Morgunblaðið - 29.03.1992, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MINIUIIUGAR SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
— — —;—:------------|— ;-------------------------
Agnes Jónína Arna-
dóttir - Minning
Fædd 29. júlí 1927
Dáin 18. mars 1992
Hún elsku amma okkar er dáin.
Okkur langar til að kveðja hana
með nokkrum hlýjum orðum.
Amma var alveg einstaklega góð
kona, og alltaf var amma til í að
gera eitthvað fyrir okkur. Það var
alltaf svo gaman að koma til henn-
ar, hún kenndi okkur margar vís-
ur, stundum sungum við vísur eða
lög á meðan hún spilaði undir á
píanó.
Hún kenndi okkur líka á píanó.
Yfirleitt komum við til hennar á
leið heim úr skólanum, og þá átti
amma alltaf eitthvað handa okkur.
A sunnudögum þegar við komum
til ömmu þá bakaði hún alltaf
pönnukökur handa okkur.
Okkur fannst alitaf gaman að
fara í sendiferðir fyrir hana því
þá fengúm við uppáhaldið okkar
fyrir sem var súkkulaðibúðingur,
hún vissi alltaf hvað okkur þótti
best. En nú er elsku amma farin
til guðs og kemur ekki aftur, en
við minnumst elsku ömmu að eilífu.
Við kveðjum ömmu með þessari
bæn.
Nú legg ég augun aftur,
6, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka,
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson)
Agnes María Pétursdóttir,
Edith Þóra Pétursdóttir,
Sigurbjörg Skúladóttir,
Petrúnella Skúladóttir,
Hörður Þór Guðjónsson og
Hrafnhildur Guðjónsdóttir.
í dag, laugardaginn 28. mars,
verður borin til grafar frá Grinda-
víkurkirkju Agnes Jónína Arna-
dóttir. Hún lést að heimili sínu á
Staðarhrauni 2, Grindavík, 18.
mars sl. Agga, eins og hún var
alltaf kölluð, var innfæddur Grind-
víkingur. Ég kynntist henni fyrir
14 árum er dótturdóttir mín og
fósturdóttir trúlofaðist syni hennar
Pétri Rúnari og urðu þau kynni
góð. Agga var vei gefin kona, víð-
lesin og mikill tónlistarunnandi
enda spilaði hún vel á píanó og
fleiri hljóðfæri. Hún flíkaði ekki
sínu, en var mjög traust kona.
Eftirlifandi eiginmaður hennar
er Haukur Guðjónsson skipstjóri,
einnig innfæddur Grindvíkingur.
Þau gengu í hjónaband 27. október
1956. Þau eignuðust fjögur böm
saman en hún átti dóttur áður.
Börnin þeirra fjögur búa öll í
Grindavík en Helga dóttir hennar
býr í Reykjavík, svo það var náið
samband milli heimilanna. Barna-
börnin eru orðin átta talsins, frá
17 ára til 7 mánaða. Þau komu
mikið til ömmu um leið og þau
komu úr skólanum og alltaf var
amma heima og tíndi eitthvað gott
í börnin, enda er söknuður þeirra
mikill nú. Nafna hennar 12 ára
gömul hefur átt mjög erfitt undan-
farna daga því tómlegt er núna á
Staðarhrauni 2. Við Páll viljum
þakka henni að leiðarlokum góð
kynni þessi fáu ár sem við áttum
samleið með henni.
Kæri Haukur, við vitum að miss-
ir þinn er mikill, en þú átt góð
börn, sem .styrkja þig á þessu
erfiða tímabili hjá ykkur. Við send-
um þér, börnum þínum, tengda-
börnum og barnabörnum og öðrum
ættingjum okkar innilegustu sam-
úð og biðjum Guð að styrkja ykkur
öll í ykkar miklu sorg.
Ég kveð Öggu með orðum
skáldsins V. Briem.
Blessuð sé minning hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir alit og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Dóra Friðriks.
Við andlátsfregn Agnesar J.
Árnadóttur, sem lést 18. þ.m.,
komu mér þessar ljóðlínur Jónasar
Hallgrímssonar í hug.
Og vinir berast burt á ttóians straumi
og blómin fölna á einni hélunótt.
Þeir eru margir vinirnir og sam-
ferðafólkið sem kvatt hafa nú á
skömmum tíma. Endurminningin
um þá er áleitin og hefur tekið sér
rúm í huganum, fer ekki á burt
né gleymist, hún varðveitist og
yljar um ókomin ár.
Ég kynntist Öggu í Gárði eftir
að ég hafði gerst skáti. og fengið
gítar í fermingargjöf. Ég vissi að
t
Móðir okkar,
LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vesturgötu 14,
Keflavtk,
andaðist í Landspítalanum laugardaginn 28. mars.
Hermann Friðriksson,
Vilmundur Árnason,
Sigrún Árnadóttir,
Jóhanna Árnadóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar og móður okkar,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR
frá Litla-Landi,
Vestmannaeyjum.
Ögmundur Ólafsson og börn.
Legstelnar
Framleiðum alfar stærðir og gerðir af iegsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
8
S.HELGASONHF
hún kunni að spila á gítar og bað
hana að kenna mér nokkur grip
og var það auðsótt mál.
í nokkur skipti þrammaði ég úr
Þórkötlustaðahverfinu í tíma til
Öggu, taldi það ekki eftir mér ef
það mætti betrumbæta undirleik-
inn á skátafundunum. Svo liðu
árin. Við ungu konurnar í kven-
félaginu brugðum oft á leik þegar
kvöldvökurnar voru haldnar, þá
var spilað, leikið, sungið og dans-
að. Agga æfði nokkur lög sem við
stelpurnar sungum, svo dansaði
allur kvennaskarinn þegar Agga
spilaði á harmonikkuna sína í lokin
í Gamla-Kvennó.
Agga var alltaf reiðubúin að
gefa sér stund til að æfa með okk-
ur nokkur lög, ef eitthvað stóð til
hjá kvenfélaginu eða í hjóna-
klúbbnum.
Agga lumaði oft á frumsömdu
efni, en var ekki að flíka því. í
kvenfélaginu vár Agga svipmikill
félagi, lét skoðanir sínar í ljós, lagði
öllum góðum málum lið. Sérstak-
lega það er varðaði þetta byggðar-
lag og henni voru málefni kirkjunn-
ar ofarlega í huga hveiju sinni. Á
síðastliðnu ári komu ferminga-
systkini hennar og Hauks saman
á heimili þeirra, og voru þá liðin
50 ár frá því þau fermdust. Ákváðu
þau af því tilefni að minnast kirkj-
unnar með peningagjöf.
Síðustu árin höfum við Agga
verið spilafélagar og komið saman
á heimilum okkar eða í safnaðar-
heimilinu til að spila. Ég veit að
hún naut þess að koma á spilafund-
ina, en í vetur hefur heilsuleysi
hennar verið þess valdandi að hún
gat ekki sinnt þessu áhugamáli
sínu sem skyldi.
Agga var vel heima í því er laut
að tónlist og þjóðlegum fróðleik.
Hún flutti gjarnan kjarngott efni
á kvenfélagsfundum, sögukorn eða
brot úr æviminningum.
Lestur hennar skildi alltaf eitt-
hvað eftir sig. Hún var fundvís á
það sem leiddi hugann að gamla
tímanum og hún var ávallt sjálfri
sér samkvæm. Nú þegar kveðju-
stundin er komin vil ég þakka sam-
fylgdina. Guð blessi minninguna
um Agnesi J. Árnadóttur.
Eiginmanni börnum og öðrum
ástvinum votta ég samúð mína.
Guðveig Sigurðardóttir.
Okkur langar til að minnast í
örfáum orðum elsku tengdamóður
okkar, Agnesar Árnadóttur, sem
lést 18. mars sl; Hún verður jarð-
sett frá Grindavíkurkirkju í dag.
Agnes, eða Agga eins og hún
var kölluð, fæddist í Grindavík 29.
júlí 1927 og ólst upp í Garði í
Kveðjuorð:
Sverrir Jónsson
Fæddur 22. mars 1924
Dáinn 4. mars 1992
Þann 4. mars sl. lést á Borgar-
spítalanum í Reykjavík Sverrir
Jónsson eftir erfiða sjúkdómslegu.
í dag, 22. mars, hefði Sverrir
orðið 68 ára gamall og því langar
okkur til að minnast hans á fáum
orðurn.
Eftirlifandi eiginkona Sverris er
Guðrún Ólafsdóttir, eða Dódó, eins
og hún hefur alltaf verið kölluð.
Sverrir var mjög vel giftur maður
og voru þau hjónin með eindæmum
samhent og var varla annað þeirra
nefnt á nafn nema hins væri getið
líka, Sverrir hennar Dódó eða Dódó
hans Sverris. Hjartagæska þeirra
hjóna hefur ávallt veríð slík að orð
fá ekki lýst. Besta dæmið um það
er að þau báðu um að vera afi og
amma sonar okkar þó svo að eng-
inn skyldleiki sé með okkur. Enda
hefur Einar Þór alltaf kallað þau
Sverrir afa og Dódó ömmu. Það
var erfitt verk að útskýra fyrir
barninu að Sverrir afi væri dáinn.
Það voru svo margar spurningar
sem vöknuðu hjá barninu sem erf-
itt varð að finna svör við.
Elsku Dódó, við sendum þér og
fjölskyldu þinni okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Þó elsku Sverrir afi sé kominn
til Guðs þá langar okkur samt til
þess að óska honum til hamingju
William J. Vouté kaup-
sýslumaður - Minning
Nýlega lést í New York kunnur
kaupsýslumaður þar í borg, sem
tengdur var íslandi. William J.
Vouté, frá Bronxville, N.Y., var
53 ára, er hann lést. Banamein
hans var bráðakrabbamein. Bill
Vouté, eins og hann var nefndur
í vinahópi, kynntist mörgum ls-
lendingum á síðari árum, eftir að
dóttir hans giftist Pétri, syni Bar-
böru og Ivars Guðmundssonar,
fyrrverandi aðalræðismanns ís-
lands í New York.
William Vouté helgaði sig, eink-
um hin síðari ár, margskonar góð-
gerðarstarfsemi og studdi m.a.
menntamál af mikilli rausn.
Hann var lengi varaformaður
stóra fjármálafyrirtækisins Salom-
on Brothers í New York, en sagði
starfi sínu þar lausu fyrir nokkrum
árum og helgaði sig fyrst og fremst
góðgerðarstarfseminni.
Utför Williams Vouté fór fram
frá St. Patricks dómkirkjunni í
New York. Athöfnina annaðist
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ODDGEIR BÁRÐARSON
fyrrverandi sölustjóri,
Hvassaleiti 56,
Reykjavík,
lést í Landakotsspítala þann 27. mars.
Sesselja Kristin Kristjónsdóttir,
Jón Rúnar Oddgeirsson, Ásta.Karlsdóttir,
Bára Björg Oddgeirsdóttir, Gunnar G. Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Grindavík. Hún giftist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Hauki Guðjóns-
syni frá Höfn í Grindavík, 27. októ-
ber 1956. Eignuðust þau fjögur
börn saman en eina dóttur átti
Agga fyrir, og eru barnabörnin nú
orðin átta.
Agga var mikil félagsvera, hafði
gaman af að taka í spil og spilaði
mikið á píanó sem hún hafði á
heimili sínu, einnig sýndi hún mál-
efnum kvenfélags Grindavíkur og
Grindavíkurkirkju mikinn áhuga.
Barnabörnin áttu alltaf vísan
stað hjá henni og oft komu þau
við hjá ömmu á leið heim úr skólan-
um, og alltaf átti amma eitthvað
góðgæti að gefa þeirn, enda er
söknuður þeirra mikill. Okkur
tengdabörnunum reyndist hún
mjög vel, var alltaf boðin og búin
að aðstoða okkur á allan hátt, og
bar hag okkar mjög fyrir btjósti.
Við kveðjum hana með söknuði og
þökkum henni allar stundirnar sem
við áttum saman. Megi góður guð
varðveita hana, og styi'kja eigin-
mann, börn og barnabörn í þeirra
miklu sorg. Blessuð sé minning
hennar.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja,
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V.Briem)
Þórný, Dóra og Skúli.
Röng mynd birtist með grein-
unum í blaðinu í gær og eru
aðstandendur og lesendur blaðs-
ins beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
með afmælið, því við vitum að
hann fylgist með okkur.
Valur, Heiða og Einar Þór.
O’Connor’s kardináli, sem minntist
hins látna og góðgerðarstarfsemi
hans með mörgum fögrum orðum.
M.a. gat kardinálinn þess, að Bill
Vouté hefði komið að máli við sig
er hann var tæplega fimmtugur,
og sagt séi', að hann hefði í hyggju
að gefa mest af því sem hann hefði
aflað til þurfandi manna og stofn-
ana. Kardinálinn minntist þess t.d.,
að Bill Vouté hefði stofnað sjóð til
styrktar einstæðum vanfærum
konum, sem hefðu komist á vonar-
völ í lífinu.
•
Tilgangur sjóðsins var að
styrkja einstæðar vanfærar konur
til náms í atvinnugrein, eða grein-
um, sem veitti þeim kunnáttu til
verks eða verka, og sem gæti aflað
þeim og barni þeirra lífsviðui'vær-
is, eftir barnsburðinn.
Hin rúmmikla kirkja St. Patricks
á Fimmtu tröð í New York var
eins þéttsetin við jarðarförina og
frekast var unnt, enda gat
kardinálinn þess að hann hefði
aldrei fyrr séð kirkjuna jafn þétt
skipaða við jarðarför.
I heimabæ Williams Vouté,
Bronxville, sem er skammt fyrir
norðan New York borg, var hans
virðulega minnst af miklum mann-
fjölda, sein stóð í vöðum fyrir utan
Vouté-heimilið í kalsaveðri, til að
votta ijölskyldunni samúð sína.
J.G.