Morgunblaðið - 29.03.1992, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJOIMVARP SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
49
SUNNUDAGUR 29. MARZ
SJONVARP / MORGUIMN
jLfc
Ty
9.00
9.30
10.00
10.30
11.00
11.30
12.00
12.30
13.00
13.30
12.50 ► HM i handknattleik. Bein út- sendtng trá keppni um þriðja sætið í B- heimsmeistaramótinu í handknattleík i Vín- arborg. (Evróvision-Austurríska sjónvarpið)
9.00 ► Maja býfluga. 9.50 ► Flauelskaninan. 11.00 ► Flakkað um fortíðina. (Rewind: Moments 12.00 ► Eðal- 12.30 ► Bláa byltingin. (Blue Revolution) Lokaþáttur
WÆSTÖÐ 2 Teiknimynd með íslensku Ævlntýri. in Time) Derek Conrad a í vandræðum með að tónar. Endur- myndaflokksins um lífkeðju sjávar.
tali. • 10.10 ► Sögurúr selja verðlaunahestinn sinn, Torka, sem hefurverið tekinn tónlist- 13.25 ► Straumar. Litlð inn i Hafnarborg, menningar-
9.25 ► Litla hafmeyjan. Andabæ. honum mjög erfiður. Sú eina sem trúir á unga arþáttur. miðstöð þeirra Hafnfirðinga . Þessi þátturvaráðurá
Teiknimyndaflokkur eftir 10.35 ► Soffía og Virg- gæðinginn er dóttir hans, Alanna og vinur hennar dagskrá 24. júní 1990.
sögu H.C. Andersens. inia. Elliott. 13.55 ► ítalski boltinn.
SJÓNVARP / SÍÐDEGI
14.30
15.00
15.30
16.00
14.30 ► HM íhandknattleik. Keppni um þriðja sætið í B-heimsmeistaramót-
inu. Framhald.
14.50 ► HM íhandknattleik. Bein útsendingfrá úrslitaleiknum í B-heims-
meistarkeppninni ÍVÍnarborg.
Lýsing Samúel Örn Erlíngsson.
6.30 17.00 17.30 18.00 18.30 1
16.35 ► Ef aðergáð. Tólftl þáttur. III með- 17.50 ► Sunnu- 18.30 ►
ferð á börnum. Um börn og barnasjúkdóma. dagshugvekja. Sagan um
16.50 ► Kontrapunktur. (9:12)Spurninga- 18.00 ► Stundin barnið.
keppni Norðurlandaþjóðanna um sígilda tón- okkar. Börnin i leik- 18.55 ►
list. Að þessu sinni eigast við Svíar og Islend- skólanum Síðuseli á Táknmáls-
ingar. Akureyri syngja. fréttir.
9.00
19.00 ►
Vistaskipti.
(2:25) Banda-
rískur gaman-
myndaflokkur.
STÖÐ2 italski boltinn. Framhald. Bein útsending frá leik i 1. deild ítölsku knattspyrnunnar. 15.50 ► NBA körfuboltinn. Fylgst með leikjum í bandarísku úrvalsdeildinni. Einar Bollason er íþróttafréttamönnum til halds og trausts við lýsingu þessa leiks. 17.00 ► Danshöfundarnir. (Dancemakers) í dag verða sýndir fimmti og sjötti þáttur þessarar fróðlegu þáttaraðarum samspil danshöfunda og dansara. Þetta eru jafnframt lokaþættirnir. 18.00 ► 60 mínútur. Bandarískur fréttaþáttur, einn sá vandaðasti i heiml. 18.50 ► Kalli kanina og félagar. 19.00 ► Dúndur Denni. 19.19 ► 19:19. Fréttir ogveður.
SJÓNVARP / KVÖLD
19.30 20.00 20.30 21.00 21.30 22.00 22.3 D 23.00 23.30 24.00
tf 19.30 ► Fákar. (Fest im sattel) (32) Þýskurmynda- flokkur. 20.00 ► Fréttir og veður. 20.35 ► Leiðin til Avonlea. (13:13) (The Roadto Avonlea) Lokaþáttur. Kana- dlskur myndaflokkur fyrir alla fjölskylduna. 21.25 ► Marjas. Sjónvarpsmynd eftirViðar Víkingsson byggð á samnefndri smásögu Einars H. Kvarans. (myndinni segirfrá ungum dreng I sveit. Aðall.: Þorleifur Örn Arnarson, Þórunn Birna Guðmundsdóttir, Jakob Þór Ein- arsson, Hilmar Jónsson og fl. 22.40 ► Um-mynd. íþættinumverðursýntskjálistaverkeftirÁstu Ólafsdóttur. 22.55 ► Reimleikar hins ókomna. Kanadísk mynd byggð á smá- sögu eftir Ray Bradbury um hús sem tekur upp á því að hrella íbúa sína þegar því ofbýður lífsmáti þeirra. Aðall.: Susannah Yörk og Ric- hard Gomar. 23.20 ► Útvarpsfréttir og dagskrárlok.
19.30 ► 20.00 ► Klassapíur. (Golden Girls) (19:26)
19:19. Fréttir Gamanþáttur um fjórar eldhressar konur sem
og veður. leigja hús saman á Flórída. 20.25 ► Heima er best. (Homefront) (5:13)
Þáttur um Sloan-, Metcalf- og Davis-fjölskyld-
urnar.
21.15 ► Michael 21.55 ► í þágu barnsins. (In the Best Interest of the
Aspel og félagar. Child) Átakanleg mynd um baráttu móður við barnsföður
(3:6) Shirley McLaine, sinn en hún vill halda dóttur þeirra eins fjarri honum og
Mel SmithogDiana unnt er. Aðall.: Meg Tilly, Ed Begley Jr. og Michele Greene.
Ross eru gestir Mic- haels Aspel. 1990.
23.30 ► Bragðarefurinn. (The
Cartier Affair). Curt Taylor er ungur
svikahrappur sem nýsloppinn er úr
fangelsi. Hann ræður sig sem
einkaritara hjá kvikmyndastjörnu.
1985. 1.05 ► Dagskrárlok.
RÁS2
FM90.1
8.07 Vinsældalisti götunnar. Vegfarendur velja og
kynna uppáhaldslögin sín. (Einnig útvarpað laug-
ardagskvöld kl. 19.32.)
9.03 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests.
Sígild dægurlög, fróðleiksmolar, spurningaleikur
og leitað fanga í segulbandasafni Útvarpsins.
(Einnig utvarpað i Næturútvarpi kl. 01.00 aðfara-
nótt þriðjudags.)
11.00 Helgarútgáfan. Umsjón: Lísa Páls og Kristján
Þorvaldsson. Úrval dægurmálaútvarps liðinnar
viku.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Helgarútgáfan heldur áfram.
13.00 Hringborðið Gestir ræða fréttir og þjóð-
mál vikunnpr.
14.00 Hvernig var á frumsýningunni? Helgarút-
gáfan talar við frumsýningargesti um nýjustu
sýningamar.
15.00 Mauraþúfan. Lísa Páls segir islenskar rokk-
fréttir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags
kl. 01.00.)
16.05 Söngur villiandarinnar. Magnús Kjartansson
leikur dægurlög frá fyrri tið.
17.00 Tengja. Kristján Sigurjónsson leikur heims-
tónlist. (Frá Akureyri.) (Urvali útvarpað í næturút-
varpi aðfaranótt fimmtudags kl. 1.01.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Djass. Umsjón: Vernharður Linnet.
20.30 Plötusýnið: „Little village" með sámnefndri
sveit frá 1992.
21.00 Rokktiðindi. Skúli Helgason segir nýjustu
fréttir af erlendum rokkurum. (Endurtekinn þáttur
frá laugardegi.)
22.07 Með hatt é höfði. Þáttur um bandariska
sveitatónlist. Umsjón: Baldur Bragason.
23.00 Haukur Morthens. Annar þáttur um stór-
söngvara. Umsjón: Lisa Páls.
0.10 I háttinn. Gyða Dröfn Tryggvadóttir leikur Ijúfa
kvöldtónlist.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
Fréttírkl. 8.00,9.00.10.00,12.20,16.00,19.00,
22.00 og 24,00.
NÆTURÚTVARP
1.00 Næturtónar.
2.00 Fréttir. Næturtónar hljóma áfram.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Næturtónar.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Næturtónar hljóma áfram.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar. Ljúf lög í morgunsárið.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
9.00 Úr bókahillunni. Umsjón Guðríður Haralds-
dóttir. Endurtekinn þáttur frá sl. sunnudegi.
10.00 Reykjavíkurrúnturinn. Umsjón Pétur Péturs-
son. Endurtekinn þátturfrá 21. mars.
12.00 Túkall. Gylfi Þór Þorsteinsson og Böðvar
Bergsson. Endurtekinn þáttur frá sl. fimmtudags-
kvöldi.
13.00 Megas I hljóðstofu, enduriluttur þáttur Meg-
asar frá sl. nóvember.
15.00 í dægurlandi. Umsjón Garðar Guðmundsson.
17.00 i lifsins ólgu sjó. Umsjón Inger Anna Aik-
man, Endurtekinn þáttur frá sl. miðvikudegi.
19.00 Úr heimi kvikmyndanna. Umsjón Kolbrún
Bergþórsdóttir. Endurtekinn þáttur frá sl. þriðju-
degi.
21.00 Úr bókahillunni. Umsjón Guðriður Haralds
döttir.
22.00 Tveir eins. Umsjón Ólafur Þórðarson og Ólaf-
ur Stephensen. Endurtekinn þáttur frá sl. fimmtu-
dagskvöldi.
24.00 Lyftutónlist.
STIARNAN
FM 102,2
9.00 Ágúst Magnússon.
13.00 Guðrún Gísladóttir.
14.00 Samkoma frá Orði lifsins kristilegt starf.
18.00 Lofgjörðartónlist.
24.00 Dagskrárlok.
Bænastund kl. 9.30, 13.30, 17,30 og
23.50.Bænalinan s. 675320.
BYLGJAN
FM 98,9
8.00 í býtið á sunnudegi. Bjöm Þór Sigurðsson.
11.00 Fréttavikan með Hallgrimi Thorsteinssyni.
12.00 Hádegisfréttir.
12.15 Kristófer Helgason.
15.05 Sigmundur Ernir Rúnarsson fær til sin gest
í létt spjall og spiluð eru 10 uppáhaldslög viðkom-
andi. Fréttir kl. 15.
16.00 Pálmi Guðmundsson. Fréttir kl. 17.
18.00 Páll Óskar Hjálmtýsson.
19.19 Fréttir frá fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
20.00 Páll Óskar Hjálmtýsson.
21.00 Ingibjörg Gréta Gisladóttir.
24.00 Næturvaktin.
EFFEMM
FM 95,7
9.00 Hafþór Freyr Sigmundsson. Tónlist.
13.00 Ryksugan á lullu. Umsjón Jóhann Jóhanns-
son.
16.00 Vinsældalisti islands. Endurtekið frá sl. föstu-
degi.
19.00 Ragnar Már Vilhjálmsson. Oskalagasíminn
670957.
22.00 Sigvaldi Kaldalóns
1.00 Inn í nóttina. Haraldur Jóhannsson.
6.00 Náttfari.
SÓLIN
FM 100,6
10.00 Jóhannes Ágúst Stefánsson.
14.00 Karl Lúðvíksson.
17.00 Jóhannes B. Skúlason.
19.00 Hallgrímur Kristinsson.
22.00 Guðjón Bergmann.
ÚTRÁS
FM 97,7
12.00 MS.
14.00 MH.
16.00 Breski listinn. Arnar Helgason.
18.00 Framhaldsskólafréttir.
18.15 FB. Ötvar Stanes.
20.00 Kvennaskóltnn.
22.00 Úr iðrum. Umsjón: Halldór Harðarson, Krist-
ján Eggetisson og Kristján Guy Burgess.
1.00 Dagskrártok.
Marjas - örlagasaga ungs manns
Ný íslensk sjónvarpsmynd verður
sýnd á sunnudagskvöldið klukkan
21.30. Heitir hún Marjas og er
eftir Viðar Víkingsson, en byggð
á samnefndri smásögu eftir Einar
H. Kvaran. Sagan kom fyrst út á
prenti í Skírni árið 1908 og er
hún meðal þekktustu verka Einars
S. Kvaran. Hún ijallar um dreng
í sveit sem uppgötvar vonsku
heimsins er hann dregst inn í
hatramma baráttu tveggja ungra
manna um hylli heimasætunnar á
bænum. Drengurinn hefur ágæta
meðfædda skáldgáfu og notfærir
sér hana öðrum vonbiðlinum til
handa, en vopnin snúast í höndum
hans. Hann lærir spilið Matjas og
verður þá heltekinn spilaástríðu
sem kemur honum síðan á kaldan
klaka.
Ekki er öll sagan sögð, því hún
hefur eftinnála er drengurinn á
bænum er orðinn fullorðinn mað-
ur. Hann hefur þá misst mannorð-
ið og finnst vera fokið í flest skjól
hjá sér. Fóstra hans bendir honum
á að frá sjónarhóli eilífðarinnar
sé flest það sem hrjáír okkur
barnslegur hégómi og ekkert ann-
að. Fræg ritdeila Einars Kvaran
og Sigurðar Nordal átti rætur að
rekja til athugasemda Sigurðar
um siðaboðskapinn í Matjas.
En nú hefur Viðar Víkingsson
sem sé unnið sjónvarpshandrit
upp úr sögu Kvarans og færir
hana nær okkur í tírna. Hún ger-
ist nú að mestu í kring um árið
1960. Auk þess að halda sig við
söguþráðinn, bætir Viðar við at-
riðum sem eiga að gera söguna
myndrænni, jafn framt því sem
þau beina athyglinni að viðkvæm-
um aldri drengsins sem er í þann
mund að fara á kynþroskaskeiðið.
Drenginn ungan leikur Þorleifur
Örn Arnarson, sem varð 13 ára á
meðan á vinnslu myndarinnar
stóð. Drenginn fullorðinn leikur
hins vegar Þorsteinn Gunnarsson
og færist sagan þá til ársins 1991.
Þórunn Bima Guðmundsdóttir fer
með hlutverk hinnar eftirsóttu
heimasætu og ungu mennina sem
svo hatrammlega keppa um hylli
hennar, leika þeir Jakob Þór Ein-
arsson og Hilmar Jónsson. Fóstru
drengsins leikur Hanná María
Karlsdóttir, en fóstra hans Theo-
dór Júlíusson. Önnur hlutverk eru
m.a. í höndum Sigurþórs Heimis-
sonar, Kittý Johansen og Nönnu
Óskar Jónsdóttur..
Myndin var tekin upp að Mýr-
um í Austur Skaftafellssýslu og
í myndveri Sjónvarpsins í júlí og
ágúst 1991. Hún er 72 mínútur
að lengd. Páll Reynisson sá um
kvikmyndatöku og lýsingu, Pétur
Einarsson um hljóð og hljóðblönd-
un, en Gunnar Baldursson sá um
leikmynd. Framkvæmdastjóri var
Guðrún Pálsdóttir. Viðar Víkings-
son samdi handritið sem fyrr seg-
ir og hann leikstýrði einnig og
Hanna María Karlsdóttir og Þorleifur Örn Arnarson í hlutverkum
sínum.
klippti verkið. Tónlistin var ekki
frumsamin, heldur látin miðast
við lagaval Ríkisútvarpsins á ár-
unum í kring um 1960. Meðal
annars syngur Einar KiSstjánsson
lagið Kirkjuhvol eftir Áma Thor-
steinsson.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
gerð er sjónvarpsmynd upp úr
verkunv Einars H. Kvaran. Áður
hafði Sjónvarpið látið kvikmynda
leikritið „Lénharður fógeti“. Þá
hefur Viðar Víkingsson oft komið
við sögu hjá SJónvarpinu fyrr.
Hann gerði meðal annars hinar
skuggalegu myndir „Drauga-
sögu“ og „Tilbury", auk þess sem
geta má heimildarmynda um Guð-
mund Kamban og Guðmund bisk-
up góða.