Morgunblaðið - 09.07.1991, Síða 18

Morgunblaðið - 09.07.1991, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1991 Leiðtogar Júgóslavíu samþykkja friðaráætlun EB: Mesic forseti segir að borg- arastyrjöld hafí verið afstýrt Stjórnarerindrekar telja þó bardaga geta brotist út hvenær sem er milli Serba og Króata Brioni, Belgrad, París. Reuter. Utanríkisráðherrar þriggja EB-ríkja á fundi með leiðtogum Júgóslavíu á sunnudag. Þeir eru, talið frá vinstri, Joao Pin- heiro frá Portúgal, van den Broek frá Hollandi og Jacques Poos frá Lúxemborg. Van den Broek sagði við fréttamenn, að hann væri hóflega bjartsýnn á árangur og líkti ástandinu í Júgóslavíu við eldfjall, sem gæti sprungið þá og þegar. LEIÐTOGAR Júgóslavíu og lýðveldanna Slóveniu og Króatíu sam- þykktu á sunnudagskvöld friðaráætlun fyrir tilstilli Evrópubandalags- ins (EB) eftir sextán klukkustunda samningaviðræður. Stipe Mesic, forseti Júgóslaviu, sagði í gær að með samkomulaginu hefði borgara- styijöld verið afstýrt en vestrænir stjórnarerindrekar voru svartsýnir á að hægt yrði að koma í veg fyrir átök milli Serba og Króata. „Friður kemst á frá og með degin- um í dag,“ sagði Stipe Mesic eftir viðræður leiðtoganna við utanríkis- ráðherra þriggja EB-ríkja á eyjunni Brioni á Adríahafi. í samkomulaginu felst að leiðtogamir skuldbinda sig til að koma í veg fyrir frekari átök milli Slóvena og júgóslavneska hers- ins og hefja síðan víðtækar samn- ingaviðræður 1. ágúst um framtíð Júgóslavíu. Samþykkt var málamiðl- un varðandi landamæri Slóveniu að Ítalíu, Austurríki og Ungverjalandi, sem var helsta ágreiningsmálið. Landamærastöðvar verða undir stjórn slóvensku lögreglunnar en lúta hins vegar júgóslavneskum lög- um. Stjórnvöld í Slóveníu og Júgó- slavíu skipta með sér tollum og júgó- slavneski herinn annast eftirlit með landamærunum næstu þijá mánuði. Nefnd 30-50 herforingja og embætt- ismanna frá EB-ríkjum verður falið að fylgjast með því að staðið verði við samkomulagið. Heimavamarlið Slóveníu og júgó- slavneski herinn fengu jafnframt frest til klukkan tíu í gærkvöldi að íslenskum tíma til að láta fanga lausa, fjarlægja vegatálma og kalla allar vopnaðar sveitir til búða sinna eða heim. Sjálfstæðisyfirlýsingin ekki afturkölluð Slóvenar féllust á að ganga ekki lengra í átt til sjálfstæðis Slóveníu næstu þijá mánuði. Milan Kucan, forseti lýðveldisins, sagði að sjálf- stæðisyfirlýsing slóvenska þingsins frá 25. júní hefði ekki verið afturköll- uð. Jacques Delors, forseti fram- kvæmdastjómar Evrópubandalags- ins, sagði að lýðveldi Júgóslavíu myndu reyna að semja um ríkjasam- band, sem bygðist á samvinnu sjálf- stæðra ríkja líkt og EB-ríkin sjálf stefndu að í framtíðinni. Ef einstök lýðveldi höfnuðu slíkri samvinnu myndu þau kalla efnahagskreppu yfir sig. „Það er því þeim í hag að vinna saman,“ bætti hann við. Hans van den Broek, utanríkis- ráðherra Hollands, sem tók þátt í viðræðunum í Brioni ásamt starfs- bræðrum sínum frá Lúxemborg og Portúgal, kvaðst hóflega bjartsýnn á að leiðtogum Júgóslavíu tækist að jafna öll ágreiningsmál sín og tryggja frið í landinu til langframa. „Við teljum að við höfum haldið eld- fy'alli í skefjum sem allir vonuðu að myndi ekki springa," sagði hann. „Það kemur þó í ljós síðar hvort okkur hefur í raun tekist það.“ Friðaráætlunin verður lögð fyrir þing Slóveníu og forsætisráð Júgó- slavíu en van den Broek sagði að fulltrúar þeirra í viðræðunum hefðu skuldbundið sig til að tryggja að hún næði fram að ganga. Leiðtogar Slóveníu og Króatíu tóku þátt í fundinum í Brioni ásamt Ante Markovic, forsætisráðherra Júgóslavíu, Stipe Mesic forseta og fulltrúum annarra lýðvelda og tveggja sjálfstjómarhéraða í forsæt- isráði landsins. Fulltrúi Serbíu fór af fundinum eftir nokkrar klukku- stundir en júgóslavneskir embættis- menn sögðu að það merkti ekki að Serbar væm andvígir friðaráætlun- inni. Enn hætta á átökum milli Serba og Króata Bardagar geisuðu milli Serba og Króata í austurhluta Króatíu í sjö klukkustundir á sunnudag. Fimm manns biðu bana og að minnsta kosti 24 særðust áður en júgóslavn- eskum skriðdrekasveitum tókst að stilla til friðar. Slóbodan Milosevic, forseti Serbíu, varaði við því á laug- ardag að borgarastyijöld kynni að . bijótast út ef júgóslavneski herinn Þýskaland og Austurríki; Reuter vemdaði ekki Serba í Króatíu. Vestrænir stjórnarerindrekar og fréttaskýrendur í Júgóslavíu fögn- uðu friðarsamkomulaginu og sögðu það gefa leiðtogum júgóslavnesku lýðveldanna svigrúm til að leysa ágreiningsmál sín. Þeir töldu þó ólík- legt að hægt yrði að koma í veg fyrir átök milli Serba og Króata, stærstu þjóða landsins, sem gætu brotist út hvenær sem er. „Samkom- ulagið er aðeins skammgóður vermir að mínu mati,“ sagði vestrænn stjórnarerindreki í Belgrad. „í því felst engin varanleg lausn, sem gæti komið í veg fyrir bardaga til langframa." Israelar neita að fara frá Líbanon Jerúsalem, Metulla, Sídon. Reuter. ISRAELAR hafa neitað að fara frá svokölluðu öryggissvæði á landa- mærum ísraels og Líbanons meðan erlendir herir séu í Líbanon. Ríkisstjórn Líbanons segir að Israelum stafi nú ekki lengur ógn af skæruliðum í Líbanon, þar sem skæruliðar Frelsissveita Palestínu (PLO) hafi verið hraktir þaðan og vopn þeirra gerð upptæk, og hefur hvatt rikisstjórn Bandaríkjanna til að fara fram á það við Israela að þeir og bandamenn þeirra, Suður-libönsku hersveitirnar (SLA), fari frá öryggissvæðinu. Talsmenn SLA hafa hins vegar bent á að megnið af vopnum PLO sé í flóttamannabúðum í Líbanon og enn hafi ekki nema um 10% þeirra verið gerð upptæk. Segja ekkert hæft í ásök- unum um útþenslustefnu Bonn, Vín. Reuter. STJÓRNVÖLD í Þýskalandi og Austurríki vísuðu í gær á bug ásökunum um að þau hefðu sent vopn til Slóveníu og Króatiu og að stuðningur þeirra við sjálf- stæðisbaráttu lýðveldanna væri liður í útþenslustefnu. Veljko Kadijevic, yfirmaður júgó- slavneska hersins, sagði á laugardag að aðstoð Þjóðveija og Austurríkis- manna við Slóvena og Króata mætti líkja við stuðning þýskra nasista við leppstjómir fasista í lýðveldunum í heimsstyijöldinni síðari. Hann sagði að Þjóðveijar vildu að úr rústum Júgóslavíu risu nokkur smáríki, sem myndu sökum smæðar sinnar og fátæktar leita til Austurríkismanna og Þjóðveija eftir viðskiptum, efna- hagsaðstoð og vemd gegn Serbíu. Hans-Dietrich Genscher, utanrík- isráðherra Þýskalands, sagði í gær að slíkar ásakanir væm algjörlega tilhæfulausar. „Þjóðveijar hafa ekki gerst sekir um íhlutun í innanríkis- mál Júgóslavíu,“ sagði hann. „Við viljum á hinn bóginn stuðla áfram að því að virðing sé borin fyrir mann- réttindum, sjálfsákvörðunarrétti þjóða og réttindum þjóðarbrota." Genscher hafði beitt sér fyrir því að Evrópubandalagið viðurkenndi sjálf- Reuter Króatískir lögreglumenn fara frá þorpi í austurhluta Króatíu eftir að harðir bardagar brutust þar út milli Serba og Króata á sunnudag. stæði Slóveníu og Króatíu ef her Júgóslavíu gripi til frekari aðgerða gegn þeim. Þýsk stjórnvöld vísuðu því einnig á bug að hafa sent vopn til Júgóslav- íu og hið sama gerði austurríska stjórnin. Franz Vranitzky, kanslari Austurríkis, sagði ekkert hæft í því að Austurríkismenn hefðu kynt und- ir sjálfstæðiskröfum Slóvena og Kró- ata í von um að geta endurreist heimsveldið Austurríki-Ungveija- land. Austurríska stjómin hefði hins vegar kynnt sér sjónarmið allra að- ila til að reyna að finna lausn á deilu júgóslavnesku lýðveldanna. „Við verðum að standa vörð um öryggi þegna okkar í Norður-ísra- el. Meðan hryðjuverkamenn eru á svæðinu og hryðjuverk framin þar þá munum við halda okkur við ör- yggislínuna," sagði Yitzhak Shamir á fundi með fréttamönnum á sunnu- dag. Þegar hann var spurður hvort ísraelar færu frá öryggissvæðinu, sem þeir komu á sjálfir, þegar búið væri að afvopna palestínska skæru- liða sagði hann að of snemmt væri að huga að slíkum möguleika. Líbanskar hersveitir náðu í síð- ustu viku á sitt vald síðustu bæki- stöðvum PLO í Suður-Líbanon og gerðu talsvert magn vopna upp- tækt. Aðgerðir þessar voru liður í áætlunum ríkisstjómar Libanons um að tryggja völd sín í öllu land- inu. í framhaldi af þessu er búist við að ísraelar verði beittir þrýst- ingi um að yfirgefa svæðið ásamt bandamönnum sínum. Forseti Líbanons, Elias Hrawi, átti, samkvæmt heimildum innan Líbanonsstjórnar, fund með sendi- herra Bandaríkjanna í Líbanon, Ryan Crocker, á laugardag og fór þá fram á það við hann að Banda- ríkjastjóm tryggði brotthvarf ísra- ela frá Líbanon samkvæmt sam- þykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna nr. 425. Crocker kom sér undan að svara þegar hann var spurður um þessa beiðni Líbana en sagði að Bandaríkjastjórn styddi aðgerðir líbanskra stjórnvalda til að tryggja völd sín í landinu. ísraelar hertóku 15 km breitt landsvæði í Líbanon árið 1985 til að veijast árásum skæruliða frá Líbanon og lýstu því yfir að þeir myndu fara frá svæðinu þegar þeim lyki. Síðan hefur orðið breyting á stefnu þeirra því utanríkisráðherra Israels, David Levy, sagði að ísrael- ar færu ekki frá svæðinu fyrr en allir erlendir herir, þ.á m. sýrlensk- ir, væru famir frá Líbanon. „Meðan erlendir herir eru á líbanskri grund verða Israelar að gera allt sem nauðsyn krefur til að tryggja ör- yggi þegna sinna,“ sagði hann. Israelar, sem ljórum sinnum hafa farið í stríð við Sýrlendinga, hafa miklar áhyggjur af vaxandi ítökum þeirra í Líbanon og fjölda sýr- Ienskra hermanna í landinu, en þeir eru um 40.000 talsins. Yfirmaður SLA sagði í gær að líbanski herinn yrði að fara inn í flóttamannabúðir Palestínumanna og afvopna skæruliða þar. „Ef lí- banski herinn fer ekki inn í búðirn- ar og gerir öll vopn PLO upptæk þá má segja að árangur aðgerðanna sé enginn,“ sagði Antoine Lahd á fundi með fréttamönnum. „Ef ekk- eit verður gert munu hryðjuverka- menn, hvort sem er héðan eða ann- ars staðar í heiminum, geta leitað skjóls í búðunum. Lehd sagði að líbanski herinn hefði ekki lokið ætl- unarverki sínu. „Enn hefur ekki nema innan við tíundi hluta vopna PLO verið gerður upptækur. Það verður að fylgja þessu eftir ef að- gerðirnar eiga að skila einhveijum árangri,“ sagði Lahd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.