Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 1
120 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 75. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgu nblaðið/S verri r SNURFUSAÐ í SKEIFUNNI Alyktun Sameinuðu þjóðanna í smíðum: Refsiaðgerðir gegn Líbýu- stjórn boðaðar 15. apríl Sameinuðu þjóðunum. Reuter. NÚ UM helgina fara stjórnvöld í þeim ríkjum sem sæti eiga í öryggisráði Samein- uðu þjóðanna yfir drög að ályktun um refsiaðgerðir gegn Líbýu. Þar er gert ráð fyrir að 15. apríl verði bannað flug til Líbýu og vopnasala auk fleiri atriða láti Líbýustjórn tvo hryðjuverkamenn ekki af hendi. Aformað er að afgreiða ályktun- ina á mánudag. Þó gæti það frestast ef tíminn til að fara yfir drögin að henni reynist of skammur. Verðlaunin eru nábýli við Bush SÁ SEM á 6.000 kr. aflögu og getur sagt frá því í 250 orðum hvers vegna hann langar til að búa við sjóinn í Maine í Bandaríkjunum hefur nokkra von um að verða nágranni George Bush forseta á sumrin. Það eru hjónin Arthur og Shirley Leach sem bjóða upp á þetta, en í hálft annað ár hafa þau árangurslaust reynt að selja húsið sitt í Kennebunkport. Vilja þau fá 344.000 dollara fyrir húsið en það er aðeins í einnar mílu fjarlægð frá Walkers Point þar sem Bush hefur dvalið einhvern tíma að sumarlagi allt frá barnæsku. Aðgangseyririnn að ritgerðasam- keppninni er 99 dollarar en ritsmíðarn- ar verða dæmdar eftir stíl, innihaldi, frumleika og gamansemi. Sá böggull fylgir skammrifi að þátttakendur verða að vera 3.500 eða fleiri til að þau hjón- in 'hafi upp í húsverðið og útlagðan kostnað við samkeppnina. Grace Jones á köldum klaka HELDUR illa er komið fyrir leik- og söngkonunni Grace Jones en þrátt fyr- ir miklar tekjur á stundum á hún ekki eyri og hefur verið lýst gjaldþrota. Má rekja þessa sorgarsögu til þess að á síðasta áratug ánetjaðist hún eiturlyfj- um og svo trúði hún manni nokkrum fyrir miklu fé, sem átti að ganga upp í skattaskuldir. Hann hljóp hins vegar úr landi með peningana. Eignir í búinu eru metnar á rúmlega 20 milljónir ÍSK en skuldirnar eru nokkru meiri, eða um 96 milljónir. Þar af er skattaskuld- in 60 milljónir. Auk söngsins hefur Grace Jones leikið í ýmsum kvikmynd- um, meðal annars í James Bond-mynd og með Arnold Schwarzenegger í „Con- an villimanni“. Þótt svona sé komið ber Grace sig ekki illa því hún segist laus úr eiturviðjunum og staðráðin í að fara betur með framvegis. Jeltsín prúttar BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, sagði á fundi með starfsmönnum samyrkju- bús fyrir utan Moskvu á föstudag að sjálfur færi hann oft á þorpsmarkaðina úti í sveit til að kaupa sér kjöt og fengi það á 50-60 rúblur kílóið. I Moskvu kostar það aftur á móti 100 rúblur, um 60 kr., en meðalmánaðarlaun í Moskvu eru undir 1.500 rúblum, 900 ÍSK. Hvatti Jeltsín starfsmennina til að prútta við kjötkaupmennina en viðurkenndi þó að hugsanlega gengi honum prúttið betur vegna þess að hann væri forseti lands- ins. Á fundinum upplýsti hann einnig að mánaðarlaunin sín væru 5.000 rúbl- ur, eða um 3.000 ÍSK. Tilefni þess að öryggisráðið íhugar refs- iaðgerðir gegn Líbýu er að Bandaríkin, Bretland og Frakkland telja sig hafa leitt Ijós í umfangsmestu glæparannsókn sög- unnar að tveir líbýskir leyniþjónustumenn hafí komið sprengju fyrir í Pan Am-þotu sem sprakk yfir Lockerbie á Skotlandi árið 1988. Einnig vilja Frakkar fá til yfir- heyrslu fjóra aðra Líbýumenn grunaða um að hafa átt hlut að máli er frönsk þota fórst yfir Níger árið 1989. Líbýustjórn hefur ekki alfarið hafnað málaleitaninni en neitað að framselja mennina skilyrðis- laust. Muammar Gaddafi, foi-seti Líbýu, bakaði sér nokkra óvild leiðtoga Araba- bandalagsins er hann kvaddi sendimenn þeirra til Trípolís í síðustu viku til að sækja mennina tvo. Það loforð reyndist skilyrðum bundið og fóru sendimennirnir bónleiðir til búðar. Segir Líbýustjórn mennina saklausa auk þess sem þarlendir dómstólar geti fjall- að um málið. Hefur hún skotið málinu til Alþjóðadómstólsins í Haag. Niðurstöðu þaðan er ekki að vænta fyrr en eftir vikur eða mánuði. Svo lengi vilja ríkin þijú sem sækja málið svo fast ekki bíða. í drögum að álykt- un öryggisráðsins sem dreift var á föstu- dag er miðað við að 15. apríl verði sett bann á flug til Líbýu og vopnasölu þang- að, stjórnarerindrekum Líbýu víða erlendis verði vísað úr landi og þess krafist að Líbýustjórn sýni í verki að hún hafi sagt skilið við hryðjuverk. Qian Qichen, utanríkisráðherra Kína, lýsti sig mótfallinn refsiaðgerðum í síðustu viku og taldi að þær myndu einungis auka viðsjár í þessum heimshluta. Hermt er að Bandaríkjamenn hafi varað Kínveija við því að viðskiptakjör þeirra í Bandaríkjunum kynnu að versna ef þeir beittu neitunar- valdi til að stöðva ályktunina. Talið er ólík- legt að Kínveijar beiti neitunai-valdi en það hafa þeir ekki gert svo áratugum skiptir. Þeir muni frekar kreíjast orðalagsbreyt- inga á ályktuninni og sitja svo hjá. OSRARSSTUNDIN RENNUR UPP 16 VEGALAUS BÖRN 10 UTFLUTNINGUR A RAFORKU MED SÆSTRENG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.