Morgunblaðið - 09.01.1992, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1992
33
heldur mikill lúxus, en hafði þó gam-
an af. Hann var mjög félagslyndur
og átti fjölmarga vini, sem sóttust
eftir félagsskap hans og ekki vantaði
afkomendurna, þeir eru jú komnir
langt á annað hundraðið. Hann var
líka mjög barngóður og börnum leið
vel í návist hans. Vingjarnleiki, ró-
semi og glettni voru hans einkenni.
Ekki skorti heldur þrautsegjuna og
eldmóðinn þegar á reyndi, jafnvel
fram á síðustu stundu. Hann var
óspar á hvatningarorð og góð ráð,
þegar við átti. Henn var ótrúlega
fróður og minnugur enda vel lesinn
í hinum ýmsu fræðum.
Það var ómetanleg reynsla að fá
að ferðast með honum á æskustöðv-
ar hans í Aðalvík og fá að dvelja þar
með honum um hríð. Þar naut hann
sín til fulls. Þar kenndi hann okkur
„skrúftog", veiðimennsku og nýtingu
aflans upp á gamla mátann. Einnig
kenndi hann okkur að slá með orfi
og ljá og ýmsar aðrar gamlar kúnst-
ir. A þessum æskustöðvum sínum
fylltist hann ótrúlegum krafti og lífs-
gleði, sem dugði honum allt til næstu
ferðar. Til marks um brennandi
áhuga hans á þessum ferðalögum
má nefna, að þegar heilsu hans hafði
hrakað og fæturnir voru orðnir of
lúnir til ferðalaga, var rætt um það
í fullri alvöru að fljúga með hann í
þyrlu tii æskustöðvanna svo hann
fengi að njóta þeirra einu sinni enn.
„Maður er manns gaman“ geta
vel verið einkunnarorð Jóns. Hann
naut sín best í góðum hópi, þar sem
glatt var á hjalla. Hann sóttist ekki
eftir veraldlegum gæðum fram yfir
nauðþurftir, eða nautnavörum. Smið-
ur var hann góður og njóta mörg
böm hagleiks hans enn í dag á leik-
skólum borgarinnar, en þangað sendi
hann í mörg ár leikföng, sem hann
smíðaði.
Það er ógjörningur að rekja í grein
sem þessari ævi 97 ára gamals ættar-
höfðingja, sem ólst upp í harðræði
vestur á fjörðum fyrir aldamót og
andaðist í hárri elli á nútíma hjúkrun-
ardeild. Jón S. Hermannsson var
sterkur og dugmikill maður, sem
skilaði sínu lífsverki með sóma. Það
var mikill heiður að fá að kynnast
þessum hjartahlýja, hughrausta og
hæfileikaríka manni, sem hafði góða
kímnigáfu og trausta lífsspeki. Fjöl-
margir afkomendur hans, allt dugm-
ikið og mannvænlegt fólk, bera merki
hins trausta uppruna síns. Síðustu
æviárin naut Jón frábærrar umönn-
unar á Hrafnistu í Hafnarfirði og eru
starfsfólki þar færðar kærar þakkir
fyrir það.
Ungur var eg forðum,
fór eg einn saman,
þá var eg villur vega,
auðigur þóttumst
er eg annan fann,
maður er manns gaman.
(Úr Hávamálum)
Júlíus Valsson.
Þann 29. desember 1991 barst
mér sú frétt að móðurbróðir minn
Jón Sigfús Hermannsson hefði látist
þá um daginn.
Sennilega mun hann hafa verið
elsti innfæddi maðurinn úr Sléttu-
hreppi, rúmlega níutíu og sjö ára
gamall.
Þeim fækkar ört sem þar eru
fæddir. Það hlaðast upp í hugann
minningar um hann frá bemskuárum
mínum á Sæbóli því stutt var frá
húsinu þar sem ég bjó og í svokallað
ömmuhús þar sem hann bjó ásamt
konu sinni Elinóru og börnunum.
Sérstaklega man ég eftir böllunum
sem haldin voru í húsi okkar, Stein-
húsinu, en þar vom hann og Jóhann-
es á Ystabæ aðal músíkantarnir og
léku þeir báðir listavel á hannon-
ikku. Síðar voru það Staðarbræður,
Jón og Benedikt, sem önnuðust það.
Einnig voru í þessu litla húsnæði
færðir upp sjónleikir og man ég eftir
einu sem hét jólagesturinn, sem þeir
bræður Jón og Guðmundur Her-
mannssynir léku í. Þar sem ég bjó í
húsinu naut ég því þeirra forréttinda
að fá að standa í horninu og hlusta
á músíkina þó aðrir krakkar á mínum
aldri fengju það ekki. Er maður skoð-
ar sömu húsakynni í dag undrast
maður hvernig var hægt að halda
böll og leiksýningar þarna.
Hryssu átti hann sem Bleik var
kölluð og tengdi hún okkur mikið
saman því oft var hún tekin trausta-
taki úti í haganum með snærisspotta
sem beisli, og ekki minnist ég þess
að Jón atyrti mig nokkurn tímann
fyrir það.
Lífskjörin voru hörð í Sléttuhreppi
á þessum árum og fólkið að smá tín-
ast burt til lífvænlegri staða og fóru
þau hjón Jón og Elinóra ekki var-
hluta af því. Þau reyndu þó að sitja
meðan sætt var og fluttu þau fyrst
frá Sæbóli á æskustöðvar Jóns að
Læk sem var hjáleiga frá prestsetr-
inu en síðan til Reykjavíkur þar sem
Jón fékk húsvarðarstöðu hjá tré-
smiðjunni Víði.
Síðar fluttu þau hjón á Sogaveg
192 þar sem þeim hjónum auðnaðist
með aðstoð barna sinna að byggja
sitt eigið húsnæði og þar bjó hann
þar til hann fluttist að Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Þessu lík urðu örlög allra Aðalvík-
inga, að flýja heimili sín og skilja
hús og aðrar eignir verðlausar eftir.
Engin aðstoð eða hjálp kom þá frá
hinu opinbera líkt og tíðkast nú til
dags.
Sléttuhreppur var sá fyrsti sem
fór í eyði á landinu. En minningam-
ar gleymast ekki og allir sem tök
hafa á, fara á sumrum í átthagana
og það stundaði Jón svo lengi sem
mögulegt var. Með einstökum dugn-
aði barna hans veittist honum sú
mikla gleði að sjá hús rísa á föður-
leifð sinn í Aðalvík sem nefnt var í
höfuðið á honum og kallað Jónshús.
Þar undi hann sér best á fögrum
sumardögum á meðan heilsan leyfði
honum að komast þangað.
Lífsskeið hans hófst er sól var
hæst á lofti, 29. júní 1894, og lauk
er sólargangur var stystur á 73.
giftingardegi þeirra hjóna. En frá
þeirri athöfn man ég aðeins eitt
atriði, það var skautbúningur er Eli-
nóra bar, slíkan búning hafði ég þá
aldrei séð.
Börn þeirra eru: Hermann sem
lést í apríl 1989. Ekkja hans er
Þórunn Finnbjörnsdóttir. Önnur börn
Jóns og Elinóru eru: Ásgeir
Guðmundur Helgi, kvæntur Guðríði
Jónsdóttur. Ásta Sigurlaug, gift
Sigurði Svanbergssyni. Bæring
Gunnar, kvæntur Guðrúnu A. Jóns-
son. Sigurður, kvæntur Dýrfinnu
Siguijónsdóttur. Guðrún, gift Héðni
Jónssyni. Jóhannes Páll, kvæntur
Sólveigu Björgvinsdóttur. Sólveig,
gift Ingva Rafni Jóhannssyni, og
Inga Jóhanna, gift Jóni Álfssyni.
Afkomendur eru nú taldir um 154.
Að leiðarlokum þakka ég Jóni
samfylgdina og votta aðstandendum
öllum samúð mína.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
frá Sæbóli.
^terkurog
KJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
NAMTIL FRAMTIÐAR
fljfþú vinnur við eða stefnir á ferðamálastörf íframtíðinni
og hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu
á íslandi, býðst þér fjölbreytt og hagnýtt nám í ferðamálafræðu
við Ferðamálaskóla Islands.
r
m
Á vorönn 1992 verða eftirfarandi sémámskeið haldin:
Farbókunarkerfi........(hófst) 6/1 til 17/1...Má. Mi. Fö. Kl.15-1
Farbókunarkerfi..............20/1 til 31/1 Má. Mi. Fö. Kl. 15 - l|ll|
Markaðsfræði
ferðaþjónustu..
.21/1 til 20/2...Þr. Fi.........Kl. 18 - JBlh
Útreikningur fargjalda
8/4... ..Má. Mi .... Kl. 18-2 2
9/4... ...Þr. Fi Kl.18-2 2
Útreikningur fargjalda
Ferðalandafræði
íslands.........................30/3 til 24/4...MÚ. Mi. FÖ....KI. 18-1
Ferðalandafræði
útlanda.........
.14/4 til 21/5....Þr. Fi.........Kl. 18 -Æ
Skráning á ofangreind námskeið og nánari upplýsingar um Ferðamálaskóla íslands
veitir ]ón V. Gíslason íst'ma 76991 priðjudaga, miðvikudaga ogfimmtudaga kl. 23 -16. j
Ferðamálaskóli Island
MENNTASKÓLANUM í KÓPAVOGI
ICELAND SCHOOL OF TOURIs|||
- miðstöð ferðamálafræðslú.
_________________________________
Utsalan hefst í dag
Missiö ekki af þessu einstaka tækifæri
Kringlunni 8-1 2, sími 686062.