðisréttar í sauðfjárframleiðslu hafi verið vel kunnar bænda-
samtökunum áður en þær öðluðust gildi og hafi formaður Stéttarsam-
bands bænda meðal annars farið um landið með skrifstofustjóra ráðu-
neytisins og þeir kynnt reglurnar fyrir stjórnum búnaðarsambanda
og ráðunautum. „Þetta mál hefur ekki verið tekið upp við mig með
einum eða neinum hætti af Stéttarsambandinu síðan,“ sagði Halldór í
samtali við Morgunblaðið í gær. Reglurnar hafa verið gagnrýndar,
meðal annars af sr. Halldóri Gunnarssyni, fyrir að fullvirðisrétturinn
tilheyri jarðareiganda, en ekki ábúanda. „Embættismenn sem sitja á
ríkisjörðum eiga að sjálfsögðu ekki kall til þeirra gæða sem jörðunum
fylgja eftir að þeir eru horfnir á braut,“ sagði ráðherra um þá gagnrýni.
Halldór Blöndal sagði, að í ábúðar- „Það eru líka skýr ákvæði í lögum
lögum sé kveðið skýrt á um það um að ábúandi skuli skila jörðinni
hver sé réttur ábúenda á ríkisjörðum.
Ef maður hafi búið í 10 ár á jörð-
inni hafi hann rétt til að kaupa jörð-
ina eftir ákveðnum reglum. Ef hann
kjósi að hverfa á brott áður en sá
tími er liðinn, séu skipaðir sérstakir
úttektarmenn lögum samkvæmt og
ábúanda greitt andvirði þeirrar eign-
araukningar sem orðið hafi á þeim
tíma sem hann hefur setið jörðina.
jafngóðri. Ef til dæmis malartekja
er í ríkisjörð, þá fæ ég ekki séð að
ábúandi eigi að fá þær tekjur, því
að hann yrði þá skuldbundinn að
skila mölinni á nýjan leik áður en
hann hyrfi á brott. Eins er um það
ef ákveðinn framleiðsluréttur hvílir
á ríkisjörð, og ábúandi hverfur á
brott, þá hefur hann ekki heimild til
þess að ráðstafa þeim rétti þangað
sem honum sýnist, heldur er sá rétt-
ur eign ríkisins. Sá er minn skilning-
ur,“ sagði ráðherra.
„Þær reglur sem gilda um upp-
kaup á fullvirðisrétti og ég fékk til
yfirlestrar og samþykktar, voru
samdar og samþykktar af fram-
kvæmdanefnd búvörusamnings, en I
þeirri nefnd voru Guðmundur Sig-
þórsson skrifstofustjóri landbúnaðar-
ráðuneytisins, Þórhallur Arason
skrifstofustjóri fjármálaráðuneytis-
ins, Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda og Hákon
Sigurgrímsson framkvæmdastjóri
Stéttarsambandsins. Þeim var vel
kunnugt um að mín afstaða væri sú
sem ég hef hér lýst. Þeir kusu að
vísu að bera ekki ábyrgð á starfsregl-
unum, sem ég skil ósköp vel og hef
út 'af fyrir sig ekkert við að athuga,
ég hlýt að sjálfsögðu að bera ábyrgð-
ina að síðustu.
y En þeim var vel kunnugt um þetta
og formaður Stéttarsambandsins fór
um landið með Guðmundi Sigþórs-
syni og þeir kynntu þessar starfsregl-
ur fyrir stjómum búnaðarsambanda
og ráðunautum. Þetta mál hefur
ekki verið tekið upp við mig með
einum eða neinum hætti af Stéttar-
sambandinu síðan og embættismenn
sem sitja á ríkisjörðum eiga að sjálf-
sögðu ekki kall til þeirra gæða sem
jörðunum fylgja eftir að þeir eru
horfnir á braut,“ sagði Halldór.
Hann kvaðst vera reiðubúinn til
að ræða þessi mál við stjóm Stéttar-
sambands bænda ef hún svo kysi,
„en hef ekki fengið tilefni til þess
að kalla hana sérstaklega á minn
fund út af þessu máli, vegna þess
að mér finnst þessar blaðafregnir
sem ég hef lesið um þessi mál vera
heldur óljósar og ekki nógu afger-
andi til þess að ég sjái ástæðu til
að gera þeim það ónæði sem slíkum
fundahöldum fylgir," sagði Halldór
Blöndal.
Varnarliðið:
Fækkaðum
6 orrustu-
flugvélar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fækka
F-15 orrustuflugvélum í 57. orr-
ustuflugvélasveit bandaríska
flughersins sem staðsett er á
Keflavíkurflugvelli. Fækkað
verður um 6 orrustuflugvélar,
úr 18 í 12, snemma á næsta ári.
Flugvélarnar 6 fara til Banda-
ríkjanna. Á Keflavíkurflugvelli
verða eftir fækkunina jafnmarg-
ar orrustuflugvélar og voru fram
að árinu 1985.
í frétt frá utanríkisráðuneytinu
segir að ástæðan fyrir þessari
fækkun sé fyrst og fremst niður-
skurður á útgjöldum til vamarmála
í Bandaríkjunum í ljósi breyttra
aðstæðna í alþjóðamálum. Fækkun-
in mun ekki hafa áhrif á getu
vamarliðsins til að fylgjast með
umferð herflugvéla umhverfis ís-
land enda hefur dregið úr henni á
undanfömum tveimur ámm. Þá em
F-15 ormstuflugvélamar sem stað-
settar em á Keflavíkurflugvelli mun
fullkomnari en F-4 Phantom, sem
þær leystu af hólmi.
Fækkunin hefur engjn áhrif á
fjölda íslenskra starfsmanna er
starfa hjá vamarliðinu. Þeir tæp-
lega 60 Bandaríkjamenn sem
hverfa af landi brott vegna fækkun-
arinnar verða leystir af hólmi af
svipuðum fjölda Bandaríkjamanna
er starfa munu við hinar nýju þyrl-
ur flugbjörgunarsveitarinnar, sem
teknar verða í notkun hér á landi
innan skamms.
Par sveipað
þjóðfánanutn
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði
á aðfaranótt sunnudags afskipti
af ungu pari, sem gekk um götur
sveipað í íslenzka fánann. Fáninn
var tekinn af fólkinu og því veitt
alvarleg áminning.
Samkvæmt fánalögum ber að
sýna þjóðfánanum virðingu og
stranglega er bannað að sýna hon-
um nokkra vanvirðu, svo sem að
láta hann snerta jörð, þegar verið
er að draga hann að húni. AIls ekki
er ætlazt til að fáninn sé notaður
sem yfirhöfn.
Egilsstaðamaraþon:
Keppti í hjólastól
og varð í öðru sæti
ARNAR Klemensson, rúmlega tvítugur fatlaður íþróttamaðiu- frá Seyð-
isfirði, náði öðru sæti í Egilsstaðamaraþoninu sem þreytt var á sunnu-
daginn. Araar var 2 klukkustundir, 59 mínútur 04,31 sekúndur að fara
kílómetrana 42 í hjólastólnum sínum, eða rúmum tveimur mínútum
lengur en sigurvegarinn.
Arnar er með klofinn hrygg frá
mitti og niður en hefur ekki látið það
aftra sér frá því að stunda íþróttir.
Hann sagði í samtali við Morgunblað-
ið að þetta væri í fyrsta sinn sem
hann tæki þátt í maraþoni. „Þétta
var ekki erfitt, nema hvað ég var
orðinn ansi þreyttur í öxlunum. Ég
tók þessu frekar rólega allan tímann
en tók slðan ágætis endasprett,“
sagði Amar. Hann sagði að hlaupa-
leiðinni hefði verið breytt til þess að
hann gæti tekið þátt í hlaupinu,
þannig að öll leiðin var á malbiki.
Arnar æfir 100, 200, 400 og 800
metra hlaup I hjólastólnum sínum en
hefur aldrei æft sérstaklega fyrir
maraþon. í fyrra fór hann yfir Fjarð-
arheiðina á fjórum klukkustundum
og þykir það vel af sér vikið í hjóla-
stól.
Tími Amars verður að teljast góð-
ur þó svo þeir sem æfa maraþon í
hjólastólum séu famir að ná ótrúlega
miklum hraða í stólunum og þeir
bestu ná svipuðum tíma og fullfrísk-
ir maraþonhlauparar.
Sjá frásögn af Egilsstaðamara-
þoninu í Iþróttablaðinu B3.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Egill Örn Rafnsson, Haukur Sigurbjörn Magnússon og Viðar Örn
Pálsson við þýskt veðurdufl.
ísafjörður:
Heyrðu hviss og hlupu til
rétt áður en duflið sprakk
faáfirðL
„VIÐ heyrðum eitthvert hviss og hlupum til að skoða, en rétt
áður en við komumst alla leið sprakk duflið með reyk og eld-
glæringum,“ sögðu þeir Egill Öm Rafnsson, Viðar Öm Pálsson
og Haukur Magnússon, sem em 9 og 10 ára og vom að veiða
í höfninni rétt þjá þýsku veðurdufli þegar það sprakk. „Við
hlupum svo eins og bijálaðir upp á Sjómannastofu til mömmu
og sögðum henni að hringja í 000. Við vorum alveg rosaleg
hræddir,“ sagði Haukur, en foreldrar hans reka Sjómannastof-
una við höfnina í um 100 metra fjarlægð frá duflinu.
Drengimir horfðu á duflið
springa við afgreiðsludyr Ríkis-
skipa um tíu leytið á laugardags-
kvöld. Varðskip kom með duflið
til Ísaíjarðar aðfaranótt föstu-
dags en það fannst rekið á fjörur
vestur á fjörðum.
Ekki er vitað um fleiri slík
dufl sem hafa sprungið.
Sprengjusérfræðingar Landhelg-
isgæslunnar komu vestur á
sunnudag og tóku duflið í sund-
ur,_ í gær. var ekki ljóst hvað
hafði valdið sprengingunni, en
um 10 af 40 rafhlöðum í tumi
duflsins sprungu.
MikiII reykur komst í vöru-
skemmu Ríkisskipa og þar sem
sérfræðingar voru ekki væntan-
iegir til ísafjarðar fyrr en í dag,
þriðjudag, til að úrskurða um
hugsanlegan skaða í matvælum
hefur ekki verið hægt að afgreiða
vömr úr Sambandsskipi sem hér
losaði á laugardag.
- Úlfar
GUNNAR Ásgeirsson stórkaup-
maður lést á sjúkrahúsi í
Reykjavík á sunnudag eftir lang-
varandi veikindi. Hann fæddist á
Flateyri við Önundarfjörð 7. júní
1917, og var einn níu bama hjón-
anna Ásgeirs Guðnasonar, kaup-
manns og útgerðarmanns á Flat-
eyri, og Jensínu Eiríksdóttur.
Gunnar brautskráðist frá Verslun-
arskóla íslands 1936 og var starfs-
maður verslunarfyrirtækja í
Reykjavík til 1940. Þá varð hann
forstjóri og meðeigandi I heildversl-
uninni Sveinn Bjömsson og Ásgeirs-
son en árið 1960 stofnaði hann fyrir-
tækið Gunnar Ásgeirsson hf. og rak
það og síðar einnig Velti hf. til árs-
ins 1989 er hann seldi fyrirtækið.
Gunnar Ásgeirsson sat í allmörg
ár í stjóm og framkvæmdastjórn
Verslunarráðs íslands og í skóla-
nefnd Verslunarskólans, en þar
kenndi hann vörufræði frá 1947—
1954 og samdi kennslubók í þeim
fræðum. Hann var formaður Félags
bifreiðainnflytjenda og formaður Bif-
reiða- og landbúnaðarvéla fyrstu árin
eftir stofnun. Gunnar sat í stjóm
Oddfellowstúkunnar Ingólfs 1955—
1957 og var formaður Lionsklúbbsins
Ægis 1960—1961. Þá var hann
umdæmisstjóri Lions 1976—1977 og
gegndi fjölmörgum öðrum trúnaðar-
stöðum, m.a. fyrir samtök kaupsýslu-
manna.
Gunnar Ásgeirsson
stórkaupmaður látínn
Gunnar Ásgeirson lét sér mjög
annt um málefni Sólheima í
Grímsnesi og á liðnu ári var honum
fyrstum manna veittur heiðurstitill-
inn heimilisvinur vegna starfa sinna
í þágu Sólheima.
Gunnar Ásgeirsson kvæntist árið
1939 eftirlifandi eiginkonu sinni,
Valgerði Stefánsdóttur. Þau eignuð-
ust sex böm og lifa fímm þeirra föð-
ur sinn.
Bifhjólaöku-
menn teknir
á ofsahraða
LÖGREGLAN á Akranesi
stöðvaði ofsaakstur vélhjóla-
kappa á þjóðveginum við
bæinn um síðastliðna helgi.
Hjóliö mældist á 173 kíló-
metra hraða, en hámarks-
hraði á veginum er 90 km á
klukkustund, og var ökumað-
urinn því á hartnær tvöföld-
um hámarkshraða.
Lögreglan á Akranesi segir
að hjá því embætti sé þetta
mesti hraði, sem ökutæki hefur
mælzt á um langt skeið. Tveir
menn voru á hjólinu.
Lögreglan í Kópavogi greip
vélhjólaökumann á 135 kíló-
metra hraða á Hafnarfjarðar-
vegi síðastliðinn föstudag. Dag-
inn eftir var annar tekinn á 123
km hraða á sömu slóðum. Há-
markshraði á Hafnarfjarðar-
vegi er 70 km á klukkustund.
Bifhjólamenn héldu mót á
Skógum um helgina. Að sögn
lögreglu voru talsverð brögð að
því að kvartað var undan akst-
urslagi þeirra á leiðinni milli
höfuðborgarinnar og Skóga og
sér lögreglan ástæðu til að
beina þeim tilmælum til bif-
hjólamanna að virða hámarks-
hraðann.