Morgunblaðið - 10.10.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1991
23
Skýrsla Amnesty International
um dauðarefsingu unglinga:
Bandaríkjameim sagðir
brjóla alþjóðavenjur
London. Reuter.
FLEIRI glæpaunglingar hafa verið teknir af lífi í Bandaríkjunum á
síðustu 10 árum en í nokkru öðru ríki heims ef íran og Irak eru
undanskilin, að því er alþjóðasamtökin Amensty International héldu
fram í fyrradag.
Samtökin segja að í einungis sex
ríkjum öðrum hafi dauðarefsingu
unglinga, sem framið hefðu glæpi.
sína undir 18 ára aldri, verið fram-
fylgt;s Bangladesh, Barbados, íran,
Irak, Nígería og Pakistan. Nú hafi
Barbados sett í lög að ekki mætti
taka glæpamenn 18 ára og yngri af
lífi.
í skýrslu sem Amnesty sendi frá -
sér segir að á síðustu 20 árum hafi
rúmlega 90 táningar, sem hafi verið
15-17 ára er þeir frömdu glæp, verið
dæmdir til dauða í Bandaríkjunum.
Refsingu margra hafi eftir áfrýjun
verið breytt í fangavist en fjórir
hinna dæmdu hafi verið líflátnir milli
1985 og 1990 og 1. júlí hafí 31 beð-
ið eftir því að dauðadómi^yrði fuil-
nægt.
„Bandaríkjamenn virða alþjóða-
venjur að vettugi með því að dæma
glæpaunglinga tii dauða,” segir í
skýrslu Amnesty. Bandaríkjamenn
hafa ritað undir en ekki staðfest al-
þjóðasamþykktir sem banna að ungl-
ingar verði dæmdir til dauða, en
Hæstiréttur Bandaríkjanna heimilaði
hins vegar refsingu af þessu tagi
með sérstökum úrskurði árið 1989.
Að sögn Amnesty International
koma flestir unglinganna, sem
dæmdir hafa verið til dauða í Banda-
ríkjunum, úr þjóðfélagsstéttum sem
búa við hvað verst skilyrði þar í landi.
Þeir hafí sloppið í gegnum öiyggis-
net í dómskerfinu sem ætlað er að
tryggja að einungis harðsvíruðustu
glæpamenn hljóti dauðarefsingu.
A-þýskir landamæraverðir:
Gorbatsjov beri vitni
Berlín. Reuter.
VERJENDUR fjögurra landamæravarða í gamla A-Þýskalandi hafa
farið fram á það að Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétforseti verði látinn
bera vitni I máli ákæruvaldsins gegn mönnunum sem sakaðir eru
um dráp á flóttamanni á leið yfir Berlínarmúrinn árið 1989. Þeir
segja að Gorbatsjov hafi svo seint sem 1987 ritað í gestabók varð-
anna að störf þeirra væru „mikilvæg í baráttunni við heimsvaldasinn-
aða óvininn, Vesturveldin”.
Um 200 manns létu lífíð í flótta-
tilraunum meðan A-Þýskaland var
við lýði. Yfirvöld skipuðu vörðunum
að skjóta til bana ef nauðsyn krefði
þegar flóttamenn reyndu að laum-
ast yfir múrinn. Veijendurnir segja
að verðirnir hafí hlýtt fyrirmælum
enda verið undir stöðugum þrýst-
ingi. Hafi orð Gorbatsjovs verið
gott dæmi um þær aðferðir sem
beitt var. Verðirnir segja að þeir
hafi reynt að skjóta í grennd við
fætur flóttamannsins sem málið
ijallar um en ekki á hann sjálfan.
Gagnrýnt hefur verið að um-
ræddir verðir skuli dregnir fyrir
rétt en leiðtogar kommúnistaríkis-
ins sleppi. Þeir eru margir aldur-
hnignir og farnir að heilsu og hafa
því fæstir verið ákærðir.
Reuter
Júgóslavneskir hermenn fara með hóp króatískra stríðsfanga til herstöðvar skammt frá bænum
Banjaluka í Bosníu-Herzegovínu.
Júgóslavía:
Vonir um fríð glæðast en
litlar líkur á fullum sáttum
FULLTRÚAR Króata og sambandshersins í Júgóslavíu hafa undirrit-
að áttunda vopnahléssamninginn á þremur mánuðum og glætt von-
ir um að endi verði bundinn á blóðsúthellingarnar í Króatiu, að
minnsta kosti um stundarsakir. Stjórnarerindrekar í Júgóslavíu og
fréttaskýrendur telja þó afar ólíklegt að friðsamleg lausn finnist í
bráð á deilumálum Króata og Serba.
Margir Júgóslavar kærðu sig
kollótta er fregnir bárust af enn
einum vopnahléssamningnum og
bjuggust ekki við að hann héldi
nema í nokkra daga. Embættis-
menn Evrópubandalagsins voru
hins vegar vongóðir um að samn-
ingurinn yrði til þess að binda enda
á bardagana í Króatíu.
I samningnum felst að þjóðvarð-
liðarnir í Króatíu fallast á að búðir
júgóslavneska hersins í lýðveldinu
verði leystar úr herkví og hjálpar-
gögn verði send til bæja í austur-
hluta lýðveldisins. Sambandsherinn
skuldbindur sig hins vegar til að
aflétta hafnbanni á Króatíu. Aftur
á móti var ekki samið um brott-
flutning allra júgóslavneskra her-
manna úr lýðveldinu, en það er ein
af helstu kröfum Króata. Samn-
ingamenn sambandshersins og
Króata eiga að koma saman dag-
lega til að ræða samninginn frekar
og ólíklegt er að samkomulagið
haldi nema þeir semji um þetta
atriði.
Einnig er óvíst að yfirmönnum
hersins og króatísku þjóðvarðlið-
anna takist að hafa hemil á her-
skáustu sveitum Króata og Serba
og vekur það efasemdir um að
vopnahléssamningurinn haldi. Þá
dregur gagnkvæmt vantraust
sveitanna úr líkunum á langvarandi
vopnahléi. Króatísku þjóðvarðlið-
arnir óttast til að mynda að júgó-
slavnesku hermennirnir flytji vopn
sín til annarra staða í lýðveldinu
og heiji árásir að nýju.
Jafnt Króatar sem Serbar viður-
kenna að þótt samkomulagið haldi
verði feykierfítt að leysa deilumál
þeirra með samningum. Króatar
hafa sagt sig úr lögum við Júgó-
slavíu og vilja að landamæri Króa-
tíu verði óbreytt. Serbneskir leið-
togar segja hins vegar að Króatar
geti aðeins sagt skilið við ríkjasam-
bandið virði þeir sjálfsákvörðunar-
rétt 600.000 Serba í lýðveldinu.
Serbar líta einnig svo á að sú
ákvörðun króatíska þingsins að
segja skilið við Júgóslavíu sýni að
það hafi ekki áhuga á friðsamlegri
lausn deilunnar. Króatar vilji aðeins
hætta að beijast um stundarsakir
til að geta vígbúist að nýju.
Ágreiningur hefur ríkt innan
Evrópubandalagsins um hvort við-
urkenna eigi sjálfstæði Króatíu og
Slóveníu. Þjóðveijar, sem vilja að
það verði gert, segja að Júgóslavía
heyri nú sögunni til og auðveldara
sé fyrir Evrópuríki að binda enda
á stríð sjálfstæðra nágrannaríkja
en að „hlutast til um innanríkis-
mál”. Flest aðildarríkjanna hafa
þó hingað til lagst gegn viðurkenn-
ingu á sjálfstæði lýðveldanna. Þau
telja að slíkt verði aðeins til þess
að Serbar, sem vilja - endurreisa
„Stór-Serbíu”, sæki enn í sig veðr-
ið og önnur nágrannalýðveldi
þeirra, svo sem Bosnía-Herzego-
vína, verði berskjölduð. Viðurkenn-
ing á sjálfstæði júgóslavnesku lýð-
veldanna kunni ennfremur að auka
hættuna á enn mannskæðara stríði
sem nágrannaríki Júgóslavíu geti
dregist út í. Bent er á að Albanía
hefur hagsmuna að gæta í héraðinu
Kosovo, þar sem Albanir eru þorri
íbúa, og Grikkland og Búlgaría í
Makedoníu.
SPRENGIMARKAÐURINN
ÍMJÓDD
SIMI 73900
BELTI KR. 951
BARNANJERBIiXUR KK. 501
1BARNASKQR KR. 99
I SPORTSKOR KR. 495
I LEBBRSPORTSKÓR KR. 995
HEILSOSKÖR I KR. 495 ■
BARNAÚLPBR 1 FRA KR. 995
HERRAÚLPUR FRÁ KR. 1.495
HERRABUXUR FRÁ KR. 495
HERRASKYRTUR FRA KR. 495
BOMUPEYSUR FRÁKR. 495
UðMUBLÚSSUR FRÁKR. 149