Morgunblaðið - 11.04.1992, Blaðsíða 24
24
^ _ r . /.Ti /-I' I «df ?. T ffá
MORGUNBLAÖÍÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992
0
Raunvísindastofnun um þróun ósónlagsins yfir Islandi:
Marktæk þynning 0,5% á
ári að sumarlagi frá 1977
Engar marktækar langtímabreytingar yfír vetrarmánuðina
CFCIj Cl CFCI2
+
o3 cio o2
Forsíða skýrslu Raunvísindastofnunar um þróun ósonlagsins yfir
íslandi síðastliðin 34 ár.
Raunvísindastofnun Háskól-
ans hefur gefið út skýrslu, sem
unninn er af samstarfshópi frá
stofnuninni og Veðurstofu Is-
lands um þróun ósónlagsins yfir
Isiandi síðastliðin 34 ár, en at-
huganir Veðurstofunnar á ósón-
laginu, sem hófust 1957, eru
meðal lengstu athugana á ósón-
lagi lofthjúps jarðar, sem gerð-
ar hafa verið. Niðurstöður
Doktors-
vörn í Odda
DOKTORSVÖRN við læknadeiid
Háskóia íslands fer fram laugar-
daginn 25. apríl. Poul Joensen
læknir frá Færeyjum ver ritgerð
sína sem Iæknadeild hafði áður
metið hæfa til doktorsprófs. Dokt-
orsritgerðin fjallar um faralds-
fræðiiegar rannsóknir á heistu
vefrænum taugasjúkdómum í
Færeyjum. Heiti ritgerðarinnar
er: „Parts of Faroese
Neuroepidemilogy".
Andmælendur af hálfu lækna-
deildar verða Charles M. Poser, M.D.
frá læknadeild Harvard-áskóla í
Bandaríkjunum og dr. Vilhjálmur
Rafnsson, dósent. Prófessor dr.
Gunnar Guðmundsson, deildarstjóri
læknadeildar, stjórnar athöfninni.
Doktorsvörnin sem er opin öllum, fer
fram í Odda, stofu 101, og hefst kl.
14.00.
koma nokkuð á óvart, þar sem
marktæk þynning lagsins virð-
ist meiri að sumarlagi en vetrar-
lagi. Morgunblaðinu barst í
gærkveldi svohljóðandi tilkynn-
ing frá Raunvísindastofnun:
„Mælingar á þykkt ósonlagsins
hafa verið gerðar af Veðurstofu
íslands nær samfellt síðan á árinu
1957. Þær teljast meðal bestu
langtíma athugana á ósonlaginu
sem völ er á. Niðurstöður mæling-
anna hafa nýlega verið endurskoð-
aðar af Veðurstofu íslands og nú
er lokið rannsóknarverkefni hjá
Raunvísindastofnun Háskólans
sem fólst í greiningu og túlkun
niðurstaðna á grundvelli tölulegra
reiknilíkana.
Niðurstöður eru eftirfarandi:
Yfir vetrarmánuðina finnast engar
marktækar langtímabreytingar í
mæligögnum sem bent gætu til
þynningar ósonlagsins frá upp-
hafí. Hins vegar mælist greinileg
minnkun ósonmagns yfir sumar-
mánuðina á síðasta áratug. Eftir
1977 hefur orðið marktæk þynn-
ing sem nemur um 0,5% á ári að
sumarlagi.
Báðar þessar niðurstöður koma
nokkuð á óvart. I samræmi við
mælingar annars staðar á norður-
hveli mátti búast við greinilegri
minnkun eða þynningu yfir vetrar-
mánuðina en fremur stöðugu óson-
magni yfir sumartímann. Skýring-
una á st'öðugu ósonmagni yfir
vetrartímann má sennilega rekja
til staðbundinna veðurfarslegra
skilyrða í efri loftlögum yfir Is-
landi sem tengjast tíðri komu
djúpra lægða til landsins á þessum
árstíma. Hitastig í háloftum verð-
ur sjaldan eins lágt og það hita-
stig sem þarf til að koma af stað
þeim efnaferlum sem eyða ósoni.
Þar sem engin þekkt áhrifarík
eyðingaröfl era að verki yfir sum-
artímann, verður að rekja þynn-
inguna að sumarlagi til óbeinna
áhrifa ósoneyðingar af manna
völdum. Sú eyðing hefur að öllum
líkindum átt sér stað annars stað-
ar veturinn á undan.
Þess má geta að eina svæðið
utan íslands þar sem ósoneyðingar
hefur ekki orðið vart liggur yfir
Japan og austasta hluta Síberíu,
en þar eru veðurfarslegar aðstæð-
ur í efri hluta lofthjúpsins svipaðar
og hér. Ósonmælingar eru gerð-
ar með svokölluðum Dobson-mæli.
Hann mælir gleypni útfjólublárrar
geislunar frá sólu. Ósonmagn á
hveijum tíma ákvarðar styrkleika
útfjólublárrar geislunar á jörðu
niðri. Ofangreindar niðurstöður
fengust eftir að tekið hafði verið
tillit til mögulegra áhrifa vindafars
við miðbaug þar sem óson er að
mestu framleitt. Einnig var tekið
tillit til sólblettavirkni sem áhrif
hefur á útgeislun sólar. Sólbletta-
virkni getur valdið allt að 25%
sveiflu í ósonmagni í febrúar og
mars yfir 11 ára tímabil. Áhrif
öflugra eldgosa og sólblossa á
tímabilinu koma jafnframt skýrt
fram í gögnunum. Það er því mikil-
vægt að taka tillit til þessara
náttúrulegu afla þegar hugsanleg-
ar langtímabreytingar á ósonlag-
inu vegna áhrifa mannsins eru
metnar.
Samanburður Reykjavíkurmæl-
inganna við tiltækar gervihnatta-
mælingar yfir svæðinu sýnir gott
samræmi milli þessara tveggja
óháðu mæliaðferða. Verkefnið var
að mestu unnið hér heima en að
hluta til í Boulder í Colorado þar
sem eru höfuðstöðvar lofthjúps-
rannsókna í Bandaríkjunum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
munu birtast á næstunni í erlend-
um vísindaritum. Verkefnið var
styrkt af Vísindasjóði, íslenska
Járnblendifélaginu hf., Norrænu
ráðherranefndinni og NATO.
Höfundar skýrslu Raunvísinda-
stofnunar era Guðmundur G.
Bjarnason, Örnólfur Rögnvalds-
son, Þorsteinn I. Sigfússon, Þór
Jakobsson og Barði Þorkelsson.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
INGA DÓRA SIGFÚSDÓTTIR
Óvissa um framtíð Fæðingarheimilis Reykjavíkur:
Ekkert bam fæðst
á heimilinu í viku
MIKIL óvissa ríkir í dag um framtíð Fæðingarheimilis Reykjavík-
ur en ríkið tók við rekstri heimilisins 1. apríl sl. Þrjár leiðir hafa
einkum verið nefndar í umræðunni um reksturinn undanfarin
misseri og fjórða leiðin virðist vera að taka á sig skýrari mynd.
í upphafi var ráðgert að leggja starfsemina niður en sú hugmynd
mætti harðri andstöðu. Þá var rætt um að fæðingar færu fram
á Landspítala og að Fæðingarheimilið yrði gert að sængurkvenna-
gangi. Talið er að það myndi kosta um 35 til 40 milljónir króna
á ári. Þriðja leiðin sem kom til umræðu var að Fæðingarheimilið
yrði rekið í óbreyttri mynd sem kosta myndi tæpar 60 milijónir
á ári. Fjórða leiðin og sú nýjasta í umræðunni er að öll þjónustan
fari fram í húsnæði Landsspítalans, þar sem byggð verði upp
heimilisleg sængurkvennaaðstaða í sama stíl og er á Fæðingar-
heimdmu.
í tæpa viku hefur ekkert barn
fæðst á Fæðingarheimili Reykja-
víkur en fjölmörgum konum verið
vísað á kvennadeild Landspítal-
ans þar s‘em læknar þar hafa
ekki getað gengið vaktir beggja
vegna götunnar sökum mann-
aflaskorts.
Ekki gert ráð fyrir
rekstrarfé á fjárlögum
Á fjárlögum ársins 1992 var
ekki gert ráð fyrir að fé yrði var-
ið til reksturs Fæðingarheimilis-
ins heldur yrði það lagt niður og
verkefni þess færð yfir til Land-
spítala. •
Þetta vora borgaryfirvöld ósátt
við og í gegnum stjórn sjúkra-
stofnana var þeim eindrégnu ósk-
um komið á framfæri við Sighvat
Björgvinsson, heilbrigðisráð-
herra, 'að Fæðingarheimilið yrði
rekið áfram. Svo virðist sem ráð-
herra hafi fallist á það en hins
vegar hafi ekki verið gengið frá
því, af hálfu ráðuneytisins, með
hvaða hætti rekstrinum yrði hátt-
að þar sem fjármögnun var ekki
tryggð.
Fulltrúar ríkisspítala fallast
á óskir borgaryfirvalda
í janúar hófust viðræður á
milli Reykjavíkurborgar og ríkis-
spítalanna um sameiningu Fæð-
ingarheimilisins og kvennadeildar
Landspítalans þar sem óyggjandi
sannanir þóttu liggja fyrir því að
veralegur sparnaður myndi felast
í þeirri tilhögun. Fulltrúar ríkis-
spítala féllust í þeim viðræðum á
að vinna eftir óskum borgaryfir-
valda þannig að tryggt yrði að
þjónusta Fæðingarheimilisins
yrði rekin í óbreyttri mynd fram
að áramótum en til þess var talið
að þyrfti um 6 milljónir króna.
Málið var svo tekið upp bæði
í borgarráði og borgarstjórn þar
sem fulltrúar lýstu yfir þeirri af-
stöðu sinni að tryggja þyrfti
áframhaldandi óbreyttan rekstur.
í framhaldi af því lagði Markús
Örn Antonsson borgarstjóri fram
tillögu í borgarstjórn um að ríkinu
yrði látið húsnæði Fæðingarheim-
ilisins í té endurgjaldslaust ef
rekstur þess yrði tryggður til
frambúðar. Sighvatur Björgvins-
son, heilbrigðisráðherra, sagði
hins vegar ekki mögulegt að sam-
þykkja það skilyrði að starfsemin
færi alítaf fram í sömu mynd
innan sömu veggja.
Gert ráð fyrir að fæðingar
fari fram á Landspítala
Allt fram til loka marsmánaðar
töldu stjórnvöld borgarinnar að
staða málsins væri ljós og rekst-
urinn yrði óbreyttur til áramóta
þar sem fulltrúar ríkisspítalanna
hefðu fallist á að vinna eftir ósk-
um þeirra. Þar virðast skilaboð
manna á milli hins vegar ekki
hafa verið nægilega skýr og af-
staða ráðuneytisins óljós því í
bréfi frá heilbrigðis- og trygging-
armálaráðuneytinu í lok síðasta
mánaðar er þess getið að veija
eigi 10 milljónum króna til að
bæta fæðingaraðstöðu á kvenna-
deild Landspítalans og gera þeirri
deild mögulegt að sinna jafnframt
þeim fæðingum er fram fara á
Fæðingarheimilinu.
I samtali við Morgunblaðjð í
byijun mánaðarins sagðist Árni
Gunnarsson, formaður stjórnar
ríkisspítala, skilja bréfið svo að
smám saman ætti að færa fæð-
ingar af Fæðingarheimili Reykja-
víkur yfir á kvennadeild Landspít-
alans. Breytingin ætti að ganga
yfir fyrir næstu áramót og í kjöl-
far hennar yrði Fæðingarheimil-
inu breytt í legudeild sængur-
kvenna.
í sömu frétt sagðist Árni Sig-
fússon, formaður stjórnar sjúkra-
stofnana í Reykjavík, treysta því
eftir að hafa rætt málið við full-
trúa heilbrigðisráðuneytisins og
ríkisspítalanna að Fæðingarheim-
ilið yrði rekið með óbreyttum
hætti til áramóta.
Borgarstjórn ítrekar afstöðu
sína
í kjölfar þessa ítrekaði borgar-
stjórn á fundi sínum fyrri sam-
þykkt um að með yfirtöku ríkis-
spítala á Fæðingarheimili
Reykjavíkur yrði þjónustusér-
staða þess tryggð þannig að
heimilið yrði áfram sá valkostur
sem það hefði verið. Þá skoraði
borgarstjórn jafnframt á heil-
brigðisráðherra að tryggja til
frambúðar að á Fæðingarheimil-
inu yrði áfram veitt fæðingar-
þjónusta samkvæmt þeirri hug-
myndafræði sem þar hefði verið
byggt á undanfarna áratugi og
að fjármagn yrði veitt til þess.
„Gróf aðför að
Fæðingarheimilinu“
í grein eftir Elínborgu Jóns-
dóttur, yfirljósmóður á Fæðingar-
heimilinu, í Morgunblaðinu í gær
segir að síðasta aðförin að Fæð-
ingarheimilinu hafi verið sú gróf-
asta sem um geti. Á meðan mark-
visst sé unnið að því að flytja
fæðingarnar yfir á Fæðingardeild
Landspítalans sé fólki sagt beint
út og blygðunarlaust að ekki sé
verið að leggja Fæðingarheimilið
niður sem fæðingarstofnun. Þau
orð séu bókfærð í Alþingistíðind-
um frá 22. desember 1991 eftir
heilbrigðismálaráðherra Sighvati
Björgvinssyni.
í samtali við Morgunblaðið í
gær sagðist Sighvatur líta svo á
að við þessi orð hefði verið og
yrði staðið. Hann sagðist líta á
Fæðingarheimilið sem fæðingar-
stofnun þó konurnar fæddu á
kvennadeild Landspítalans þar
sem sængurkonur gætu eftir sem
áður legið á Fæðingarheimilinu
bæði fyrir og eftir fæðingu.
Ekkert barn fæðst í tæpa
viku
I dag ríkir mikil óvissa um
framtíð Fæðingarheimilisins.
Undanfarna sólarhringa hefur
starfsfólk þess þurft að vísa kon-
um frá vegna læknaskorts en
sérfræðingar Fæðingardeildar-
innar hafa ekki treyst sér til að
ganga vaktir beggja vegna göt-
unnar þar sem þeir séu einfald-
lega of fáir. Á fundi yfirmanna
kvennadeildar Landspítalans í
gærmorgun var hins vegar
ákveðið að reyna að bjarga mál-
um yfir helgina og verður fjallað
um málið aftur nk. þriðjudag.