Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992 EFNI Gangamunninn í Tungndal. Morgunbiaðið/úifar Ágústsson. Garðyrkjubændur: I athugun að hefja gúrkurækt- un allt árið með hjálp lýsingar Innflutningur og heildsöluuerðmætí á gúrkum 1991 verðlag 1991_____________________________________ Vestfjarða- göngin orð- in kílómetri að lengd UNNIÐ hefur verið við gerð Vest- fjarðaganganna úr Tungudal fyrir ofan Isafjörð í vetur, og I fyrradag voru þau orðin eins kílómetra löng. Að sögn Gísla H. Guðmunds- sonar, verkfræðings hjá Vesturís, samsteypufyrirtækinu sem hefur verkið með höndum, verður hafist handa við gerð ganganna úr Botnsdal í Súgandafirði í sumar. Samkvæmt verkáætlun á að ' Ijúka gerð Vestfjarðaganganna árið 1995. Að sögn Gísla er óljóst hve miklar framkvæmdir verða á þessu ári vegna niðurskurðar á fjárveit- ingum til verksins. Hann sagði áætlað að halda áfram inn úr Tungudal eitthvað fram á sumarið, og síðan gerði verkáætlun ráð fyrir að byijað yrði við gerð ganganna- inn úr Botnsdal, en næsta vetur yrði síðan haldið áfram inn úr Tungudal. ----» ♦ »-- Eignatekjuskattur: Jafnar stöðu fjárfesting- arvalkosta - segir formaður fasteignasala „ÞETTA jafnar stöðu fjárfest- ingarvalkostanna,“ sagði Þór- ólfur Halldórsson formaður Fé- lags fasteignasala í samtali við Morgunblaðið þegar leitað var álits hans á tillögum nefndar um samræmda skattlagningu eigna- tekna og eigna. Þórólfur sagði að jafnræði þyrfti að vera á milli fjárfestingaval- kosta. Ef þessi breyting jafnaði þá stöðu væru hún mjög jákvæð. Eignarskatturinn hefði verið óhag- stæður þeim sem vildu festa fjár- magn í fasteignum en hagstæður þeim sem vildu geyma fjármagnið í bankainnistæðum eða bréfum. Hann sagðist ekki geta metið það hvaða áhrif breytingin hefði, hvort sveiflan yrði veruleg eða ekffi. NOTKUN lýsingar í gróðurhúsa- framleiðslu nær tvöfaldaðist á síðasta ári að sögn Magnúsar Ágústssonar, ylræktarráðunauts Búnaðarfélags Islands. Hann seg- ir að möguleikar við aukna orku- notkun í garðyrkjunni séu miklir, sérstaklega í blómaræktun og gúrkuframleiðslu. Að sögn Magnúsar er einn garðyrkju- bóndi í Hveragerði nú á förum til Noregs til að kynna sér gúrku- ræktun við raflýsingu en hann hyggst gera tilraun til að hefja gúrkuræktun í einu gróðurhúsi árið um kring. Magnús sagði að þrátt fyrir aukna lýsingu í biómarækt hefði ekki dregið úr innflutningi blóma. ,,Nú eru komnar rósir á markaðinn kllt árið en fólk virðist frekar vilja kaupa góð blóm ef þau bjóðast. Um leið og innlend vara fæst á skaplegu verði á markaðnum eykst neyslan," sagði Magnús. Magnús sagðist ekki geta spáð fyrir um hvenær íslenskir garð- yrkjubændur gætu annað allri eftir- spurn innanlands en margt bendi til að auka megi framleiðsluna. Það hefði þá þýðingu að draga úr verð- sveiflum og stuðla að lægra verði til neytandans. Samband garðyrkjubænda hefur kynnt áætlun um að auka megi orkunotkun í garðyrkju úr 7,9 gíga- vattsstundum á ári í 47 gígavatts- stundir innan fárra ára ef raforkan fæst afhent á viðunandi verði. Magnús benti á að gróðurhúsa- bændur í Danmörku greiða 2,53 kr. fyrir kílóvattstundina á sama tíma og íslenskir gróðurhúsabænd- ur greiða að meðaltali um 3 krónur fyrir kílóvattsstundina, þrátt fyrir að á Islandi sé notkun lýsingar í garðyrkju tvöfalt meiri en í Dan- mörku. „Ef við ætlum að verða sam- keppnisfærir hvað orkuþáttinn snertir þarf orkuverðið að lækka jafnvel niður í tvær krónur fyrir kílóvattstundina," sagði Magnús. Aðspurður sagði Magnús að ef lýsing í garðyrkju yrði aukin eins og spáð hefur verið bætist fjórir mánuðir við ræktunar- og upp- skerutíma grænmetis á ári frá því sem nú er og vinnuafisþörfin gæti þ.a.l. aukist um 15-20%. * Oskarsverðlaunin afhent annað kvöld: Börn náttúrunnar þykja eiga góða mögnleika á verðlaunum Friðriki Þór boðið að gera sjónvarpsmynd í Bandaríkjunum um samskonar efni Frá Árna Þórarinssyni í Los Angeles. BÖRN náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, þykir eiga allgóða möguleika á að hreppa Óskarsverðlaunin sem besta erlenda myndin við afhendinguna annað kvöld eftir því sem Morg- unblaðið kemst næst i samtölum við ýmsa aðila hér í Hollywood. „Það er alltaf erfitt að spá um þessi úrslit, en samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið frá töluverðum fjölda fólks úr akademíunni, sem velur sigurvegarann, er full ástæða til að vera bjartsýnn," sagði Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframieiðandi í samtali við blaðið. Talsmaður kynningarfyrirtækis Barna náttúr- unnar hér tók í sama streng: „Viðbrögðin eru mjög uppörvandi. Við gerum okkar góðar vonir.“ Einn af meðlimum akademíunnar sagði: „Mér sýnist mest samstaða ríkja um íslensku myndina.“ Jim Stark, framleiðandi næstu myndar Friðriks Þórs, sagði: „Mér heyr- ist að mynd Friðriks Þórs sé heitust." Öllum ber þó saman um að ekk- ert sé öruggt í þessu sambandi. Rauða luktin frá Hong Kong hefur einnig þótt sigurstrangleg en möguleikar hennar hafa farið minnkandi. Hún þykir of umdeild fyrir akademíuna sem talin er frek- ar íhaldssöm. Sænska myndina Uxinn, fyrsta leikstjórnarverkefni hins þekkta kvikmyndatökumanns Sven Nykvist, nýtur persónu- fylgis hans. Nykvist hefur starf- að töluvert hér í Bandaríkjunum og er virtur af starfssystkinum sínum. Tékkneska myndina- Grunnskólinn þykir góð mynd en hefur hlotið litla kynningu og geldur þess. Italska myndin Mediterraneo nýtur minnstrar hylli en hefur hins vegar hlotið allgóða kynningu og er sýnd hér í kvikmyndahúsum. „Ég held að Böm náttúrunnar njóti þess að atkvæði til hinna myndanna dreifast töluvert," sagði Siguijón Sighvatsson. Sjálfur segir Friðrik Þór: „Þótt ég vilji ekki vanmeta Sven Ny- kvist og styrk hans innan aka- demíunnar og þótt ég telji kín- verska leikstjórann að Rauðu luktinni, Zhang Yimou, eiga verðlaunin kannski mest skilið, þá held ég að skæðasti keppi- nauturinn sé tékkneska myndin. Bæði vegna þess að Tékkar njóta hérna mikillar samúðar áf pólitískum ástæðum, myndin þykir góð og ekki síst vegna þess að mjög margir akademíu- félagar eru af tékknesku og ungversku bergi brotnir. Ég tel hins vegar að við höfum staðið okkur allvel í kynningu og sam- kvæmt þeim samtölum sem ég hef átt við akademíufólk, nokkra tugi, höfðar efni Barna náttúrunnar sterkt til þeirra, enda er þetta flest fólk af eldri kynslóð. Ég er frekar bjartsýnn en spyr hins vegar að leikslok- um á mánudagskvöld." Þess má geta að Friðriki Þór hefur borist tilboð um að gera sjón- varpsmynd hér í Bandaríkjunum byggða á sama efni og Börn náttúrunnar en með bandarísk- um leikurum. í gær stóð akademían fyrir málþingi með öllum leikstjórun- um fimm sem tilnefndir voru fyrir bestu erlendu myndina en þeir eru Friðrik Þór, Jan Sverák frá Tekkóslóvakíu, Gabriele Sal- vatores frá Italíu, Zhang Yimou og Sven Nykvist en umræðunum stýrði bandaríski leikstjórinn George Schaefer. Sjá nánar á bls. 16-17. Þau enda hjá okkur ►Rætt við fagfólk á barna- og unglingageðdeildum um málefni vegalausra barna, en sagt er að þau séu nú á milli 20 og 30, þótt mur. fleiri séu álíka illa stödd./ 10 Óskarsstundin rennurupp ►í fyrsta sinn hefur íslensk kvkmynd, Börn náttúrunnar, hlot- ið tilnefningu til Ósarsverðlauna. Arni Þórarinsson er okkar maður í Los Angeles og skrifar hér um verðlaunaafhendinguna og ræðir við höfund myndarinnar, Friðrik Þór Friðriksson, um þann feril, sem nær hápunkti sínum á Óskarsverð- launahátíðinni á morgun./16 Raunhæfur kostur ►Talsmenn áhugahóps um út- flutning á raforku með sæstreng telja nauðsynlegt að hefja undir- búning nú þegar enda muni erlend- ir aðilar fá verkið taki ísiendingar ekki forystuna./20 Fergie féil ekki í kramið ► Um fátt hefur verið meira rætt í heimspressunni að undanförnu en fyrirhugaðan hjónaskilnað þeirra Andrew prins og Söru Ferguson./ 22 í furðuveröld Kafka ►Tékkum er hreint aldeilis sama hvort ferðamenn fá það sem þeir borga fyrir og kerfið hjá þeim er þannig að enginn ber ábyrgð. /44 íþróttir á sunnudegi ► Rætt við Friðrik Inga Rúnars- son, þjálfara nýbakaðra bikar- meistara Njarðvíkinga í körfu- knattleik./46 Bheimili/ FASTEIGNIR ► l-32 Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki ►Viðtal við Einar Einarsson fram- kvæmdastjóra /16 Er leikur að lesa? ►Hvemig fyndist þér að vera húsmóðir og geta aldrei farið eftir uppskrift vegna þess að þú getur ekki lesið hana rétt? Eða leigubíl- stjóri, boðaður að Stangarstekk 16, en bíða endalaust fyrir utan 61? Það er ekki svo ýkja Iangt síð- an farið var að að veita því at- hygli að úrvinnsla heilans á sjón- rænum eða heyrnrænum þáttum erekki öllumjafn eðlileg./ 1 Súpa seyðið af ofveiði ►Dr. Leslie Harris segir frá hruni þorskstofnsins við Nýfundnaland, mistökum við stofnstærðarmat, rányrkju EB og tregðu stjómmála- manna til að fara að tillögum fiski- fræðinga. /8 Óskarsverðlaun í uppsiglingu ►Spáð í sigurvegara 64. Óskars- verðlaunaafhendinganna 30. mars 1992./ 14 Þessi geggjuðu göng ►Jóhanna Kristjónsdóttir blaða- maður skrifar um ferðir sínar í Austurlöndum fjær./16 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 21c Dagbók 8 Fólk í fréttum 26c Hug\>ekja 9 Myndasögur 28c Leiðari 26 Brids 28c Helgispjall 26 Stjðrnuspá 28c Reykjavíkurbréf 26 Skák 28c Útvarp/sjónvarp 48 Bíó/dans 30c Mannlífsstr. 6c Bréftilblaðsins 32c Kvikmyndir 20c Samsafnið 34c INNLENDAR FI ÉTTIR: 2—6—BAK ERLENDAR FRETTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.