Morgunblaðið - 29.03.1992, Side 4

Morgunblaðið - 29.03.1992, Side 4
4 FRETTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992 ERLEIMT INIMLENT Þýskaland: Viðræður um nýja kjara- samninga Viðræður aðila vinnumarkaðar- ins og opinberra starfsmanna ann- arra en háskólamanna og samninganefndár ríkisins hafa staðið yfir í vikunni. Stjómvöld hafa gefið afdráttarlaust svar að þau komi ekki frekar að samning- um fyrr en á lokastigi þeirra og þegar það var Ijóst var tekin ákvörðun í samninganefndum launþegahreyfingarinnar að halda áfram viðræðurm Hald lagt á5 kíló af hassi Fíkniefnalögreglan lagði hald á fimm kíló af hassi á einum sólar- hring og er söluverðmæti þess á svörtum markaði í Reykjavík áætl- að um 7,5 milljónir króna. um er að ræða tvö mál og eru fimm menn í haldi vegna þeirra. Ráðstafanir gegn atvinnuleysi Samkvæmt minnisblaði sem lagt hefur verið fram í borgarráði er gert ráð fyrir að hægt verði að hafa 150 manns að staðaldri í vinnu yfir fjóra sumarmánuði. Um er að ræða viðhaldsverkefni við skólahúsnæði, skólalóðir, gæslu- velli, íþróttamannvirki og fleira. Forseti ASÍ til Strassborgar Forseti og framkvæmdastjóri Alþýðusambands íslands fóru til Strassborgar á fund embættis- mannanefndar Evrópuráðsins vegna athúgasemda sérfræði- nefndar ráðsins vegna fyrirkomu- ERLENT Afhroð hjá frönskum sósíalistum FRANSKI Sósíalistaflokkurinn galt mikið afhroð í kosningunum til héraðsráða, sem fram fóru síð- astliðinn sunnudag, og fékk ekki nema um 18% atkvæða. Eru úr- slitin túlkuð sem upphafið að endalokum Mitterrand- tímabilsins frönskum stjómmálum og þau boða ekki gott fyrir sósíalista í þingkosning- unum að ári. Forsetakosn- mgar hins Francois verða Mitterrand vegar ekki í Frakklandi fyrr en 1995 og Francois Mitterrand getur því gegnt embættinu þangað til. Annars var það óánægja með pólitíska stöðnun og fjármála- hneyksli hjá stjóm og stjóm- arandstöðu, sem miklu réð í kosn- ingunum og kom meðal annars fram í því, að helstu andstæðing- ar sósíalista, mið- og hægriflokk- ar, töpuðu líka. Helstu sigurveg- aramir vom Þjóðarflokkurinn, öfgaflokkur á hægri væng, og tveir umhverfisvemdarflokkar. Fögnuður í Albaníu MIKILL fógnuður var meðal flestra Albana þegar ljóst var, að Lýðræðisflokkurinn hafði unn- ið stórsigur í þingkosningunum á sunnudag og bundið þar með enda á nærri hálfrar aldar stjórn kommúnista. „Við kveðjum nú kommúnismann í eitt skipti fyrir öll,“ sagði Sali Berisha, formaður Lýðræðisflokksins, en flokkurinn hlaut um 70% atkvæða. Mikið verk bíður nýrra stjómenda í Al- lags á aðild að verkalýðsfélögum hér á landi meðal annars, en sér- fræðinefndin taldi hana ekki í samræmi við félagssáttmála Evr- ópuráðsins sem ísland hefur stað- fest. Ferðin tók innan við sólar- hring vegna þeirra viðræðna sem standa yfir um kjarasamninga og tókst vel að sögn forseta ASÍ. Athugað með sölu á hlut ríkisins í þremur hlutafélögum Einkavæðingamefnd ríkis- stjómarinnar hefur óskað eftir til- boðum fimm verðbréfafyrirtækja í að annast sölu á hlutabréfum ríkisins í Ferðaskrifstofu ríkisins, prentsmiðjunni Gutenberg og Jarðborunum. Áætlað heildarsölu- vermæti hluta§árins er 170-190 milljónir króna. GATT-samningur gæti lækkað búvöruverð um allt að 25% Verð á landbúnaðarvörum sem falla undir drögin að samkomulag- inu um GATT gæti lækkað um 8-25%, allt eftir því hvaða túlkun verður ofan á þegar kemur að því að framkvæma samninginn. Þetta era niðurstöður úttektar Hag- fræðistofnunar Háskóla íslands sem hún hefur gert fyrir Neyt- endafélag höfuðborgarsvæðisins. Tillögur um skattlagningu eignatekna Skattfrelsi vaxtatekna verður afnumið og tekin upp samræmd skattheimta á öllum eignatekjum ef tillögur nefndar sem fjármála- ráðherra hefur skipað ná fram að ganga. Á móti á að fella niður sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og lækka eignaskatta verulega. baníu enda var landið algjörlega einangrað um langt skeið og þar er fátækt mest í Evrópu. Stórhættuleg kjarnorkuver BILUN varð í rússneska kjam- orkuverinu Sosnovíj Bor fyrir sunnan Pétursborg og komst geislavirkt joðgas út í andrúms- loftið. Sló óhug á marga þegar þetta fréttist en mengunin reynd- ist þó minni en óttast var. Athygl- in hefur samt aftur beinst að ástandi kjamorkuvera í samveld- isríkjunum og yfirmaður al- mannavama í Rússlandi lét hafa eftir sér, að kjarnorkuverin væru eins og tímasprengja, sem gæti . sprungið þá og þegar. Vegna lágra launa og annarrar óreiðu hafa þau misst mikið af sérhæfðu starfsfólki og auk þess er mikill varahlutaskortur. Hernaður Tyrkja gegn Kúrdum KÚRDAR í Austur- og Suð- austur-Tyrklandi hafa verið í uppreisnarhug að undanfömu og hafa að minnstá kosti á annað hundrað manns fallið í átökum við tyrkneska hermenn. Hefur tyrkneska stjómin verið sökuð um harðýðgi gegn óbreyttum borguram og erlent hjálparsveita- fólk se'gir, að árásir tyrkneska flughersins á „skæruliðabúðir" í írak hafi í raun verið árásir á konur og böm og aðra óbreytta borgara. Á fimmtudag ákvað þýska stjórnin að stöðva vopna- sendingar til Tyrklands vegna grunar um, að þýsk vopn hefðu verið notuð í herförinni á hendur Kúrdum. Segja þýskir embættis- menn, að Tyrkir hafi viðurkennt þetta við þá þótt þeir neiti því enn opinberlega. Hefur Hans- Dietrich Genscher, utanríkisráð- herra Þýskalands, beðið Portúg- ali, sem eru í forsvari fyrir Evr- ópubandalaginu, að mótmæla aðförinni gegn Kúrdum fyrir þess hönd og hann ætlar að taka mál- ið upp hjá RÖSE, Ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu. Hægt miðar í austri og for- tíðardraugar ríða húsum Helmut Kohl Þýskalandskanslara ákaft fagnað í fyrstu opinberu ferð sinni um austurhluta Þýskalands. Bjartsýnisspár um endur- reisn austurhlutans hafa ekki ræst, fjárveitingar í því skyni verða ekki auknar og ýmsum þykir sýnt að kanslarinn eigi í vök að veij- ast á næstunni. ÞAÐ hefur verið fróðlegt að fylgjast með þýskum málefnum síðan járntjaldið var rofið og sameining hinna beggja hluta landsins varð að veruleika á ný. Fyrstu Trabantarnir fóru að sjást á vestur-þýskum hrað- brautum haustið 1989 á leið inn í vestræna framtíðardrauma. Fjölmargir Austur-Þjóðveijar hafa síðan flutt búferlum vestur á bóginn og margir þeirra hafa nú sagt skilið við Trabantinn og eru jafnvel búnir að kaupa sér Mercedes Benz. Þetta á ekki síst við um þá sem sest hafa að í Bæjaraiandi, þar sem fremur auðveldlega hefur gengið að fá atvinnu. En í austurhlutanum hefur allt gengið hægar. Ekki hefur ræst sú spá hinna bjart- sýnustu að skamman tíma tæki að lyfta efnahagnum þar upp á sambærilegt stig og er í „gömlu sambandslöndunum“. Helmut Kohl kanslari skýrði frá því í síðustu viku að ríkissjóður Þýskalands gæti ekki staðið undir því að fjárveitingar til uppbygging- ar í austurhlutanum yrðu auknar. Áætlað hafði verið að kostnaðurinn vegna endurreisnar í austurhlutan- um yrði 130 milljarðar marka í fimm ár en nú hallast menn að því að hann verði 190 milljarðar marka á ári fram til aldamóta. Atvinnuleysi er gífurlegt fyrir austan (17% á móti 6% fyrir vest- an) og illa hefur gengið að fá vest- ræn fyrirtæki til að fjárfesta í austurhlutanum. Þá hefur gengið hægt að koma sjálfsagðri þjónustu í eðlilegt horf. Þannig vakti það nokkra athygli þegar nýbakaður ólympíumeistari á vetrarólympíu- leikunum í Frakklandi, búsettur í austurhluta Berlínar, sagðist í sjónvarpsviðtali ekki hafa getað hringt í neinn sinna nánustu því enginn þeirra hefði síma. Uppgjör við fortíðina Ofan á annað (t.d. hinn uppsafn- aða mengunarvanda, fjársvikamál kommúnistaflokksins, stuðning fyrri valdhafa við vestræna hryðju- verkamenn og skipulögð morð, t.d. á brottfluttu íþróttafólki) bæt- ist svo sá innri vandi sem fólkið í austurhlutanum þarf að horfast í augu við, en hann er uppgjör við fortíðina. Hér er fyrst og fremst um að ræða pers- ónunjósnir sem voru daglegt brauð í tíð fyrra stjómarforms. Eins og kunnugt er hefur nú verið veittur takmarkaður aðgangur að leyni- skjölum um þessar njósnir, þannig að fómarlömbin mega kynna sér þau skjöl sem snerta þau sjálf. Margt hrikalegt hefur þar komið í ljós. „Nánustu vinir" hafa verið afhjúpaðir sem njósnarar. Sem slíkir koma jafnvel þekktir lista- menn við sögu og aðrir auðvitað sem fórnarlömb. Og læknar hafa gert sig seka um að hafa reynt að bijóta niður „varasama" og „þijóska“ samborgara sína með mannskemmandi „lækningameð- ferð“. Rainer Eppelmann, sem nú er þingmaður kristilegra demó- krata í Bonn, er dæmi um mann sem mikið mótlæti mátti þola en aldrei lét bugast. Hann er nú ný- kjörinn formaður nefndar sem á að komast að niðurstöðu um hvern- ig best sé að vinna úr þessari erfiðu fortíð. Þeir sem hafa orðið uppvís- ir að eða liggja undir sterkum grun um að hafa tekið þátt i samstarfi við öryggisþjónustu austur-þýska ríkisins (Stasi) hafa ekki átt sjö dagana sæla. Fjölmargir háttsettir stjórnmálamenn, þ.á.m. tveir for- sætisráðherrar sambandsfylkja í austurhlutanum (Gerd Gies í Sach- sen-Anhalt og Josef Duchac i Túringen), hafa orðið að segja af sér á síðustu mánuðum. Einn þing- maður í Bonn, Gerhard Riege, fyr- irfór sér um miðjan febrúar sl. þegar böndin tóku að berast að honum. Fyrrverandi forsætisráðherra í millibilsstjóm Austur-Þýskalands, kristilegi demó- kratinn Lothar de Maziére, neydd- ist ekki alls fyrir löngu til að segja af sér þing- mennsku í Bonn og draga sig al- veg í hlé frá opin- beram störfum vegna þráláts orð- róms um að hafa starfað fyrir Stasi. Og nú er mjög vegið að for- sætisráðherranum í fylkinu Brandenburg, jafnaðarmanninum Manfred Stolpe, fyrir svipaðar sak- ir. Stolpe hefur varist fimlega; hann viðurkennir að hafa átt fundi reglulega með Stasi en kveðst aldrei hafa valdið neinum manni skaða, heldur hafi hann þvert á móti reynt að gera fólki lífíð bæri- legra innan þess kerfis sem það bjó við. Stolpe starfaði innan vé- banda lútersku kirkjunnar, og nú hefur komið í ljós að þrátt fyrir samstarf hans við Stasi var honum ekki treyst betur en svo að menn voru gerðir út til að njósna um hann. Stolpe þorir að fara eigin leiðir og hefur t.d. nýlega gengið þvert á vilja flokkstjómar jafnað- armanna og greitt atkvæði með ríkisstjórn kristilegra og fijáls- lyndra (stjóm Kohls kanslara) af því hann taldi sig þannig þjóna betur hagsmunum manna í aust- urhluta landsins. En pólitísk fram- tíð hans er enn í mikilli óvissu. Sérstök þingnefnd í Brandenburg hefur nú verið skipuð til að rann- saka fortíð hans. Vissulega á Stolpe samúð margra. Menn segja sem svo að hann hafi eins og fleiri neyðst til að dansa með í því and- rúmslofti sem þarna ríkti í 40 ár en jafnframt lagt sig fram um að bæta það. Ef leggja eigi slíka menn í einelti verði enginn endir á hinum þýska harmleik. Stolpe er nú einn eftir þeirra forsætisráð- herra fylkjanna í austurhlutanum sem til urðu við sameininguna 1990. Auk hinna tveggja sem get- ið var að ofan neyddist forsætis- ráðherra Meckelnburg-Vorpomm- em, Alfred Gomolka, til að segja af sér um síðustu helgi í kjölfar sölu hinna miklu skipasmíðastöðva við Eystrasalt til einkaaðila sem menn óttast að hafi í för með sér fjöldauppsagnir starfsmanna. Vesturförum bættur eignamissir Enn eitt mál er mjög til umræðu um þessar mundir en það er hvern- ig fara eigi með þær eignir í austurhluta Þýskalands sem vesturfarar neyddust til að skilja við. Stundum fengu þeir brottfar- arleyfi með því skilyrði að þeir seldu húseign sína fyrir smáræði. Þáverandi stjóm ráðstafaði þess- um eignum síðan að geðþótta. Sumar þeirra hafa allt frá stríðs- lokum verið í höndum annarra en hinna „réttu“ eigenda. Enn er stefnan sú að þær verði fengnar aftur í hendur fyrri eigendum, en slíkt mun valda ómældum sárind- um, því þeir sem þar búa nú telja sig hafa komist yfir þær löglega. Sláandi dæmi um alvöru þessa máls er að bæjarfulltrúi í Bemau í Brandenburg, Detlev Dalk, svipti sig lífi í byijun þessa mánaðar þegar hann þóttist sjá fram á að hann mundi missa „húseign" sína í hendur fyrri „eigendum". Raddir verða nú æ háværari um að frem- ur beri að borga fyrri eigendum bætur en afhenda þeim (eða af- komendum þeirra) sitt gamla hús- næði. BAKSVID Baldur HafstaA skrifar frá Þýskalandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.