Morgunblaðið - 28.07.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.07.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2?. JÚLÍ. 1991 vegna þarf ekki að líða langur tími þar til búið er að hreinsa fjörurnar og talning því gagnslítil. Aftur á móti er hægt að fullyrða að unginn hefur mest allur farið því á þessum tíma er hann ekki orðinn stærri en svo að hann er bundinn við þarabelt- ið í fjöruborðinu og hefur ekki æti annars staðar. Menn horfðu upp á það að ungar, viku til mánaðar gamlir, sem áður fylltu víkur og voga, gjörsamlaga hurfu en höfðu ekki getað bjargað sér á haf út eins og fullorðni fuglinn gæti hugsan- lega hafa gert. Menn sáu þess ein- hver dæmi að hann var að reyna að bjarga sér og fara inn á firði þar sem minna var eða jafnvel eitt- hvað utar en við vitum ekki í hvað miklum mæli þetta hefur tekist. Við vitum hins vegar að það hefur talsvert af fugli farist og sárt er að sjá á eftir jafnt góðu ungaári. Aðstæður voru allar hinar bestu i vor, góðviðri og óvenjumikið af ungum komst upp. Svæðið leit sem sagt afar vel út þegar þetta slys varð og það er því þeim mun sorg- legra að lenda í þessu. Hins vegar ef einungis unginn ferst en ekki fullorðni fuglinn þá er það skömm- inni skárra því oft verður tjón á ungastofninum og æðarstofnin lifir það vel af, miklu verra er að missa fullorðna fuglinn. Þá erum við að missa dýr sem eru í „framleiðslu" ef svo má segja en unginn á eftir 3 til 5 ár áður en hann verður varp- fugl. Því geta góð ár næsta og þarnæsta ár bjargað miklu hvað varðar viðkomuna. Aftur á móti ef tjón verður verulegt, eða eins og sumir virðast óttast að dúntekja hverfur alveg, þá er um að ræða gífurlegt áfall fyrir þessa bændur og jafnvel fyrir byggðir á svæðinu. Uppeldi möguleiki Því miður er sennilega lítið hægt að gera sem dugar til að bjarga fuglinum. Menn hafa þvegið grút og olíu af þeim en það er bæði tímafrekt og erfitt auk þess sem fuglinn er oft svo langt leiddur að hann drepst hvort eð er. Ef hann aftur á móti er í sæmilegu standi er möguleiki að hægt sé að bjarga honum. Annars er hæpið að menn nái að bjarga svo mörgum fuglum að það skipti einhveiju máli. Menn eru meira að friða sig með því að bjarga þeim fugli sem þeir sjá í kringum sig að er að veslast upp. Sumir hafa gripið til þess ráðs að fóðra þá fugla sem hafa hrakist á land og reyna að halda þeim frá menguninni og fjörunni. Þetta er hægt að gera í nokkrum mæli en ekki nægilegum til að bjarga dæm- inu í heild. Talsverð reynsla er orðinn fyrir hendi í landinu í því að ala upp æðarunga og alveg klárt að hægt er að gera það með verulegum Morgunblaðið/Júlíus Æöarfugl i landi Laxamýrar i Suóur-Þing eyjarsýslu Árni Snæ- björnsson, hlunninda- róóunautur Búnaóarfé- lags íslands. árangri. Til þess hugsa menn núna að ala unga næsta vor í verulegum mæli og þá kannski nokkuð víða til þess að tryggja einhveija lág- marks viðkomu. Þetta er auðvitað vel hægt að hugsa sér að geti geng- ið í dálitlum mæli en ekki þannig að tugum þúsunda skipti. Uppeldi nokkurra hundruða eða jafnvel nokkurra þúsunda gæti aftur á móti bjargað ungunum yfir erfið- asta tímann fram í ágúst. Mér er kunnugt um að æðarbændur fyrir vestan hafa verið að hugleiða þenn- an möguleika af fullkominni alvöru. Æóarfuglinn slaófugl Um æðarfuglinn er það að segja að hann er staðfugl sem lifir hérna allt árið og sækir sér fæðu á grunn- sævi. Hann kafar niður á 10, 15 og jafnvel 20 faðma dýpi þannig að beitarsvæðið er alit grunnsævi hér í kringum landið. A vorin, í apríl, leitar fuglinn upp að strönd- inni og sækir í megindráttum á sömu slóðir ár eftir ár. Jafnvel í sumum tilvikum fer hann í sama hreiður ár eftir ár en fyrst og fremst á sömu slóðir, í sama hólmann eða á sama svæðið. Á þessum tíma gera bændumir ýmislegt til að lokka fuglinn að, búa til hreiður, setja hey eða sinu í hreiðrin og laga þau til á einn og annan hátt. Þeir skreyta líka varpið með fuglahræð- um, veifum, bjöllum eða öðru til- tæku sem virðist laða fulglinn að auk þess sem það fælir varg frá. Þegar fuglinn kemur í hreiðrin láta bændumir hann að mestu vera meðan hann er að setjast upp því þá er hann dálítið viðkvæmur. Seinna, þegar er fullorpið, ganga bændur um svæðið og fylgjast með. Farið er í hreiðrin og sett þurrt undir ef bleyta er, dálítið af dún er tekið jafnóðum en þess gætt að setja alltaf hey eða þurrt í staðinn og skilja vel eftir til að hylja eggin. Afgangurinn er svo hirtur þegar fuglinn er farinn. Þannig er þetta nánast eins og ræktunarbúskapur að ræknunin felst í umönnun um fuglinn. Hlúð er að honum á allan hátt og þess gætt að taka ekki meira frá honum en hann þolir. Ef dúnninn er ekki tekinn þegar fugl- inn fer fýkur hann í burtu. Því er ekki verið að ræna hann einu eða neinu þó dúnninn sé tekinn. Þegar dúntekjan er búin fer fuglinn svo með ungana beint úr hreiðrinu á sjóinn og þá eru þeir í fjöruborðinu fyrstu vikurnar, jafnvel fyrstu einn til tvo mánuðina, og eru þá afskap- lega háðir þessu þarabelti þar sem þeir ná í marfló og önnur smákvik- indi. Síðan geta þeir farið að færa sig á meira dýpi þegar þeir stækka. Hjá bóndanum tekur þá við að þurrka sjálfan dúninn og hreinsa úr honum allt msl. Þetta er mikil vinna en ef dúnninn er ekki verkað- ur vandlega verður hann ekki hæf- ur til útflutnings en mjög strangar kröfur eru gerðar til dúns til út- flutnings. Á þessari vinnu auk nátt- úmlegra gæða dúnsins byggist hátt verð á honum. Gaman er að nefna að vélar sem notaðar eru til að hreinsa æðardún eru alíslensk upp- fyndning og leystu af hólmi mikla handavinnu. Þetta em einu vélarnar sem til eru í heiminum sem ætlaðar eru til þessara hluta og þær reyn- ast mjög vel. Mikió af dún ó Þýskalands- og Japansntarkaó Dúnninn er mestallur fluttur út. Þýskaland er frá fornu fari okkar stærsti markaður en á síðustu 3 til 4 árum hefur Japansmarkaður komið gífurlega sterkt inn. Ef ég man rétt fóm um 43% af dúninum til Þýskalands á síðasta ári, önnur 43% til Japan og hitt dreifðist svo til ótal landa. Bretland hefur stund- um keypt dálítið, reytingur fer til Norðurlandanna og jafnvel Sviss eða Frakklands og smávegis til Ameríku. Dúnninn er notaður í föt og sængur. Hann er ekki einungis eitt albesta einangrunarefni sem til er heldur er hann líka léttur. Áferð- in, léttleikinn og einangrunargildið gefur dúninum gildi en það er ekki allt því dúnninn hefur þann hæfi- leika að geta tekið til sín ákveðinn raka og eins og miðlað honum. Fólk sem þekkir gerviefni veit hins vegar að svitinn límist við mann. Þetta er eiginleiki sem fólk kann betur að meta eftir því sem það kynnist gerviefnunum meir. Þess vegna hef ég enga trú á öðra en dúnninn verði um ókomna framtíð verðmæt og eftirsótt vara. Að lokum má kannski geta þess að í æðarrækt eins og flestum öðr- um búgreinum og öðru því sem menn fást við þá hafa æðarbændur með sér félag en það var stofnað árið 1969 og heitir Æðarræktarfé- lag íslands. Einu skilyrðin til að fá þar inngöngu er að hafa áhuga á æðarrækt þannig að inntökuskii- yrðin em ekki ströng. Meginhlut- verk félagsins er að stuðla að bættu og betra varpi í landinu, auka og efla æðarræktina, til dæmis með þvi að fækka þeim vargi sem ásæk- ir æðarfuglinn, með leiðbeiningar- starfi, með félagsstarfi sem styrkir stöðu bændanna í að stunda þessa búgrein og svo framvegis. Félagið hefur starfað ötullega og vinnur almennt að málefnum æðarbænda. Félagið starfar í deildum í allt land en formaður þess er Davíð Gíslason frá Mýmm í Dýrafirði. Hér er fyrst og fremst um áhugamannafélag að ræða en ekki stéttarfélag, en á undanfömum ámm hefur það átt mjög náið og_ gott samstarf við Búnaðarfélag íslands. Fullt af nýjum efnum með 10-80% afslætti gallery ^ara Trönuhrauni 6, Hafnarfirði, sími 651660 OPIÐ MANUDAGA TIL FOSTUDAGA FRA KL. 9-18 OG LAUGARDAGA FRA KL. 10-14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.