Morgunblaðið - 29.03.1992, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
VERDDÆMI
og Dagleið á fjöllum. Þær eyjar sem
listakonan sér fyrir sér eru fjöllin
sem rísa úr svörtum sandinum; þær
dagleiðir sem ber fyrir augu eru
þessi sömu fjöll, sem rísa hvert upp
af öðru, þannig að alltaf er önnur
dagleið framundan.
En þessi viðfangsefni eru tilvís-
anir en ekki staðarlýsingar. Stund-
um eru þetta svipir landsins og
þess einstaka litaspils sem þar er
að finna, eins og sést í myndinni
„Kvöldsól 3 (nr. 29), en í öðrum
tilvikum er á ferðinni fullkomlega
óhlutbundin úrvinnsla þess fjöl-
breytileika sem víða er að finna á
ólíklegustu stöðum, t.d. í jökulbrot-
um (sbr. nr. 3 og 45). í myndunum
nær listakonan einnig að láta tauma
krossviðarins vinna skemmtilega
með formunum, þannig að hin lá-
réttu eða lóðréttu áhrif magnast
upp á tilætlaðan hátt.
Þetta er vel heppnuð sýning frá
hendi Hafdísar; henni hefur tekist
vel til við úrvinnslu formanna og
litasamspilið er einnig eftirtektar-
vert. Hinir fjölbreyttu bláu og
steingráu litir minna sterkt á auðn-
ina hið efra, og fínlegur blæbrigða-
munur er oft nóg til að vísa til
ólíkra tíma, dags og nætur, sumars
og vetrar. Þetta tekst þeim einum
sem hefur næma tilfínningu fyrir
þeirri upplifun sem íslenska eyði-
mörkin býður upp á.
Sýning Hafdísar Ólafsdóttur í
Norræna húsinu stendur til sunnu-
dagsins 5. apríl, og er rétt að hvetja
listunnendur til að skoða þessa sýn-
ingu.
ur Hins ís-
lenska náttúru-
Fræðslufund-
fræðifélags
ÞRIÐJI fræðslufundur HÍN á
þessu ári verður haldinn mánu-
daginn 30. mars kl. 20.30. Fund-
urinn verður að veiyu haldinn í
stofu 101 í Odda, Hugvísindahúsi
Háskólans. Á fundinum heldur
dr. Karl Gunnarsson erindi sem
hann nefnir: Þarinn í Breiðafirði.,
I fyrirlestrinum ætlar Karl að
greina frá rannsóknum sínum á
þaragróðri í Breiðafirði og er þar
um mjög mikið brautryðjendastarf
að ræða. Hann hefur kafað mikið
við rannsóknir og mun sýna neðan-
sjávarmyndir af lífríkinu þar. í
Breiðafirði eru tvö ólík afbrigði af
hrossaþara og eitt af stórþara, sem
mótast af brimasemi og straumum.
Vöxtur beggja tegundanna er árs-
tíðabundinn með hámarki í byrjun
sumars. Hann er fjölær og nær stór-
þarinn meira en 20 ára aldri og
hrossaþarinn lifir yfir 10 ár. Vaxt-
arhraði og stærð fullorðinna
plantna er mun meiri á Breiðafirði
en þekkist annars staðar. Blöðkurn-
ar á þaranum endurnýjast á hverju
ári og er framleiðni hans mjög há.
(Fréttatilkynning)
Samtök her-
stöðvaandstæð-
inga 20 ára
DAGSKRÁ verður á Hótel Borg
mánudaginn 30. mars kl. 20.30 á
vegum Samtaka herstöðvaand-
stæðinga í tiléfni þess að í ár eru
samtökin 20 ára.
Á dagskrá verður upplestur úr
verkum Fríðu Á. Sigurðardóttur,
ávarp Nikulás Ægissonar, háskóla-
nema í Keflavík, Sigrún Björnsdótt-
ir syngur Brecht-söngva við undir-
ieik Ragnars Björnssonar, ávarp
Þorgríms Starra Björgvinssonar
bónda, söngur Kristjáns Kristjáns-
sonar og Þorleifs Guðjónssonar,
sýnt verður atriði úr Sölku Völku
flutt af nemendum úr Menntaskól-
anum í Reykjavík og ávarp Sigvalda
Ásgeirssonar skógfræðings. Fund-
arstjóri verður Bergljót Kristjáns-
dóttir kennari.
(Fréttatilkynning)
z
o o
co (/)
< o
_) o X
•X. œ 3
cc Q_j
<
z.
LU
SKEIFAN
|mylla| hagkaup
MIKLUBRAUT
Nú er buid að opna
stórskemmtilega
sérverslun með baðvörur,
flísar og hreinlætistæki.
þar eru aðeins seldar
fyrsta flokks vörur en á,
alveg frábæru verði. í
tilefni af opnuninni er 15 %
afsláttur af öllum vörum
Stálbaðkar 3,5mm 170*75 Verð áður 15.740,-
Veggflísar 15 *20 teg. Lilja Verð áður 2.541,-
Hitastýrt sturtutæki
m/stöng, úðara og barka Verð áður 16.232,-
Gólfflísar 30*30
Hvítt salerni m/setu
LVj'AI íTl Síl Hcir/rJB
Verð nú kr. 1,
Verðáður 2.579,-
Verð áður 15.077,-
Verð nú kr. 1.990,-
Verð nú kr. 12.815,-
Líttu við og gerðu mjög góð kaup
Parma-bad Skeifunni 8 108 Reykjavík Sími 682466
Hafdís Ólafsdóttir
IVIyiidllst
Eiríkur Por/áksson
í Norræna hússins stendur nú
yfir sýning á verkum ungrar lista-
konu, Hafdísar Ólafsdóttur. Hér eru
á ferðinni tréristur, sem Hafdís
hefur unnið út frá þeirri náttúru-
sýn, sem hún hefur öðlast á ferðum
sínum um óbyggðir landsins. Þetta
er önnur einkasýning listakonunn-
ar, en hún hefur einnig tekið þátt
í ýmsum samsýningum á grafík
allt frá 1983, bæði hér á landi og
erlendis.
Á síðasta áratug má segja að
orðið hafi sprenging í þeirri fjöl-
breytni, sem boðið hefur verið upp
á í grafíkinni. Félagið íslensk
grafík, sem nú er rúmlega tvítugt,
á ekki minnstan þátt í þeirri þróun
hér á landi, en jafnframt hefur
íslenskum listunnendum verið boðið
upp á fjölbreyttar erlendar grafík-
sýningar síðustu ár, t.d. bæði frá
Norðurlöndunum og frá Banda-
ríkjunum. íslenskir listamenn hafa
leitast við að þróa persónuleg vinnu-
brögð, og þannig gert grafíkina að
mikilvægum þætti íslenskrar mynd-
listar.
í upphafi síns ferils mun Hafdís
hafa fengist við sáldþrykk, en skipti
eftir nokkur ár yfir í tréristurnar.
Hún vinnur með krossvið, sem hún
sagar niður og ristir í, og þrykkir
síðan með á pappír. Útkoman er
fjölbreytt; hvert verk er sett saman
úr mörgum þrykkjum, þar sem litir
skína í gegn og vinna saman, og
mynda loks vefi og mynstur fyrir
augum skoðenda í yfirborði mynd-
anna. Tréð nýtur sín oft vel í þeim
litum og formum sem listakonan
velur myndunum, þannig að oft
minna þær frekar á fjölskrúðugan
vefnað en hefðbundin grafíkverk.
Eins og fyrr segir sækir Hafdís
sitt myndefni að mestu inn til há-
lendisins, til fjalla, sanda og jökla.
Hún vinnur verk sín m.a. í nokkrum
myndaflokkum, sem hún gefur nöfn
eins og Eyjar, Hausttré, Jökulbrot
Hafdís Ólafsdóttir: Dagleið á
fjöllum, trérista, 1992.
arm