Morgunblaðið - 09.01.1992, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1992
Stormur í vatnsglasi
eftir Geir H. Haarde
Segja má að blöðunum verði
flest hey í fréttaharðindum. Sl.
föstudag birti Morgunblaðið stóra
frétt á baksíðu í tilefni af mánað-
argömlu bréfi sem þingflokkur
sjálfstæðismanna sendi viðskipta-
ráðuneytinu vegna frumvarps-
draga um breytingar á jöfnun
flutningskostnaðar á olíuvörum.
Síðan hafa Morgunblaðið, DV og
Alþýðublaðið séð ástæðu til að
gagnrýna þingflokkinn harkalega
í leiðurum vegna þessa máls þótt
flokkurinn hafi ekki látið neitt
opinberlega frá sér fara um málið
sem er enn á vinnslustigi.
Af þessu tilefni er rétt að upp-
lýsa að það er föst venja að til-
kynna ráðuneytum bréflega hvaða
afgreiðslu einstök frumvörp sem
þaðan berast í drögum fá í þing-
flokki sjálfstæðismanna. Eru slík
bréf ekki til opinberrar birtingar
og sætir furðu að efni eins slíks
bréf, þar sem leitað er eftir frek-
ari umfjöllun um frumvarp, skuli
birtast í íjölmiðlum og vera notað
til árás á Sjálfstæðisflokkinn áður
en fyrir liggur hver endanleg af-
staða hans til málsins verður.
Um hvað snýst málið?
Baksvið þessa máls er það að
um áratuga skeið hafa olíufélögin
selt bensín og aðrar olíuvörur á
sama verði hvar sem er í landinu
á grundvelli opinberrar verðlagn-
ingar. Nú er hins vegar fyrirhugað
að breyta fyrirkomulagi á jöfnun
flutningskostnaðar olíuvara m.a. í
Ijósi þess að ríkisvaldið kaupir
ekki lengur olíuvörur fyrir olíufé-
lögin frá Sovétríkjunum heldur sér
nú hvert félag um sín innkaup.
Geir H. Haarde
„Engin ástæða er til að
ætla annað en stjórnar-
flokkarnir muni leysa
þetta mál á grundvelli
aukins frjálsræðis og
nútímalegri viðskipta-
hátta en tíðkast hafa.“
Eðlilegt framhald af því er vita-
skuld að hvert félag verðleggi sín-
ar vörur sjálft og geti t.d. látið
viðskiptavini njóta góðs af hag-
stæðum innkaupum.
Það er á hinn bóginn ekki
undarlegt þótt ýmsir á lands-
byggðinni óttist að breyting frá
núverandi skipan geti orðið til
þess að olíuvörur verði dýrari úti
á landi en á höfuðborgarsvæðinu
þar sem olíunni er skipað á land.
Ég tel raunar að þessi ótti sér
ástæðulaus og að félögin muni
telja sér hag í að tryggja sambæri-
legum viðskiptavinum sambæri-
legt verð óháð búsetu þeirra enda
geta félögin hæglega jafnað út-
söluverð innan eigin dreifikerfa
(eins og t.d. Morgunblaðið gerir
með sína afurð) þótt þau eigi í
samkeppni hvert við annað. Alger-
lega sömu kjör í öllum tilvikum
verður að sjálfsögðu aldrei hægt
að tryggja frekar en nú þegar fé-
lögin hafa t.d. í hendi sér að semja
við stærri viðskiptavini um breyti-
leg greiðslukjör. M.a. þessi atriði
vill þingflokkurinn ræða betur
áður en lengra er haldið.
Vanda verður undirbúning
Aðalatriðið á þessu stigi er það
að málið er ekki útrætt milli stjórn-
ai-flokkanna. Engin ástæða er til
að ætla annað en stjórnarflokkarn-
ir muni leysa þetta mál á grund-
velli aukins fijálsræðis og nútíma-
legri viðskiptahátta en tíðkast
hafa. Aftur á móti er nauðsyn-
legt, eins og jafnan þegar um er
að ræða mikilvæg mál, að undir-
búningur sé vandaður og málefna-
legur og menn gefi sér tóm til að
ræða til hlítar öll sjónarmið sem
fram koma. í þeim tilgangi óskaði
þingflokkur sjálfstæðismanna eft-
ir frekari umfjöllun milli stjórnar-
flokkanna um málið og getur það
tæpast þótt í frásögur færandi.
Höfundur er formaður þingflokks
sjálfstæðismanna.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Verðlaunahafarnir, ásamt formanni Rauða kross deildarinnar í Eyj-
um. Frá vinstri. Guðni Davíð Stefánsson, Óskar Magnús Gíslason,
Júlíana Silfá Haraldsdóttir og Einar Valur Bjarnason.
Vestmannaeyj ar:
Unnu til verðlauna í
alþjóðlegri samkeppni
V estmannaeyj um.
ÞRÍR Eyjakrakkar unnu til verðlauna í alþjóðlegri teikni- og list-
munasamkeppni sem búlgarski Rauði krossinn efndi til árið 1989,
fyrir andlega og líkamlega fötluð börn. Úrslit keppninnar voru kynnt
fyrir skömmu og voru Eyjakrökkunum þá afhent verðlaun sín.
Yfir 2.200 verk bárust til keppn-
innar, þar af 59 frá íslandi. Þrír
Eyjakrakkar sendu verk sín til
keppninnar og fengu þau öll verð-
laun en alls fengu átta verk frá
Islandi viðurkenningar. Árangur
Eyjakrakkanna er því mjög glæsi-
legur og mikil viðurkenning fyrir
skóla þeirra, Barnaskólann í Vest-
mannaeyjum, en þar eru þau öll
nemendur.
Krakkarnir sem verðlaunin hlutu
heita Júlíana Silfá Haraldsdóttir,
Guðni Davíð Stefánsson og Óskar
Magnús Gíslason og voru verk
þeirra allra leirmunir, sem þau
gerðu _ undir handleiðslu kennara
síns, Ásgerðar Atladóttur.
Einar Valur Bjarnason, formaður
Rauða kross deildarinnar í Eyjum,
afhenti krökkunum verðlaun sín
fyrir skömmu og ríkti mikil ánægja
hjá þeim með árangurinn og viður-
kenningarnar.
Grímur
MECO gr‘\U.
PH\UPS hár-
b\ásar\
vasadisko-
PH\UPS
KaUWé\-
supsSecvTX^O *
útvarp 09 H ______.
segu\band_—
^tercont\ JMJQQ/
tottwhi. y
phTups^'
magnsraKve •
W&IOOL
kaettsKáP^:
PVttUPS^.
M\fH\R\-p00L
SUPERTECH
T0! Hei'
22
KR.stgh
ferðaútvarp
PHÍÚCO^
þvottave\-
kr.sigr
KR-STGR
tommuttvasibn-m KKMG*.
geislaspttaá j. varp.
PH\UPS 21
tommu
Wtasjónvarp-