Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 20
20
Seei SHAM .GS HUOAQUMVÍU3 GIQAJQMUOflOM
MORGUNBLADIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
UTFLUTNINGUR A RAFORKU MEÐ SÆSTRENG
RAUNHÆFUR
KOSTUR
Nauðsynlegt
að heíja undirbúning
strax, segja talsmenn
áhugahóps
Sæstrengur getur verið 15
til 20 sm sver. Innst er kop-
arleiðarinn, síðan kemur
margfalt lag af sérstökum
örþunnum pappir og síðan
blý og aðrir málmar í nokkr-
um lögum. Sólarhrings-
framleiðsla í sæstrengsverk-
smiðju er kringum 1 km.
usala til Evrópu með þessum hætti
yrði fyrst og fremst á almennan
neytendamarkað en síður til stóriðju
og því er talið að fá mætti sam-
keppnisfært verð miðað við verð á
raforku frá gasaflsstöðvum eða
kjarnorkuverum, að ekki sé talað
um verð á raforku frá kolaorkuver-
um.
Stjórnvöld þurfa að mati áhuga-
hópsins að styðja undirbúningsfélag
sem stofnað yrði til að skilgreina
verkefnið nánar og leggja drög að
stofnun víðtækara félags og kanna
samninga við erlenda samstarfsað-
ila. Undirbúningsfélagið yrði að hafa
skýrt umboð til að hefja þessar
umræður við erlenda aðila.
Raunhæft?
Sæstrengur milli íslands og Skot-
lands, Englands, Þýskalands eða
Hollands yrði langlengsti strengur í
heimi og framleiðsla hans stærsta
verkefni sinnar tegundar. Þess
vegna eiga íslendingar að hafa úr-
slitavald um það hvar strengurinn
verður framleiddur miðað við
ákveðnar forsendur um gæði og
verð.
Engin verksmiðja getur tekið
þetta verkefni að sér í dag. Þess
vegna þarf að byggja nýja og svipað-
ar verksmiðjur hafa undanfarin ár
verið byggðar út um allan heirn, oft
í löndum sem hafa ekki þá tækni-
þekkingu eða verkkunnáttu sem til
er hérlendis. Við ætlum okkur ekki
að keppa við erlenda sæstrengsfram-
leiðendur heldur fá þá til samstarfs
um byggingu og rekstur verksmiðj-
unnar á jafnréttisgrundvelli. Þeir
liafa áhuga á þessu verkefni því ef
þeir geta ásamt okkur náð sérstöðu
við framleiðslu og lagningu á þessum
lengsta sæstreng í heimi þá er það
miklu mikilvægara fyrir þá en sjálf
staðsetning verksmiðjunnar.
Umfang?
Bygging verksmiðjunnar er talin
Framleiðslutími á
1800 km löngum
streng er 4 til 6 ár
Atvinna fyrir 400
til 500 manns
Taki Islendingar
ekki forystu munu
erlendir aðilar fá
verkið
Vinnsluvirði á Is-
landi er um 200
milljarðar króna
Tækifæri til út-
flutnings á tækni-
þekkingu og fram-
leiðslu
HvalQörður, Eyja-
Qörður, Reyðar-
Qörður, Reykja-
nes, Reykjavík
eftir Jóhannes Tómasson
ÚTFLUTNINGUR á raforku frá íslandi til nágrannalanda er
hugmynd sem af og til hefur verið til umræðu hérlendis frá því
hún koin fyrst fram fyrir 40 árum. Landsvirkjun hefur frá árinu
1986 kannað þennan kost og síðustu misseri hefur hópur verkfræð-
inga og annarra áhugamanna kannað tæknilegar leiðir í þessu
sambandi, m.a. framleiðslu á sæstreng hérlendis. Telur þessi
áhugahópur að nú sé kominn tími til að hefja undirbúning því
málið muni eiga sér langan aðdraganda. Telja þeir einnig að
þessi kostur sé fyllilega raunhæfur og að íslendingar eigi að
taka forystu varðandi framleiðslu sæstrengs til að verkefnið lendi
ekki í höndum erlendra fyrirtækja.
Framleiðsla á sæstreng er um-
fangsmikið verkefni, tekur nokkur
ár og hver strengur kostar tugi millj-
arða." Meirihluti þessa vinnsluvirðis
skilar sér hérlendis verði verksmiðj-
an staðsett á íslandi og er því verið
að tala um árlegar tekjur sem svara
til útflutningsverðmætis góðrar
loðnuvertíðar.
Þeir sem undanfarna mánuði hafa
unnið að frumkönnun eru Pálmi R.
Pálmason, Sigurður Þórðarson og
Þorkell Erlingsson frá Verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen hf., Egill
Skúli Ingibergsson frá Rafteikningu
hf., Edgar Guðmundsson og Óli Jó-
hann Asmundsson frá Ráðgjöf og
hönnun sf. auk þeirra Ragnars Árna-
sonar hagfræðings og prófessors og
Egils B. Hreinssonar rafmagnsverk-
fræðings og dósents, en báðir starfa
þeir við Háskóla íslands.
Af hverju?
Við teljum okkur hafa vissu fyrir
því að útflutningur á raforku og
framleiðsla á sæstreng á íslandi í
því sambandi sé arðvænlegt og þjóð-
hagslega hagkvæmt verkefni, segja
talsmenn áhugahópsins. Þá erum við
ekki að tala um að þetta eigi að
koma í staðinn fyrir álver eða ein-
hvern annan kost, þarna er um að
ræða nýjan kost_ í atvinnumálum.
Hérna er ósköp einfaldlega úm að
ræða tækifæri til að skapa okkur
útflutning á tækniþekkingu og fram-
leiðslu, verkefni sem er það um-
fangsmikið að það krefst sérfræð-
inga á sviði tækni, hagfræði, laga
og hvers kyns framkvæmda. Ef Is-
lendingar taka ekki forystu í þessu
máli munu erlendir aðilar reyna að
ná þessu verkefni því það er þegar
ljóst að ílutningur á raforku með
sæstreng á eftir að aukast og vega-
Iengdir eru æ minni hindrun í því
efnj.
Áhugahópurinn telur að framund-
an sé nú að fá stjórnvöld til að taka
ákvörðun um að hefja undirbúning
og leggja í það fjármagn. Lands-
virkjun vinnur þegar að leit að kaup-
anda orkunnar og kannar mögulega
virkjanakosti. Rætt er um að bjóða
500 MW og jafnvel allt að 2.000
MW en í dag er landsframleiðslan
um 700 MW. Yrðu virkjuð 2.000
MW væri búið að virkja helming af
nýtanlegri vatnsorku á íslandi. Ork-
Framleiðsla á sæstreng er vandasamt og seinlegt verk.
<9
Unc irbúi lingi jr Reist verksmiðja F aml< siðsl stre i og ngs pró1 jn -rarr iéiðí útf ;la 2 utnii stre igur ngs
w
-
■
Í;:
-
1991 1992 199J 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 Ár
Yfirlitið sýnir tímasetningu og kostnaðaráætlun verksmiðju sem starfrækt yrði á íslandi til að fram-
leiða streng er flytti 500 MW til Evrópu.