Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.02.1992, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1992 Sr. Árelíus Níels- son - Minning Veturna 1930-1931 og 1931- 1932 átti ég flesta morgna leið suður Laufásveginn í átt að Kenna- raskólanum ásamt Árelíusi Níels- syni, síðar presti, og Gunnan Ólafs- syni, er varð skólastjóri í Neskaup- stað. Laugardagskvöldið 4. janúar síðastliðinn vorum við Árelíus í góð- um fagnaði hjá Gunnari og Ingi- björgu konu hans, en með okkur skólabræðrunum tókst snemma vin- átta, sem án brotalama hefur hald- ist í 60 ár. Tveimur dögum síðar var Árelíus kominn í Borgarspítal- ann til þess að heyja sitt síðasta stríð. Við Gunnar máttum aðeins kveðja hann berandi kennsl á okkur. Við Alli, eins og við skólasystkin- in nefndum hann tíðast, skiptumst iengi á bréfum, og það eru aðeins örfáir smámunir úr bréfum hans, sem ég kýs að votti kveðju mína þá hann er floginn. Borð í Súðinni 2. maí 1931: „Ég er búinn að sjá blessuð fjöllin mín. — Ég sakna Reykjavíkur ekki mik- ið, en skólasystkina minna dálítið, sérstaklega þú skilur. Gaman væri að hún væri komin einstöku sinnum sunnudag í sumar.“ Kvígindisfirði 3. júní 1931: „Síð- an ég kom heim hef ég stöðugt leitast við að læra eitt. Það er að gleyma. En það gengur verst af öllu, sem ég hef byijað á að læra hingað til. Lífið er tilfínningalaust og grimmt með allan sinn stétta- mun og misrétti. Það varpar sumum inn í heiminn, aðeins til þess að verða fóttroðnir saklausir, en öðrum til að heijast hátt, án þess að neitt sjáist til þess unnið. Þó er Eros verstur, og hann opnar sjálfsagt augu margra fyrir því með skeyti sínu, hvernig lífíð fyrirlítur helgustu þrár og vonir þessarar veikbyggðu veru, sem heitir hjarta.“ Kvígindisfirði 18. júlí 1931: „Ég álít nýfædd börn alls ekki misjafn- lega rétthá. Það er venjan, ástæð- umar og heimshátturinn, sem gjör- ir þau það, eftir því hve foreldram- ir standa nálægt kóngi eða þræl. Þetta misrétti viðurkenni ég ekki í raun og veru, því að ég er jafnaðar- maður. En það er annað, það er göfgi sálarinnar og hvernig hver ver sínu pundi eða gáfum, sem al- faðir veitir, sem gerir muninn. — Öðrum blöðum er að fletta með ánægjuna. Sá sem er ánægður með lítið og sættir sig við skarðan hlut við matborð lífsins er flestum sælli. En ánægja með sjálfan sig veldur kyrrstöðu á öllum sviðum og hindr- ar framvindu og þroska lífsins. Það er sjálfsagt ein hin versta synd og illt að uppræta hana. Það er að segja ef framför er betri en aftur- för. Til hvers er þetta allt eigin- lega: vonir, vonleysi, sorg, gleði, líf, dauði, hrollur, unaður, auðæfí, fátækt, allt þetta sem mennimir þreyta sitt blóðuga kapphlaup um? Allt lendir við það sama, allt kemur frá hinu óendanlega hulda, og allt hverfur til hins óendnanlega hulda. Við horfum á, undramst og hræð- umst, gleðjumst og söknum, störam út á djúp hins hulda, þangað til augun eru full af táram, hárið grátt af hrolli, hendur titra, hnén bogna, svo hverfum við sjálfír, gleymumst og sökkvum." Firði 25. ágúst 1931: „Mennirnir venjast. Vaninn skapar viðhorf ein- staklinganna gagnvart umhverfínu. Vaninn drepur þrár, langanir og jafnvel tilfínningar, fyrir áhrif hans þykir það gott, sem áður þótti lam- andi og leiðindi. Stundum er vaninn friðarengill, sem gefur hið eilífa algleymi. Stundum er hann grimm- asti morðingi, sem drepur og kæfír helgustu kenndir mannsins.“ Stykkishólmi 5. des. 1933: „Sé lífíð búið að vera sem sjálfstæð til- vera, þegar yfir lýkur, máttu þá ekki vera ánægðari en ella, ef þú hefur varið stundunum til þess, sem þitt innsta eðli sagði að hæfði þér best? Þér hlotnast framhaldsnám í þeirri grein, sem þú dáir. Þú ættir að sjá eða finna glampa hamingj- unnar í því, sé hann annars að finna. En ef til vill er engin hamingja til nema í hillingum, en það er þá sú blekking, sem gefur þrek til að lifa. Við mennimir getum í sumum til- fellum allt og sumum tilfellum ekk- ert. Það er sannieikurinn að því er mér virðist. — Plebeiisminn dregur úr hugsjónum okkar, en við verðum að þekkja hann, til þess að skapa úr honum hugsjónir. Hann er efnið, sem verður að breyta. Eins og moldin svört, rotin og ljót, breytist í fegurstu blóm, eins verðum við að breyta því, sem lægst er, áleiðis til fullkomnunar. Það veit eða ætti hver kennari áð vita. Ef til vill nálg- ast ég meira og meira hið lága (plebeiism), en óskandi að ég gleymi þá ekki alstirndum himni.“ Stykkishólmi 2. jan. 1934: „Það er svo gaman að vita til þess, að til eru menn, sem muna mann í fjar- lægðinni. Ljúfar minningar, þrangnar angurblíðu liðinna daga, svífa á engilvængjum gegnum vit- undina. Og minningarbjarminn fær- ir frið og unað eftir hversdagsleik- ann og dægurstritið." Stykkishólmi 13. jan. 1935: „Vont þykir mér að verða að hætta við að lesa. Þó sé ég reyndar að svona nám er hvorki hálft né heilt. Ég verð að slá af kröfum til sjálfs mín bæði við nám og starf. Æskan hverfur og ég verð gráhærður áður en varir. Ég vil, ég ætla að verða skólastjóri við lýðskóla. Kannske get ég siglt eftir eitt eða tvö ár. Þá er gott að kunna talsvert í ensku, dönsku og þýsku, í þessu hef ég lært talsvert í vetur. En hvað um það, sennilega verð ég aldrei stúd- ent, en að hætta að læra væri rot- högg, sem ég ekki fengi afborið. Það væri í mínum augum dauði, því að sá maður, sem er hættur að vaxa, hann er byijaður að minnka. Kannske er lífið tilgangslaust fálm út í bláinn, sem enginn getur feng- ið botn í, en úr því manni er af örlaganornunum gefíð afl til að þrá og starfa, hvers vegna þá ekki að lifa fyrir augnablikið, láta fortíðina eiga sig og kasta framtíðardraum- um, sem sennilega aldrei rætast, og gera það sem mann langar til. Ef lífíð hefur tilgang, þá er stefnt að marki, sé það tilgangslaust hefur maður nautnina af unnu óska- starfí." Reykjavík 9. des. 1968: „Megi framtíðin eiga sem mest af birtu vorsins 1932. Svo geng ég með þér suður Laufásveginn í anda oft og mörgum sinnum og einhvers staðar á ég öll þín bréf líka. En ætli við hverfum ekki saman einmitt suður Laufásveg eilífðarvonanna. Það vildi ég helst, þegar þar að kernur." Úr bréfum frá Árelíusi ±il mín. Lúðvík Kristjánsson. Það er sunnudagsmorgunn. Börn úr öllum áttum streyma að gömlum hermannabragga sem þjónaði Langholts- og Vogahverfi sem íþróttahús. Börnin sem lögðu leið sína í braggann á sunnudagsmorgni vora ekki með íþróttir efst í huga, heldur var ætlunin að taka þátt í barnaguðsþjónustu. Á einu auga- bragði fylltist hið hrörlega íþrótta- hús er nefndist Hálogaland af gleði- söng nærri þúsund barna. íþrótta- húsið þar sem börnin höfðu iðkað íþróttir sínar og hvatt félagslið sín með hrópum og köllum, breyttist í einni andrá í helgidóm, kirkju þar sem ríkti algjör kyrrð og ró, gleði og friður. Sá sem hafði kallað á börnin til guðsþjónustuhalds var fyrsti prest- ur Langholtssafnaðar, séra Árelíus Níelsson. Það var einmitt á Háloga- landi sem ég sá hann fyrst. Það geislaði af honum. Tal hans og all- ur flutningur á hinu helga orði náði til okkar barnanna. Þessar sam- verastundir, helgistundir á Háloga- landi mörkuðu sín spor, höfðu sín áhrif á ómótaðar bamssálir. Margir muna eftir því að hafa fengið af- mælismyndir úr hendi hans. Hand- takið hans, sem og maðurinn allur, varð einhvers konar tákn um kær- leika, umhyggju og elsku. Þegar barnakórinn stóri sameinaðist síðan í því að syngja sálminn: „Ástarfað- ir himinhæða“ varð gamli bragginn að helgidómi og afmælismyndirnar sem börnin fóru með heim, að helgi- myndum, sem enn í dag tala sínu máli. Benda okkur á orð úr einum af uppáhaldssálmum séra Árelíus- ar: „Guð vill að ég sé honum sól- skinsbarn ... Það voru þó ekki aðeins börnin sem skynjuðu að séra Árelíus var um margt einstakur maður. Hinn ungi söfnuður komst fljótt að því að presturinn þeirra var eldhugi, hugsjónamaður, baráttumaður sem var reiðubúinn að feta ótroðnar slóðir, jafnvel þó að það kostaði andstöðu um stundar sakir. Hann hélt messur undir beram himni, og I I I * > l i > Levi's-búðin, Laugavegi 37, og Strandgötu 6, Akureyri, eru löggildar Levi's-búðir á íslandi, (AUTHORIZED LEVI'S DEALER) og eru því einu verslanirnar þar sem þú getur verið viss um að þú fáir ekta Levi's Nokkuð hefur borið á fölsuðum vörum merktum Levi's á markaðnum. Ef þú kaupir föt merkt Levi's í öðrum búðum en í Levi's-búðinni áttu á hættu að þau séu svikin og gæðin alls ekki þau sömu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.