Morgunblaðið - 29.03.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
15
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS KYNNIR HEIMSTÍSKUNA í ^Moaliórn FERÐALÖGUM - NÝJA HEIMSREISU 10* •: v* / V
M -11« I^I @®KI® .=3lH) [I - nsumaJf ÍmmmM © = -= IPHIM^IM® s. - 23. nóvember
HIÐ FULLKOMNA
SUMARLEYFI
MISSTU EKKIAF ÞESSU
ÆVINTÝRIOG TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI STRAX!
Þú gætir ekki látið þetta eftir þér annars stað-
ar fyrir að meðaltali 10 þúsund á dag að með-
töldu flugi, ferðum, lúxusgistingu, fullum morg-
unverði og fararstjórn. Þúsundir íslendinga
eyða meiru í ferðum sínum innan Evrópu ár-
lega. Hvers vegna ekki að breyta til, fylgja
heimstískunni í ferðalögum og kynnast því
besta, sem heimurinn hefur að bjóða í ánægju-
legum félagsskap með Heimsklúbbi Ingólfs?
ÞAÐ BESTA SEM HEIMURINN HEFUR AÐ
BJÓDA í SA-ASÍU:
Malaysia kemur næst eftir Japan af Asíuiöndum, hvað snertir
þjónustu og skipulag, var til skamms tíma „best geymda
leyndarmál ferðamannsins“, en er komin í tísku sem besta
ferðalandið í SA-Asíu.
■am
Álit farþega - úr þakkarbréfi:
j „Við getum ekki orða bundist
|af hrifningu og þakklæti fyrir
|þá ánægju, sem þessar tvær
' heimsreisur hafa veitt okkur.
i Að okkar mati eru ferðir
tHeimsklúbbs Ingólfs í sjálfu
sér listaverk, enda er maður-
inn listamaður, sem gerir allt
Iklassískt sem hann snertir á
og hefur lag á að raða við-
burðum ferðalagsins upp af
fágætri smekkvísi. Það eru
mikil forréttindi að njóta þjón-
ustu og leiðsagnar svona
Jonas og Hanna.
Helstu lcostir:
Þægileg heimsreisa með hæfi-
legri blöndu af skoðun, hvíld og
frítíma, enginn þreytandi akstur
um landið, en flogið milli staða
og það merkasta skoðað í róleg-
um kynnisferðum. Gisting á
bestu hótelum í heimsklassa, að-
eins 4 gististaðir í ferðinni,
minnst 2 nætur, lengst
7 nætur. Beint flug án millilend-
ingar frá London til Kuala Lump-
ur með nýrri Boeing 747-400 frá
Malaysian, einu besta flugfélagi
heimsins. Hægt að framlengja
og heimsækja fleiri borgir í land-
inu eða Austur-Asíu.
Eftirsóttustu staóirnir:
★ KUALA LUMPUR - Gist á
nýju lúxushóteli CROWN PRIN-
CESS á besta stað í borginni, inn-
angengt í eina bestu verslunar-
miðstöðina. Borgin er spennaAdi
og blanda af mörgum stiltegund-
um nýja og gamla tímans, borg
grænna, blómstrandi garða, lýst
í öllum regnbogans litum á kvöld-
in, ótrúlegt vöruúrval, lægsta
verðlag í Austurlöndum
★ BORNEO - Einstakt land-
könnunarævintýri. Flug til Kota
Kinabalu, höfuðborgar Sabah,
gist 3 nætur á 5A Shangri-La-
TANJUNG ARU hótelinu í nánd
við eina mestu náttúruparadís
heimsins. Ferð í þjóðgarðinn, þar
sem Rafflesian vex, stærsta blóm
heimsins, stofupottablómin verða
nokkurra mannhæða há úti i
villtri náttúrunni, og flug til Sand-
akan að sjá „skógarmanninn",
orangutan apann, í elstu regn-
skógum heimsins, stauraþorp
fiskimanna og ótrúlegt samspil
náttúru og mannlífs, sem hvergi
sést annars staðar í nútímanum.
★ SINGAPORE - 2 nætur á einu
besta hóteli heimsins, MANDAR-
IN SINGAPORE, við aðalverslun-
argötuna í þessari verslunar-
paradís í einu þróaðasta smáþjóð-
félagi heimsins með hreinlæti sem
tekur öllu fram, blómadýrð, þjón-
ustu i heimsklassa og sælkeralíf
af hæstu gráðu.
★ PENANG - Vinsælasti dvalar-
staður Malaysíu er hin fagra eyja
Penang, sem kölluð er „Perla
austursins" með drifhvítar pálma-
strendur. Þar býðst gisting á sér-
kjörum á einu besta hóteli heims-
ins, MUTIARA, í heila drauma-
viku. Mutiara þýðir perla, og hót-
elið er því perla perlanna í Aust-
urlöndum. Það finnst ekki betra,
þótt ódýrari hótel standi einnig
til boða.
HVAÐ HEFUR MALAYSIA AÐ BJÓÐA?
★ Hótel og þjónustu í hæsta gæðaflokki
★ Lágt verðlag, vandaðan, fallegan iðnvarning, silki,
batik, skrautmuni á lægra verði en annars staðar.
★ Fagran, litríkan hitabeltisgróður, gnótt ávaxta, góm-
sætan mat á lágu verði.
★ Traust, vel skipulagt þjóðfélag og fjölþætta menningu
af 4 ólikum stofnum og þjóðernum, sem lifa og starfa
saman í sátt og samlyndi.
★ Friður, vinsemd, iðjusemi, framfarir og hreinlæti ein-
kennir lífsstíl landsins.
★ Þægilegt loftslag í nóvember eftir Monsúnregnið,
sólríkt, hiti 25-27 °C.
★ ÓSKALAND FYRIR FERÐAMANNINN - DRAUMA-
FERÐ HJÁ HEIMSKLÚBBNUM Á LÁGU VERÐI!
Kynning i Arsal Hótels Sögu
kl. 16.00 i dag
með aðstoð MALAYSIAN AIRLINES og Ferðamálaráðs
Malaysíu. Ingólfur Guðbrandsson segir frá Malaysíu,
lýsir ferðinni og sýnir myndir. Aðgangur ókeypis, kaffi-
veitingar seldar við inngang. Aætlun fyrirliggjandi
ásamt ágætum ferðabæklingum um hið fagra land, einn-
ig nýútkomin áætlun Heimsklúbbsins.
Gestir á kynningunni fá lukku-
miða, sem hljóðar upp á 150 þús.
kr. ferðavinning í happdrætti.
Upplýsingar og pantanir á staðn-
um að kynningu lokimii.
AUSTURSTRÆTI 17, 4. hæð 101 REYKJAVÍK
SÍMI620400-FAX 62&S64
HEIMSKLUBBUR
INGÓLFS