Morgunblaðið - 09.01.1992, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1992
Samveldisríkin fá aðild
að samstarfsráði NATO
Brussel, Bonn. Reuter.
RIKI Atlantshafsbandalagsins (NATO) hafa komist að samkomu-
lagi um að lýðveldin í Samveldi sjálfstæðra ríkja fái aðild að þeim
samráðsvettvangi sem komið var á fót milli NATO og fyrrum ríkja
Varsjárbandalagsins í síðasta mánuði.
Á fundi fastafulltrúa NATO-
ríkjanna í Brussel á þriðjudag varð
samkomulag um að nýju lýðveldin
fengju aðild að samstarfsráðinu.
Fyrsti fundur samstarfsráðsins
var haldinn í Brussel í síðasta
mánuði en tilgangur þess er að
aðstoða ríki Austur-Evrópu við að
draga úr útgjöldum sínum til varn-
armála og breyta hergagnafram-
leiðslu yfir í framleiðslu á almenn-
um vamingi.
Hreyfill
rifnaði af
í flugtaki
Dallas. Reuter.
HÆGRI hreyfill Boeing 737-200
þotu bandaríska flugfélagsins
Delta Air Lines rifnaði af væng
þotunnar í flugtaki frá flugvellin-
um í Dallas-Forth Worth í fyrra-
kvöld.
Flugmennimir héldu áfram flug-
taki og flugu síðan nokkra hringi
við flugvöllinn áður en þeir lentu
þotunni aftur heilu og höldnu. Engan
sakaði en um borð voru 39 farþegar
á leið til Houston í Texas.
Þotan var af eldri kynslóð Boeing-
737 flugvéla, af undirtegundinni
737-200, sem er talsvert frábragðin
nýrri gerðum, þ.e. 737-300, -400 og
-500, en þotur Flugleiða eru t.d. af
gerðinni 737-400. Hreyflar Delta-
þotunnar eru af gerðinni Pratt &
Whitney JT8D en nýju Boeing-
þotumar eru knúnar frönskum
hreyflum af gerðinni CFM-56, sem
eru mjög frábrugðnir JT8D-hreyfl-
unum. Oljóst var hvað olli því að
hreyfillinn datt af þotunni.
Tuttugu og fimm ríki sátu fyrsta
fundinn, aðildarríki NATO, sextán
talsins, fimm Austur-Evrópuríki,
Sovétríkin og Eystrasaltsríkin
þijú. Næsta fund, sem fram fer í
Prag í lok mánaðarins, munu hins
vegar 35 ríki sitja þar sem í stað
Sovétríkjanna koma ellefu ný lýð-
veldi. Þjóðveijar hafa lagt mikla
áherslu á að fundurinn verði hald-
inn í Prag samhliða fundi utanrík-
isráðherra Ráðstefnunnar um ör-
yggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE)
sem 38 ríki eiga aðild að.
Hans Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðheiTa Þýskalands, sem nú
er í forsæti ráðstefnunnar hefur
lagt sérstaka áherslu á að asíulýð-
veldum fyrrum Sovétríkjanna verði
boðin aðild að RÖSE en ekki ein-
ungis evrópulýðveldunum. Þetta
sé ekki síst mikilvægt þar sem eitt
asíulýðveldanna, Kazakhstan, hafi
kjarnorkuvopn undir höndum.
Reuter
Myndin, sem er að vísu nyög óskýr, var tekin þegar George Bush hafði liðið út af við kvöldverðarborð-
ið. Miyazawa, forsætisráðherra Japans, er fyrir miðri mynd að koma Bush til hjálpar en yst til hægri
er Barabara, eiginkona Bush.
Bush Bandaríkjaforseti veiktist í Japan:
Efasemdir um heilsu for-
setans veikja stöðu hans
Tókýó. Reuter.
Tókýó. Reuter.
GEORGE Bush, forseti Banda-
ríkjanna, veiktist hastarlega í
kvöldverðarboði, sem Kiichi Miy-
azawa, forsætisráðherra Japans,
hélt honum í gær. Kastaði hann
upp og leið út af og varð að yfir-
gefa veisluna þegar hann hafði
jafnað sig nokkuð. Að sögn
lækna er Bush með inflúensu en
veikindin hafa vakið upp spurn-
ingar um heilsu hans og líkams-
þrek, einkum með tilliti til þess
mikla álags, sem fylgir forseta-
kosningum en þær verða síðar á
árinu.
Nokkurt uppistand varð að von-
um í veislunni þegar veikindin komu
yfir Bush en þegar hann hafði náð
sér aðeins sagði hann í gamni, að
hann hefði bara verið að vekja á
sér athygli. Hann var fölur og mátt-
farinn að sjá og mátti láta Bar-
böru, konu sína, um að sitja sam-
kvæmið á enda.
BREIÐHOLTS
KONUR
Svona veróa tímarnir okkar í vetur:
Morgun-,
síðdegis-
og
kvöldtímar
Kl. 9.15 þri. ogfim.
Kl. 17.30 þri. og fim.
Kl. 18.30 þri. og fim.
Kl. 19.30 þri. og fim.
Kl. 20.00 mán. og mið.
Nú er hægt að vera 4x í viku í Hraunbergi.
Opinn tími á laugardögum kl. 10.
Innritun alla daga í sima 79988.
LÍKAMSRÆKT
1 I
u
HRAUNBERGI4
Talsmaður Hvíta hússins vildi
ekki gera mikið úr veikindum Bush
en augljóst þykir, að forsetinn er
þreyttur og ekki að undra. Hann
hefur verið tíu daga á ferðalagi um
fjögur lönd, lagt að baki 19.000
mílur, unnið í 16 stundir á sólar-
hring og setið dýrar veislur á hveiju
kvöldi þar sem hann hefur gætt sér
á alls kyns réttum, sem hann er
óvanur. Hann hefur verið í hita-
svækju á einum stað og frostnepju
á öðram og hann hefur farið í ferð-
ir með bátum og þyrlum. Áður en
hann lagði upp í ferðina var hann
í helgarfríi í Beeville í Texas þar
sem hann stundaði kornhænuveiðar
á daginn, át sverar grillsteikur á
kvöldin og spjallaði við fólk yfir
bjórglasi á kránni. Þetta er George
Bush í essinu sínu segja vinir hans
en forsetinn er orðinn 67 ára gam-
all.
Bush leitar eftir endurkjöri sem
forseti í kosningunum í haust en
margt bendir til, að hann geti átt
á brattann að sækja vegna efna-
hagssamdráttarins í Bandaríkjun-
um. Þá hafa veikindin vakið upp
spurningar um hvorí hann hafi þrek
til að axla það gífurlega álag, sem
kosningabaráttunni fylgir. Hvað
sem um það er þá geta efasemdir
hjá kjósendum um heilsufar fram-
bjóðanda haft veruleg áhrif á gengi
hans í kosningum.
Veikindi Bush minna kjósendur
einnig á hver tekur við sem forseti
þurfi hann að fara frá, Dan Quayle
varaforseti, en á honum hafa
Bandaríkjamenn litla tiltrú. Búist
er við, að repúblikanar velji Bush
sem forsetaframbjóðanda sinn með"
formlegum hætti á næstu vikum
og aðeins fyrir nokkrum dögum
Iýsti Bush yfir, að ekkert gæti kom-
ið í veg fyrir framboð sitt — nema
heilsubrestur.
ERLENT