Morgunblaðið - 11.04.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.04.1992, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992 * Armann Reynisson: Krafist rannsóknar og bóta af Seðlabanka _A A Fréttaflutningur RUV af Avöxtunar- málinu verði kannaður ÁRMANN Reynisson, fyrrum forstjóri Ávöxtunar, hefur ritað bankastjórn og bankaráði Seðlabanka íslands bréf þar sem hann óskar eftir að þessir aðilar láti hlutlausa aðila kanna „hver í Seðlabanka íslands lak upplýsingum til Ólafs Ragnars Grímsson- ar um tímabundna erfiðleika Avöxtunar". í bréfi Ármanns er spurt hvort sá aðili hafi ekki brotið lög og siðareglur bankans og sé í raun höfuðpaur Ávöxtunarmálsins sem beri að draga til ábyrgðar á afleiðingum þess. Ármann hefur jafnframt farið fram á það bréflega við útvarpsráð að fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af Ávöxtunarmálinu og aðför þess að persónu sinni verði kannað- ur af hlutlausum aðilum. Þá fer Ármann Reynisson fram á það í bréfinu til Seðlabankans að bankaeftirlitið biðjist afsökunar á og taki til baka ummæli í grein- argerð sem vitnað var til í fréttum útvarpsins en þau voru á þá leið að bankaeftirlitið hefði ekki borið traust til Ármanns „enda ljóst frá upphafi að að hann hafði ekkert skynbragð á eðli verðbréfavið- skipta eða reksturs verðbréfa- • • Benedikt Om Benedikts- son látinn BENEDIKT Örn Benediktsson var jarðsettur þann 4. apríl í Tuscon, Arizona. Benedikt, sonur Einar Benedikts- sonar skálds og konu hans Valgerð- ar Zoéga, lést í Tuscon Arizona 27. mars og var 88 ára að aldri. Öm flutti vestur árið 1929 frá Bret- landi, þar sem hann ólst upp og kvæntist árið 1931 eftirlifandi konu sinni Phyllis F. Jennings en þau áttu fjóra syni, þá Philip, Jón, Christopher og Thomas. sjóða“ og fleira í þeim dúr. Þá er sú krafa gerð að bankaráð og bankastjórn ákveði á eigin spýtur hæfilegar miskabætur vegna þess- ara ærumeiðandi ummæla um Ármann og renni bæturnar að jöfnu til Kvennaathvarfsins í Reykjavík og Orgelsjóðs Hall- grímskirkju í Reykjavík. í bréfi sínu til Halldóru Rafnar, formanns útvarpsráðs, segir Ár- mann að rekja megi upphaf svo- nefnds Ávöxtunarmáls m.a. til þess sem Ármann nefnir „upp- hlaups Ólafs Ragnars Grímssonar alþingismanns í Ríkisútvarpinu 19. ágúst 1988.“ Frá og með þeim tíma hafi fréttastofa Ríkisútvarps- ins hafið slíka „helför" í frétta- flutningi af Ávöxtunarmálinu að með ólíkindum sé. Hann fer fram á að hlutlausir aðilar kanni hvort það samrýmist lögum og siðaregl- um Ríkisútvarpsins „að maður á borð við Ólaf Ragnar Grímsson geti misnotað stofnunina á þann máta er raun bervitni“. Að frétta- flutningur af Ávöxtunarmálinu verði borinn saman við fréttaflutn- ing á öllum hliðstæðum málum á sama tíma og fram til dagsins í dag og sérstaklega verði könnuð aðför að persónu hans sjálfs. Frá samæfingu Háskólakórsins og Hamrahlíðarkórsins i íslensku óperunni sl. miðvikudagskvöld. Hamrahlíðarkórinn og Háskólakórinn í Islensku óperunni: Lagið kom af sjálfu sér -segir Skúli Halldórsson um nýtt lag við „Það er leikur að læra“ SKÚLI Halldórsson, tónskáld, hefur tekið áskorun Helga Hálfdanarsonar og samið nýtt lag við barnavísur Guðjóns Guðjónssonar, skólamanns, Það er leikur að læra. Helgi hefur skorað á tónskáld að semja nýtt lag við vísurnar þar sem gamla lagið eigi ekki við brag- arhátt þeirra. Eins og fram hefur komið hér í blaðinu hafa tónskáldin Atli Heimir Sveins- son og Jón Þórarinsson einnig tekið áskorun Helga. Þegar spurst var fyrir um tilurð lagsins sagðist Skúii ekkert hafa hugsað út í að lagið væri vitlaust samkvæmt reglum fyrr en hann hefði séð pistil Helga. Nokkrum dögum seinna hefði lagið orðið til. „Ég fer oft hérna út á pallinn og fæ hugmyndir. Nú, ég velti því fyrir mér hvort ekki væri hægt að koma því þannig fyrir að áherslurnar kæmu á stuðlana og höfuðstafina. Svo kom lagið af sjálfu sér eins og oft vill verða,“ sagði Skúli. „Þannig var það líka þegar ég samdi Smaladrenginn. Hann varð til á einni til tveimur mínútum og svo var bara að ná í blýant og skrifa til að gleyma Skúli Halldórsson ekki,“ sagði.hann og bætti við að honum fyndist stundum eins og að lög væri ekki eins góð ef lengi væri glímt við hugmyndina. Þau sem kæmu eldsnöggt væru oft betri. Skúli segist hafa reynt að semja íjörugt og skemmtilegt lag. Engu Sameiginlegir tónleikar í tilefni af Ari söngsins HAMRAHLÍÐARKÓRINN og Háskólakórinn halda sameiginlega tón- leika í Islensku óperunni í dag, laugardag, kl. 14.30 í tilefni af Ári söngsins. Er þetta í fyrsta sinn sem þessir kórar halda sameiginlega tónleika. Kórfélagar þeirra í dag eru 80-90 talsins. Efnisskráin verð- ur fjölbreytt og má þar nefna verk eftir E. Grieg og Poulenc en Hamrahlíðarkórinn frumflytur einnig nýtt verk, Haust, eftir Atla Heimi Sveinsson á tónleikunum og Háskólakórinn flytur nýlegt verk sem Hjálmar H. Ragnarsson samdi fyrir kórinn og frumflutt var á háskólahátíð í desember. Stjórnendur kóranna eru Þorgerður Ing- ólfsdóttir og Ferenc Utassy. „Okkur Þorgerði datt í hug í haust að gaman væri að þessir tveir skólakórar efldu með sér samvinnu af því tilefni að nú er hafið ár söngs- ins,“ segir Ferenc Utassy í sam- tali við Morgunblaðið um tilurð þessara sameiginlegu tónleika. „Með þessu viljum við benda á jákvæða samvinnu kóra á íslandi og sameina fólk í söng eins og þarna er gert,“ segir Þorgerður Ingólfs- dóttir, stjórnandi Hamrahlíðarkórs- ins. Tónleikarnir hefjast á samsöng 7. t/c/O cuQZ ÍCZ/ -&‘i ^///A-<rz' c/T -Ce//i'/Kí & • -í m V— L - / }_ Vi ? . ,| bL .1 L -| /CcfO, of T/rn /Wr/zcz ow/* cf //r/ 7 'Jlya/p/fy J/r > y 7??/=> pj LJt: j " <i'btfi/i/t’ z, iz/?n />/' e, . J) ' ' ' /?K/ < z^c -c'í- * /ZoJ. * i> i llf L_J N m 2 -61 •i N k 0 að síður segist hann nokkuð viss um að krakkar haldi áfram að syngja gamla lagið. „Það þarf mikið til að slá út það sem er rótgróið hjá þjóðinni eins og þetta iag sem allir syngja. Krakkar al- veg niður í 2ja ára kunna það,“ sagði hann en kvað ekki ólíklegt að annað lag gæti orðið þekkt með hinu ef það væri kynnt. kóranna og munu þeir einnig syngja saman í lok tónleikanna en kórarn- ir syngja auk þess sitt í hvoru lagi. „Þetta eru allt verk sem samin eru á þessari öld. Elsta tónverkið sem Hamrahlíðarkórinn flytur stendur föstum fótum í rómantík- inni en þar er um að ræða síðasta tónverkið sem Grieg samdi og er það jafnfram stærsta kórverk hans. Þetta er sennilega í fyrsta skipti sem þetta verk er flutt á Islandi," segir Þorgerður. Nýjasta verkið er eftir Atla Heimi Sveinsson, sem hann samdi á þessu ári og mun Hamrahlíðarkórinn frumflytja það á þessum tónleikum. Þorgerður sagði að þau verk sem kórarnir flytja sameiginlega væru lítið þekkt á íslandi. Þar væri ann- ars vegar um að ræða verk eftir svissneskt núlifandi tónskáld sem er hylling til tónlistarinnar. Kórarn- ir munu svo ljúka tónleikunum sam- an á verki eftir ungverska tónskáld- ið Kodai. Á efnisskrá Háskólakórisins eru verk eftir frönsku tuttugustualdart- ónskáldin Poulenc og Ravel, eitt ungverskt verk og ítalskt verk eftir Dallapiccola auk fyrrnefnds tón- verks eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Hamrahlíðarkórinn er þessa dag- ana að undirbúa sig fyrir þátttöku í alþjóðlegu listahátíðinni í Bergen í maí nk. en þar mun kórinn koma fram á sérstakri íslandsviku sem haldin er í tengslum við að forseti íslands verður heiðursgestur á listahátíðinni. „Við verðum með tvenna stóra, sjálfstæða tónleika með ólíkum efnisskrám á listahátíðinni,“ sagði Þorgerður. Áhersla verðu lögð á að kynna íslenska tónlist, bæði eldri tónlist og samtíma- tónlist eftir helstu tónskáld íslands. Þá mun kórinn opna sérstaka tón- leikaröð verka eftir Grieg ásamt þekktasta barritónsöngvara Noregs í dag, Harald Bjorkoy. Faratónleik- arnir fram í nýju tónlistarhúsi sem byggt hefur verið á heimili Griegs. Auk þessa mun kórinn m.a. syngja við messu í dómkirkjunni í Bergen. Hamrahlíðarkórnum hefur einnig verið boðið á stóra alþjóðlega hátíð í Þýskalandi í júní þar sem þema hátíðarinnar er ungt fólk sem fæst við tónlist samtímans. Að sögn Ferenc Utassy fer hluti Háskólakórsins til Kanada og Bandaríkjanna í sumar þar sem farið verður á slóðir vestur íslend- inga til tónleikahalds.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.