Morgunblaðið - 14.02.1992, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.02.1992, Qupperneq 3
3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992 Felagsmalaraðherra: Mikil úlg’áfa bankabréfa heldur vöxtunum uppi Kemur til greina að grípa inn í Félagsmálaráðherra segir að bankarnir haldi uppi vaxtastiginu í landinu og þar með afföllum húsbréfa með mikilli útgáfu bankabréfa með 8,5-8,6% ávöxtun. Hún segir ekki hægt að líða það að bankarnir haldi vöxtunum svona uppi og að það hljóti að koma til greina að ríkis- stjórnin grípi þarna inn í, með því Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði fyrr í vikunni úr 8,3 í 8,2%. Þá sagði Sigurbjörn Gunnarsson deildarstjóri hjá Landsbréfum að vextir spariskír- teina héldu ávöxtunarkröfu húsbréfa Sykurmolarnir: Spáð sjötta sæti breið- skífulistans ÞRIÐJU breiðskífu Sykurmol- anna, Stick Around for Joy, sem kom út í Bretlandi á mánudag, er spáð sjötta sæti breska breiðskífu- listans. Af plötunni hafa selst á fjórða tug þúsunda eintaka í Bret- landi. Að sögn heimildarmanna á veg- um hljómsveitarinnar hafa þegar selst af plötunni á fjórða tug þús- unda eintaka og verslanir hafa margar verið að panta meira af plötunni. Það er Gallup-stofnunin breska sem tekur saman breiðskífu- listann og ef spá stofnunarinnar um sjötta sætið gengur eftir, verður það í fyrsta sinn sem íslenskri hljómsveit lánast að eiga breiðskífu meðal tíu best seldu hljómplatna í Bretlandi. að beita ákvæðum Seðlabankalaga. uppi. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra sagði hins vegar í gær þegar hennar álits var leitað að bank- arnir héldu vöxtunum miklu frekar uppi en ríkið. „Staðan er nú þannig að eftir- spurn eftir húsbréfum er miklu meiri en framboðið og lítið gefið út af húsbréfum miðað við það sem áður var. Það ættu því að vera allar for- sendur til að lækka enn afföllin," sagði Jóhanna. „Það eru að stórum hluta sömu kaupendur á spariskír- teinum ríkissjóðs og húsbréfum og því erfitt að fara neðar með ávöxtun húsbréfa, því ávöxtun þessara sparn- aðarforma er nú svipuð. Ávöxtun húsbréfanna ætti raunar að vera heldur hærri vegna lengri lánstíma. Ef farið yrði neðar með ávöxtun húsbréfanna myndu þau hætta að seljast. Ég held hins vegar að það séu frekar bankarnir sem halda uppi vöxtunum með því að hafa ávöxtun bankabréfa og bankavíxla 8,5 til 8,6%. Erfitt er fyrir ríkið að lækka vexti spariskírteina á sama tíma og bankarnir halda uppi þessu vaxta- stigi. Útgáfa bankabréfa, aðallega hjá Landsbankanum og íslands- banka, jókst um 2,8 milljarða kr. í janúar miðað við desember. Á meðan hefur sala spariskírteina dregist sam- an. Forsenda fyrir vaxtalækkun er að vextir bankabréfa lækki. Þá fylgja vextir spariskírteina og síðan afföll húsbréfa," sagði félagsmálaráðherra. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sinfóníuhljómsveitin í álverinu Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika í aðalsal mötuneytis ísal í hádeginu í gær. Á efniskránni var létt tónlist og er ekki að sjá annað en starfsmenn hlusti á hana af athygli. Starfsmannafundur á Landakotsspítala: Aformum mótmælt um að gera spítalann að öldrunarheimili Á starfsmannafundi sem haldinn var á Landakotsspítala í gær var samþykkt ályktun þar sem lýst var yfir eindregnum stuðningi við afstöðu St. Jósefssystra til sameiningar Landakotsspítala og Borgarspítala og þess krafist að sljórnvöld hverfi frá áformum um að gera spítalann að öldrunarheimili. Fundurinn var, að því er kemur fram í fréttatilkynningu, fjölsóttur, en hann var lokaður öðrum en starfsmönnum spítalans. Eftirfar- andi ályktun var samþykkt: „Starfsfólk St. Jósefsspítala Landakoti harmar það vanþakk- læti og lítilsvirðingu sem stjórnvöld hafa sýnt starfi St. Jósefssystra. Tæplega 40% niðurskurður á fjár- veitingu til spítalans og margum- ræddar breytingar spítalans í öldr- unarheimili eru skýlaust brot á þeim samningi sem gerður var við þær árið 1976. Um leið og við lýsum yfír ein- dregnum stuðningi við afstöðu St. Jósefssystra krefjumst við þess að stjórnvöld virði uppbyggingarstarf þeirra með því að hverfa frá áform- um um að gera Landakotsspítala að öldrunarheimili og tryggja að hann verði áfram rekinn sem al- mennt sjúkrahús." .en samt með ósviknu smiörbragði. KLÍPAer ný tegund af viðbiti sem ætlað er öfan á brauð. KLÍPA er tvímaelalaust tímamótavara. Fitan í henni er aðeins 27% eða þriðjungi minni en í öðru léttu viðbiti. KLIPA hefur einnig þann frábæra eiginleika að fitan, sem notuð er við framleiðsluna, er 4/5 smjör og 1/5 olía. Þess vegna er KLÍPA ekki aðeins afar fitusnauð heldur er af henni lii'iffnnnt sminrhranð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.