Morgunblaðið - 29.03.1992, Side 33

Morgunblaðið - 29.03.1992, Side 33
S66I SflAM .es; aU0A(llJKWU8 RAdWUAUim aiGAjamjojiOM MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992 Kristjana Guðfinns dóttir - Kveðja Fædd 17. september 1900 Dáin 22. mars 1992 Þegar nóttin var bjartur dagur þegar trén héldust í hendur / þegar spegilmynd fuglsins gáraði vatnið þegar vatnið speglaðist í augum þínum þegar tillit þitt var geisli í gárum þeirra þegar rætur okkar fléttuðust hver um aðra þegar laufið gægðist útí fyrirheit vorsins, þá var ekkeit myrkur þá var engin nótt þá var enginn dauði. (Viðljóð I úr Tveggja bakka veður e. Matthías Johannessen.) hinstu stundar og fylgdist með öllum afkomendum sínum og því sem við vorum að fást við hverju sinni, m.a. klippti hún út úr dag- blöðum og hélt til haga fréttum er tengdust íþróttaiðkun okkar barnabarnanna. Þá mundi amma einnig eftir öllum afmælisdögum fjölskyldunnar og var þá óspör á aurinn eins og hún kallaði pen- inga, því ekki væri nú víst að guði þóknaðist að hún lifði annan afmælisdag. Amma var handlagin þrátt fyrir liðagigtina sem hún þjáðist af síð- ustu áratugina. Hún pijónaði á okkur vettlinga og hosur, dúkku- föt eftir pöntunum, seinna fór hún svo að föndra með öldruðum, m.a. búa til bastkörfur, leirmuni og mála á pottaleppa, svuntur o.fl. Ótrúlegt var hve mikið hún nostr- aði við þessa hluti og skipti hún þeim bróðurlega á milli okkar og passaði að hver fengi nú sitt. Mikið skap hafði þessi netta' kona og ekki gafst hún upp fyrr en í fulla hnefana. Hún vildi eyða ævikvöldinu á heimili sinu og mátti ekki heyra á það minnst að sækja um pláss á elliheimili. Hver sá sem það gerði gat átt von á því að lenda úti í kuldanum. Þó fór það svó að síðustu tvö árin varð amma að dvelja á sjúkra- stofnunum og þó hugsað væri vel um hana var hún ekki sátt við þessa ráðstöfun. En nú er kveðju- stundin komin og við viljum þakka fyrir að hafa notið samvista við ömmu okkar öll þessi ár, hún hafði svo sannarlega mikið að gefa. Við höfum kvatt margar kistur lotið höfði við margar grafir þagað saman. Enn um stund munum við haldast í hendur stefna saman að ótekinni gröf en þangað til moldin hvílir þessi lúnu aup verður engum vörnum við komið: undanhald samkvæmt áætlun úr einni von í aðra. (Viðljóð VI úr Tveggja bakka veður e. Matthías Johannessen.) Auður, Guðrún, Kristjana, Björk og Bárður Harðarbörn. Nú hefur hún amma okkar Kristjana Guðfinnsdóttir eða amma vesturfrá eins og við kölluð- um hana kvatt þennan heim, södd lífdaga. Henni reyndist lífíð ekki alltaf létt, hún og afí okkar Hafliði Jó- hann Jónsson misstu tvö ung börn, Guðfinn og Auði, en upp komust Hörður, Haukur og Ómar. Afi dó síðan 1951 rúmlega fímmtugur að aldri og fengum við því ekki að njóta hans. Faðir okkar, Hörð- ur, lést svo fyrir tæpum 10 árum og reyndist það ömmu afar þung- bært. En við systkinin eigum margar góðar minningar tengdar ömmu. Oft áttum við rólega stund hjá henni, hún sagði okkur sögur, las . fyrir okkur og kenndi okkur bænir. Þá var einnig gaman að leika úti í „porti“ hjá henni við Ásvalla- götu, fylgdist amma þá vel með okkur, stóð vörð úti í glugga og var tiibúin að kalla ef hún sá hrekkjusvín nálgast. Það skyldi enginn gera hennar barnabörnum mein. í augum hennar vorum við prinsessur og prinsar og ekkert var nógu gott fyrir okkur. Á unglingsárunum fannst okkur spennandi að fá að liggja í ástar- sögum hjá henni, en hún átti nóg af þeim. Alltaf fengum við líka að fara út í búð og kaupa gos- drykk og smá góðgæti þegar við vorum í heimsókn enda vissi hún að þess háttar var sparað við okk- ur heima við. Amma var stálminnug allt til Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætis sími 19090 VINKLAR Á TRÉ HVERGI LÆGRI VERÐ ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI EINKAUMBOÐ £8 Þ.ÞORGRÍWISSON & CO Ármúla 29 - Reykjavík - simi 38640 Þú svalar lestrarböif dagsins ású)um Momzans! Sannkallaður eðalvagn á ótrúlega góðu verði. Nissan Prímera 2.0 SLX 16 ventla með öllum aukabúnaði á aðeins kr. 1.320.000 stgr. * Bílasýning í Reykjavík og á Akureyri laugardag og sunnudag kl. 1400 - 1700 Verð án ryðvarnar og skráningagjalds. Ingvar Helgason hf. Sævarhöföa 2 sími 91-674000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.