Morgunblaðið - 27.08.1991, Page 23
MOfiGUNBIAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1991
23
STJORNMALASAMBAND VIÐ EYSTRASALTSRIKIN
Borís Jeltsín:
Lýst yfir
stuðningi
við Eystra-
saltsríkin
Vilnius. Reuter.
BORÍS Jeltsín, leiðtogi Rúss-
lands, viðurkenndi á laugardag
sjálfstæði Eistlands, Lettlands
og Litháens. Stuðningur Jelts-
íns við Eystrasaltsríkin á eftir
að skipta sköpum í sjálfstæðis-
baráttu þeirra.
Jeltsín sagði að Míkhaíl Gorb-
atsjov, forseti Sovétríkjanna, ætti
að gera slíkt hið sama. Jeltsín gaf
út tilskipun þar sem hann sagði
einnig að Gorbatsjov ætti að hefja
viðræður til að koma á milliríkja-
sambandi milli „Sovétríkjanna og
eistneska lýðveldisins“.
Skömmu eftir að fréttastofan
Tass birti tilskipun Jeltsíns um
Eistland greindi Anatolijs Gor-
bunovs, leiðtogi Lettlands, frá því
að Jeltsín hefði skrifað undir aðra
tilskipun þar sem hann viður-
kenndi sjálfstæði Lettlands.
Jeltsín hefur áður fylgt Eystra-
saltsríkjunum að málum. Hann
hefur mælst til þess að þau fengju
sjálfstæði og einnig skrifaði hann
undir sáttmála við Litháa þar sem
Litháen er lýst „fullvalda" ríki.
Bæði Eistlendingar og Lettar
lýstu yfir sjálfstæði eftir að harðl-
ínumenn kváðust hafa tekið við
völdum í Sovétríkjunum á mánu-
dag.
Hafa tekið upp
stjórnmálasamband
Hyggjast taka upp
stjórnmálasamband
Hyggjast taka upp
stjórnmálasamband
ef Kreml samþykkir
Hvetja ríki EB til þess
að taka samstíga upp
stjórnmálasamband
Rússneska sambandslýðveldiö, sem er stærst og
öflugast Sovétn'kjanna, hefur þegar viðurkennt
sjálfstæði Eystrasaltsnkjanna.
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar:
Stefna íslendinga óskiljanleg
Stokkhólnii. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
INGVAR Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, gagnrýndi íslend-
inga í samtali við fréttamenn um heigina og sagði að stefna íslend-
inga gagnvart Eystrasaltsríkjunum væri óskiljanleg. Svíar hyggj-
ast viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna í dag.
Svenska Dagbladet greindi frá ríkjanna finnast.
því á sunnudag að Carlsson hefði „Það er ógerningur að skilja
látið sér fátt um frumkvæði ís- hvað íslendingar eru að fara með
lendinga í málefnum Eystrasalts- stefnu sinni,“ sagði Carlsson.
Danir segjast vera fyrstir
Kaupmannahöfn, Reuter.
UFFE Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, heldur því
fram að Danir hafi orðið fyrstir þjóða heims til að taka upp sljórn-
málasamband við Eystrasaltsríkin, þrátt fyrir að starfsbræður
hans frá Ejstrasaltsríkjunum, sem staddir voru í Reykjavík í
gær, eigni Islendingum heiðurinn.
„Við sendum símskeyti okkar
til höfuðborganna þriggja fyrir
miðnætti [á laugardag], þannig
að við vorum fyrstir í heimi [til
að koma á stjórnmálatengslum],“
sagði Ellemann-Jensen á sunnu-
dag. Hann sagði að ákvörðun um
að koma á stjórnmálatengslum
hefði verið tekin á laugardag, er
ljóst var að Eystrasaltsríkin höfðu
landamæri sín aftur á sínu valdi.
Otto Borch, 69 ára gamall og
þrautreyndur stjórnarerindreki,
hefur verið útnefndur sendiherra
Dana í Rígu, höfuðborg Lettlands.
Hann hefur áður verið sendiherra
í Washington og hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Máli sínu til stuðnings sagði hann
að íslendingar hefðu ekki skipst á
sendiherrum við .Eystrasaltsríkin
og hélt því fram að Svíar hefðu
gengið lengra með því að setja á
fót Upplýsingaskrifstofur á ýmsum
sviðum viðs vegar um Eystrasalts-
ríkin.
Carlsson hélt því fram að á
föstudag að stuðningur íslendinga
við Eystrasaltsríkin myndi einung-
is styrkja kommúnistafiokkinn í
Sovétríkjunum og valdaræningj-
ana. Þess má geta að á föstudag
var valdaránið farið út um þúfur.
Utanríkismálanefnd sænska
þingsins heldur í dag fund og verð-
ur sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna
viðurkennt að honum loknum.
Segja Svíar að þetta sé tímabært
þar sem bæði Norðmenn og Danir
hafi nú viðurkennt sjálfstæði
Eystrasaltsríkjanna og þau virðist
ráða yfir landsvæðum sínum sjálf.
Utanríkisráðuneytið í Stokkhólmi
var á öðru máli á föstudag.
Þá mótmælti fólk í útlegð frá
Eystrasaltsríkjunum fyrir utan
sovéska sendiráðið í Stokkhólmi í
tilefni af því að 52 ár voru liðin
frá því að samningur Molotovs og
Ribbentrops um innlimun Eystra-
saltsríkjanna þriggja í Sovétríkin
var undirritaður. Þar var hrópað:
„Viðurkennið Eystrasaltsríkin nú
þegar og án fyrirvara.“
ERLENT
BRÉFABINDI - TÖLVUBINDI
SKIPTIBLÖÐ - STAFRÓF
DISKLINGABOX
PLASTMÖPPUR
-GATAPOKAR
OGMARGT
FLEIRA
allar geróir af möppum
ORKIN/SlA