Morgunblaðið - 28.07.1991, Page 12
MORGCNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR .28.VÚLM991
ae
Sviðið í Turandot er mik-
ilfenglegt eins og sjá má ,
V,-
>
í Kristján Jóhannsson og Grace Bumbry í hlutverkum
J Kalafs og Turandot í óperu Puccinis.
Eftir Sigrúnu Davíðsdóttur
BORGIN Veróna á Ítalíu er fræg 4
fyrir ýmislegt. Hún er heima-
borg elskendanna frægu, Róm- [
eós og Júlíu, þar er stór og falleg
kirkja, San Zeno, með altaristöflu
eftir antegna, einn af meisturum
endurreisnartímans, og fleiri dýr-
gripum og síðast en ekki síst er í
miðborginni stórt og mikið hring-
leikahús frá upphafi kristins tíam-
tals. Síðan á fyrri hluta aldarinnar
hefur leikhúsið forna verið notað
fyrir óperu- og leiksýningar. Nú
hefur óperan í Veróna sýningar
þar á hverju sumri. Þegar þýska
skáldið Goethe var í Ítalíureisu
seint á 18. öld, kom hann auðvitað
við í Verónu sérstaklega til að
berja hringleikahúsið rómverska
augum. Á ferð sinni um borgina
sá hann menn að leik í leikhúsi
borgarinnar, sem honum þótti
nokkuð ófullkomið og spurði með ]
stóru upphrópunarmerki í dag-
bók sinni, hvers vegna í ósköpun-
um þessir leikar væru ekki haldnir í
hringleikahúsinu. Auðvitað er það al-
veg augljóst og liggur í augum uppi að
húsið á að nýta.
sumar verða settar upp þrjár óperur í hringleikahúsinu undir berum
sumarhimninum í Verónu. Fyrst verður það Rígólettó, sem höktir yfir
sviðið, síðan Nabucco og síðast kemur Turandot þar sem Kristján Jóa-
hnnsson syngur á móti Grace Bumbry sem Turandot. Turandot er
eftir Puccini, hinar tvær eftir Verdi, þessi heittelskuðu ítölsku tón-
skáld. Sýningar standa frá júlíbyijun og út ágúst. Verkefnin eru valin
og skipulögð með tveggja til þriggja ára fyrirvara, svo það er ekki
1 flanað að neinu. Um þremur vikum fyrir frumsýningu mæta einsöngvar-
ar og hljómsveitarstjóri til leiks, ásamt leikstjóra, sem þegar hefur hafið undir-
búning, í samvinnu við sviðs- og búningahönnuð og lagt línurnar í samviYmu
við aðstoðarleikstjóra. Þegar einsöngvararnir mæta, hefjast æfingarnar.
Æft í rúmlega 30 stiga hita
Hljómsveit og kór þurfa að æfa öll verkin þijú. Hver ópera hefur sinn
stjómanda. Stundum er æft með söngvurum og kór, svo hljóðfæraleikaramir
standa í ströngu. Fyrri hluti dags er æft inni, en fljótlega er æft á sjálfu
hringleikasviðinu. Þar hefjast æfingar þó ekki fyrr en líður á daginn, því á
morgnana er húsið opið fyrir ferðamenn og um miðjan daginn er alltof heitt.
[ Veróna er ein af heitustu borgum Ítalíu. Á kvöldin er iðulega um eða yfir
[30 gráður.
A öðrum æfíngadegi fyrir Turandot var músíkæfing fyrir einsöngvara um
morguninn. Frá kl. 11-13 æfði hljómsveitarstjórinn Daniel Nazareth einstaka
einsöngvara, ásamt kórstjóranum Aldo Danieli við píanóundirleik, í litlum sal
í óperuhúsinu. Niðri í aðalsalnum var hljómsveitin að æfa fyrir Rígólettó.
Úti voru 34 gráður, svo það var notalegt að sitja inni í svölu húsinu. Þeg-
ar Kristján mætti, var tríóið Ping, Pang og Pong að æfa. Tímur og mandar-
íninn voru einnig mættir. Að vörmu spori var Kristján tekinn til við söng-
inn. Kórstjórinn sagði fram textann, sem söngvaramir sungu og stjórnand-
inn sat á stól með nótumar fyrir framan sig og stjórnaði. Hann stoppaði
þá stöku sinnum ti! að árétta hvemig hann vildi hafa sönginn. Lengri frasa
hér til að halda í við kórinn, hraðara hér og hægara þar ... Söngvararnir
kinkuðu kolli skilningsríkir.
Innan skamms mætti sjálf Turandot til leiks, þessi jökulkalda kínverska