Morgunblaðið - 28.07.1991, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1991
A OTRULEGU VERÐI!
Nú fá íslenskir feröalangar annaö frábært tækifæri til aö láta Ítalíudrauma sína
rætast á ódýran og eftirminnilegan hátt.
I vikuferö til Italíu færöu fullkomna blöndu af spennandi haustverslun,
vönduðum skoðunarferðum og þægilegri sólarlandaferð,
svo ekki sé minnst á gómsætan ítalskan mat upp á hvern dag.
Gist er í góöum íbúðum í Riccione og Portoverde,
íslenskir fararstjórar eru alltaf til taks og þú
nýtur ævintýrisins frá fyrsta til síðasta dags.
ítalska hausttískan er komin í verslanir
og tískuborgin Rimini laðar þessa dagana
að sér eftirvæntingarfulla kaupendur hvaðanæva
að úr heiminum. Feneyjar og Florens eru
heimsóttar í ógleymanlegum skoðunarferðum
og strendur Adríahafsins eru í sínu besta formi
þannig að þar sem verslun og ferðalögum
sleppir tekur mjúkur sandurinn og letilífið við.
Og þegar lága verðið bætist við þá er varla
hægt að hugsa sér blönduna betri.
fwey/or, Flórens
y '6- september
Verð
(6 í íbÚÓ) Verd m/ðoð við
v,. 27.455
Innifalið: Flug, íbúðagisting, akstur til og fró
flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Onnur dæmi:
28*785 (41 íboð) Kr. 32*490
9wgi zö. ji
(2 í stúdíó)
Kvennaferðirnar aftur!! Og kominn tími til!
RÓM 9.—16. sept.
v nÁ nnLLn rtíAnr n n fr, r r Á rrtn Ln fnrA fll PADK AP
Henríetta er að pakka niður og fer sérstaka ferð til PARISAR 28.
ógúst og aðra til RÓMAR 9. september. Þetta verður ferð allra tíma,
stúlkur, - því dvalið verður í Róm í ótta daga og sjö nætur við
vísindastörf og viðskipti og gist ó Hótel Nizza, rétt hjó jórnbrautar-
stöðinni og Piazza d. Repubblica. Ykkar bíða því stórkostlegir síðsum-
ardagar í Róm, enda vetrartískan komin í verslanir!
Verð á mann í fvíbýli 57.800 stgr.
Verð á mann í einbýli 64.900 sfgr.
Samvinnuferdir - Landsýn
Reykjavík: Austurstræti 12. s 91 -691010. Innanlandsferðir. s. 91 -691070.
póstfax 91 -27796. telex 2241. Hótel Sögu við Hagatorg. s. 91 -622277, póstfax 91 -623980
Akureyri: Skipagótu 14. s. 96-27200. póstfax 96-27588. telex 2195
Bifreiðastjóra-
félagið Frami;
Sjaldan
skortir
leigubíla
LEIGUBÍLSTJÓRAR fagna
áhuga lögreglustjóra og borgar-
stjóra á að leysa þau vandamál
sem skapast í miðbænum um
helgar. Jafnfram lýsa leigubíl-
sljórar furðu sinni á þeim yfirlýs-
ingum, að skortur á leigubílum,
valdi því m.a. að ástandið I mið-
bænum, að næturlagi um helgar,
sé eins og það er.
í fréttatilkynningu frá Bifreiða-
stjórafélaginu Frama segir: „Stað-
reyndin er sú að í sumar hefur
mjög sjaldan skort leigbíla um helg-
ar og hefur verið auðveldara en
nokkru sinni fyrr að ná í leigubíl í
miðbænum eftir lokun skemmti-
staða. Töluvert hefur verið um að
leigubílstjórar hafí ekið fólki í mið-
borg Reykjavíkur frá úthverfum og
nágrannasveitum á milli kl. 3 og 4
á helgarnóttum.
Eftirspurn eftir leigubílum fer
mikið eftir veðri, þannig að í sumar
hefur hún verið óvenju lítil. Fólk
gengur meira, vegna þess að tíð
hefur verið einstaklega góð. Hins
vegar, þegar veður er slæmt, skap-
ast stundum vandræðaástand þegar
yfir 10.000 manns er hleypt út af
skemmtistöðunum á sama tíma.
Þetta á sérstaklega við, þegar færð
er þung og leigubílar þar af leið-
andi lengur í hverri ferð. Þetta er
vandamál sem þarf að leysa og vilj-
um við leigubílstjórar leggja til, að
fulltrúar borgarinnar, lögreglu-
stjóra og veitingamanna ásamt
leigubílstjórum komi á samstarfs-
hóp til að leysa það.“
Patreksfjörður:
Elstu borg-
ararnir í
skemmtiferð
Patreksfirði.
LIONSMENN og kvenfélags-
konur úr Sif buðu elstu borgur-
um á Patreksfirði til sinnar ár-
legu skemmtiferðar á dögunum.
Farið var í tveimur rútubílum
frá Torfa Andréssyni í Tálkna-
firði. Haldið var í Arnarfjörð og
litið heim að Rafnseyri, þar sem
veglega var tekið á móti hópnum
og allt skoðað sem þar er að sjá.
Staldrað var við í Dynjandisvogi,
skyggnst um og glaðst yfir góða
veðrinu, vestfírskri náttúru, og því
að fá að vera til í góðra vina hópi.
Konur sem fréttaritari talaði
við, létu mikið af veitingunum.
Hápunktur þeirra var máltíð í
Hótel Flókalundi en þaðan var
haldið heim enda dagur að kveldi.
Hópur þessi heldur vel saman með
heimsóknum og samræðum yfír
kaffibolla auk þess sem hann
steðjar um götur og torg vetur,
sumar, vor og haust. Markmiðið
er að sjálfsögðu heilsubót og ekki
skemmir að geta skoðað náttúruna
gegnum tært og heilnæmt vestf-
irskt sjávarloft.
- Hilmar
VJterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Iltogiiiiilfrlaftfft