Morgunblaðið - 11.04.1992, Page 26

Morgunblaðið - 11.04.1992, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRIL 1992 SIGUR IHALDSMANNA I BRESKU ÞINGKOSNINGUNUM Leiðtogar hægriflokka um allan heim segjast samfagna John Maior Brussel. Keuter. ^ LEIÐTOGAR hægriflokka um allan heim sendu í gær hamingjuósk- ir til Johns Majors forsætisráðherra Bretlands. George Bush Banda- ríkjaforseti sagði sigur hans vera „verulegan og frábæran". Paul Schliiter, forsætisráðherra Danmerkur, sagði hinn sannfærandi kosningasigur Majors gera það að verkum að hann gæti fest sig í sessi og haldið áfram að auka við þann árangur sem náðst hefði í þrettán ára stjórnartíð Ihaldsflokksins. bót á tímum mikillar óvissu á al- þjóðavettvangi og erfiðra verkefna í efnahagsmálum heimsins. Þetta er verðskuldaður heiður fyrir þig og hvatning til allra okkar sem berum sömu hiigsjónir í bijósti." í bréfi sínu þéraði Kohl ekki Major, eins og siður er þegar full- orðið fólk sem ekki þekkist mjög náið talar saman eða skrifast á, heldur notaði hið kumpánlega „Du“ líkt og góðir vinir gera. Engar opinberar yfirlýsingar voru gefnar út af frönskum stjórn- málamönnUm framan af degi en hið áhrifamikla dagblað Le Monde sagði í leiðara að sigur Majors væri náðarhögg á vonir allra þeirra, ekki bara vinstri manna, sem höfðu talið að Bretland væri „undir breyt- ingar búið“. Innan Evrópubandalagsins töldu margir líklegt að kosningasigur íhaldsmanna myndi auðvelda þeim að gera málamiðlanir í Evrópumál- um við önnur aðildarríki. „Eg held að Bretar verði raunsærri hvað Evrópu varðar," sagði Mark Eys- kens, fyrrum utanríkismálaráð- herra Belgíu. Samkvæmt heimild- um Reuíers-fréttastofunnar gætti þó einhveijar gremju í höfuðstöðv- um Evrópubandalagsins í Brussel þar sem margir vonuðust eftir því að ríkisstjórn undir forystu Verka- mannaflokksins myndi undirrita hinn félagslega sáttamála EB sem hin aðildarríkin ellefu undirrituðu í Maastricht í desember. ------♦----------- Major jafn- aði metið frá 1822 MEÐ kosningasigrinum á fimmtu- dag vann breski íhaldsflokkurinn sinn fjórða sigur í röð og eins og komið hefur fram, hefur það ekki gerst í 170 ár eða síðan 1822. Þá var það raunar ekki Ihaldsflokk- urinn, sem átti í hlut, heldur Whig- flokkurinn, sem svo var kallaður, og þá undir forystu Liverpools lávarðar. Flokkaskipan í Bretlandi var með nokkuð öðrum hætti á fyrrihluta síð- ustu aldar en nú er. Þá tókust á annars vegar „Whigs“, sem lögðu áherslu á aukin völd þingsins, og hins vegar „Tories", sem voru mál- svarar krúnu og kirkju og arfbund- inna forréttinda. íhaldsflokkurinn kemur fyrst til sögunnar 1830 en löngum var litið á hann sem arftaka „toryanna“ og það nafn hefur loðað við hann allt fram á þennan dag. Frá því fyrir aldamótin 1800 og nokkuð fram eftir síðustu öld voru „whiggarnir" ráðandi flokkur á Bret- landi og oft undir forystu mikilla skörunga, til dæmis Williams Pitts yngra. Hann varð forsætisráðherra 1783 og innanríkisráðherra hans á árunum 1804-06 var Robert Banks Jenkinson, lávarður og jarl af Liv- erpool. Þegar Pitt lést 1806 var Liv- erpool lávarði boðið að taka við af honum en hann hafnaði því. Hann var svo innanríkisráðherra 1807-09 í stjórn Portlands lávarðar og her- mála- og nýlendumálaráðherra 1809-12 í stjórn Spencers Percevals. Hann tók við sem forsætisráðherra af Perceval látnum 1812 og leiddi flokk sinn til sigurs í fjórða sinn í röð 1822. Liverpool lávarður var for- sætisráðherra frá 1812-27 eða í 15 ár. Leikkonan Glenda Jackson fagnar sigri í sínu kjördæmi í London. Sætur signr eða vonbrigði á kosninganótt: Carl Bildt, forsætisráðherra Sví- þjóðar, óskaði Major til hamingju og sagði sigur hans vera tákn um vaxandi kreppu evrópsks sósíal- isma. „John Major forsætisráðherra hefur leitt íhaldsflokkinn á mjög aðdáunarverðan hátt til ijórða kosn- ingasigurs síns í röð. Sigur íhalds- manna er mjög mikilvægur áfangi, jafnt fyrir hann persónulega sem þá stefnu sem hann og flokkurinn standa fyrir," sagði Bildt. Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, fagnaði einnig sigri Majors og sagði hann gleðitíðindi fyrir skoðanabræður íhaldsmanna um allan heim. í bréfi sem Kohl ritaði á þýsku til Májors sagði m.a.: „Breska þjóðin hefur treyst þér fyr- ir því að leiða hana í fimm ár í við- Formaður íhaldsflokksins og sjö ráðherrar duttu út London. keuter. LEIÐTOGAR stóru , flokkanna þriggja í Bretlandi unnu allir mik- inn sigur í sínum kjördæmum en sumir aðrir frammámenn máttu bíta í það súra epli að vera ekki endurkjörnir. Ber þar hæst Chris Patten, sem er formaður íhalds- flokksins þótt John Major sé leið- toginn, og Gerry Adams, leiðtoga stjórnmálaarms írska lýðveldis- hersins, IRA. Á móti kemur, að í þingliðinu eru nú ýmis ný nöfn en þó kunn af öðrum vettvangi. Þótt íhaldsflokkurinn ynni góðan varnarsigur fækkaði þingmönnum hans og er John Major forsætisráð- heira vafalaust mest eftirsjá í Chris Patten. Hann er formaður fiokksins eins og fyrr segir og á sæti í ríkis- stjórninni og hann stjórnaði kosn- ingabaráttunni frá London auk þess að beijast fyrir sjálfan sig í sínu kjör- dæmi. Kann það að vera skýringin á því, að hann beið lægri hlut fyrir frambjóðanda Fijálslyndra demó- krata en pólitískum ferli hans er samt ekki lokið. Talið er víst, að honum verði úthlutað öruggt þing- sæti í einhveijum aukakosningum síðar. Fyrir utan Patten misstu íhalds- menn sjö ráðherra, sem þó sitja ekki í sjálfri ríkisstjórninni, en kunnasti nýi maðurinn í þeirra röðum er fyrr- um ólympíumeistari, hlauparinn kunni, Sebastian Coe. Vann hann sigur í Falmouth í Suðvestur-Eng- landi. Kunnasti nýliðinn hjá Verka- mannaflokknum er hins vegar leik- konan og Oskarsverðlaunahafinn Glenda Jackson, sem vann sæti af íhaldsflokknum í Hampstead and Highgate í London. Þá má nefna, að Edward Heath, fyrrum forsætis- Hvers vegna brugðust skoðanakannanirnar? London. Reuter. ÚRSLIT bresku þingkosninganna voru töluvert á skjön við það sem búast hefði mátt við miðað við niðurstöður skoðanakannana síðustu vikna. Kannanir degi fyrir kosningar sýndu mjög jafna stöðu flokk- anna og jafnvel þær skoðanakannanir sem gerðar voru á kjörstöðum bentu til hnífjafnra úrslita. Raunin varð hins vegar allt önnur. Hvern- ig stendur eiginlega á þessu? er spurning sem margir spurðu í gær og beindu spjótum sínum að skoðanakönnuðum. Fulltrúar þeirra stofnana sem helst hafa framkvæmt skoðanakann- anir segjast sjálfir vera mjög hissa. „Þetta er mjög neyðarlegt. Á því leik- ur enginn vafí,“ sagði Nick Moon, einn yfirmanna National Opinion Polls og bætti við að hugsanlega hefðu menn gert kannanimar á röng- um stöðum. Alan Terry, hjá MORI- fyrirtækinu, sagði hins vegar að hugsanlega hefðu tillögur Verka- mannaflokksins um allt að 19% skattahækkanir hrætt kjósendur. „Þegar þeir stóðu loks í kjörklefan- um, með blýantinn í hendinni, getur verið að tilhugsuninni um aukna skatta hafi skotið upp í huga þeirra,“ sagði hann. Patrick Dunleavy, prófessor við London School of Economics, segir þetta vera vel hugsanlega skýringu. „Breytingin gætí-tókstaflega hafa átt sér stað á síðustu stundu. Það er vel hugsanlegt að fyrri kannanir um mikið fylgi Verkamannaflokksins hafi verið réttar.“ Hann benti einnig á að íhaldsmenn hefðu haldið því fram alla kosningabaráttuna að fylgi þeirra væri vanmetið í könnunum. „Ég held að við verðum að kanna mjög ítarlega hvar fylgi Ihaldsflokks- ins var að finna,“ sagði prófessorinn. Þá hefðu síðustu kannanir réttilega bent til þess að fylgissveifla væri að eiga sér stað. Það útskýrði hins veg- ar ekki hvers vegna kannanirnar á kjörstað hefðu verið eins misvísandi og raunin varð. Nokkur fyrirtæki eru nú að gera skoðanakannanir þar sem stuðst er við sama úrtakið og í könnun fyrir kosningar. Er markmiðið að kanna hvort, og þá hvenær og hvers vegna, kjósendur skiptu um skoðun. ráðherra Ihaldsflokksins, var endur- kjörinn en hann er nú 75 ára að aldri. Hefur hann setið lengst á þingi núlif- andi breskra þingmanna eða frá 1950. Mikla athygli hefur vakið ósigur Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA, á Norður- írlandi. Það var hófsamur maður, Joe Hendron, frambjóðandi Sósíaldemó- kratíska verkamannaflokksins, sem bar sigurorð af honum og þykja úr- slitin sýna vaxandi andúð kaþólskra manna á starfsemi IRA. Ashdown vonsvikinn Reuter Paddy Ashdown, formaður Fijálslyndra demókrata, var að vonum ekki ánægður með kosningaúrslitin. Fijálslyndir unnu ekki þann sig- ur sem þeim hafði verið spáð og misstu þingmenn. Ashdown sagði að núverandi kosningakerfi hefði komið í veg fyrir að breska þjóðin fengi þau úrslit sem hún vildi, en núverandi meirihlutakerfi er smá- flokkum mjög óhagstætt. „Ég held að marga Breta hryili við því að 60% kjósenda greiddu atkvæði gegn þeirri ríkisstjórn sem við fengum," sagði Ashdown og bætti við að óhjákvæmilegt væri að Verkamannaflokkurinn styddi héðan í frá kröfuna um hlutfallskosn- ingar. Á myndinni má sjá Paddy Ashdown ásamt eiginkonu sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.