Morgunblaðið - 18.10.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 18.10.1991, Síða 1
64 SIÐUR B/C/D 237. tbl. 79. árg. FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Varnarmáiaráðherrar Atlantshafsbandalagsins: Samþykkja mestu fækkun kjarnavopna í sögu NATO Taormina. Reuter. VARNARMÁLARÁÐHERRAR Atlantshafsbandalagsins (NATO) samþykktu umfangsmestu fækkun kjarnavopna í sögu bandalagsins á fundi á Sikiley í gær. Þeim 1.400 kjarnaoddum sem bornir eru í sprengjuflugvélum verður fækkað um helming og einnig samþykktu ráðherrarnir formlega þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar frá í síðasta mánuði að eyðileggja öll skammdræg „vígvallarvopn” bandalagsins í Evrópu. Tom King, varnarmálaráðherra Brctlands, sagði þessa ákvörð- un samsvara því að 80% af kjarnorkuvopnabúri NATO yrði upprætt. Verða vopnin eyðilögð á næstu tveimur til þremur árum. Flest kjarnorkuvopn NATO í Evr- ópu eru geymd í Þýskalandi en þau Mið-Austurlönd; Arafat til Damaskus er einnig að fínna í Bretlandi, Ítalíu, Belgíu, Hollandi, Grikklandi og Tyrklandi. Fækkunin nær ekki til kjarnavopna Frakka. Til töluverðra deilna kom á fund- inum, sem lýkur í dag, um tillögur þær sem Frakkar og Þjóðverjar lögðu fram fyrr í vikunni varðandi myndun stórfylkis landhers undir stjórn V estur-Evrópusambandsins. Gerhard Stoltenberg, varnarmála- ráðherra Þýskalands, sagði að áfor- munum um Evrópuher væri ekki beint gegn Atlantshafsbandalaginu. „Það er enginn sem efast um lykil- hlutverk NATO .. . við viljum koma í veg fyrir samkeppni; Það má ekki líta á þetta stórfylki sem myndun nýrra evrópskra sveita utan banda- lagsins,” sagði Stoltenberg við blaða- menn. Háttsettur breskur embættismað- ur sagði við blaðamenn að þegar væru til evrópskar varnir og þær væru kallaðar NATO. „Við höfum alvarlegar efasemdir um að hlutir af þessu tagi séu skref í rétta átt,” sagði breski embættismaðurinn. Annar embættismaður, sá frá Hol- landi, sagði fleiri ráðherra en þann breska hafa varað við þeim hættum sem fælust í því að byggja upp tvenn kerfi sem hefðu sama tilgang. Reuter Einn íbúa Ilok yfirgefur átthagana með eigur sínar á reiðhjóli, Bardagar blossa upp á ný í Júgóslavíu: Átta þúsund Króatar neydd- ir til að yfirgefa þorpið Dok Negoslavci, Bonn, Zagreb. Reuter. v Túnis, Jerúsalem. Reuter. YASSIR Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínu (PLO), heldur til Damaskus innan tveggja sólar- hringa til að ræða undirbúning friðarráðstefnu um Mið-Austur- lönd við sýrlensk stjórnvöld, að sögn eins af forystumönnum PLO. Forystumaðurinn, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði einnig að Sýriendingar hefðu greint James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, frá því að þeir kæmu ekki til ráðstefnunnar nema Palestínumenn gerðu það einnig. Baker átti í gær viðræður við Yitz- hak Shamir, forsætisráðherra Ísrael, og tókst ekki að fá endanlegt sam- þykki hans fyrir ráðstefnunni. Baker sagði þó að viðræðurnar hefðu miðað áfram og talsmaður Shamirs sagði að þeir myndu ganga endanlega frá málum á fundi Sínum í dag. Sjá nánar bls. 18 LEST fimm hundruð farartækja lagði í gær af stað frá bænum Ilok, við landamæri Serbíu og Króatíu, með átta þúsund íbúa bæjarins eftir að þeim hafði verið vísað á brott af Serbum. Segja Króatar að það sem fyrir Serbum vaki sé að innlima Ilok í Serbíu. Cyrus Vance, sérlegur fulltrúi fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna í Júgóslavíu, hafði samband við Velkjo Kadijevic, varnarmála- ráðherra Júgóslavíu, þegar hann frétti af þessu en fékk þau svör að íbúarnir hefðu skrifað undir samkomulag um að þeir vildu flytja á brott og væru þegar lagð- ir af stað. Sambandsherinn hóf síðdegis í gær harðar árásir á hafnarborgina Dubrovnik í Króatíu að sögn Tanjug- fréttastofunnar. Lentu sprengjur á þorpum í kringum borgina sem og höfn hennar. Herinn hefur setið um Dubrovnik síðan í byijun mánaðarins og er hún algjörlega einangruð frá umheiminum. Eftirlitsmenn Evrópu- bandalagsins (EB) hafa undanfarna daga reynt að fá Serba til að létta takinu á borginni en að sögn embætt- ismanna hjá EB, sem Tanjug vitnaði í, miðaði litið í þeim viðræðum í gær. Króatíska útvarpið skýrði í gær frá því að serbneskar hersveitir, þ. á m. skriðdrekasveit, hefðu farið yfir Dóná og gert árás á borgina Vukovar. Var barist í úthverfum borgarinnar, sem sambandsherinn hefur setið um í sjö vikur, og einnig héldu Serbar uppi stöðugum stór- skotaliðsárásum á borgina. Fregnir bárust sömuleiðis af bardögum í grennd við Vukovar og víðsvegar um Króatíu. Sagði útvarpið að hugs- anlega væri um að ræða hörðustu bardagana í Vukovar síðan átök hóf- ust. Hans van den Broek, utanríkisráð- herra Hollands, segir að ef ekkert miðar í friðarviðræðunum um Júgó- slavíu næstu tvo mánuði komi til greina að Evrópubandalagið viður- kenni sjálfstæði Króatíu og Slóveníu. Lét van den Broek þessi ummæli falla í viðtali við þýska dagblaðið Die Welt. Hollendingar fara nú með forystuna innan EB en bandalagið hefur sagt að deiluaðilar verði að komast að samkomulagi innan tveggja mánaða. „Þá verður að vera búið að finna pólitíska lausn á málinu og sambandsherinn verður að hafa dregið sig til baka frá Króatíu. Ef ekki þá er kominn tími til að banda- lagið taki ákvörðun um viðurkenn- ingu á sjálfstæði Króatíu og Slóven- íu,” sagði van den Broek við Die Welt. EB féllst í gær á þá kröfu Serba að forsætisráð Júgóslavíu verði boðið að taka þátt í ráðstefnunni um mál- efni Júgóslavíu í Haag í dag. Höfðu Serbar lýst því yfir að engar þær ákvarðanir sem teknar yrðu á ráð- stefnunni hefðu neitt gildi þar sem forsætisráðinu hafði ekki verið boðið. ------------ Hong Kong: Sjálfsmorð frekar en heimferð Hanoi, Hong Kong. Reuter. STJÓRNVOLD í Víetnam hafa frestað um óákveðinn tíma að undirrita samning við Breta um flutning á víetnömskum flótta- mönnum í Hong Kong til heima- landsins. Talsmenn flóttafólksins sögðu að þorri þess myndi fremja sjálfsmorð ef reynt yrði að flytja það nauðugt til Víetnams á meðan kommúnistar væru þar við völd. Talsmenn flóttafólksins sögðu að þeir, sem fengju ekki landvistarleyfi á Vesturlöndum, myndu kjósa frem- ur að deyja en að snúa aftur til Víet- nams. „Við kveikjum í okkur eða stingum okkur með hnífum. Allt fólk- ið í búðunum mínum mun grípa til þessa ráðs. Já, meira að segja börn- in,” sagði einn þeirra. Annar sagði að flóttafólk hefði búið til hnífa úr járni, sem tekið hefði verið úr rúmum og fleiru, en þeim yrði ekki beitt gegn varðmönnum í búðunum, held- ur til að fremja sjátfsmorð. Aðkoman eins ogá vígvelli Reuter Sextán manns létu lífið og 62 slösuðust þegar hrað- lestin milli Nissa og Parísar og vöruflutningalest sem ók gegn rauðu ljósi rákust á skammt frá höfuðborg- inni í dögun í gær. Var áresksturinn svo harður, að fremstu vagnarnir gengu hver inn í og yfír ann- an og náðu upp í háspennulínur í sex metra hæð frá jörðu. Þegar lækna og björgunarfólk bar að var aðkoman líkast því, sem er á vígvelli, og varð að koma upp bráðabirgðalíkhúsi og -sjúkrahúsi á staðnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.