Morgunblaðið - 09.01.1992, Page 48

Morgunblaðið - 09.01.1992, Page 48
MORGVNBLADW, AÐALSTRjETl 0, 101 REYKJAVÍK Sim 091100, FAX 691181, POSTHÓLF 1550 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Ferðamiðstöðin Veröld óskar gjaldþrotaskipta: Ráðuneytíð sækir farþeg- ana ef hótel vísa þeim út Ríkisábyrgð launa: 500 millj. iféllu á rík- ið í fyrra AÆTLAÐ er að fjárhæð sú sem féll á ríkissjóð vegna ríkisábyrgð- ar á launum hafi numið um 500 milljónum króna á liðnu ári. Þetta er um tvöföld sú upphæð sem féll á ríkissjóð af þessum sökum árin 1989 og 1990, er ríkissjóður greiddi tæplega 240 milljónir króna hvort ár. Af þessari upphæð, 500 milljón- um, voru um 172 milljónir vegna lífeyrissjóðsgjalda og um 328 millj- ónir vegna iauna og lögfræðikostn- -«aðar. Að sögn Ólafs B. Andrésson- ar, deildarstjóra hjá Tryggingastofn- un, skýrist aukningin á liðnu ári einkum af gjaldþrotum tveggja stór- fyrirtækja, Arnarflugs og Alafoss, en kröfur vegna þeirra voru af- greiddar á síðasta ári. Nú stendur til að ríkisábyrgð á lífeyrissjóðsgreiðslum verði minnkuð eða afnumin og því hafa lífeyrissjóð- irnir neitað að ganga frá kaupum á skuldabréfum byggingasjóðanna. Sjá nánar á bls. 20. ------» ♦ ♦----- Ólafsvík: Tilboð heima- manna í H.O. HÓPUR heimamanna á Ólafsvík hefur gert tilboð í húsakynni þrotabús Hraðfrystihús Ólafsvík- ur. Tilboðið er með því skilyrði að löndunarsamningur fáist við Snæfelling, félagið sem keypti allan skipaflota þrotabúsins og er í eigu bæjarsjóðs á Ólafsvík. Yegna þessa hefur sameiningar- viðræðum milli Snæfellings og ^líraðfrystihúss Grundarfjarðar verið frestað til 20. janúar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hljóðar tilboð heimamanna upp á rúmlega 60 milljónir króna. Húsakynnin eru í eigu Fiskveiða- sjóðs og eru metin á 60-70 milljónir króna. Már Elísson forstjóri Fisk- veiðasjóðs segir að sjóðurinn hafi fengið nokkur tilboð í húsakynnin. Séu þau nú til skoðunar og nánari útfærslu hjá sjóðnum, sem á næst- unni ræðir við tilboðshafa. Sjá nánar á bls. 27. Þorsteinn Hjaltason fólkvangs- vörður í Bláfjöllum segir að gír- kassi í lyftunni hafi bilað. Ágæt- lega hafi gengið að ná hluta af fólkinu sem í lyftunni var niður, en seinlegar gengið með aðra þar sem ekki hafi verið hægt að nota varavél. Fyrst hafi sérstakur FERÐAMIÐSTÖÐIN Veröld hf. hættir starfsemi og óskar eft- ir gjaldþrotaskiptum í dag. 120 farþegar, sem fóru með leiguflugi á vegum félagsins til Kanaríeyja 2. janúar og <áttu að koma heim þann 23., verða sóttir með vél á vegum samgönguráðuneytisins, lyftubúnaður verið notaður til að ná fólkinu niður, en síðan gripið til þess ráðs að láta snjótroðara snúa lyftunni og þá hafi loks tek- ist að ná öllum úr henni. Þorsteinn sagði að þessi lyfta hefði gengið svo til áfallalaust í ein 13 ár og slæmt að hún skuli hafa bilaði nú ef hótel vísa þeim út vegna van- goldinna reikninga Veraldar. Flugleiðir hafa ákveðið að flylja í dag 78 farþega til Kanaríeyja, sem voru með farseðla frá Ver- öld. Á þriðjudag var Veröld svipt heimild til sölu farseðla í áætlunar- í upphafi skíðavertíðarinnar í Blá- fjöllum. Óvíst er hve langan tíma tekur að gera við hana. Bengt Harðarson segir að þeir félagarnir fjórir hafi verið ný- komnir á skíðasvæðið og þetta hafi verið fyrsta ferð þeirra í lyft- unni þennan dag. „Við þurftum að hanga þarna í lausu lofti í eina tvo tíma áður en tókst að ná okk- ur niður og þá var okkur orðið kalt og við hræddir,“ segir- Bengt.„Og vegna þessa náðum við ekki að renna okkur neitt á skíðunum en ég er viss um að við förum þarna aftur á skíði.“ flugi. Ástæða þess var sú, að greiðsla barst of seint til fyrirtækis- ins Bank Settlement Plan í Stokk- hólmi, en það sér um uppgjör ferða- skrifstofa við flugfélög í áætlunar- flugi. Svavar Egilsson, forstjóri Ver- aldar, sagði að Flugleiðir réðu miklu og erfitt væri að keppa við fyrirtæk- ið í rekstri. Þá hefði Flugleiðum verið í lófa lagið að koma í veg fyr- ir þessa sviptingu heimildar. Því vís- ar Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða á bug og segir Flugleið- ir ekki geta breytt ströngum reglum BSP, sem sé alþjóðlegt fyrirtæki. I gær gengu forsvarsmenn Ver- aldar á fund samgönguráðherra og jafnframt var rætt við Flugleiðir um að fyrirtækið tæki að sér flutning á farþegum Veraldar. Síðdegis komu Veraldarmenn aftur til fundar í sam- gönguráðuneytinu og tilkynntu að ákveðið hefði verið að óska gjald- þrotaskipta. Nú eru 120 farþegar á Kanaríeyj- um, sem fóru þangað með leiguflugi á vegum Veraldar. Ekki hefur verið greitt fargjald fyrir þessa farþega heim aftur, né hótelgistingin fyrir þá á Kanaríeyjum. Farþegarnir höfðu þó greitt Veröld fargjöld og gistikostnað. „Ferðaskrifstofum er skylt að leggja fram sex milljón króna tryggingu í samgönguráðu- neytinu," sagði Þórhallur Jósepsson, deildarstjóri í ráðuneytinu. „Þessa tryggingu má ekki skerða meira en þötf krefur, en þó má ganga á hana til að tryggja heimflutning fólks. Ef hótelin á Kanaríeyjum vísa far- þegum Veraldar út þarf að senda flugvél þangað til að ná í fólkið, ef það vill ekki sjálft greiða gistingu þar öðru sinni. Fulltrúar Flugleiða ætla að reyna að tryggja fólkinu áframhaldandi gistingu á hótelunum og það skýrist í dag hvort það tekst. Sú tilraun byggist á því að hótelin hafa tekið við hótelávísunum frá Veröld." Þórhallur sagði að kostnaður við að senda flugvél til Kanaríeyja væri um 3-4 milljónir króna. Vélin yrði send strax í dag ef þörf krefði, en í síðasta lagi 23. janúar. I frétt frá Flugleiðum segir að Veröld hafi pantað far fyrir mörg hundruð farþega með flugvélum Flugleiða, en engar greiðslur innt af hendi fyrir fargjöld. Hins vegar hafi fjöldi fólks greitt ferðir sínar að fullu hjá Veröld. í dag eiga 78 Veraldarfarþegar bókað far til Kan- aríeyja með Flugleiðavél. Flugleiðir ákváðu að gefa út nýja farseðla fyr- ir þetta fólk og tryggja því hótel á Kanaríeyjum. Óðrum farþegum er bent á að hafa samband við Flugleið- ir til að fá nánari upplýsingar. Morgunblaðið hafði samband við Antonio Bustofs, umboðsmann Ver- aldar á Kanaríeyjum, í gærkvöldi. Hann vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því, að leiguflugsfar- þegarnir þyrftu engar áhyggjur að hafa af hótelgistingunni. Sjá fréttatilkynningu Veraldar á bls. 2. Aðallyftan í Bláfjöllum bilaði: Fjórir 11 ára strákar sátu fastir í tvær klukkustundir Óvíst hvenær viðgerð á lyftunni lýkur AÐALLYFTAN í Bláfjöllum bilaði í gærdag, og sátu fjórir 11 ára strákar fastir í tvo tíma, í tæplega 8 metra hæð, af þeim sökum. Einn þeirra, Bengt Harðarson, segir að þó þeim liafi ekki orðið meint af þessu, hafi þeir verið bæði hræddir og kald- ir enda um sex stiga frost.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.