Morgunblaðið - 28.07.1991, Blaðsíða 27
2f-
_____Ml
ATVIN N U
Rennismiður
Baader ísland hf. óskar eftir að ráða renni-
smið í framtfðarstarf við framleiðslu.
Umsóknir sendist til Baader ísland hf., Hafn-
arbraut 25, 202 Kópavogi.
Upplýsingar veitir Sævar í síma 91-641300.
Afgreiðsla
- bækur/ritföng
Bókaverslun óskar eftir að ráða fólk til
afgreiðslustarfa.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
1. ágúst, merktar: „Afgreiðsla - 7282“.
Fulltrúi
Staða fulltrúa í sameiginlegri afgreiðslu Al-
mannavarna ríkisins og Geislavarna ríkisins
er laus til umsóknar. Um er að ræða 75%
starf.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Laxdal í síma
685001.
Skólastjórastaða -
kennarastöður
Skólastjóra og kennara vantar við Grunn-
skóla Borgarfjarðar eystra.
Skólinn er vinalegur og vel tækjum búinn
með 30 nemendur. Góðir tekjumöguleikar.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-29932 og formaður skólanefndar í síma
97-29802.
Vantar þig söluher?
Við erum öflugur hópur sölumanna með
góða fagþekkingu og mikla reynslu af mark-
aðsmálum.
Við tökum að okkur að skipuleggja og/eða
framkvæma markaðssetningu eða söluátak
á hvers konar vörum og þjónustu til fyrir-
tækja og heimila.
Ef þú vilt heyra frá okkur, leggðu þá inn
nafn þitt og símanúmer í umslagi merkt:
„Sala - 4021 til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
nk. fimmtudag 1. ágúst.
Þekking á matvörum
Ef þú hefur góða þekkingu á matvörumark-
aðinum, þekkir vel til smásöluverslana og
stórmarkaða, hefur reynslu í sölu- og mark-
aðsmálum, ert metnaðarfullur og „hugsar
stórt“ ert á uppleið og tilbúinn að takast á
við krefjandi starf hjá þekktu einkafyrirtæki,
ættirðu að hafa samband.
QiðniTónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Húsasmíðameistarar
athugið!
Faghús hf. óska hér með eftir húsasmíða-
meisturum til að taka að sér afmörkuð verk-
efni fyrir fyrirtækið. Æskilegt er að viðkom-
andi meistarar séu með 2-4 trésmiði sem
vanir eru að vinna saman.
Aðeins góðir menn koma til greina.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Faghúss
hf., Grensásvegi 16, milli kl. 10 og 12 virka
daga í síma 678875.
l T FAGHÚS hf
Trésmiðir
Óskum eftir trésmiðum til inni- og útistarfa.
Upplýsingar í síma 91-652477 og heimasíma
91-651117 eða 91-53653.
Reisir sf.
Iðnrekstrarfræðingur
óskar eftir starfi. Margt kemur til greina.
Hefur stundað kennslu, stálsmíðar, lager-
stjórnun og þróunarstarf.
Upplýsingar í síma 96-21128.
Snyrtivöruverslun
Starfskraftur óskast strax í hlutastarf. Þarf
að vera vanur verslunarstörfum, á aldrinum
25-40 ára og reyklaus.
Laun samkomulag.
Umsóknir, með upplýsingum um aldur og
fyrri störf, skilist á auglýsingadeild Mbl. fyrir
1. ágúst merktar: „RL - 3988“.
Störf
með einhverfum
Við sambýlið í Hólabergi er nú þegar laus
staða deildarþroskaþjálfa eða fóstru og
staða meðferðarfulltrúa. Um er að ræða
vaktavinnu (aðallega kvöldvaktir).
í ágúst verða lausar stöður við sambýlið í
Trönuhólum. Um er að ræða vaktavinnu (dag-
og kvöldvaktir) og er möguleiki á hlutastarfi.
Umsóknum um stöðurnar á sambýlunum
skal skilað til Sigríðar Lóu Jónsdóttur, for-
stöðumanns, Trönuhólum 1,111 Reykjavík,
sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma
79760 frá kl. 9.00-13.00 mánudag, þriðjudag
og miðvikudag.
FLUGMÁLASTJ ÓRN
Laus staða
Staða flugvallarvarðar á Húsavíkurflugvelli
er laus til umsóknar.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi meira-
próf bifreiðastjóra og réttindi á þungavinnu-
vélar. Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 9. ágúst 1991.
Flugmálastjórn.
Leikskólinn Sólhlíð,
Engihlíð 6-8
Deildarfóstra óskast að leikskólanum
Sólhlíð, Engihlíð 6-8. Einnig vantar starfs-
mann í eldhús í 80% stöðu svo og starfs-
mann í fullt starf.
Allar nánari upplýsingar veitir Elísabet Auð-
unsdóttir, leikskólastjóri, í síma 601594.
Starfsmaður
Starfsmaður óskast til starfa í borðstofu
Kópavogshælis frá 1. september 1991.
Starfið felur í sér afgreiðslu á mat til starfs-
manna og tiltekt pantana fyrir deildir.
Vinnutími frá kl. 8 til 14.
Nánari upplýsingar veitir Alma Guðbjörg
Guðjónsdóttir í síma 602763.
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á ms. Gullberg VE 292.
Upplýsingar í símum 98-11740, 985-22592
og 98-11828.
Skólastjóri
Skólastjóra vantar við Grunnskóla Bolung-
arvíkur nú þegar. Um er að ræða 230 nem-
enda skóla. Hluti skólahúss er nýr. Mjög góð
starfsaðstaða. Einbýlishús í boði. Flutningur
greiddur.
Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 1991.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar
Guðrún Sigurbjörnsdóttir, í síma 94-7474 og
94-7113 og Anna Edvardsdóttir, í síma
94-7213.
Arkitekt
- innanhússhönnun
Veitingahús í Reykjavík óskar eftir hug-
myndaríkum hönnuði til að breyta salarkynn-
um sínum.
Tilboð merkt: „Hönnun - 987“, sendist aug-
lýsingadeild Mbl. fyrir 2. ágúst.
A1IKLIG4RÐUR
Starfsfólk í allar
deildir
Starfsfólk vantar í allar deildir sem fyrst.
Upplýsingar veittar á staðnum.
Varmalandsskóli
Varmalandsskóla í Borgárfirði vantar íþrótta-
kennara. Á Varmalandi, sem er heimavistar-
barnaskóli í 150 km fjarðlægð frá Reykjavík,
er fullkomin íþróttaaðstaða. Ódýrt húsnæði
og frír hiti.
Þá vántar ennfremur kennara til smíðakennslu
(hálf staða) og í hannyrðum (hálf staða).
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 93-51300
og formanni skólanefndar í síma 93-51340
auk fræðsluskrifstofu í Borgarnesi.
Skólanefnd.
íþróttakennari -
smíðakennari
Hefur þú áhuga á almennri líkamsþjálfun
barna og unglinga? Ef svo er vantar okkur
áhugasaman íþróttakennara við Vopnafjarð-
arskóla. Nýtt íþróttahús, mjög vel búið.
Við sama skóla er einnig laus staða verk-
menntakennara (smíðakennara). Hugmynda-
ríkur kennari á því sviði velkominn.
Upplýsingar í símurn 97-31108 og 97-31458.
Skólanefnd.
Frá Grunnskóla
Reyðarfjarðar
Eftirtaldar kennarastöður eru lausar
til umsóknar:
Kennsla yngri barna, myndmenntarkennsla,
tónmenntarkennsla og smíðar.
í skólanum eru 130 nemendur í 10 bekkjar-
deildum og aðstæður til kennslu góðar.
Sveitarfélagið útvegar hagstætt leiguhús-
næði og flutningsstyrk.
Nánari upplýsingar veita skólastjóri í síma
97-41344, formaður skólanefndar í símum
97-41302 og 97-41353 og yfirkennari í síma
97-41141.