Morgunblaðið - 11.04.1992, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.04.1992, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992 Minning: Sigríður Líndals frá Steinholti Fæddur 15. desember 1908 Dáinn 3. apríl 1992 Sigmjón Jóhannes son - Minning Fæddur 17. desember 1900 Dáinn 24. júlí 1991 Það er sjónarsviptir að Sigríði Líndals, þessari síungu, kjarkmiklu og viljasterku konu sem horfði opn- um huga og björtum augum fram á veg. Hún hlaut vöggumein sem hún bjó við alla ævi og aðrir sjúkdómar sóttu hana einnig heim. Þetta gleymdist gjarnan því áhuginn og atorkan voru slík að fáir stóðust henni snúning. Á tímabili rak Sigríður smábarn- askóla. Þar voru undirstöðufögin léstur, skrift og reikningur í háveg- um höfð, en ýmislegt fleira var á dagskrá, þar á meðal að læra á peninga, klukku og tímatal. í þess- um skóia ríktu skipulag, agi og samvinna, að ógleymdri námsgleð- inni og virðingu milli kennarans og nemenda. Það leið aldrei svo dagur að ekki væri sunginn skólasöngur- inn eftir Guðjón Guðjónsson sem byijar þannig: „Þaðerleikuraðlæra, ,leikursáermérkær...“ Þetta ljóð sem allir kunna lýsir vel andrúmsloftinu í kringum Sig- ríði. Hún var afburðakennari, ósínk á að miðla þekkingu og fróðleik og mannrækt var henni í blóð borin. Það var eftirsóknarvert að fá að fylgja henni eftir og vera með henni í fagurbókmenntum þegar færi gafst og stundum greip Sigríður gítarinn. Þá var sungið af hjartans list. Oft var hlegið og að öllu gaman. Fæturnir báru Sigríði skammt en hún bætti það margfalt upp með huga og hönd. Hún hélt því fram að hugurinn bæri sig hálfa leið og gott betur, en stundum henti það hana að ganga fram af sér Iíkam- lega. Hvorki kvartaði hún þá né staldraði lengi við svo búið, því hugðarefnin voru mörg og verkefn- in sagði hún að biðu sér ekki til batnaðar. Hangs og hálfvelgja voru eitur í hennar beinum. Sigríður var flestum myndvirk- ari, afkastamikil og stórhuga. Ótelj- andi eru allar þær fallegu flíkur og listilegu munir sem hún ýmist pijón- aði á vél eða hannaði og vann í höndunum. Allt var þetta óað- finnanlega vel unnið og viðtakend- um til þurftar og gleði. Atburði líðandi stundar og straumhvörf þjóðfélagsins lét Sig- ríður sig varða. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, var rökföst í umræðum, hreinskipt- in í orði og verki og gekk aldrei í grafgötur um það, hvað að henni snéri. Hún lagði málefnum fatlaðra lið og var ætíð reiðubúin að leggja sitt af mörkum þeim til framdráttar. Hún unni heimahögunum, fór sinna eigin ferða eins og geta og úthald leyfðu, en kunni því líka vel að slást í för með öðrum þegar svo bar undir. Sumardagurinn fyrsti var hennar uppáhaldsdagur, hvernig sem viðr- aði. Það fór ekki framhjá neinum sem til þekkti, því að þá skartaði hún meira en aðra daga. Sigríður var með afbrigðum tryggur vinur og fylgdist af lífi og sál með öllum þeim sem hún kall- aði „sitt fólk“. Yngri kynslóðir í þeim hópi fóru víst síst varhluta af örlæti hennar og umhyggju. Við systkinin frá Árgerði kveðj- um Sigríði í Steinholti með söknuði og þökkum af heilum hug vináttu hennar, leiðsögn og órofa tryggð. Guðný, Friðrik og Bjarni. Mig langar til þess að skrifa nokkur síðbúin kveðjuorð um afa minn. Hann var mér og mínum ávallt vinsamlegur og tryggur. Það eru ógleymanlegar stundirnar á sunnudögum í gegnum árin, en það var heimsóknardagur hjá fjölskyld- unni til afa. Hann lifði alla tíð mjög fábrotnu lífi en hann vissi meira en margur því alla tíð var hann mjög bók- hneigður og hann vissi nánast alla skapaða hluti, allt frá pólitík til ind- verskrar heimspeki. Hann fór í sinn daglega göngutúr og þá oftast út í Melabúð á Hjarðar- haga, hann verslaði og fékk aðeins að kíkja í blöðin og vil ég þakka starfsfólkinu þar fyrir þá góðvild og virðingu sem það ávallt sýndi honum. Ekki má gleyma trésmíða- verkstæðinu á Þrastargötu en hann fékk hjá þeim eldivið í kabyssuna sína. Stundum gat verið erfitt að koma eldiviðnum heim þó stutt væri en þessir öðlingar björguðu því, þeir smíðuðu sleða handa hon- um svo hann gæti dregið eldiviðinn heim. Oftar en ekki komu þeir sjálf- ir með eldiviðinn og settu fyrir framan litla húsið hans og mikið var hann þakklátur. Ekki má gleyma Lúðvík og Þóru en þau sáu um heimilishjálp fyrir afa og voru þau í miklu uppáhaldi hjá honum. Þórður bróðir afa bjó í næsta húsi við hann og voru þeir alla tíð mjög nánir. Einnig hringdi afi oft í Árna bróður sinn og málin voru rædd. Að lokum kveð ég afa með orðum K. Gibran: Þú skalt ekki hiyggjast þegar þú skilur við vin þinn því það sem þér þykir vænst um í fari hans getur orðið þér ljósara í fjarveru hans. í Guðs friði. Helena Kristmannsdóttir. t Faðir okkar, INGI BJÖRGVIN ÁRSÆLSSON, lést í Landakotsspítala 2. apríl. Jarðarförin hefur farið fram i kyrr- þey. Fyrir hönd aðstandenda. Rós Ingadóttir, Ingibjörg Ingadóttir, Bjarni Páll Ingason. t Faðir okkar, BALDUR GUÐMUNDSSON frá Þúfnavöllum, andaðist 8. apríl. Hann verður jarðsunginn frá nýju Fossvogskapellunni miðvikudag- inn 15. apríl kl. 10.30. Þórunn Baldursdóttir, Hulda Baldursdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR frá Bæ í Steingrímsfirði, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 9. apríl. Skarphéðinn Árnason, Ragnheiður Björnsdóttir, r, Guðmundur Ragnar Árnason, Snorri Árnason, Kristmundur Árnason, Hrefna Ragnarsdóttir, Svanlaug Alda Árnadóttir, Óli Björn Hannesson, Ingibjörg Árnadóttir, Sigurður Guðmundsson, Björn Árnason, Ásdís Pétursdóttir, Gunnar Árnason, Kristi'n Valtýsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður, tengaföður, afa og mágs, GUNNARS KJARTANSSONAR frá Fremri-Langey, Karfavogi 36. Ólöf Ágústsdóttir, Lára Gunnarsdóttir, Gunnþór Halldórsson, Júlíana Gunnarsdóttir, Jóhann Sigurðsson, Elfa Gunnardóttir, Lóa Björk Gunnarsdóttir, Andrés Ágústsson og barnabörn. Laufey Bjama- dóttir - Minning Þegar góðvinir kveðja er oft svo að við sem eftir stöndum tökum því misjafnlega; ekki endilega fyrir þær sakir að veglúnir mega ekki hvíl- ast, heldur vegna þess að eigið lífs- mynstur breytist nokkuð. Sjálf breytumst við vegna þess að tóma- rúm myndast, sem ekki verður fyllt í; ekki kemur maður í manns stað. Sú mæta kona sem ég kveð, Laufey Bjarnadóttir Snævarr, var stór mynd í lífi mínu, og var svo með hennar fjölskyldu alla. Ná kynni okkar yfir iangan tíma, megnið af mínum ævidögum, og hefjast í vest- urbænum, þar sem við vorum ná- grannar. Síðar, er hún fluttist yfir Tjörnina til sinna fyrri átthaga, var það ekki svo breitt bil að ekki yrði brúað. Margar voru ferðirnar sem ég fór að heimsækja hana og hennar prýðilegu ættmenni og margar eru þær björtu minningar tengdar þeim heimsóknum. Þetta var gott fólk og fallegt fólk; og það einkenndi þeirra dagfar allt, að það sem það hugsaði og það sem það gerði, það var heldur ekki annað en gott og fallegt. Á þessu heimili, sem var jafn- framt heimili foreldra hennar sem bjuggu stórbúi í öðrum hluta húss- ins, ríkti gleðin, enda þótt þar væri jafnframt mikil festa og vinnusemi. Gestrisnin var slík, að óvenjulegt þótti, jafnvel á þeim tímum. Þarna kynntist ég ótrúlegu samblandi af glaðværð og guðsótta, sem í hveij- um ranni hefur sína sérstöku mynd. Bíbí, eins og hún var kölluð, var tryggur vinur. Hana var jafn gott að finna í sveitinni á Stiklastöðum og í bænum, og indælar minningar eru bundar við öldugjálfur, fugla- kvak, beijalaut og barnahjal frá þeim dögum. Að leiðarlokum bið ég henni blessunar um leið og ég þakka liðna tíð. Fjölskyldunni votta ég samúð. M. Thors. Minning: Þorvaldur Borgfjörð Gíslason, vélsljóri Fæddur 30. júlí 1954 Dáinn 22. febrúar 1992 „Hann Valdi er dáinn,“ með þess- um fáu orðum bárust okkur þær hörmulegu fréttir, að hann Valdi frændi hefði orðið fyrir slysi úti á sjó og látist. Svo fá orð sem segja svo margt. Eiginkona hafði misst mann sinn, synir föður sinn, foreldr- ar sinn eina son og systur bróður sinn, já og við öll sem þekktum Valda höfðum misst góðan vin. Þorvaldur var fæddur 30. júlí 1954, sonur hjónanna Sjafnar Helgadóttur og Gísla Borgfjörð JónsSonar. Ólst hann upp í Reykja- vík ásamt fimm systrum. Valdi fór ungur til sjós, fyrst frá Reykjavík á björgunarskipinu Goðanum og seinna frá Höfn í Hornafirði. Var hann á sjónum fyrst sem háseti en síðar sem vélstjóri, eftir að hann lauk vélstjóranámi, og nú síðast sem vélstjóri á Haukafellinu. Á Homafirði kynntist Valdi Sig- urborgu Þórarinsdóttur, eftirlifandi eiginkonu sinni og eignuðust þau tvo syni, Gísla og Ásbjörn. Einn son átti Valdi áður, Hallmar Frey. Valdi var sonur systur minnar og voru aðeins rúmar þijár vikur á milli okkar. Ólumst við báðir upp í Reykjavík og má segja að við höfum alist upp sem bræður frekar en frændur, svo mjög vorum við sam- rýmdir og eru margar kærustu minningar frá æskuárunum með Valda. Alltaf var fjör og gaman með Valda. Hann var kátur, skemmtilegur og duglegur strákur og eru þau ótalin prakkarastrikin sem við gerðum saman. En Valdi var líka mjög Ijúfur og einlægur. Auk þess var hann mjög næmur á tilfinningar annarra, var alltaf boðinn og búinn að veita hjálparhönd og veitti oft meira en beðið var um, sannur góður dreng^ ur. Að við eigum aldrei eftir að hitta Valda aftur, heyra rödd hans og hlátur, ræða við hann málin, er erfitt að sætta sig við, en við sem þekktum Valda erum þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með honum. Valdi frændi er dáinn, látinn er góður drengur. Hans verður sárt saknað. Eg bið góðan guð.að styrkja ást- vini hins látna í þeirra miklu sorg. Kormákur Eiríksson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, fósturföður, tengdaföður og afa, VALGEIRS B. HELGASONAR rennismiðs, Langholtsvegi 116A. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar Krabbameinsfé- lagsins. Hlíf Valdimarsdóttir, börn, fósturbörn, tengdabörn og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.