Morgunblaðið - 27.08.1991, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGÚr 27. ÁGÚST 1991
Mátveggir í Þorlákshöfn:
Hús, vélar og
efni gjörónýtt
Selfossi.
LJÓST er að verksmiðjuhús Mátveggja í Þorlákshöfn, vélar þess
og efni sem þar var er allt ónýtt. Verksmiðjan brann aðfaranótt
síðastliðins laugardags og fyrir liggur að upptök eldsins voru í
loftþjöppu sem var í litlum klefa í norðausturhorni hússins.
Verksmiðjuhúsið var í eðlilegri
tryggingu en ljóst er að vélamar
voru vantryggðar miðað við end-
urnýjun þeirra. Forsvarsmenn fyr-
irtækisins vildu ekki nefna neinar
tölur um tjón en ljóst er að það
skiptir tugum milljóna:
Búið var að endurskipuleggja
starfsemi fyrirtækisins eftir erfíð-
leikatímabil í rekstri þess undanf-
arin ár og það skilaði hagnaði á
síðasta ári og í ár stefndi í góðan
rekstur. Verkefnastaðan var góð
og unnið var að því að byggja
hana enn frekar upp.
Burðarvirki verksmiðjuhússins
er það illa farið að ekki er um
annað að gera en rífa það. Ekki
hafa verið teknar neinar ákvarð-
anir um framhaldið á starfsem-
inni. í gær unnu starfsmenn við
það að hreinsatil í brunarústunum
og tjónaskoðunarmenn við að
leggja mat á tjónið vegna brun-
ans. Flestir þeirra hafa unnið hjá
fyrirtækinu í 4-10 ár en hjá fyrir-
tækinu störfuðu 12 menn.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Starfsmenn Mátveggja unnu við það í gær að hreinsa til í brunarústunum.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
Heimlld: VeOurstola íslands
(Byggl á veöurspá kl. 16.15 I geer)
VEÐURHORFUR í DAG, 26. ÁGÚST
YFIRLIT: Yfir utanverðum Húnaflóa er 987 mb lægð sem hreyfist
NA og grynnist. ( nótt myndast önnur lægð á vestanverðu Græn-
landshafi og mun hún einnig hreyfast NA um Grænlandssund.
SPÁ Allhvöss SA- eða S-átt um vestanvert landið en hægari A-
lands. Rigning ó Suður-, Vestur- og Austur eftir Norðurlandi, en
skýjað með köflum og víða þurrt NA-lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Suðaustlæg átt. Rign-
ing með 9-12 stiga hita á Suður- og Vesturlandi en þurrt að mestu
og viða bjart á Norður- og Austurlandi. Þar verður hiti að 20 stig-
um síðdegis, en mun svalara að næturlagi.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
Q
Heiðskírt
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
f * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *_____
j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V H
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐOR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 13 skýjaö
Reykjavik 6 hálfskýjað
Bergen 14 skúr
Helsinki 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 18 þokumóða
Narssarssuaq 6 rigning
Nuuk 4 alskýjað
Osló 15 skýjað
Stokkhólmur 17 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve vantar
Amsterdam 15 hálfskýjað
Barcelona 20 þokumóða
Berlín 18 þokumóða
Chicago 19 léttskýjað
Feneyjar 21 þokumóða
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 13 úrkoma ígrennd
Hamborg 16 léttskýjað
London 13 léttskýjað
Los Angeles 18 heiðskfrt
Lúxemborg 15 skýjað
Madríd 25 helðskfrt
Malaga 19 heiðskfrt
Mallorca 22 léttskýjaö
Montreal 14 léttskýjað
NewYork 23 þokumóða
Oriando 25 alskýjað
París 15 skýjað
Madeira 22 skýjað
Róm 22 þokumóða
Vín 16 þokumóða
Washington 23 mistur
Winnipeg 17 léttskýjað
Heiðarfjall:
Lekt í jarðlögum
ræður úrslitum um
mengunarhættu
MENGUN reyndist vera I sorphaugum sem Vamarliðið skildi eftir á
Heiðarfjalli á Langanesi, þegar ratsjárstöðin þar var lögð niður. Mæl-
ingar á menguninni fóru fram í sl. viku. Helstu niðurstöður eru þær
að svæði það sem haugarnir eru á hefur verið afmarkað og mælingarn-
ar benda til þess að ekki sé hættulegt að vinna við hauginn. Hætta á
mengun af völdum hauganna ræðst mjög af jarðfræðilegri gerð fjallsins.
Þeir Ágúst Sigurðsson efnafræð-
ingur hjá Hollustuvemd ríkisins og
Snorri P. Snorrason, jarðfræðingur
hjá Heilbrigðiseftirliti Suðumesja
önnuðust rannsóknina. Að sögn Ág-
ústs liggja haugamir í nokkmm
skurðum á fjallinu og giskar Ágúst
á að samanlagt sé svæðið með sorp-
inu nálægt einum og hálfum hektara.
Ágúst segir að í haugunum hafi
fundist rokgjöm, lífræn efni. Tækið
sem mælingarnar vom gerðar með
greinir hins vegar ekki nákvæmlega
hvaða efni er um að ræða. Að sögn
Ágústs geta það verið leysjefni, olíu-
efni eða efni þeim skyld. Ágúst seg-
ir að þótt mælingin sýni að um meng-
un sé að ræða hafi ekki mælst vem-
lega há gildi á Heiðarfjalli.
Snorri P. Snorrason staðfestir
þetta og segir að mun Eærri gildi
hafi fundist hérlendis með sama
mælitæki, meðal annars við aflagt
æfíngasvæði slökkviliðsins á
Keflavkurflugvelli og við gamla físk-
verkunarbragga í Njarðvíkum.
Að sögn Snorra fundu þeir Ágúst
tvo olíubletti á yfirborði og þar hafi
mælitækið að sjálfsögðu slegið hátt
út. Hann segir að eins og er skeri
sorphaugurinn á Heiðarfjalli sig ekki
úr mörgum öðram sorphaugum á
íslandi. Hann kveðst ekki segja þetta
til að réttlæta umgengnina á fjallinu
og tekur fram að sorpið þar sé óskap-
lega illa staðsett. Haugarnir era efst
á fjallinu og ef um mengun frá þeim
verður að ræða getur hún dreifst
óhindrað í allar áttir.
„Hættan á mengun ræðst alger-
lega af jarðfræðilegri gerð Heiðar-
fjalls“, segir Snorri. Hann segir að
töluvert vanti á að bergtegundir og
bygging fjallsins sé nógu vel þekkt
til þess að hægt sé að segja fyrir
um lektina í jarðlögunum í fjallinu,
bæði í efri og neðri hluta þess svo
og hver hæð grunnvatns er, en þess-
ir þættir ráða mestu um mengunar-
hættu af völdum hauganna.
------*-*~i-----
*
Ok á kyrrstæð-
an bíl og end-
aði á húsvegg
UNGUR var handtekinn sl. laug-
ardagskvöld, grunaður um ölvun
við akstur. Hann ók bíl sínum á
kyrrstæðan bíl við Reykjahlíð,
hvarf síðan á brott á miklum
hraða og lauk ökuferð hans á
steinvegg við Hörgshlíð.
Ökumaðurinn og farþegi reyndu
að komast undan á hlaupum en lög-
reglan náði að handsama ökumann-
inn. Hann er grunaður um ölvun við
akstur og var látinn gista fanga-
geymslur um nóttina.
Mauno Kovisto í einka-
heimsókn til Islands
Helsinki. Frá Lars Lundsten, frétlaritara Morfpinbiaðsins. /
MAUNO Kovisto Finnlandsforseti kemur í opinbera heimsókn til ís-
lands dagana 29. ágúst til 2. september. Heimsóknin er í boði frú
Vígdísar Finnbogadóttur forseta Islands.
Einnig mun Koivisto hitta Davíð
Oddsson forsætisráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra þegar á fyrsta degi íslands-
dvalar sinnar, þ.e. á fimmtudag. Lík-
lega munu þeir ræða um umskipti í
Sovétríkjunum og Evrópumál.
Á föstudaginn fara Koivisto-hjónin
ásamt fylgdarliði til Vestmannaeyja
og halda þaðan austur og norður. í
föruneyti Finnlandsforseta er auk
eiginkonu hans, Tellervo, dóttir
þeirra, Assi Komulainen, ásamt eig-
inmanni hennar, Jari. Á sunnudaginn
ætlar Koivisto að gróðursetja nokkur
tré í grennd við Þingvelli/enda þýðir
nafn hans orðrétt „Birkilundur".