Morgunblaðið - 09.01.1992, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1992
Breytingar í byrj un árs
- hlutur landsmanna í kostnaði vegiia heilbrig-ðisþj ónustu,
hámarksgreiðslu, umönnunarbætur sjúkra barna o.fl.
eftirAstuR.
Jóhannesdóttur
Ýmsar breytingar verða á al-
mannatryggingum nú í upphafi árs-
ins, og ætla ég að geta þeirra helstu
hér almenningi til upplýsingar.
Þann 15. janúar nk. gengur í
gildi ný reglugerð um hlut lands-
manna í kostnaði vegna heilbrigðis-
þjónustu. Þar með breytist gjald-
skrá fyrir heilsugæslu- og læknis-
þjónustu ýmis konar.
Hámarksgreiðsla fyrir hvern ein-
stakling á almanaksárinu 1992 er
sú sama og í fyrra, þ.e. 3.000 krón-
ur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
en 12.000 krónur fyrir aðra. Það
er nýjung, að svo til allur kostnaður
vegna læknis- og heilsugæsluþjón-
ustu fellur undir hámarkið og að
öll börn undir 16 ára í sömu fjöl-
skyldu hafa sameiginlegt hámark,
sem er 12.000 krónur.
Hvað ber sjúklingi að greiða?
Nú skal greiða 600 kr. fyrir komu
á heilsugæslustöð eða til heimilis-
læknis í dagvinnutíma. Elli- og ör-
orkulífeyrisþegar greiða 200 kr.
Ekki skal greiða fyrir komur
vegna mæðra- og ungbarnaverndar
eða heilsugæslu í skólum.
Fyrir komu á heilsugæslustöð
eða til heimilislæknis utan dagvinn-
utíma, þ.e. milli kl. 17.00 og 8.00
og á laugardögum og helgidögum,
skal greiða 1.000 krónur. Elli- og
örorkulífeyrisþegar greiða 350
krónur.
Þetta á þó ekki við ef læknir
ákveður sjálfur að sinna læknis-
starfi utan dagvinnutíma. í þeim
tilvikum greiðir sjúklingurinn dag-
vinnugjaldið.
Vegna krabbameinsleitar á
heilsugæslustöð eða hjá heimilis-
lækni greiðist 1.500 kr. fyrir hvetja
komu, en lífeyrisþegar greiða 500
krónur.
Greiðsla fyrir sérfræðihjálp og
komu á göngudeild, slysadeild og
bráðamóttöku sjúkrahúss er 1.500
kr. fyrir hveija komu, en 500 kr.
fyrir lífeyrisþega.
Greiðsla fyrir rannsóknir og
röntgengreiningu er 600 kr. fyrir
Gleðilegt ár
og þökk fyrir ánægjuleg viðskipti á nýliðnu ári
Það leika jafnan ferskir vindar um fjöruna
í Hafnarfirði. Við heQum nýtt ár á þjóðlegum
nótum í FJÖRUGARÐINUM með frábærum
hljóðfæraleikurum og syngjandi þjónustufólki.
Bjóðum sérstök kjör fyrir hópa í janúar -
þríréttuð máltíð fyrir litlar 1500 krónur.
Garðurínn er nú glæsilegri en nokkru sinni
og framundan eru veglegar þorraveislur
á sanngjömu verði í umhverfi sem er engu líkt.
Er ekki tímabært að breyta til og halda
þorrablót eða árshátíð á nýstárlegum nótum?
Við getum ömgglega komið þér á óvart.
FJÖRUKRÁIN er löngu búin að tryggja sér
sess meðal viðurkenndra veitingastaða fyrir
fráöæran mat og fagmannlega þjónustu.
Um helgar leikur Jón Mdller á píanó
og Ingveldur G. Ólafsdóttir syngur fyrir
matargesti. Ljúl og notaleg stemning
með rómantísku ívati. Þúveist
að hverju pú gengur
á Fjörukránni...
?
1
• •
FJORIKRAHV
Strandgötu 55 • Sími 651213
hvetja komu eða rannsókn, en 200
kr. fyrir lífeyrisþega.
Greiðslur fyrir læknisviljun
Korni læknir og vitji sjúklings
skal greiða fyrir vitjun 1.000 kr. í
dagvinnutíma og 1.500 kr. utan
dagvinnutíma. Lífeyrisþegat- greiða
350 kr. í dagvinnu og 500 kr. utan
dagvinnutíma. Sama gildir hér eins
og um komu til læknis, hafi læknir
valið sjálfur að sinna vitjuninni utan
dagvinnutíma, greiðir sjúklingurinn
dagvinnugjaldið.
Þegar hámarksgreiðslu er náð
og menn komnir með fríkort, er
læknisvitjun eina þjónusta sem
greiða þar fyrir, en gjaldið er lægra.
Fyrir vitjun greiðist þá á venjuleg-
um vinnutíma greiðast 400 kr. og
900 kr. utan venjulegs læknis en
lífeyrisþegar greiða fyrir þessa
þjónustu 150 kr. og 300 kr. utan
vinnutíma, gegn framvísun frí-
kortsins.
Hvað er innifalið í gjaldi?
Innifalinn í upphæðinni, sem
greidd er hjá lækni, er kostnaður
vegna hvers kyns einnota áhalda,
umbúða og þess háttar. Því er lækn-
um óheimilt að krefja sjúkling um
sérstaka greiðslu vegna þessa
kostnaðar. Ritun lyfseðils er einnig
innifalin í greiðslunni.
Þó þarf stundum að greiða meira
en einfalt gjald. Fari sjúklingur t.d.
í aðgerð og svæfingu, greiðir hann
aðgerðarlækni 1.500 kr. og svæf-
ingalækni 1.500 kr. (lífeyrisþegar
greiða hvorum fyrir sig 500 kr.).
Hjá lækni eða á slysavarðstofu
greiðir sjúklingur auk komugjalds
fyrir röntgengreiningu og rannsókn
ef um það er að ræða, þó aldrei
meira en 600 kr. fyrir hvort (lífeyr-
isþegar 200 kr. fyrir hvort). Þótt
hluti rannsóknarsýnis sé sent annað
til rannsóknar þarf ekki að greiða
viðbótargjald vegna þess.
Fríkort eftir hámarksgreiðslu
Hver einstaklingur 16-67 ára
skal ekki greiða meira en 12.000
krónur fyrir læknisþjónustu á ári
og er miðað við almanaksárið. Elli-
og örorkulífeyrisþegar greiða að
hámarki 3.000 kr. á árinu. Þetta
eru greiðslur fyrir heimsókn til
heimilislæknis eða á heilsugæslu-
stöð, vitjanir lækna, sérfræðilækn-
ishjálpar, komu á slysadeild, göngu-
Ásta R. Jóhannesdóttir
„Mikilvægt er að allir
kynni sér vel hvaða rétt
þeir eiga samkvæmt
landslögum og fylgist
með breytingum sem
verða á þeim. An þess
er erfitt að nýta sér
rétt sinn að fullu.“
deild, bráðamóttöku, rannsóknir og
röntgengreiningu. Greiðslur fyrir
meðferð á glasafrjóvgunardeild
Landspítalans hafa ekki áhrif á
hámarksgreiðslur.
Öll börn undir 16 ára í sömu fjöl-
skyldu, þ.e. með sama fjölskyldu-
númer, teljast sem einn einstakling-
ur gagnvart hámarkinu, svo ekki
þarf að greiða meira en 12.000
krónur á ári fyrir þau samtals og
fá þau fríkort eftir það með nöfnum
þeirra allra á.
Hvernig fást fríkort?
Halda verður öllum kvittunum
vegna lækniskostnaðar til haga.
Þegar hámarksupphæð er náð, er
kvittunum framvísað hjá Trygging-
astofnun eða umboðum hennar utan
Reykjavíkur. Þá fæst fríkort sem
undanþiggur handhafa frekari
kostnaði vegna læknisþjónustu út
almanaksárið.
Þó þarf að greiða fyrir læknisvitj-
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
UTSALA
Útsalan er hafin
20-60% afsláttur
Tískuverslunin
BttZHIt
Grænatúni 1, Kópavogi, sími 43799.
un, en gjaldið er lægra við framvís-
un fríkortsins, eins og að framan
greinir.
Kvittanir skulu auk nafns útgef-
anda tilgreina tegund þjónustu,
fjárhæð, greiðsludag, nafn og kenn-
itölu sjúklings.
Glasafrjóvgun á Landspítala
Fyrir fyrstu meðferð á glasa-
ftjóvgunardeild Landspítalans þarf
að greiða 105 þúsund krónur. Inni
í greiðslunni er kostnaður vegna
nauðsynlegra rannsókna, lyfja og
heimsókna til sérfræðinga á glasa-
ftjóvgunardeildinni. Fyrir aðra og
þriðju meðferð greiðast 60 þúsund
krónur fyrir hvora meðferð. Fari
fólk í fleiri meðferðir en þtjár, skal
greiða fullt verð, 200 þúsund krón-
ur fyrir hvetja meðferð. Fyrir aðrar
rannsóknir á glasaftjóvgunardeild
sem ekki tengjast glasaftjóvguna'r-
meðferð skal greiða eins og um
göngudeildarheimsókn og rann-
sóknir væri að ræða.
Sjúkraflutningar
Sjúkratryggingarnar greiða
flutningskostnað sjúklings í sjúkra-
hús innanlands og úr sjúkrahúsi til
heimilis eða dvalarstaðar að 7s hlut-
um, ef hann getur ekki nýtt venju-
legan farmiða eða sérstakur sjúkra-
flutningur er nauðsynlegur. Sjúkl-
ingurinn þarf þó aldrei að greiða
meira en 2.400 krónur. Athugið að
sjúkraflutninga innanbæjar þarf
sjúklingur að greiða sjálfur að fullu.
Lyfjakostnaður
Breyting varð á hlut sjúklings í
kostnaði nokkurra lyfja nú um ára-
mótin, þegar breyting var gerð á
reglugerð um greiðslu almanna-
trygginga á lyfjakostnaði frá 1. júlí
í sumar. Þetta eru m.a. lyf sem
fengust endurgjaldslaust gegn
framvísun lyfjaskírteinis en aðrir
greiddu að fullu. Nú greiða skírtein-
ishafar fastagjald fyrir þessi lyf.
Þetta eru ýmis lyf skv. 4. gr. reglu-
gerðarinnar merkt 0 í lyfjaskrá, t.d.
sýklalyf og hægðalyf. Nokkrar
frekari breytingar voru gerðar á
reglugerðinni, upplýsingar um þær
fást í apótekum.
Frá áramótum greiðist eitt gjald
fyrir hvern 100 daga skammt í stað
60 daga áður.
Bifreiðastyrkir hækka
Tryggingastofnun veitir árlega
hreyfihömluðum lífeyrisþegum
styrki til bifreiðakaupa. Umsóknir
þurfa að berast fyrir 1. nóvember
ár hvert, en úthlutun fer fram í
mars. Upphæðir styrkjanna voru
200 þúsund sá lægri, en 600 þús-
und sá hærri. Nú hækka styrkirnir,
sá lægri verður 220 þúsund og sá
hærri 650 þúsund.
Umönnunarbætur fyrir
sjúk börn
Um áramótin gengu í gildi lög
um greiðslu styrks eða umönnunar-
bóta til framfærenda fatlaðra og
sjúkra barna, sem dvelja í heima-
húsi, allt að 47.111 krónum á mán-
uði, ef andleg eða líkamleg hömiun
barns hefur í för með sér tilfinn-
ingaleg útgjöld eða þörf fyrir sér-
staka umönnun eða gæslu. Dagleg
þjónusta við barn utan heimilis
skerðir umönnunarbætur.
Þessi lög eru ekki komin til fram-
kvæmda en þess verður vart langt
að bíða að svo verði. Það er nýjung
að sjúk börn öðlast hér sama rétt
og fötluð böm. Hluti af lögum um
málefni fatlaðra (þ.e. 10. greinin)
færist yfir í almannatryggingarnar
við þessa lagabreytingu.
Fylgist með rétti ykkar
Þetta eru helstu breytingar á al-
mannatryggingunum nú í bytjun
ársins 1992, þó eru nokkrar frekari
breytingar á döfinni. Má þar nefna
tekjutengingu elli- og örorkulífeyris
almannatrygginga, sem verður
kynnt síðar. Mikilvægt er að allir
kynni sér vel hvaða rétt þeir eiga
samkvæmt landslögum og fylgist
með breytingum sem verða á þeim.
Án þess er erfitt að nýta sér rétt
sinn að fullu.
Höfundur er deildarstjóri
félagsmáln- og upplýsingadcildar
Tryggingastofnunar ríkisins.