Morgunblaðið - 08.12.1991, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.12.1991, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR'8. DESEMBER‘ 199Í 51 Æ V I S Ö G U R í SVIPTIVINDUM Æviminningar Sigurðar Helgasonar eftir STEINAR J. LÚÐVÍKSSON. Sigurður Helgason hóf afskipti af flugmálum á íslandi þegar hann kom inn í stjóm Loftleiða á frægum byltingarfundi árið 1953. í tæp Ijörutíu ár eða fram til aðalfundar Flugleiða 1991 var Sigurður í fylkingarbijósti. Hann var um árabil forstjóri Loftleiða í Bandaríkjunum en eftir sameiningu Loftleiða og Flugfélags íslands 1973 varð hann einn þriggja forstjóra félagsins. Hann var forstjóri og síðar stjómarformaður Flugleiða um árabil. Þar blésu oft kaldir vindar um Sigurð Helgason enda var hann þekktur fyrir að taka ákvarðanir og standa eða falla með þeim. í SÖNGVARANS JÓREYK Æviminningar Sigurðar Olafssonar eftir RAGNHEIÐI DAVÍÐSDÓTTUR'. í bókinni segir Sigurður frá litríku lífshlaupi sínu. Hann var mjög fjölhæfur söngvari og á 50 ára söngferli sínum söng hann í kómm, við jarðarfarir, með danshljómsveitum og í ópemm, . auk þess sem hann söng inn á margar hljómplötur sem njóla enn gífurlegra vinsælda. En Sigurður var ekki síður kunnur sem hestamaður þar sem skeiðið var sérgrein hans. í bókinni endur- speglast geislandi lífsgleði og þróttur Sigurðar sem áður kom fram á skeiðvöllunum og í söng hans. „HEITIRÐU OMAR ?!!" Minningabók eftirÓMAR RAGNARSSON fréttamann. í bókinni rekur Ómar endurminningar sínar frá bemskuárunum. Hann bregður upp ógleymanlegri mynd af Reykjavík eftirstríðsáranna og af lífsbaráttu alþýðufólks á þeim ámm. Hann segir frá prakkarastrikum í sveitinni og kristilega þenkjandi ungum mönnunt í Kaldárseli. Hann segir frá fyrstu ástinni í lífi sínu sem kviknaði við harmrænar kringumstæður. Einlægni og frásagnargleði einkenna þessa bók ÓMARS RAGNARSSONAR, rétt eins og persónuna sjálfa. STAÐIÐ í STRÖNGU Æviminningar Erlendar Einarssonar eftir KJARTAN STEFÁNSSON. Erlendur Einarsson var um langt árabil forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga. Undir hans stjóm reis veldi samvinnu- hreyfingarinnar á íslandi hæst og hún varð stórveldi í íslensku samfélagi. Flest var þar slétt og fellt á yfirborðinu en eins og oft gerist í miklum atvinnurekstri og umsvifum kraumaði undir niðri. Og nokkmm sinnum sauð reyndar upp úr. Erlendur fjallar um afskipti sín af málum samvinnuhreyfingarinnar sem hófust þegar hann var innanbúðarmaður í Kaupfélaginu í Vík í Mýrdal. Hann rekur feril sinn hjá Sambandinu og fyrirtækjum þess og segir frá átökum sem urðu við lok starfsferils hans þar. FLÓTTAMAÐURINN Ein kunnasta saga bandaríska spennusagna- höfundarins STEPHEN KING í íslenskri þýðingu Karls Birgissonar. Sagan gerist í stórborg í Bandaríkjunum í náinni framtfð. Kerfið hefur sigrað einstaklinginn og í gegnum Qölmiðla og þó einkum sjónvarpið er auðvelt að æsa lýðinn til óhæfuverka. Aðalsöguhetja bókarinnar, Ben Richards, er sendur nauðugur til leiks þar sem lífið sjálft er að veði. STEPHEN KING bregst aldeilis ekki Qölmörgum aðdáendum sínum með þessari óvenjulegu sögu. ÍTÆTLUM Danska stúlkan SYNN0VE S0E sló rækilega í gegn með þessari bók sem nefnist FARS á frummálinu. Bókin hefur orðið metsölubók á hinum Norðurlöndunum og kemur nú út í íslenskri þýðingu Steinars J. Lúðvíkssonar. SYNN0VE S0E leynir því ekki að í bókinni er hún að lýsa sinni eigin æsku og hvernig hún varð hálfgerð leikbrúða karlmannanna í lífi hennar. Sagan er óvenjulega trúverðug og nær að snerta strengi í brjóstum lesendanna. Þess vegna hafa lesendumir í senn verið hrifnir og hneykslaðir. DAUÐADÚKKAN RUTH RENDELL er löngu heimsfræg fyrir spennusögur sínar en gerðar hafa verið kvikmyndir eftir mörgum þeirra og þær m.a. sýndar í sjónvarpinu á íslandi. í skáldsögunni DAUÐADÚKKAN grípur aðalsöguhetjan, Peter Yearman, til örþrifaráðs þegar hann álítur að hann verði alltaf lágvaxnari en aðrir menn. Hann hrindir af stað ógnvekjandi atburðarás sem erfitt reynist að stöðva. Afleiðingamar bitna ekki eingöngu á honum sjálfum. Jónína Leósdöttir þýddi bókina. BARNA OG UNGLINGABÆKUR EGILLOG GARPUR Bamabók eftir RAGNHEIÐIDAVÍÐSDÓTTUR. Þetta ersaga um sex ára strák, sem heitir Egill. Hann er að byrja í skóla og búinn að læra umfcrðarreglumar. Egill fær kettling í afmælisgjöf en kisi er ekki eins vel að sér í umferðarreglunum og eigandinn og lendir í slysi. Þetta er lærdómsrík saga um hættur umferðarinnar. Umferðarráð mælir með bókinni og fí^ segir hana sameina vél skemmtun - » og fróðleik. Teikningamar í í bókinni em eftir ungan myndlistarmann, STEFÁN KJARTANSSON. IRODI BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA Ármúli 18-108 Reykjavík - Sfmi: 812300 MITTERÞITT Unglingasaga eftir ÞORGRÍM ÞRÁINSSON. Þetta er þriðja unglingabók Þorgríms en báðar fyrri bækur hans fengu mjög góðar móttökur. Ekki einungis að þær yrðu metsölubækur heldur hlaut bókin, sem út kom í fyrra, TÁR, BROS OG TAKKASKÓR, verðlaun sem besta íslenska unglingabókin 1990. MITT ER ÞITT er sjálfstætt framhald fyrri bókanna. Þetta er saga um dugmikla stráka og stelpur sem grípa til sinna ráða þegar einn úr hópnum er sakaður um þjófnað og auðvitað kemur knattspyman einnig við sögu því það er keppikefli strákanna að komast í drengjalandsliðið. NÝR DAGUR...SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.