Morgunblaðið - 28.07.1991, Síða 1
96 SIÐUR B/C
169. tbl. 79. árg.
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1991
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
,
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aftanroði
Myndin var tekin í Skálavík vestur nú fyrir skömmu, rétt fyrir miðnætti, og það eru síðustu geislar hnígandi sólar, sem lita
dalbotninn og veginn rauðan.
Júgóslavía:
Astandið stjórnlaust og áskor-
unum um vopnahlé ekki sinnt
Belgrad. Daily Telegraph, Reuter.
ÞÚSUNDIR manna hafa flúið heimili sín í Króatíu vegna átakanna milli króat-
ískra þjóðvarðliða og serbneskra skæruliða og er óttast, að þau séu að breytast
í hreint borgarastríð milli þjóðanna. Forsætisnefnd Júgóslavíu hvatti í fyrra-
kvöld til tafarlauss vopnahlés en síðasta sólarhring hafa 18 manns fallið í átökun-
um. Forsætisráðherrar fimm Evrópuríkja auk Júgóslavíu komu í gær saman til
fundar í borginni Dubrovnik til að ræða ástandið í landinu.
„Geimverur“
reyndust vera
laganemar í leik
Fjórir laganemar sögðust á föstudag
hafa myndað hringi á kornökrum í
N-Þýskalandi að næturlagi með því að
trampa niður kornið og lemja það með
viðarplönkum. N-þýsk sjónvarpsstöð
greindi frá því að fjórmenningarnir
hefðu viðurkennt að hafa myndað
hringi á 10 ökrum, svipaða þeim hringj-
um sem hafa myndast á ökrum í Eng-
landi. „Við vildum bara sýna fram á
að við gætum gert sömu hluti og Eng-
lendingar," sagði einn laganemanna.
Áður en upp komst um tiltækið hafði
svissneski rithöfundurinn Erich von
Dániken, sem sérhæfir sig í skrifum
um yfirnáttúruleg fyrirbæri, sagst telja
ólíklegt að hringirnir væru lendingar-
staðir geimskipa en sagðist halda að
þeir væru tilraunir geimvera til að
komast í samband við jarðarbúa.
Sagði af sér eft-
ir rifrildi við
frú Mitsotakis
Ráðherra iðnaðar, orku og tækni í
Grikklandi, Stavros Dimas, sagði af sér
á föstudag eftir að hafa deilt við eigin-
konu forsætisráðherrans, Konstantíns
Mitsotakis, í opinberri heimsókn til
Sovétrílijanna. Dimas strunsaði út úr
grískri móttöku eftir að frú Marika
Mitsotakis sagði honum að hann sinnti
grískum kaupsýslumönnum, sem í boð-
inu voru, ekki nógu vel. Gríski sósíal-
istaflokkurinn hefur gefið út yfirlýs-
ingu vegna málsins. Þar segir m.a.:
„Þegar haft er í huga að níu vensla-
menn forsætisráðherrans voru með I
för þá er aðdáunarvert að aðeins einn
ráðherra skyldi segja af sér!“
Leið sálarkvalir
fyrir klippinguna
Eric Graham í Flórída stefndi í síðustu
viku verslanasamsteypunni J.C. Penney
vegna þess að hann segist hafa verið
svo illa klipptur á einni af hársnyrti-
stofum fyrirtækisins í mars sl. að hann
hafi liðið sálarkvalir og þurft að leita
sér hjálpar. Hann segist hafa safnað
hári í tvö og hálft ár. Þá hafi hann
farið á hársnyrtistofuna og beðið um
að hárið yrði klippt stutt í hliðunum
en ofan á höfðinu átti það að vera sítt
og krullað. Útkoman varð þveröfug,
eftir urðu aðeins „smánarlegir" 20 cm
af hári og varð hann fyrir aðkasti vina
sinna fyrir vikið. Hann segist ekki hafa
getað notið lífsins vegna þessa. Graham
fer fram á 10.000 dali (rúmar 600.000
ÍSK) í skaðabætur.
Talsmenn júgóslavneska Rauða krossins
sögðu í gær, að um 45.000 manns, aðal-
lega Serbar, hefðu flúið frá Króatíu á
skömmum tíma en aðeins á einni viku
hafa um 70 manns fallið í átökum milli
Króata og Serba. Stjórnvöld í Króatíu
hafa tilkynnt um ýmsar ráðstafanir vegna
„yfirvofandi stríðs“ og þau saka Serba um
að hafa hafið sókn gegn bænum Glina,
sem er í 30 mílna fjarlægð frá Zagreb,
höfuðborg Króatíu.
Júgóslavneska fréttastofan Tanjug
sagði í gær, að frá því á föstudag hefðu
18 manns fallið, 14 Króatar og fjórir Serb-
ar, og lægju lík margra þeirra og ann-
arra, sem fallið hefðu síðustu daga, eins
og hráviði á ökrum, vegum og í brunnum
bílum.
Júgóslavneska forsætisnefndin skoraði
í fyrrakvöld á Króata og Serba að semja
tafarlaust um vopnahlé en því var ekki
sinnt og er óttast, að fátt geti nú komið
í veg fyrir meiri og alvarlegri átök milli
þjóðanna.
í fyrrakvöld kröfðust Króatar þess af
forsætisnefndinni, að sambandshermenn
yrðu kallaðir til búða sinna og í yfirlýsingu
Josips Manolics, forsætisráðherra Króatíu,
sagði, að yrði það ekki gert væri augljóst,
að herinn lyti ekki lengur alríkisstjórn-
inni. Jafnframt myndu þá Króatar líta á
sambandsherinn sem hernámslið.
Forsætisráðherrar fimm Evrópuríkja,
Ítalíu, Austurríkis, Ungveijalands, Pól-
lands og Tékkóslóvakíu, komu í gær sam-
an til fundar með júgóslavneskum starfs-
bróður sínum í borginni Dubrovnik í Júgó-
slavíu. Var þar rætt um hugsanlega lausn
á deilum þjóðanna í landinu en talið er,
að litill árangur hafí orðið af viðræðunum.
DAGUR
í HRINGLEIKAHÚSI
Kristján
Jóhannsson
í Verona
12
Rci'tl viö Þorstein PáLsson sjávariitvegsráöherra
Skattgreiðendiir 16
eiga ekki að borga
úreldingu fiskiskipa
10
HÉRNA
UGGJA
MÖGULEIKARNIR
Gunnar Stefán Möller um fyrir-
tcekjarekstur í Moskvu
HEIMTIL
BLAÐ
c